Morgunblaðið - 01.03.2007, Blaðsíða 42

Morgunblaðið - 01.03.2007, Blaðsíða 42
42 FIMMTUDAGUR 1. MARS 2007 MORGUNBLAÐIÐ Áæskuárum mínum sá égkvikmyndir eingöngu úraftursæti bifreiðar foreldra minna þegar við fórum í bílabíó. Aldrei datt mér í hug að ég myndi nokkurn tímann leika í kvikmynd, en þessi heiður sem mér er sýndur hér í kvöld segir mér að allt sé mögulegt. Það er ekkert ómögulegt fyrir strák sem kemur frá austur- hluta Texas og er alinn upp í South Central í LA – trúir á drauma sína, einbeitir sér að þeim og lætur þá rætast.    Þegar ég byrjaði að leika gerðiég það vegna þess að mig lang- aði til þess að hafa áhrif á fólk. Mig langaði til þess að tengjast þessu sem er innra með okkur öllum, þessu innra ljósi sem ég held að við búum öll yfir. Fyrir mér snýst leik- list um að trúa á þessa tengingu, og þessi tenging er svo sterk, og hún ristir svo djúpt, að við finnum öll fyrir henni. Og þannig getum við, í gegnum sameiginlega trú okkar, skapað nýjan veruleika.“    Eitthvað á þessa leið hljómaðiræða bandaríska leikarans Forests Whitakers þegar hann tók við Óskarsverðlaunum fyrir bestan leik í aðalhlutverki á sunnudaginn var, en ræða hans var sú langbesta þetta kvöld. Eins og fram hefur komið hlaut Whitaker verðlaunin fyrir túlkun sína á einræðisherr- anum Idi Amin í kvikmyndinni The Last King of Scotland.    Whitaker fæddist í Longview íTexas 15. júlí 1961 og er því 45 ára gamall. Hann greindist snemma með svokallað „latt auga“ sem hefur raunar verið vörumerki hans á hvíta tjaldinu frá upphafi leikferilsins. Fjölskylda hans flutt- ist til Los Angeles þegar Whitaker var enn ungur að árum, en þar gekk hann í skóla og náði meðal annars nokkuð langt með há- skólaliði sínu í amerískum fótbolta. Hann þurfti hins vegar að leggja skóna á hilluna vegna meiðsla og sneri sér þá að tón- og leiklist- arnámi, sem hann lauk árið 1982.    Honum reyndust hæg heimatök-in í sinni fyrstu kvikmynd, Fast Times at Ridgemont High frá árinu 1982, en þar lék hann fót- boltakappa ásamt þeim Nicolas Cage og Sean Penn. Whitaker lék svo lítil hlutverk í The Color of Mo- ney (1986) og Stakeout (1987) en fékk bitastæð hlutverk í Good Morning Vietnam (1987) og í hinni mögnuðu Platoon (1986) þar sem hann vakti fyrst verulega athygli. Honum skaut svo endanlega upp á stjörnuhimininn árið 1988 þegar hann lék saxófónleikarann Charlie Parker í kvikmynd Clints Eastwo- ods, Bird. Túlkun hans þótti einstök og var hann meðal annars valinn besti leikarinn á kvikmyndahátíð- inni í Cannes. Næst lét Whitaker að sér kveða í The Crying Game, kvikmynd Neils Jordans frá árinu 1992. Þar fór hann með hlutverk bresks her- manns sem rænt er af liðsmanni írska lýðveldishersins, en óvenju- legt