Morgunblaðið - 01.03.2007, Blaðsíða 10

Morgunblaðið - 01.03.2007, Blaðsíða 10
10 FIMMTUDAGUR 1. MARS 2007 MORGUNBLAÐIÐ ALÞINGI Mikill hraði á hlutum Mál eru afgreidd með miklu hraði á Alþingi þessa dagana enda aðeins tvær vikur eftir af starfstíma þings- ins. Frumvarp um tollkvóta við inn- flutning landbúnaðarráðherra fékk t.a.m. hraðafgreiðslu í gær en þá fór bæði fram önnur og þriðja umræða og síðan var gengið til atkvæða. Fundir hafa reglulega staðið fram á kvöld undanfarið og enn er verið að leggja fram ný þingmál. Gert var ráð fyrir nefndardögum í dag og á mánudag en tekin var sú ákvörðun að færa þá fram í næstu viku og hafa þá þrjá frekar en tvo, enda mörg mál sem bíða afgreiðslu inni í nefndum. Deilt um kjör kennara Kjaramál kennara voru rædd á Al- þingi í gær en stjórnarandstöðuþing- menn kölluðu eftir því að rík- isstjórnin axlaði ábyrgð í deilunni. Var þá einkum vísað til þess að kennarar hefðu verið „reknir aftur til starfa með lagasetningu“ í síðustu kjarasamningum og að sveit- arfélögin bæru mjög skarðan hlut frá borði sem gerði þeim ómögulegt að reka grunnskóla landsins. Forsætisráðherra sagði deiluna vera milli sveitarfélaga og kennara og að því yrði ekki breytt. Hins vegar væri áhyggjuefni ef illa miðaði í samninga- viðræðum en að það væri jafnframt deiluaðilanna að koma sér saman um farveg til sátta. Bólusetning við leghálskrabbameini Heilbrigðis- ráðherra telur mikilvægt að huga að bólusetn- ingu gegn leghálskrabba- meini hér á landi en segir að engu að síður þurfi að halda áfram skiuplagðri leit. Sæunn Stef- ánsdóttir bar upp fyrirspurn um þetta í gær og vísaði til viðtals við Harald Briem sóttvarnarlækni í síð- asta tölublaði Læknablaðsins en þar kom fram að í Bandaríkjunum væru bólusetningar sums staðar þegar hafnar. Sæunn Stefánsdóttir Eftir Höllu Gunnarsdóttur halla@mbl.is EIGNARNÁM vegna mögulegra virkjana í neðri hluta Þjórsár hefur ekki komið til umræðu þar sem landeigendur sem í hlut eiga hafa ekki látið uppi neina andstöðu við að ganga til samninga við Lands- virkjun. Þetta kom fram í máli Árna M. Mathiesen fjármálaráð- herra en hann svaraði fyrirspurn Steingríms J. Sigfússonar, þing- manns Vinstri grænna, á Alþingi í gær. Kallað var eftir afstöðu ráð- herra til eignarnáms og Stein- grímur spurði hvort ráðherra hygðist beita sér fyrir því að Lands- virkjun léti af virkjanaundirbún- ingi á svæðinu í ljósi andstöðu land- eigenda og fleiri heimamanna. Þótti honum ótækt að fyrirtæki í ríkiseigu væri á fullu í virkjanaund- irbúningi án þess að hafa rætt við landeigendur og hefði m.a.s. boðið út hönnun mannvirkja á landi í einkaeigu. Árni sagði spurningu Steingríms byggjast á röngum forsendum því ekki hefði orðið vart við andstöðu meðal landeigenda að semja við Landsvirkjun. „Ég held að það að hönnun sé að einhverju leyti komin af stað, jafnvel langt komin af stað, sé einungis til þess fallið að hjálpa til við að meta það rask sem verður hugsanlega vegna virkjanafram- kvæmdanna,“ sagði Árni. Steingrímur mótmælti því að engin andstaða væri við samninga við Landsvirkjun og sagði það ekki vera réttar upplýsingar. „Það er erfitt að túlka hæstvirtan ráðherra öðruvísi en þannig að framganga Landsvirkjunar sé með stuðningi hans,“ sagði Steingrímur og bætti við að ef ekki stæði til að grípa til eignarnáms þyrfti fyrst að koma til samninga áður en undirbúningur færi á fullt. Morgunblaðið/G. Rúnar