Morgunblaðið - 31.03.2007, Blaðsíða 2
2 LAUGARDAGUR 31. MARS 2007 MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Fréttir frett@mbl.is Fréttastjórar Ágúst Ingi Jónsson, aðstoðarfréttaritstjóri, aij@mbl.is Sigtryggur Sigtryggsson, aðstoðarfréttaritstjóri, sisi@mbl.is Viðskiptablað vidsk@mbl.is Umsjón Björn Jóhann Björnsson,
bjb@mbl.is Daglegt líf Guðbjörg Guðmundsdóttir, gudbjorg@mbl.is Menning menning@mbl.is Fríða Björk Ingvarsdóttir, ritstjórnarfulltrúi, fbi@mbl.is Umræðan | Bréf til blaðsins Guðlaug Sigurðardóttir, ritstjórnarfulltrúi, gudlaug@mbl.is Minningar minning@mbl.is, Stefán Ólafsson,
Arnór Ragnarsson Dagbók| Kirkjustarf Ellý H. Gunnarsdóttir, elly@mbl.is Íþróttir sport@mbl.is Sigmundur Ó. Steinarsson, fréttastjóri, sos@mbl.is Útvarp | Sjónvarp Hulda Kristinsdóttir, dagskra@mbl.is mbl.is netfrett@mbl.is Guðmundur Sv. Hermannsson fréttastjóri gummi@mbl.is
SAMKEPPNISEFTIRLITIÐ hef-
ur úrskurðað að Icelandair hafi
brotið gegn samkeppnislögum með
því að misnota markaðsráðandi
stöðu sína á flugleiðum til Lundúna
og Kaupmannahafnar og bjóða net-
smelli á 16.900 kr. á þessum flug-
leiðum í miklu magni á árinu 2004 á
verði sem ekki stóð undir kostnaði.
Er félaginu gert að greiða 190 millj-
óna króna stjórnvaldssekt í ríkis-
sjóð, en það sendi frá sér yfirlýs-
ingu í gær þar sem það lýsti sig
ósammála ákvörðun Samkeppnieft-
irlitsins og að það mundi kæra hana
til áfrýjunarnefndar samkeppnis-
mála.
Forsaga málsins er sú að Iceland
Express hóf samkeppni við Ice-
landair á flugleiðum frá Keflavík til
Kaupmannahafnar og Lundúna
snemma árs 2003. Þá um vorið bauð
Icelandair vorsmelli á 14.900 kr.
sem voru mun lægri fargjöld en
höfðu áður verið í boði hjá félaginu.
Iceland Express kvartaði til sam-
keppnisyfirvalda yfir því að vors-
mellirnir væru boðnir til að koma í
veg fyrir að félagið næði fótfestu á
markaðnum og komst samkeppn-
isráð og síðan áfrýjunarnefnd sam-
keppnismála að því að umrædd far-
gjöld hefðu falið í sér skaðlega
undirverðlagningu, sem væri brot á
samkeppnislögum. Í upphafi ársins
2004 bauð Icelandair síðan nýja
netsmelli á umræddum samkeppn-
isleiðum á 16.900 kr. eða tvö þúsund
kr. hærra verði. Iceland Express
vísaði því einnig til Samkeppnieft-
irlitsins, sem birti ákvörðun sína
vegna þessa í gær. „Það er nið-
urstaða Samkeppniseftirlitsins að
netsmellirnir sem um var deilt hafi
ekki staðið undir kostnaði, eins og
hann er skilgreindur í málinu með
hliðsjón af fyrri ákvörðun sam-
keppnisráðs og úrskurði áfrýjunar-
nefndar samkeppnismála. Er það
mat Samkeppniseftirlitsins að Ice-
landair hafi í raun notað hagnað
vegna sölu á dýrari fargjöldum, s.s.
viðskiptafargjöldum þar sem Ice-
landair nýtur einokunarstöðu, til að
niðurgreiða netfargjöld sem seld
voru í samkeppni við Iceland Ex-
press,“ segir meðal annars.
Í yfirlýsingu Icelandair af þessu
tilefni segir að félagið hafi í einu og
öllu farið eftir samkeppnislögum og
ákvörðun áfrýjunarnefndar sam-
keppnismála frá árinu 2003.
