Morgunblaðið - 01.03.2007, Side 1

Morgunblaðið - 01.03.2007, Side 1
Eftir Elvu Björk Sverrisdóttur elva@mbl.is ÁRNI M. Mathiesen fjármálaráð- herra segist hafa trú á því að kaup- menn hafi metnað til þess að láta lækkanir, sem í dag verða á virðis- aukaskatti á matvælum, skila sér til neytenda. „Ég byggi það á fyrri reynslu. Þegar við höfum gert svona hluti þá hefur það gengið eftir,“ segir Árni. Flest matvæli báru þar til í dag 14% virðisaukaskatt, en á nokkrum vörutegundum var hann 24,5%. Skatturinn hefur nú verið lækkaður í 7%. Þetta þýðir að dós af skyri sem kostaði í gær 222 krónur í Hagkaupi í Kringlunni kostar í dag 208 krónur í sömu verslun. Lítri af appelsínu- safa sem kostaði 154 krónur í gær, kostar 132 krónur í dag. Pakki af sal- ernispappír sem kostaði 695 krónur í gær hefur hins vegar ekki lækkað í verði, enda lækkar virðisaukaskatt- ur á slíkum nauðsynjavörum ekki. Auk lækkunar virðisaukaskatts hafa vörugjöld af matvælum verið felld niður, en væntanlega mun nokkur tími líða þar til sú lækkun skilar sér að fullu til neytenda þar sem innflytjendur eiga sumir hverjir vörur á lager sem þegar hafa verið greidd gjöld af. Fjármálaráðherra segir að nái lækkanir ekki að festa sig í sessi sé það til marks um að samkeppni sé ekki nægjanleg. „Þá er það auðvitað hlutverk stjórnvalda að gera það sem þau geta gert til þess að auka samkeppnina. En auðvitað eru það bæði kaupendur og seljendur sem eru á þessum markaði,“ segir Árni. Kaupendur þurfi að taka þátt í því að mynda aðhald á markaðnum. Matur hefur hækkað mikið undanfarið „Maður kaupir það sem þarf og vonar að það verði ódýrara,“ segir Íris Bjarnadóttir, en Morgunblaðið ræddi við hana þar sem hún var við innkaup í verslun Krónunnar á Bíldshöfða í gær. Hún segist þegar vera farin að finna að verð hafi lækk- að, en sem kunnugt er lækkuðu verslanir Bónuss og Krónunnar virð- isaukaskatt á mat í 7% síðastliðinn föstudag. Daniela Gunnarsson, sem var stödd í verslun Hagkaupa í Kringl- unni í gær, hefur ekki trú á að fólk eigi eftir að finna mikið fyrir verð- lækkunum nú, enda hafi miklar hækkanir átt sér stað síðustu mán- uði. „Matur hefur hækkað rosalega mikið í verði frá því í desember og þar til núna,“ segir hún. | Miðopna Treysti því að kaup- menn lækki verðið  Virðisaukaskattur á matvælum lækkar í dag úr 24,5% eða 14% í 7%  Stjórnvöld skoða leiðir til að auka samkeppni ef lækkunin skilar sér ekki  Sumir neytendur telja sig hafa fundið fyrir hækkunum undanfarnar vikur Morgunblaðið/ÞÖK Verðbreytingar Starfsfólk verslana var önnum kafið í gær við að breyta verði á matvörum. Víða var unnið langt fram á nótt. Lækkar Verð á mjólkurvörum lækkar í dag. Dæmi um þetta er dós af skyri, sem kostaði í gær 222 krónur, en kostar í dag 208 krónur. FRÉTTASKÝRING Eftir Silju Björk Huldudóttur silja@mbl.is SALAN á málverkinu Hvítasunnudegi eft- ir Jóhannes Kjarval sl. þriðjudag var ekki aðeins tímamótasala á verki gamla meist- arans heldur tímamótasala sem líklegt er að muni hafa víðtæk áhrif á listaverka- markaðinn hérlendis. Þetta er mat þeirra sérfræðinga sem Morgunblaðið leitaði til í gær. Í þeim hópi voru m.a. Edda Jóns- dóttir, galleristi í i8, Sveinn Þórhallsson, galleristi í Turpentine, og Tryggvi Frið- riksson, annar eigandi Gallerís Foldar. Öll voru þau mjög bjartsýn á þróun mark- aðarins framundan. Allir álitsgjafar blaðsins voru á einu máli um að íslenski listaverkamarkaðurinn hefði tekið sérlega vel við sér á sl. tveimur árum. Tengja viðmælendur