Morgunblaðið - 27.02.2007, Page 45

Morgunblaðið - 27.02.2007, Page 45
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 27. FEBRÚAR 2007 45 dægradvöl Staðan kom upp á ofurmótinu Mor- elia/Linares sem stendur nú yfir. Ar- menski stórmeistarinn Levon Aronj- an (2.744) hafði hvítt gegn Vishy Anand (2.779) frá Indlandi. Armeninn fann leið til að virkja frípeð sín til sigurs. 38. Kf1! Rd2+ 39. Ke1 Rxb1 40. a6! þó að hvítur sé tveim mönnum undir stendur hann til vinnings. Framhaldið varð: 40. … Bc6 41. a7 Kf7 42. d7! Ke7 43. Hxf8 Kxd7 44. a8=D Bxa8 45. Hxa8 h5 46. Ha7+ Ke6 47. Hxg7 Kf5 48. Hg3 og svartur gafst upp. SKÁK Helgi Áss Grétarsson | ritstjorn@mbl.is Hvítur á leik. Vanhugsað útspil. Norður ♠KD93 ♥D105 ♦G92 ♣652 Vestur Austur ♠G1082 ♠654 ♥86 ♥KG9432 ♦ÁK74 ♦1083 ♣D94 ♣G Suður ♠Á7 ♥Á7 ♦D65 ♣ÁK10872 Suður spilar 3G. Tyllum okkur í vestur. Það er eng- inn á hættu og makker opnar á tveim- ur hjörtum, veikum. Suður lítur til lofts, en finnur þar engin svör og stekkur í þrjú grönd. Viltu dobla? Spilið er frá tvímenningi Bridshátíðar og á einu borði doblaði vestur. Sem var út af fyrir sig í lagi, allt þar til hann kom út með spaðagosann: Sagn- hafi drap heima, fríaði laufið og tók tíu slagi. Útspilið var vanhugsað, því vestur má vita að suður á langan lauf- lit og því verður sennilega að hafa snör handtök í vörninni. Besta útspilið hlýtur að vera tígulás. Austur vísar frá og þá skiptir vestur yfir í hjarta- áttu. Sagnhafi neyðist til að dúkka slag á hjarta til að slíta þar samgang- inn, en þá klárar austur verkið með því að skipta aftur yfir í tígul. BRIDS Guðmundur Páll Arnarson | ritstjorn@mbl.is Sudoku Miðstig Lausnir síðustu Sudoku Lausn, ábendingar og tölvuforrit á www.sudoku.com Frumstig Miðstig Efstastig Frumstig © Puzzles by Pappocom Þrautin felst í því að fylla út í reitina þannig að í hverjum 3x3-reit birtist tölurnar 1-9. Það verður að gerast þannig að hver níu reita lína bæði lárétt og lóðrétt birti einnig tölurnar 1-9 og aldrei má tvítaka neina tölu í röðinni. Efstastig Krossgáta Lárétt | 1 mánuður, 8 fal- legur, 9 skólagangan, 10 nöldur, 11 horaðar, 13 vesælar, 15 sterts, 18 karldýr, 21 stök, 22 dökk, 23 kjánum, 24 ómerki- legt. Lóðrétt | 2 bleytukrap, 3 hreinar, 4 spilla um- hverfi, 5 gufusjóðum, 6 mjög, 7 fugl, 12 kraftur, 14 dveljast, 15 ský, 16 mjó, 17 létu, 18 stólkoll, 19 geðsleg, 20 lofa. Lausn síðustu krossgátu Lárétt: 1 slaga, 4 fullt, 7 afrit, 8 niðra, 9 inn, 11 gekk, 13 Erna, 14 ertur, 15 spor, 17 roks, 20 arg, 22 kokks, 23 urðar, 24 senna, 25 lynda. Lóðrétt: 1 slang, 2 afrak, 3 atti, 4 fönn, 5 lýður, 6 tjara, 10 notar, 12 ker, 13 err, 15 sekks, 16 orkan, 18 orðan, 19 syrpa, 20 asna, 21 gull. 6 8 11 15 22 1 24 12 3 10 17 21 4 9 13 18 23 14 5 19 7 20 2 16 1 Vin Diesel er í aðalhlutverki íkvikmynd sem hann að verða tekin hér á landi. Hvað heitir mynd- in? 2 Íslenskur vísindamaður hefurfengið risastyrk frá Heilbrigð- isstofnun Bandaríkjanna. Hvað heitir hann? 3 Ronja ræningadóttir náði merk-um áfanga í sýningafjölda um helgina. Hversu oft hefur leikrið verið sýnt í Borgarleikhúsinu? 4 Samfylkingarfólk hefur valið sérnýjan formann Kvennahreyf- ingar flokksins. Hver er það? Svör við spurningum gærdagsins: 1. Merk bílategund á fimmtudagsafmæli um þessar mundir. Hvaða bílategund? Svar. Trabant. 