Morgunblaðið - 01.03.2007, Page 16
16 FIMMTUDAGUR 1. MARS 2007 MORGUNBLAÐIÐ
ERLENT
FRÉTTASKÝRING
Eftir Ásgeir Sverrisson
asv@mbl.is
KERFIÐ segir hann einfaldlega úr-
elt og kosningabaráttan hefur fram
til þessa snúist um „sjónhverfingar í
fjölmiðlum“. Og málflutningur hans
er tekinn að vekja athygli; François
Bayrou, „þriðji maðurinn“ í barátt-
unni fyrir forsetakosningarnar í
Frakklandi í vor, fagnar nú auknu
fylgi og ljóst er að andstæðingarnir
neyðast til að taka framboð hans al-
varlega. Bayrou leitar eftir fylgi á
miðjunni og stefnuskrá hans tekur
mið af því.
Bayrou er frambjóðandi flokks
miðju- og hægrimanna er nefnist
Franska lýðræðisbandalagið, UDF
(fr. „Union por la Démocratie Fran-
çaise“). Flokkurinn var stofnaður ár-
ið 1978 og var þá bandalag hópa sem
studdu Valéry Giscard d’Estaing
forseta. Bayrou var í fyrra kjörinn
leiðtogi þessara samtaka.
Bayrou bauð sig fram í forseta-
kosningunum árið 2002 en fékk þá
einungis 6,8% atkvæðanna. Þann
dapurlega árangur mátti einkum
rekja til þess að margir helstu leið-
togar flokksins gengu til liðs við ný-
stofnaðan hægri flokk, Þjóðarhreyf-
inguna, UMP (fr. „Union pour un
Mouvement Populaire“). Fyrir þeim
flokki fer nú Nicolas Sarkozy, for-
setaframbjóðandi hægrimanna.
Málflutningur François Bayrou
sýnist nú falla í frjórri svörð. Í skoð-
anakönnun sem birt var á þriðjudag
mældist fylgi við hann heil 19%.
Hann hefur aldrei áður notið viðlíka
stuðnings frá því hann kunngjörði
framboð sitt í desember.
„Hnignun Frakklands“
Í sjónvarpsþætti á mánudags-
kvöld þótti frambjóðandinn fara á
kostum og enginn vafi er á að sú
miðjustefna sem hann boðar á hljóm-
grunn í Frakklandi nú um stundir.
Bayrou hefur þráfaldlega lýst yfir
því að sjálft stjórnmálakerfið í
Frakklandi hafi gengið sér til húðar.
Í sjónvarpsþættinum á mánudag
kvaðst hann í 20 ár hafa fylgst með
„viðvarandi stríði“ sósíalista og
hægrimanna. „Önnur hvor fylkingin
kemst til valda og hefst þá handa við
að leggja í rúst það sem hin hefur áð-
ur gert.“ Frambjóðandinn telur að
knýja þurfi fram vatnaskil í frönsk-
um stjórnmálum í því augnamiði að
tryggja aukið samráð og samstarf.
„Ég hef fylgst með hinni hægu
hnignun Frakklands, ég hef séð fá-
tækt aukast … og niðurstaða mín er
að ógerlegt sé að bjarga Frakklandi
innan þess kerfis sem nú er við lýði.“
Hann gagnrýnir frambjóðendur
stóru flokkanna tveggja, áðurnefnd-
an Sarkozy og Ségolène Royal, full-
trúa Sósíalistaflokksins, harðlega.
Kosningaloforð þeirra mótist af
ábyrgðarleysi og áhersla sé einkum
lögð á uppákomur í fjölmiðlum.
Hann segir að kjósendur hafi fengið
nóg af slíkum sjónhverfingum.
Bayrou hefur gagnrýnt áform
Sarkozy um skattalækkanir en hann
hefur einnig lýst sig andvígan því að
álögur verða auknar, líkt og Royal
boðar. Frambjóðandinn er um margt
óvenjulegur stjórnmálamaður og
stefnuskrá hans getur sömuleiðis
talist heldur óhefðbundin. Hann
leggur einkum áherslu á að tekið
verði á skuldastöðu ríkissjóðs og vill
leggja blátt bann við kerfislægum
fjárlagahalla. Hann boðar niður-
skurð í útgjöldum ríkisins og telur
nauðsynlegt að fækkað verði undan-
þágum frá skattgreiðslum. Athygli
hefur og vakið sú tillaga hans að sér-
hvert fyrirtæki fái leyfi til að ráða
tvo starfsmenn án þess að greidd
verði launatengd gjöld og annar
kostnaður sem því fylgir. Þessi hug-
mynd, sem fallin er til að draga úr at-
vinnuleysi, þykir byltingarkennd.