það annars vegar aukinni velmegun og hins vegar því að fólk virðist hafa endurheimt traust sitt á listaverkamarkaðnum. Eins og kunnugt er hafði stóra mál- verkafölsunarmálið svonefnda, sem upp kom árið 1997, þau áhrif að listaverka- markaðurinn lenti í mikilli lægð. Tryggvi lýsir ástandinu sem svo að markaðurinn hafi „verið í gíslingu í átta ár“. Ekki voru þó allir viðmælendur sammála um hvaða áhrif málið hefði haft á sölu samtíma- listaverka. Þannig héldu sumir því fram að þau verk hefðu liðið fyrir fölsunarmálið en aðrir töldu að athygli kaupenda hefði eðli- lega beinst í meira mæli að núlifandi lista- mönnum. Má í því samhengi benda á að hjá vinsælustu núlifandi listamönnum landsins, þeirra á meðal Húbert Nóa Jó- hannessyni og Eggerti Péturssyni, er langur biðlisti eftir nýjum verkum, sem er nokkurt nýmæli hérlendis. Eðlilegt verð loks að þróast Álitsgjafar voru sammála um að eitt helsta veikleikamerki íslenska listaverka- markaðarins væri það að ekki reyndist nægjanlegur verðmunur annars vegar á verkum yngri og óreyndari listamanna og hins vegar verkum eldra og reyndara listafólks, sem svo aftur hefði haft þau áhrif að „eðlilegt verð hefði ekki myndast hérlendis“. Töldu viðmælendur blaða- manns þó að þetta væri smám saman að breytast. Hvað verð áhrærir fara góð málverk gömlu meistaranna á um þrjár og allt upp í fimm milljónir króna. Málverk núlifandi listamanna eru á allt frá 200 þús. kr. upp í nokkrar milljónir. Þannig má sem dæmi nefna að verk eftir Húbert Nóa fara á um 800 þús. kr., málverk eftir Kristján Dav- íðsson geta farið á eina milljón króna og málverk eftir Eggert á sex millj. kr., svo fáein dæmi séu nefnd. Kristján Davíðsson Eggert Pétursson Traustið endurheimt Húbert Nói Jóhannesson  Dómur um Hvítasunnudag | 4  Verk Svavars Guðnasonar vinsæl | 4 STOFNAÐ 1913 59. TBL. 95. ÁRG. FIMMTUDAGUR 1. MARS 2007 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS mbl.is Framtíðin er í okkar höndum ÚTVISTUN - allra hagur sem fram fer í dag í Íþrótta- og sýningarhöllinni í Laugardal frá 13:00 til 15:00 Minnum á ráðstefnuna Ráðstefnan er haldin í samvinnu við Ríkiskaup og ráðuneyti fjármála, iðnaðar og viðskipta og fjallar um ávinning að útvistun verkefna og þróun opinberra innkaupa. Ráðstefnan er opin og aðgangur ókeypis. Tekið er við skráningum á www.si.is Samtök upplýsinga- tæknifyrirtækja Samstarfsaðilar um: ÓÞOLANDI BARN ÁTTUNDABEKKINGAR EIGNAST UNG- BARN EINA HELGI TIL FORVARNAR >> 20 GAMALDAGS UNG- MENNAHLJÓMSVEIT AÐKOMUMENN KEPPNI Í EYJUM >> 41 GYLFI Baldursson heyrn- arfræðingur lét útbúa síu til að útiloka svifryk frá svefnherbergi sínu. Hann hefur lengi haft skerta lungnastarfsemi og segist finna greinilega á líðan sinni þegar svifrykið eykst í andrúmsloftinu. Allir lungnasjúklingar hafi svip- aða sögu að segja. Gylfa þykir ekki nærri nóg gert til að berjast gegn og koma í veg fyrir þessa mengun sem rýrir lífsgæði fjölda fólks og styttir jafnvel aldur þess. Þegar þetta sé farið að koma niður á litlum börnum sé spurning hvort ekki eigi að eyða meiri fjármunum í fyrirbyggjandi ráðstaf- anir gegn svifryksmenguninni. | Miðopna Sía Mikið sót barst inn um herbergis- gluggann áður en sían var sett fyrir. Morgunblaðið/ÞÖK Svifrykssía í glugganum Sama verð hér og á hinum Norðurlöndunum?  Stjórnvöld vonast eftir að með aðgerðunum náist það markmið að matvælaverð hér á landi verði svipað og á hinum Norðurlöndunum. » Miðopna

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.