Icelandair greiði 190
milljónir í ríkissjóð
Netsmellir
brutu gegn sam-
keppnislögum
Í HNOTSKURN
»Verðlagning og framboð áódýrustu netsmellum fól í
sér skaðlega undirverðlagn-
ingu.
»Ákvörðun samkeppnisyf-irvalda í gagnstæða átt nú
þremur árum síðar vekur
spurningar um verklag sam-
keppnisyfirvalda.
»Tekjur af netsmellum vorulangt undir staðfærðum
kostnaði.
„ÞAÐ er ekki ósennilegt að um
helgina fari hitinn í 13–15 stig
fyrir norðan og austan,“ segir
Theodór Hervarsson, veðurfræð-
ingur á Veðurstofu Íslands, en
spáð er suðlægum áttum á land-
inu fram á þriðjudag eða miðviku-
dag. Theodór segir að ekki sé þó
líklegt að það verði sérlega sól-
ríkt. „Það verður frekar þungbú-
ið, að minnsta kosti sunnan- og
vestanlands. Það gæti þó gert
glennur, einkum á norðaust-
urhorninu,“ segir hann. Hlýrra
verður hér á landi en í Skandin-
avíu um helgina en fremur kaldur
loftmassi verður þar yfir, að sögn
Theodórs.
Theodór segir að enn sé erfitt
að spá fyrir um páskaveðrið en
nokkur óstöðugleiki sé í spám.
„En það eru teikn á lofti um að
það gæti kólnað um miðja viku,“
segir hann. Því sé hugsanlegt að
það verði fremur kalt um
páskana.
Í vætusamara lagi
Marsmánuður hefur verið nokk-
uð vætusamur. Trausti Jónsson,
veðurfræðingur á Veðurstofunni,
sagði í samtali við Morgunblaðið í
gær að úrkoman í mánuðinum
væri komin upp í 123 millimetra.
Það þýðir að mars í ár er tólfti
úrkomumesti mánuðurinn frá
árinu 1920 en mælingum á úr-
komunni lýkur ekki fyrr en
klukkan 18 í dag. Trausti sagði í
gær að næsta sólarhringinn væri
spáð 10–20 millimetra úrkomu.
„Það myndi þýða að mánuðurinn
færi í 4.–5. sæti,“ sagði Trausti.
Mesta úrkoma sem mælst hefur
í mars var árið 1953 en það ár
mældist hún 150,3 millimetrar.
Hitinn gæti farið í
13–15 stig um helgina
Theodór
Hervarsson
Með vætusömustu marsmánuðum
Trausti
Jónsson
KJÓSENDUR í Hafnarfirði kjósa í dag um til-
lögu að deiliskipulagi sem gerir ráð fyrir stækk-
un álversins í Straumsvík. Á kjörskrá eru 16.648
manns. Kjörfundur hefst kl. 10.00 og stendur til
kl. 19.00. Talning fer fram í íþróttahúsinu við
Strandgötu og reiknað er með fyrstu tölum kl.
19:05. Gert er ráð fyrir að talning muni ganga
hratt fyrir sig og er vonast til að úrslit geti legið
fyrir milli kl. 21 og 22 í kvöld.
Bindandi niðurstaða
Samkvæmt ákvörðun bæjarstjórnar verður
niðurstaða kosninganna bindandi og mun ráða
því hvort fyrirliggjandi deiliskipulagstillaga,
sem er samþykkt til auglýsingar, verði sett í
auglýsingu samkvæmt skipulags- og bygging-
arlögum.
Í kosningunum verður í fyrsta sinn í Hafn-
arfirði notast við rafræna kjörskrá. Það þýðir að
kjósendur eru ekki lengur bundnir af kjördeild-
um heldur geta nú farið á hvaða kjörstað sem er
til að kjósa. Kjörstaðir eru í Áslandsskóla,
Íþróttahúsinu við Strandgötu og Víðistaðaskóla.
Utankjörfundaratkvæðagreiðslu lauk síðdeg-
is í gær og höfðu þá um 1.200 manns kosið utan
kjörfundar.
Úrslit gætu legið
fyrir kl. 21 til 22
Eftir Baldur Arnarson
baldura@mbl.is
TALSMENN gagnageymslufyrir-
tækisins Data Íslandia ráðgera að
reisa tíu gagnageymslur hér á landi
fyrir ársbyrjun 2010 og er ætlunin
að bygging tveggja hefjist þegar á
þessu ári. Hver þeirra verður þyrp-
ing um fimm 800 fermetra bygg-
inga og heildarflatarmál geymsln-
anna tíu því alls um 40.000
fermetrar.