Fylgi á „hreyfingu“
Bayrou gerir sér vonir um að leika
eftir árangur þjóðernissinnans Jean-
Marie Le Pen í forsetakosningunum
árið 2002 þegar hann komst óvænt í
aðra umferð. Le Pen hefur fram til
þessa verið „þriðji maðurinn“ í
frönskum stjórnmálum. Fylgi hans
mælist nú 10–14% en reynslan kenn-
ir að stuðningurinn er oftar en ekki
meiri en fram kemur í könnunum.
Í könnun IFOP sem birt var á
þriðjudag kváðust 29% ætla að kjósa
Sarkozy og 25,5% þátttakenda lýstu
yfir stuðningi við Ségolène Royal.
Kannanir leiða einnig í ljós að
Bayrou væri sigurstranglegur í síð-
ari umferðinni gegn Royal eða
Sarkozy. Á hitt ber að líta að fylgi við
Bayrou mældist allt að 14% í barátt-
unni fyrir kosningarnar árið 2002 en
þegar atkvæði höfðu verið talin
reyndist hann einungis hafa fengið
6,8% þeirra líkt og fyrr sagði. Inn-
vígðir segja fylgið á miðjunni á mik-
illi „hreyfingu“.
Bayrou er ákafur Evrópusinni og
telur að samanlagður styrkur
ríkjanna í álfunni sé öflugasta and-
svarið við hnattvæðingunni. Í
Frakklandi fá margir ekki séð að það
fyrirbrigði hafi fært alþýðu manna
blessun.
„Nú skulum við hætta að gefa lof-
orð sem við getum ekki staðið við.
Frakkar hafa fengið nóg af þvætt-
ingnum,“ sagði Bayrou í sjónvarpi á
mánudag. Getur það verið?
„Þriðji maðurinn“ í sókn í Frakklandi
Miðjumaðurinn François Bayrou, frambjóðandi Franska lýðræðisbandalagsins, UDF, í forsetakosn-
ingunum í aprílmánuði, nýtur nú meira fylgis en nokkru sinni fyrr, ef marka má skoðanakannanir
Í HNOTSKURN
»François Bayrou fæddist25. maí 1951. Foreldrar
hans voru bændur í Bearn í
suðvesturhluta Frakklands.
Hann sótti ekki menntun í
hefðbundna háskóla frönsku
valdastéttarinnar.
»Bayrou var bókmennta-kennari áður en hann hóf
pólitískan feril sinn. Hann var
fyrst kjörinn á þing árið 1986.
Hann var menntamálaráð-
herra frá 1993 til 1997.
»Bayrou ræktar sína kat-ólsku trú og er faðir sex
barna. Helsta áhugamál hans
er hrossarækt.
Reuters
Miðjusókn François Bayrou, frambjóðandi Franska lýðræðisbandalagsins,
telur grundvallarbreytingar nauðsynlegar í stjórnmálunum þar í landi.
STARFSMAÐUR dýragarðs heldur á Arisha, mánaðar-
gömlum bavíana, í borginni Krasnojarsk í Síberíu.
Móðir Arisha mjólkar ekki og starfsmenn dýragarðsins
þurfa því að gefa honum pela.
Reuters
Síberískur bavíani á pela
Eftir Boga Þór Arason
bogi@mbl.is
FARI aðrar þjóðir að dæmi Eist-
lendinga gætu þingkosningarnar í
Eistlandi á sunnudaginn kemur
markað upphafið að byltingu í þróun
rafræns lýðræðis.
Eistlendingar geta greitt atkvæði
á netinu og er þetta í fyrsta skipti
sem slík rafræn atkvæðagreiðsla er
heimiluð í þingkosningum.
„Eistland er brautryðjandi í þess-
um efnum,“ hafði fréttastofan AFP
eftir Ulle Madise, sem á sæti í yf-
irkjörstjórn landsins. „Þetta er í
fyrsta skipti sem bindandi atkvæða-
greiðsla fer fram á netinu í kosning-
um til þjóðþings.“
Eistlendingar hafa verið fljótir að
tileinka sér upplýsingatæknina og
rafkosningar voru heimilaðar í sveit-
arstjórnakosningum í landinu í októ-
ber 2005. Nær 10.000 manns, eða um
2% kjósendanna, greiddu þá atkvæði
á netinu og búist er við að þátttakan í
rafrænu atkvæðagreiðslunni verði að
minnsta kosti helmingi meiri í þing-
kosningunum. Tölvusérfræðingar
áætluðu að 20.000–40.000 af um
940.000 kjósendum myndu greiða at-
kvæði á netinu, að því er fram kom í
frétt CNN.
