Morgunblaðið - 01.03.2007, Blaðsíða 14
14 FIMMTUDAGUR 1. MARS 2007 MORGUNBLAÐIÐ
ÚR VERINU
LAGT hefur verið fram frumvarp á
Alþingi um breytingar á starfsemi
Verðlagsstofu skiptaverðs. Tilgang-
ur frumvarpsins er að kveða skýr-
ar á um heimildir Verðlagsstofu
skiptaverðs til að hafa eftirlit með
því að útgerðir geri upp við áhafnir
í samræmi við gerða samninga um
fiskverð til viðmiðunar hlutaskipt-
um. Jafnframt að veita stofunni
virkari úrræði til að bregðast við
séu þeir samningar ekki haldnir.
Verðlagsstofa skiptaverðs hefur
víðtækar heimildir til að krefjast
upplýsinga og gagna til að sinna
hlutverki sínu sem er að fylgjast
með fiskverði og uppgjöri á afla-
hlut sjómanna og stuðla að réttu og
eðlilegu uppgjöri á aflahlut sjó-
manna.
Mikilvægt eftirlit
Í athugasemdum með frumvarp-
inu segir meðal annars svo: „Mik-
ilvægur liður í því eftirliti er að
fylgjast með því að útgerðir láti
skipverja ekki taka þátt í kostnaði
af kaupum á veiðiheimildum, sbr. 1.
mgr. 1. gr. laga nr. 24/1986, um
skiptaverðmæti og greiðslumiðlun
innan sjávarútvegsins, með síðari
breytingum. Til að koma í veg fyrir
það er m.a. mælt svo fyrir í 3. mgr.
15. gr. laga nr. 116/2006, um stjórn
fiskveiða, að Fiskistofa skuli ekki
staðfesta flutning aflamarks nema
hún hafi fengið staðfestingu Verð-
lagsstofu skiptaverðs á því að fyrir
liggi samningur hlutaðeigandi út-
gerðar og áhafnar um fiskverð til
viðmiðunar hlutaskiptum, sem upp-
fyllir kröfur sem Verðlagsstofa
gerir samkvæmt ákvæðum laga nr.
13/1998.
Ekki nægilega virk úrræði
Til að fylgjast með því að útgerð-
armenn geri upp við áhafnir í sam-
ræmi við samninga hefur Verðlags-
stofa m.a. beitt úrtakskönnunum. Í
því hefur fólgist mikilvægt aðhald
fyrir þá sem hlut eiga að máli.
Nokkur brögð munu þó hafa verið
að því að útgerðir hafi ekki gert
upp við áhafnir í samræmi við
gerða samninga um fiskverð og
hefur Verðlagsstofa ekki haft
nægilega virk úrræði til að bregð-
ast við þegar slík mál hafa komið
upp. Það er því þörf á að Verðlags-
stofa leggi meiri áherslu á að fylgj-
ast með einstökum útgerðum, sem
ástæða er til að ætla að geri ekki
upp við áhafnir í samræmi við
samninga og fái jafnframt virkari
úrræði til að fylgja slíkum málum
eftir.
Lagafrumvarpi þessu er ætlað að
bæta úr þeirri þörf. Verði frum-
varpið að lögum mun Verðlagsstofu
ekki aðeins vera heimilt og skylt að
hafa eftirlit með að fullgildir samn-
ingar um fiskverð liggi fyrir heldur
ber henni jafnframt, eftir því sem
tilefni er til og mögulegt er, að
hafa eftirlit með og fylgja því eftir
að gert sé upp við skipverja sam-
kvæmt þeim samningum.“
Spornað gegn þátttöku
sjómanna í kvótakaupum
Nýtt frumvarp til laga bætir úrræði Verðlagsstofu skipta-
verðs til virks eftirlits með því að samningar séu virtir
Í HNOTSKURN
» Mikilvægur liður í því eft-irliti er að fylgjast með því
að útgerðir láti skipverja ekki
taka þátt í kostnaði af kaupum
á veiðiheimildum.
» Nokkur brögð munu hafaverið að því að útgerðir
hafi ekki gert upp við áhafnir í
samræmi við gerða samninga.
» Þörf er á því að Verðlags-stofa leggi meiri áherslu á
að fylgjast með einstökum út-
gerðum.
Morgunblaðið/Þorgeir
Sjávarútvegur Stefnt er að hertu
eftirliti með ólöglegri þátttöku sjó-
manna í kvótakaupum.MIKILL kraftur er nú í frystingu á
loðnu og hrognum hjá Loðnu-
vinnslunni á Fáskrúðsfirði, en sam-
tals hafa verið fryst um 2.600 tonn.