Sol Squire, framkvæmdastjóri
fyrirtækisins, var á meðal aðalfyr-
irlesara á ráðstefnu 350 helstu
gagnabanka Evrópu í London í síð-
ustu viku. Hann segir verkefnið
muni kalla á allt að 350 störf og að
markmiðið sé að Íslendingar verði
þar í meirihluta. Einnig er sam-
vinna við háskóla og einkafyrirtæki
fyrirhuguð. Hann segir sex aðila
sýna áhuga á að kaupa slíka þjón-
ustu hér á landi, orkan hér sé vist-
væn og sú „græna ímynd“ sem í því
felst sé einkar mikilvæg fyrir
markaðssetningu þeirra.
Viðræður á misjöfnu stigi
Að sögn Ármanns Kojic, mark-
aðsstjóra Data Íslandia, hefur verið
rætt við fjölmörg stórfyrirtæki um
uppbyggingu gagnabanka hér, sem
hver þurfi um 10 megawött. Hann
upplýsir að viðræður við Telehouse
Europe, stærsta gagnabanka Evr-
ópu, og tvo arma British Telecom
séu lengra komnar en tekur fram,
líkt og Sol, að ekki sé hægt að veita
frekari upplýsingar á þessu stigi.
Spurn eftir þjónustu gagnabanka
í öruggu umhverfi fer sífellt vax-
andi, m.a. vegna lagasetninga um
geymslu gagna til allt að 70 ára.
Aðspurður um hvort Landsvirkj-
un gæti útvegað slíkum aðilum raf-
orku segir Gunnar Örn Gunnars-
son, deildarstjóri viðskiptaþróunar
hjá orkusviði Landsvirkjunar, að
það sé „alveg ljóst að ef um veru-
lega uppbyggingu af þessu tagi
verði að ræða þá þurfi að virkja“.
Gunnar bendir hins vegar á að
orkukerfið sé stórt og ýmsir kostir
fyrir hendi. Hann telur lagningu
nýs sæstrengs myndi taka ár, hann
„sé forsenda þess að þetta geti far-
ið af stað“. Hann segir skýrslu á
könnun fýsileika slíkrar starfsemi
að vænta í apríl og að fleiri inn-
lendir aðilar í samvinnu við erlenda
sýni slíkri starfsemi áhuga.
Fyrirhuga byggingu tíu
gagnabanka fyrir 2010
Talsmenn Data Íslandia bjartsýnir Skapar 350 störf
Eftir Steinunni Ásmundsdóttur
steinunn@mbl.is
Í DAG fagnar Alcoa Fjarðaál því að starf-
semi álversins er nú formlega að fara af stað
og býður starfsmenn fyrirtækisins velkomna
til starfa við hið nýja álver á Reyðarfirði.
Athöfnin hefst í öðrum kerskála álversins
kl. 14 og er búist við á annað hundrað gest-
um, þ.á.m. Bernt Reitan, aðstoðarforstjóra
Alcoa og yfirmanns Íslandsverkefnis fyr-
irtækisins, Geir H. Haarde forsætisráðherra,
Jóni Sigurðssyni iðnaðar- og viðskipta-
ráðherra og Valgerði Sverrisdóttur utan-
ríkisráðherra.
Í kvöld er svo fyrsta árshátíð Alcoa
Fjarðaáls og verður hún haldin í íþróttahús-
inu á Fáskrúðsfirði.
Athöfnin í dag er ekki hin eiginlega vígsla
álversins, sem fara mun fram í sumar, held-
ur er nú verið að fagna upphafi starfsem-
innar.
Klippt á borða í nýju álveri í dag
Morgunblaðið/Steinunn
Starfsemi hefst Eiginleg vígsla álvers Alcoa Fjarðaáls fer fram í sumar.
Fyrsta nýja álver Alcoa í
tvo áratugi tekur til starfa
Hringdu í 530 2400 og fáðu Heimaöryggi í áskrift!
www.oryggi.is
Hver vaktar
þitt heimili
um páskana?
Hi
m
in
n
og
h
af
/
SÍ
A