Morgunblaðið - 01.03.2007, Blaðsíða 41
Eftir Jóhann Bjarna Kolbeinsson
jbk@mbl.is
„ÞETTA var mjög góð keppni, vel
að henni staðið og flott umgjörð,“
segir Guðmundur Geir Jónsson,
bassaleikari hljómsveitarinnar
These Days sem bar sigur úr býtum
í hljómsveitakeppninni Allra veðra
von sem fór fram í Vestmannaeyjum
þann 17. febrúar. Tíu hljómsveitir
tóku þátt í keppninni, níu frá Vest-
mannaeyjum, og svo These Days
sem er frá Selfossi. Aðspurður segir
Guðmundur hinar hljómsveitirnar
ekki hafa verið neitt sérstaklega fúl-
ar þegar utanbæjarmenn stálu sigr-
inum. „Nei nei, ég held ekki. Mér
fannst það allavega ekki á við-
stöddum. Það var fullt af góðum
hljómsveitum þarna og við bjugg-
umst ekkert við þessu. Við vorum
ekki einu sinni vissir um að þetta
væri keppni þegar við komum þang-
að, við ætluðum bara að fara til Vest-
mannaeyja til að spila og skemmta
okkur aðeins saman,“ segir hann. Í
verðlaun fær hljómsveitin umfjöllun
í Rokklandi á Rás 2, auk þriggja
tíma í hljóðveri rásarinnar. Þá segir
Guðmundur líklegt að sveitin muni
spila á Þjóðhátíð í Vestmannaeyjum.
Langar að spila meira
These Days skipa þeir Magnús
Einarsson trommuleikari, Bjarni
Ævar Árnason hljómborðsleikari,
Hörður Vídalín Magnússon sem
leikur á gítar, Ólafur Jóhann Braga-
son söngvari auk Guðmundar bassa-
leikara. „Við byrjuðum fyrir rúmu
ári en eins og sveitin er skipuð í dag
hefur hún spilað í um þrjá mánuði,“
segir hann. „Söngvarinn og gít-
arleikarinn eru ekki orðnir 17 ára,
trommuleikarinn er á 18. ári og svo
erum við hljómborðsleikarinn að
verða tvítugir.“ Guðmundur segir
tónlist þeirra félaga vera mjög í
anda Pink Floyd, Deep Purple og
Led Zeppelin. „Við byrjuðum sem
ábreiðuhljómsveit fyrir þessar
gömlu hljómsveitir og okkur langaði
að halda í þá strauma, og þannig
kemur nafnið til því ég held að við
séum frekar gamaldags að einhverju
leyti,“ segir Guðmundur, en bætir
við að þeir séu þó farnir að einbeita
sér að eigin tónsmíðum.
Guðmundur segir að þeir hafi
fengið góða aðstoð frá Gunnari
Bjarna Ragnarssyni, forsprakka Jet
Black Joe, sem hafi hjálpað þeim að
koma sér af stað. „Þeir komu og
spiluðu fyrir svona hálfu ári á Sel-
fossi, og við komum okkur í sam-
band við hann, enda frábær tónlist-
armaður. Við ákváðum bara að leita
ráða hjá honum því þeir voru í svip-
aðri stöðu og við á sínum tíma, ungir
að reyna að koma sér á framfæri,“
segir Guðmundur, en á MySpace
síðu sveitarinnar kemur fram að Jet
Black Joe er einn af áhrifavöldum
hennar. „Við erum með svona Ham-
mond-orgel áhrif sem má rekja til
Jet Black Joe, og reyndar Deep
Purple líka.“
Auk Þjóðhátíðar segir Guð-
mundur hugsanlegt að These Days
spili á Aldrei fór ég suður – Rokkhá-
tíð alþýðunnar sem haldin verður á
Ísafirði um páskana. Þá segir hann
að þá langi mikið til að spila í höf-
uðborginni, þar sem þeir hafa aldrei
spilað. „Okkur langar að fara að
spila sem mest og erum bara að leita
að stöðum,“ segir hann að lokum.