vinasamband myndast þeirra á milli. Myndin er mörgum minn- isstæð fyrir það sem á sínum tíma var kallað „stærsta leyndarmál kvikmyndasögunnar“ en þykir trú- lega ekki standa undir þeirri nafn- bót í dag. Síðan þá hefur Whitaker leikið í fjölda misgóðra kvikmynda, en sjálfur þykir hann oftast standa fyrir sínu. Á meðal minnisstæðra mynda hans má nefna Ghost Dog: The Way of the Samurai (1999), Pa- nic Room (2002) og Phone Booth (2002). Botninum náði hann þó árið 2000 þegar hann lék í Battlefield Earth ásamt John Travolta, en sú mynd er oft nefnd ein versta mynd sem gerð hefur verið.    Þá má ekki gleyma að Whitakerlék í kvikmynd Baltasars Kor- máks, A Little Trip to Heaven, árið 2005. Baltasar hefur sagt að Whita- ker sé yndisleg manneskja – heið- arlegur náungi með báða fætur á jörðinni og laus við allt sem kalla megi stjörnustæla. Það hefur trú- lega hjálpað þessum mikla leikara við að ná hinum sterku tengslum við áhorfendur sem hann talaði um á sunnudaginn – tengslum sem hann á án efa eftir að styrkja enn frekar. jbk@mbl.is Maðurinn með augað Rólegur Whitaker er sagður jarðbundinn og yfirvegaður maður. AF LISTUM Jóhann Bjarni Kolbeinsson » Fyrir mér snýst leik-list um að trúa á þessa tengingu, og þessi tenging er svo sterk, og hún ristir svo djúpt, að við finnum öll fyrir henni. sun. 4. mars kl. 17 UPPSELT sun. 11. mars kl. 17 Örfá sæti laus sun. 18. mars kl. 17                                      ! "             #    $ % &% '()* +, #         "   ---     .    #$%& '(( )*++ ,--%- .,% /-%-0 # 12%  ,--%-%- . 3 4 (5(' /0123415(43 6,( 7% &3 6 #8 94 6 78  6  6 : 3 ; & ;";;"  5;; )   #    #  #   #<    # =  #>    # Svartur köttur - Síðustu sýningar! Fös. 2/3 kl. 20 örfá sæti, Lau. 3/3 kl. 20 UPPSELT Fös 9/3 kl. 20 Aukasýning - Ekki við hæfi barna Karíus og Baktus í Reykjavík. Sun 4/3 kl. 13 UPPSELT, kl. 14 UPPSELT, kl. 15 UPPSELT Sun 11/3 kl. 13 UPPSELT, kl. 14 UPPSELT, kl. 15 UPPSELT Sun 18/3 kl. 13 UPPSELT, kl. 14 UPPSELT, kl. 15 UPPSELT Sun 25/3 kl. 13 UPPSELT, kl. 14 UPPSELT, kl. 15 UPPSELT Sun 1/4 kl. 13 UPPSELT, kl. 14 UPPSELT, kl. 15 UPPSELT Sun 15/4 kl. 13 UPPSELT, kl 14 UPPSELT, kl. 15 UPPSELT Sun 22/4 kl. 13 örfá sæti, kl 14 örfá sæti, kl 15 örfá sæti Aukasýningar í sölu núna: 15/4, 22/4 kl. 13, 14 og 15. www.leikfelag.is 4 600 200 DAGUR VONAR Í kvöld kl. 20 UPPS. Lau 3/3 kl. 20 UPPS. Sun 4/3 kl. 20 UPPS. Fim 8/3 kl. 20 UPPS. Fös 9/3 kl. 20 UPPS. Fim 15/3 kl. 20 Fös 16/3 kl. 20 Lau 24/3 kl. 20 SÖNGLEIKURINN GRETTIR Mið 28/3 kl. 20 FORSÝNING MIÐAVERÐ 1.500 Fim 29/3 kl. 20 FORSÝNING MIÐAVERÐ 1.500 Fös 30/3 kl. 20 FRUMSÝNING UPPSELT RONJA RÆNINGJADÓTTIR Sun 4/3 kl. 14 Sun 11/3 kl.14 Sun 18/3 kl. 14 Sun 25/3 kl. 14 Síðustu sýningar KILLER JOE Í samstarfi