2. Tvær ungar konur voru fyrsta til að dæma saman leik í efstu deild kvenna en í hvaða grein? Svar: Körfuknatt- leik. 3. Femínistar hafa látið mjög til sín taka undanfarið, m.a. á baráttunni gegn ráðstefnu klámfarmleiðenda hér á landi. Hver er talskona Femínistafélags Ís- lands? Svar: Katrín Anna Guðmunds- dóttir. 4. DV er tekið að koma aftur út sem dagblað. Hver er formaður útgáfufélags þess? Svar: Hreinn Loftsson. Spurt er… ritstjorn@mbl.is    ÞAÐ var mikið ævintýri að hlusta á tríó Alex Riel á 10 ára afmæl- ishátíð Múlans um helgina og ekki var verra að einn fremsti djass- leikari Íslands, Jón Páll Bjarna- son, lék með í seinna setti föstu- dagstónleikanna. Það er 41 ár síðan Alex kom hér fyrst og lék með Íslendingum í Tjarnarbúð, og hann hefur auk þess hljóðritað með tveimur löndum; Birni Thor- oddsen á plötu hans Quartet frá 1988 og Eyþóri Gunnarssyni á The Reykjavik Recordings Ben- jamis Koppels frá 2005. Fyrri tón- leikarnir hófust á „Yesterdays“ eftir Jerome Kern þar sem hinn ungi píanisti Heine Hansen sýndi að hann þekkir djasssöguna út og inn; síðan fylgdu hin ólíkustu lög allt frá latínskotnum „Nature Boy“ til húmorískrar blöndu á þemanu úr myndum Steina og Olla og „The Way You Look To- night“. Tríóið hefur fullt vald á galdri sveiflunnar og Heine er geysilega efnilegur píanisti þótt stíll hans sé kannski ekki fullmót- aður; áslátturinn er léttur og hann raðaði stundum inn blokkhljómum einsog í „All The Things You Are“ á laugardagskvöldinu eða bregður fyrir sig stríðshljómum a la Don Pullen. Yfirleitt er hann þó á hefð- bundnari línu og átti seiðandi lag á efnisskrá tríósins: 100 m Spurt. með petersonískri bíboppsveiflu. Jesper Lundgaard var með Ya- maha-plötubassa, ekki óáþekkan þeim sem Jón Rafnsson leikur á, segist vera búinn að gefast upp á að ferðast með kontrann, það séu eilíf slagsmál við flugfélögin. Tónninn kom á óvart, breiður og voldugur, og í sumum sólóunum var hann dramatískur eins og Mingus. Alex sannaði enn snilld sína. Músíkalskari trommusláttur er vandfundinn og sólóar hans alltaf vel uppbyggðir og sér í lagi var hann magnaður í gamla Stone slagaranum: „Idaho“ þar sem hann þyrlaði eins og sá sem valdið hefur. Burstaleikur hans er frá- bær, sveiflan leikandi og alltaf styður hann einleikarann eins og best verður á kosið. Jón Páll Bjarnason, helsti bíboppleikari ís- leskrar djasssögu, lék með tríóinu eftir hlé á föstudagkvöld. Þeir fé- lagar hófu leikinn með „I Rem- ember You“ og síðan verk eftir Charlie Parker, „Anthropology“. Jón fór næmum höndum um „A Nightingal Sang in Berkeley Square“. „How Deep is The Ocean“ var litað blúsuðum nótum og svígriffum, „All The Things You Are“ var leikið með tilþrifum og lokalagið var „Smile“ Chaplins og fór brosið hvorki af hlust- endum né hljóðfæraleikurum, lag- ið var svo undurfallega spilað. Jesper Lundgaard sagði eftir tón- leikana að stundum væru heima- menn að leika sem gestir með tríóinu; flestir með alla tækni á hreinu en snillin fjarri. Jón Páll væri annarrar gerðar; gítaristi sem setja mætti í flokk með Jimmy Raney. Djassvinafagnaður DJASS Múlinn á DOMO Heine Hansen píanó, Jesper Lundgaard bassa og Alex Riel trommur. Gestaleikari á föstudagskvöld: Jón Páll Bjarnason gít- ar. Föstu- og laugardagskvöld 23. og 24. februar 2007. Tríó Alex Riel Guðmundur Albertsson Snillingur „Alex sannaði enn snilld sína. Músíkalskari trommusláttur er vandfundinn og sólóar hans alltaf vel uppbyggðir,“ segir m.a. í dómi. Vernharður Linnet

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.