Geta ógilt atkvæðið á kjörstað
Rafkosningakerfið var reynt fyrr í
mánuðinum þegar fólki gafst kostur
á að kjósa „konung skógarins“. Kjós-
endurnir gátu þá valið á milli tíu
dýra, þ.á m. elgs, hjartardýrs og villi-
galtar. Ekki var þó skýrt frá niður-
stöðu tilraunakosningarinnar.
Netkjósendurnir þurfa að nota
rafrænt auðkenniskort sem yfirvöld
gefa út. Kortinu er stungið í rafræn-
an lesara, sem settur er í samband
við tölvu, og kjósandinn þarf að færa
inn lykilorð. Lesarinn kostar 95 eist-
neskar krónur, sem svarar rúmum
500 íslenskum krónum.
Rafræna atkvæðagreiðslan hófst á
mánudaginn var og henni lauk í gær.
Þeir sem greiddu atkvæði á netinu
geta ógilt það með því að mæta á
kjörstað á sunnudag og kjósa aftur.
Þessi tilhögun var ákveðin þar sem
óttast var að hægt yrði að hafa áhrif á
val kjósendanna með einhvers konar
þvingunum, til dæmis á vinnustöð-
um.
Embættismaður Öryggis- og sam-
vinnustofnunar Evrópu (ÖSE) sagði
að hún myndi fylgjast með fram-
kvæmd rafkosninganna og meta
hvort gerðar hefðu verið nægar ráð-
stafanir til að tryggja að þær færu
fram með lýðræðislegum hætti. „Við
höfum líka spurningar um öryggi raf-
rænu atkvæðagreiðslunnar og eftir-
litið með henni. Við komumst ekki
inn í kerfið. Til þess þarf mjög sér-
hæfða tækniþekkingu.“
Fréttastofan AFP hafði eftir Ivar
Tallo, framkvæmdastjóra eistneskra
samtaka sem beita sér fyrir rafrænu
lýðræði að kjósendurnir hefðu litla
ástæðu til að vantreysta þessari nýju
aðferð. „Eistlendingar treysta netinu
fyrir fjárhagslegum gögnum með
rafrænum skattskilum og milli-
færslum í gegnum netbanka. Hvers
vegna ættu þeir ekki að treysta net-
inu fyrir atkvæðunum?“
Um 82% Eistlendinga telja fram til
skatts á netinu en Tallo efast um að
svo stórt hlutfall taki þátt í rafrænum
þingkosningum í náinni framtíð. Lík-
legt þykir þó að Eistlendingar verði
fljótir að tileinka sér nýjustu tækni í
þessum efnum eins og öðrum.
Geta kosið til
þings á netinu
Í fyrsta skipti sem rafræn atkvæða-
greiðsla er heimiluð í þingkosningum
Moskva. AFP. | Júrí Lúzhkov, borg-
arstjóri Moskvu, hefur lagt til að
spilavítum og spilasölum borg-
arinnar verði breytt í bókaklúbba
eða bókasöfn með það að markmiði
að stemma stigu við minnkandi
bóklestri borgarbúa.
„Yfir 2.000 spilasalir voru opn-
aðir á skömmum tíma í Moskvu og
við kappkostum núna að loka þeim.
Við skulum gera spilavítin að bóka-
klúbbum,“ sagði
Lúzhkov.
Borgarstjórn
Moskvu hefur
samþykkt að
loka spilavítum
borgarinnar og
gert er ráð fyrir
því að þau verði
flutt á fjögur af-
mörkuð spilavíta-
svæði í Rússlandi. Borgaryfirvöld
segja að helmingur Moskvubúa
kaupi aldrei bækur, 40% lesi ekki
bækur og 60% séu ekki áskrifendur
að blöðum. Bóklestur var talinn
mjög mikill í Rússlandi á sovéttím-
anum.
Borgarstjórnin íhugar ýmsar
aðrar leiðir til að stuðla að auknum
bóklestri, t.a.m. að gefa foreldrum
nýfæddra barna bækur.
Spilavítin víki fyrir bókum
Júrí Lúzhkov