við leikhúsið Skámána Í kvöld kl. 20 FRUMSÝNING UPPSELT Lau 3/3 kl. 20 Fim 8/3 kl. 20 Fös 9/3 kl. 20 Lau 10/3 kl. 20 KARÍUS OG BAKTUS Sun 4/3 kl. 13,14, 15, Sun 11/3 kl.13, 14, 15, Sun 18/3 kl. 13, 14, 15, Sun 25/3 kl. 13, 14, 15, Sun 1/4 kl. 13, 14, 15, Sun 15/4 kl. 13,14,15 Sun 22/4 kl. 13,14, 15 Uppselt á allar þessar sýningar! Sun 29/4 kl. 13, 14, 15 AUKASÝNINGAR Sun 6/5 kl. 13, 14, 15 AUKASÝNINGAR Gestaleikur frá Leikfélagi Akureyrar FEBRÚARSÝNING Íd Sun 4/3 kl. 20 3.sýning Rauð kort Sun 11/3 kl. 20 4.sýning Græn kort Sun 18/3 kl. 20 5.sýning Blá kort „DAUÐUR, SKÍTUGUR, TÓMUR“ DAGUR VONAR ÓFAGRA VERÖLD Í kvöld kl. 20 Fös 9/3 kl. 20 Síðustu sýningar VILTU FINNA MILLJÓN? Fös 2/3 kl. 20 UPPS. Lau 10/3 kl. 20 Lau 17/3 kl. 20 Lau 31/3 kl. 20 MEIN KAMPF Sun 18/3 kl. 20 AUKAS. Síðasta sýning EILÍF HAMINGJA Í samstarfi við Hið lifandi leikhús Sun 4/3 kl. 20 Sun 11/3 kl. 20 Sun 18/3 kl. 20 Sun 25/3 kl. 20 LADDI 6-TUGUR Lau 3/3 kl. 20, Lau 3/3 kl. 22:30, Fim 8/3 kl. 21 Lau 10/3 kl. 14, Fim 15/3 kl. 20, Fös 16/3 kl. 21, Lau 24/3 kl. 20, Lau 24/3 kl. 22:30, Uppselt á allar þessar sýningar! Lau 31/3 kl. 14 AUKAS. Mið 4/4 kl. 20 AUKAS. Sun 15/4 kl. 14 AUKAS. Mán 16/4 kl. 21 AUKAS. Fim 19/4 kl. 14 AUKAS. Fim 19/4 kl. 17 AUKAS. Fim 19/4 kl. 21 AUKAS.Fös 27/4 kl. 20 UPPS. ALVEG BRILLJANT SKILNAÐUR Fös 2/3 kl. 20 AUKAS. Þri 13/3 kl. 20 AUKAS. Síðustu sýningar SÖNGLEIKURINN ÁST Í samstarfi við Vesturport Mán 5/3 kl. 20 FORSÝNING UPPS. Þri 6/3 kl. 20 FORSÝNING UPPS. Mið 7/3 kl. 20 FORSÝNING UPPS. Lau 10/3 kl. 20 FRUMSÝNING UPPS. Sun 11/3 kl. 20 Lau 17/3 kl. 20 Leiklistarnámskeið í Iðnó Skemmtilegt, lærdómsríkt og ódýrt skyndinámskeið, hefst nk. mánu- dagskvöld þar sem nemendur fá tilsögn í leikspuna, persónusköpun, raddbeitingu, framsögn, tjáningu og hreyfingum á leiksviði. Einnig getur komið til greina að hæfileikafólki verði gefinn kostur á að koma fram í sýningum Light Nights í sumar. Nánari uppl. og bókun í síma 551 9181. Ferðaleikhúsið, Kristín G. Magnús. SPENNUMYNDIN Blood and Chocolate (Blóð og súkkulaði) verð- ur frumsýnd hér á landi á morgun. Myndin segir frá ungri varúlfynju sem á í miklu sálarstríði þegar hún þarf að velja á milli mannsins sem hún elskar og fjölskyldu sinnar, sem samanstendur af hópi miður vænna varúlfa. Með aðalhlutverk fara Agnes Bruckner (Alias), Hugh Dancy (Ba- sic Instinct 2) og hinn franski Olivier Martinez (Unfaithful). Frumsýning | Blood and Chocolate Varúlfur Oliver Martinez fer með eitt aðalhlutverkið í myndinni. Blóð og súkkulaði Erlendir dómar: Metacritic: 33/100 Variety: 40/100 The New York Times: 40/100 The Hollywood Reporter: 40/100 Allt skv. Metacritic.com Fréttir á SMS

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.