Stund milli stríða Árni M. Mathiesen og Steingrímur J. Sigfússon voru ósammála um það á þingi í gær hvort and- staða væri meðal landeigenda við að ganga til samninga við Landsvirkjun vegna virkjana í neðri hluta Þjórsár. Eignarnám enn ekki rætt Segir landeigendur ekki hafa látið í ljós andstöðu við að semja við Landsvirkjun vegna virkjana í neðri hluta Þjórsár Í HNOTSKURN » Samkvæmt lögum ogstjórnarskrá getur eign- arnám verið heimilt ef al- menningsþörf krefur. » Deilt er um hvort getikomið til eignarnáms vegna virkjana í neðri hluta Þjórsár. » Umhverfisráðherra ogEinar Oddur Kristjánsson hafa sagt að það komi til greina. Birgir Ármansson 27. febrúar Alvarleg mynd Sú mynd sem blasir við Samfylkingarmönnum eftir kannanir undanfar- inna mánaða er því væg- ast sagt alvarleg. Flokk- urinn virðist í sögulegu lágmarki og tilraunir til að snúa þeirri þróun við með alls konar upp- hlaupum, hamagangi og viðsnúningi í ýmsum málum skila ekki neinum árangri. Meira: www.birgir.is Björgvin G. Sigurðsson 28. febrúar Skræpóttur Þetta verður þungt en hvað getur Sjálfstæð- isflokkurinn gert til að redda málum? Kannanir erfiðar og Geir týndur. Nú eru góð ráð dýr en fjöldi litbrigðanna er mikill. Lengi má yfir fálkann mála. Bara að hann verði ekki skræpóttur. Jú, einsog Mogginn gerði á sinni nýgrænu grundu; mála fálkann grænan. Gamli góði Villi málaði fugl- inn bleikan í fyrra og hann er núna borgarstjóri. Endurtaka leikinn í takt við tímann. Meira: www.bjorgvin.is ÞETTA HELST … ÞINGMENN BLOGGA ÍSLAND uppfyllir aðeins tvö af fimm skilyrðum sem eru sett fyrir upptöku evrunnar. Þetta kom fram í svari Geirs H. Haarde forsætis- ráðherra við fyr- irspurn Helga Hjörvars, þing- manns Samfylk- ingarinnar, um hvaða skilyrði Ís- land uppfyllir og hver ekki. Helgi sagði ís- lensku krónuna ekki eiga framtíðina fyrir sér og að myntsvæðum færi fækkandi í heim- inum. „Það er fyrst og fremst spurn- ing um hvenær og hvernig þessar breytingar verða,“ sagði Helgi. Geir H. Haarde sagði spurn- inguna áhugaverða fræðilega en að efnislega hefði hún ekki mikla þýð- ingu þar sem Ísland uppfyllti ekki meginskilyrðið fyrir upptöku evr- unnar, þ.e. aðild að Evrópusam- bandinu. Aðildarríki ESB þyrftu hins vegar að uppfylla fimm meg- inskilyrði um árangur í efnahags- málum til að geta gerst aðilar að myntbandalaginu. „Þau eru í fyrsta lagi að halli á ríkissjóði sé minni en 3% af landsframleiðslu, í öðru lagi að heildarskuldir hins opinbera séu lægri en 60% af landsframleiðslu, í þriðja lagi að verðbólga sé ekki meiri en verðbólga í þeim þremur löndum þar sem hún er lægst, að viðbættu 1,5%. Í fjórða lagi að lang- tímavextir séu ekki hærri en í þeim löndum þar sem verðlag er stöðug- ast, að viðbættum 2%. Og í fimmta lagi að gengi gjaldmiðla haldist inn- an opinberra sveiflumarka banda- lagsins, sem nú eru 15%, í að minnsta kosti tvö ár,“ sagði Geir og bætti við að Ísland uppfyllti aðeins fyrstu tvö skilyrðin. Þingmenn Samfylkingarinnar sögðu slæmt að Ísland uppfyllti ekki þessi skilyrði og að óstöðugleikinn kostaði landsmenn fúlgur fjár. Sí- fellt fleiri gæfu krónunni falleinkunn og Ísland yrði að horfa til framtíðar. Evran ekki möguleg Geir H. Haarde Í frétt á þessari síðu í gær slæddist inn millinafn í nafn Sigurjóns Þórð- arsonar. Beðist er velvirðingar á mistökunum. LEIÐRÉTT

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.