Morgunblaðið - 01.03.2007, Blaðsíða 11

Morgunblaðið - 01.03.2007, Blaðsíða 11
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 1. MARS 2007 11 FRÉTTIR FÉLAG forstöðumanna ríkisstofn- ana, forsætisráðuneytið og Stofnun stjórnsýslufræða við Háskóla Ís- lands standa fyrir fræðslufundi þriðjudaginn 7. mars nk. með um- boðsmanni Alþingis, Tryggva Gunnarssyni, um helstu mistök við túlkun stjórnsýslureglna og leiðir til að forðast þau. Fræðslufundurinn er ætlaður öllum þeim sem koma að meðferð mála í stjórnsýslu ríkis og sveitar- félaga. Hann stendur frá kl. 8.15 til 11.30 og er þátttökugjald kr. 5.800, morgunverður innifalinn. Nauðsyn- legt er að skrá sig á veffanginu: http://www.- stjornsyslu- stofnun.hi.is/ page/stjorn- syslureglur. Fyrirlesarinn, Tryggvi Gunn- arsson, mun fjalla um það hvaða annmark- ar við túlkun og framkvæmd stjórnsýslureglna hafa helst orðið tilefni athugasemda í álitum um- boðsmanns á árunum 2002 til 2007. Tryggvi mun einnig fjalla sérstak- lega um það hvað stjórnvöld geti gert til að forðast algeng mistök og bæta stjórnsýsluna að þessu leyti. Eftirlit með stjórnsýslu Umboðsmaður Alþingis hefur eftirlit með stjórnsýslu ríkis og sveitarfélaga. Hlutverk hans er að tryggja rétt borgaranna gagnvart stjórnvöldum landsins og gæta þess að hún fari fram í samræmi við lög og vandaða stjórnsýslu- hætti. Ræða helstu mistök við túlkun stjórnsýslureglna Tryggvi Gunnarsson HÉRAÐSDÓMUR Suðurlands hef- ur dæmt karlmann í 16 mánaða fang- elsi fyrir að hafa í vörslu sinni fíkni- efni og stera, auk fleiri brota. Var hann einnig sviptur ökurétti ævi- langt. Dómurinn gerði upptæk hjá ákærða tæp 300 grömm af kannabis- efnum, 12 e-töflur, rúm 20 grömm af amfetamíni, álíka mikið af kókaíni og loks 282 steratöflur. Ákærði játaði sakir en í niðurstöðu héraðsdóms kemur fram að um sam- fellda brotahrinu sé að ræða hjá ákærða frá því í mars og fram í sept- ember 2006. Sviptur ökuleyfi ævilangt Ákærði var stöðvaður af lögreglu við akstur í september sl. en það var í sjöunda skipti sem hann ók frá því hann var sviptur ökurétti ævilangt í fyrsta sinn. Ástríður Grímsdóttir héraðsdóm- ari dæmdi málið. Verjandi mannsins var Sigurður Sigurjónsson hrl. og sækjandi Gunnar Örn Jónsson sýslu- fulltrúi. Fékk 16 mánaða dóm fyrir fíkniefnabrot MORGUNBLAÐIÐ hefur verið beðið að birta eftirfarandi athugasemd: „Embætti ríkislögreglustjóra vill gera athugasemd við fréttaflutning Stöðvar 2 síðustu daga, um meint harðræði lögreglu. Í fréttum hefur m.a. verið haft eftir ónefndum lög- mönnum að það þjóni ekki tilgangi að kæra lögreglu vegna harðræðis og að slík mál séu nánast sjálfkrafa felld nið- ur. Þetta er ekki sannleikanum sam- kvæmt. Í þeim tilvikum sem kærur berast til lögreglu vegna meintra brota lögreglumanna eru þær sendar ríkissaksóknara sem rannsakar málin sérstaklega, sbr. 35. gr. lögreglulaga nr. 90/1996. Ríkislögreglustjóri metur hvort víkja beri kærðum lögreglu- mönnum frá störfum. Á undanförnum árum hefur margoft reynt á þessa málsmeðferð hjá ríkissaksóknara og ríkislögreglustjóra. Embætti ríkislögreglustjóra hefur sett lögreglumönnum siðareglur, vinnu- og verklagsreglur þar sem rétt- ar starfsaðferðir lögreglu eru útfærð- ar með nákvæmum hætti. Mjög mikil eftirfylgni hefur verið með því að lög- regla sinni störfum sínum af fag- mennsku, í samræmi við lög, vinnu- og verklagsreglur, eins og dæmin sanna. Sú staðreynd að flestar kærur er varða meint brot lögreglumanna eru felldar niður af ríkissaksóknara stað- festir einfaldlega að lögregla hér á landi vinnur faglega og í samræmi við lög. Reglulegar kannanir Gallup stað- festa jafnframt að lögreglan nýtur stöðugs trausts í samfélaginu. Í lang- flestum tilvikum eru samskipti lög- reglu og borgara góð og án eftirmála. Athugasemdir um að ómálefnaleg sjónarmið séu til staðar við rannsókn mála er varða meint brot lögreglu- manna í starfi eru úr lausu lofti gripn- ar.“ Yfirlýsing frá embætti ríkislög- reglustjóra Frábær ferðadragt Þær einfaldlega krumpast ekki Mörg snið Stærðir 36-48 Verslaðu glæsilegan fatnað þar sem gæði og þjónusta skipta máli FEBRÚARTILBOÐ 15% AFSLÁTTUR BASIC DRAGTIN ALLTAF KLASSÍSK, ALLTAF FLOTT Skoðaðu Basic bæklinginn á Laxdal.is Laugavegi 63 • S: 551 4422 ferminga- kjólarnir komnir Laugavegi 54 sími 552 5201 Fer i ga- kjólarnir komnir Mikið úrval af • Fermingakjólum • Ermum • Pilsum • Toppum ÍS L E N S K A S IA .I S K E L 3 65 21 0 3. 2 0 0 7 Á ferð og flugi Glæsilegur fatnaður við öll tækifæri. Kringlunni · sími 568 4900 www.kello.is Opið til kl. 21 í kvöld Vital skórnir komnir aftur Frábærir skór með nuddinnleggi Kringlunni, sími 553 2888 Opið til kl. 21 í kvöld NÝTING fallvatna og jarðhita í sátt við umhverfi er yfirskrift ráðstefnu sem VFÍ og TFÍ standa fyrir á Grand Hótel Reykjavík, í dag, fimmtudaginn 1. mars, kl. 13–17. Meðal annars verður fjallað um frumvarp iðnaðarráðherra um nýt- ingu auðlinda og áform um lang- tímaáætlun. Frumvarpið er til um- ræðu í nefndum Alþingis. Erindi verða flutt um sjálfbæra nýtingu jarðhita, áhrif hlýnunar á nýtingu fallvatna, náttúruverndaráætlun og fleira. Rætt um fall- vötn og jarðhita ♦♦♦

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.