Unnið er á vöktum og eru afköst
góð og er fólk víða að í vinnslunni.
Í gær var verið er að landa úr
færeyska skipinu Finni Fríða um
1.800 tonnum og Saxaberg beið
löndunar með 700 tonn. Hoffell SU
80 var væntanlegt með sinn síðasta
farm á þessari vertíð um 1.100
tonn. Þá var færeyska kolmunna-
skipið Kalton væntanlegt með um
1.400 tonn af kolmunna, en áður
hafði Trándur í Götu landað 2.500
tonnum af kolmunna.
Loðnuvinnslan hefur tekið á
móti 19 þúsund tonnum sem að
mestu leyti hafa komið í febrúar.
Verið er að skipa út frosnum
loðnuafurðum svo nú eru mörg
járn í eldinum hjá starfsmönnum
Loðnuvinnslunnar.
Morgunblaðið/Albert Kemp
Loðnan Mikið annríki er nú við frystingu loðnuhrogna. Nótt er lögð við
dag til að ná sem mestu magni, enda markaðir mjög góðir.
Mörg járn í eldinum
hjá Loðnuvinnslunni
NORÐMENN hafa nú mælt 4,2 milljónir tonna af síld
við vesturströnd Noregs. Mælingarnar eru stundaðar
á veiðiskipinu Garðari. Dregið hefur verið á 21 tog-
stöð og útkoman sýnir að megnið af stofninum er ár-
gangurinn frá 2002. Yfir 50% síldarinnar eru hrygnd
og af 2002-árganginum eru 39% hrygnd. Hins vegar
eru eldri árgangar meira hrygndir eða um 70%
Yngri síldin virðist vera seinni til að hrygna, en
það er hefðbundinn gangur. Fyrir vikið er meira af
eldri síld í sýnum sem tekin eru lengra frá strönd-
inni, utan við hrygningarsvæðin. Síldin heldur sig á
fremur djúpu vatni, 200 til 400 metra dýpi og um 10
metra frá botni. Hún er dreifð yfir nóttina en í
litlum torfum á daginn. Því er erfitt að mæla hana á
nóttunni og líkist hegðun hennar þá meira kol-
munna.
Hafa mælt 4,2 milljónir tonna af síld
Aðalfundur SPRON verður haldinn
í Borgarleikhúsinu við Listabraut
í Reykjavík fimmtudaginn 8. mars
2007 og hefst hann kl. 16.15.
Komin er fram ósk um hlutfallskosningu til
stjórnarkjörs á aðalfundinum. Framboðslistum
skal skilað til stjórnar fyrir kl. 17.00 mánudaginn
5. mars á skrifstofu sparisjóðsins, Ármúla 13a.
Framboðslistum skulu fylgja meðmæli fimm
stofnfjáreigenda og samþykki frambjóðenda.
Aðgöngumiðar og atkvæðaseðlar verða afhentir
á fundarstað í fundarbyrjun.
Reykjavík, 1. mars 2007
Sparisjóðsstjórnin
Aðalfundur
SPRON 2007
A
R
G
U
S
/
0
7
-0
1
7
4
Sýnishorn á ótrúlegu verði
Listaverð kr. Útsöluverð kr.
Útivistarjakki 29.900 11.900
Barnaúlpa 8.900 3.900
Flíspeysa 12.900 6.900
Golfskór 12.900 3.900
Fótboltaskór 13.900 3.900
Brettabuxur 12.900 4.900
Einnig mikið úrval af: skíðafatnaði, útivistarfatnaði,
golffatnaði, íþróttafatnaði, brettafatnaði, golf- og
fótboltaskóm, barna- og unglingafatnaði.
Golfskór á snilldarverði.
Góður afsláttur af HiTec golfskóm.
Frábært úrval af góðum vetrarúlpum.
fyrir bæði börn og fullorðna.
Opnunartími
Fimmtudagur 1. mars kl. 14-20
Föstudagur 2. mars kl. 14-20
Laugardagur 3. mars kl. 10-18
Sunnudagur 4. mars kl. 11-17
Mánudagur 5. mars kl. 14-20
Heildsölu - lagerútsala
Gerðu frábær kaup á ZO-ON útivistarfatnaði
50-90% afsláttur!
Við rýmum til á lagernum vegna sumarlínu okkar sem kemur fljótlega
til landsins. Við seljum því eldri lager og sýnishorn á ótrúlegu verði.
Allar vörur á 50-90% afslætti!
Nýbýlavegi 18 - Kópavogur
Dalbrekkumegin
Fyrstur kemur - fyrstur fær!
Komið tímanlega því takmarkað magn er til af öllum vörum
1.-5. mars 2007