Morgunblaðið/Brynjar Gauti
Undir áhrifum Guðmundur segir sveitir á borð við Pink Floyd, Deep Purple og Led Zeppelin helstu áhrifavaldana.
Gamaldags
ungmennasveit
www.myspace.com/
thesedaysonline
staðurstund
Jóhann Bjarni Kolbeinsson rit-
ar um Óskarsverðlaunahafann
Forest Whitaker, ævi hans og
kvikmyndaferil. » 42
af listum
Diskur með öllum lögunum 24
sem tóku þátt í Söngvakeppni
Sjónvarpsins 2007 situr í
fyrsta sæti Tónlistans. » 43
tónlistinn
Þóra Þórisdóttir gagnrýnir sýn-
ingu Péturs Arnar Friðriks-
sonar og Helga Hjaltalín í Gall-
eríi Kling og Bang. » 45
dómur
Hljómsveitin Roof Tops, sem
var stofnuð 1968, hefur komið
saman á ný og mun spila á
Kringlukránni um helgina. » 51
tónlist
Sjónvarpsþáttaröð verður gerð
um búferlaflutninga Viktoríu og
Davids Beckhams frá Evrópu til
Ameríku. » 48
fólk
|fimmtudagur|1. 3. 2007| mbl.is
VIÐURKENNING Hagþenkis, fé-
lags höfunda fræðirita og kennslu-
gagna, var afhent við hátíðlega at-
höfn í gær. Viðurkenninguna hlutu
Gunnar Jónsson, Jónbjörn Pálsson
og Jón Baldur Hlíðberg fyrir bók-
ina Íslenskir fiskar.
Hagþenkir hefur frá árinu 1986
veitt viðurkenningu fyrir fræðirit,
kennslugögn eða aðra miðlun
fræðilegs efnis til almennings og í
ár nam viðurkenningin 750.000 kr.
auk þess sem verðlaunahafarnir
fengu viðurkenningarskjal.
Krydduð kímni
Í umsögn Viðurkenningarráðs
Hagþenkis segir um bókina Ís-
lenskir fiskar að hún sé unnin af fá-
gætri alúð og vandvirkni. „Bókin
Íslenskir fiskar er þaulunnin og
færir okkur fjölþættan fróðleik um
fiska, einkenni þeirra, flokkun og
ferðir um höf og vötn. Fjallað er
um vel á fjórða hundrað tegundir,
með ítarlegri lýsingu, kortum og
greinargerð um heimkynni þeirra
auk fróðleiks um nytjar af þeim og
hvar og hvenær hinir fágætustu
hafa veiðst við landið. Einstaklega
vel gerðar myndir Jóns Baldurs
Hlíðberg og hinn víðtæki fróðleikur
vekja áhuga ungra sem aldinna.
Textinn er vel skrifaður og að-
gengilegur og stundum kryddaður
hæfilegri kímni,“ segir í umsögn-
inni, auk þess sem í sérstakri álykt-
un er sagt að viðurkenninguna fái
höfundarnir fyrir að hafa dregið
nytjaskepnur og furðukvikindi úr
sjó og upp á bókasíður, með snilld-
arlegum myndum og ljósu máli.
Í Viðurkenningarráði Hagþenkis
eiga sæti fimm fulltrúar skipaðir af
stjórn félagsins til tveggja ára í
senn. Nú skipa ráðið: Ragnheiður
Margrét Guðmundsdóttir, ís-
lenskufræðingur, Allyson Macdo-
nald uppeldisfræðingur, Árni
Hjartarson, jarðfræðingur, Sigríð-
ur Matthíasdóttir, sagnfræðingur
og Viðar Hreinsson bókmennta-
fræðingur.
Bókin Íslenskir fiskar hlaut Viðurkenningu Hagþenkis 2007 sem afhent var í gær
Fjölþættur fróð-
leikur um fiska
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Verðlaunahafar Gunnar Jónsson, Jónbjörn Pálsson og Jón Baldur Hlíðberg taka við Viðurkenningu Hagþenkis.