Morgunblaðið - 31.03.2007, Blaðsíða 8
8 LAUGARDAGUR 31. MARS 2007 MORGUNBLAÐIÐ
Svona, opnaðu gogginn, vargfuglinn þinn, hérna er svefnpillan.
Heimsferðir bjóða frábært tilboð til Costa del Sol 14.-24. apríl.
Bjóðum sértilboð á einum okkar vinsælasta gististað,
Principito Sol, einnig "stökktu tilboð" (þú bókar sæti og 4
dögum fyrir brottför færðu að vita hvar þú gistir) og fjölda
annarra gisti valkosta. Gríptu tækifærið og njóttu vorsins á
Costa del Sol.
Skógarhlíð 18 • sími 595 1000 • www.heimsferdir.is
Costa del Sol
14.-24. apríl
frá kr. 49.990
Sértilboð á Principito Sol
Verð kr. 54.990 - -10 nætur
Netverð á mann, m.v. 2-4 í íbúð á Principito
Sol í 10 nætur.
Verð kr. 49.990 - -10 nætur
Netverð á mann, m.v. 2-4 í herbergi/stúdíó/íbúð
í 10 nætur, m.v. stökktu tilboð.
Munið Mastercard
ferðaávísunina
VEÐUR
Það var djörf ákvörðun hjá útgef-endum Króníkunnar að hefja
útgáfu á því blaði og blaðið var
ágætlega útgefið. Hins vegar kemur
engum á óvart sem á annað borð
fylgist með sviptingum á þessum
markaði að út-
gáfu blaðsins
hafi verið hætt.
Og raunarskyn-
samlegt að taka
þá ákvörðun
svo fljótt í stað
þess að safna
upp miklu tapi.
Það er einfaldlega of mikið fram-boð á blöðum og tímaritum á Ís-
landi. Og þegar rúmlega 200 þúsund
eintökum af ókeypis blöðum er
dreift flesta daga vikunnar er ekki
við því að búast að vikublað á borð
við Króníkuna hafi náð fótfestu á
markaðnum.
Þessari víðtæku útgáfu verðurtæpast haldið áfram um langa
framtíð. Henni verður haldið áfram
svo lengi sem einhver finnst til að
borga tapið og því eru takmörk sett
eins og allir vita.
Það verða að vera ríkar ástæðurtil að fjármagnseigendur vilji
tapa peningum á blaðaútgáfu og
tímaritaútgáfu.
Yfirleitt eru slíkar ástæður tíma-bundnar.
Þetta mikla framboð á prentuðuefni leiðir svo til þess að auglýs-
ingamagnið, sem um er að ræða,
dreifist víða og verðið á auglýs-
ingum lækkar, þegar svo mikið aug-
lýsingapláss er í boði.
Það má því búast við að fleiridragi saman seglin en útgef-
endur Króníkunnar þegar upp verð-
ur staðið.
STAKSTEINAR
Breytingar á blaðamarkaði
SIGMUND
!
"#
$ %&
' (
)'
* +,
- %
.
/
*,
01 0
2
31,
1 ),
40
$
5 '67
8 3#'
! ""# $$%
! ""# $$%
#$ $#
9
)#:; ""
) ##: )
&
' ( "
"' "
)
<1 <
<1 <
<1
&( $# "*
$%
+",#$-
=
5
1
&"'
$
"#"'( "'
$ $%
.
$$
"- ' /
0$ " # " "
"% # $$/
:
&$$ $" "+
"#"
!%"
#$ $#." $"! "$
$1
$%
/
2 "" ""
#/
)
& '
$" "+
"#"
!%
$$ $1"#"'
$ $%
" "
% # ." $" $$
" (# "
'
(#
"#"- ' /"3 " /
45##"
"66
$#"
"7
"*
$%
2&34 >3
>)<4?@A
)B-.A<4?@A
+4C/B (-A
.
.
/ /
/ / /
/
.
.
.
.
.
.
.
.
.
.
.
.
.
.
Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar-
greinum Morgunblaðsins á slóðinni
http://morgunbladid.blog.is/
Jón Magnússon | 30. mars
Pólitísk öndunarvél
Allt var það gert til að
fá Margréti til að koma
deilum af stað innan
Frjálslynda flokksins
[…]. Það tókst, en nú
hefur flokkurinn náð
vopnum sínum. Óska-
framboðið sem átti að sundra Frjáls-
lynda flokknum, draga fylgi frá
Vinstri grænum til að ríkisstjórn-
arflokkarnir héldu meirihluta sínum
– hefur ekki náð að gera sig svo sem
Morgunblaðsmenn og aðrir sjálf-
stæðismenn ætluðust til.
Vonbrigðin leyna sér ekki.
Meira: http://jonmagnusson.blog.is/
Börkur Gunnarsson | 30. mars
Kúnni slátrað
Mér er slétt sama
hvort Hafnfirðingar
kjósa að leyfa þessu
magnaða fyrirtæki að
blómstra eða hvort
þeir ákveða að drepa
lífæðina sína, slátra
kúnni sem gefur þeim mjólkina. Það
er þeirra mál. Ég ætla hvort eð er
ekki að flytja inn í svona bæjarfélag
þar sem um helmingur bæjarbúa
virðist vera orðinn svo firrtur að
hann vill í alvörunni höggva undan
sér fæturna.
Meira: http://hrafnaspark.blog.is/blog/
hrafnaspark/
Óli Björn Kárason | 30. mars
Merkileg kaup
Kaupin á Króníkunni
eru annars nokkuð
merkileg. Erfitt er að
sjá hvaða skynsamleg
rök hafa legið að baki
því að útgáfufélag DV
ákvað að kaupa útgáf-
una, en DV hlýtur a.m.k. að hafa yf-
irtekið Björgólfs-lánið. Vandséð er
að það hafi verið nauðsynlegt fyrir
DV að losna við blaðið af markaði,
enda varla keppinautur. Hreinn
Loftsson, stjórnarformaður útgáfu-
félags DV, hugsar dýpra en ég næ að
skilja.
Meira: http://businessreport.blog.is
Sigríður Dögg Auðunsdóttir | 30. mars
Krónikan seld
Eins og fram hefur
komið í fréttum hefur
útgáfufélag Krónik-
unnar verið selt til út-
gáfufélags DV. Eftir
stutta en harða baráttu
á markaðnum kom í
ljós að það er nánast ógerningur að
reka óháðan fjölmiðil á Íslandi. Það
er miður.
Ég sé mikið eftir Krónikunni. Það
er ljóst að hún verður lögð niður í
núverandi mynd. Eitthvað af henni
mun þó lifa áfram í DV. Hversu mik-
ið, er enn óljóst. Hugmyndin er þó
dauð. Það er ekkert við því að segja.
Við reyndum okkar besta en und-
irtektirnar voru einfaldlega ekki
nægilegar. Það vantaði ekki að við
fengum góð viðbrögð frá lesendum
sem voru mjög ánægðir með blaðið.
Það sem vantaði var að fleiri fyndu
hjá sér þörf til að fara og kaupa blað-
ið.
Mig langar að þakka öllu því frá-
bæra starfsfólki Krónikunnar sem
tók þátt í þessari tilraun með okkur.
Við trúðum því öll sem eitt að mark-
aður væri fyrir svona blað. Það
reyndist ekki rétt. Það má ef til vill
halda því fram að hefðum við fengið
lengri tíma hefði verið hægt að búa
til meiri eftirspurn og þróa blaðið
áfram. Það reyndi ekki á það enda
hefði það kostað mikla fjármuni, sem
ekki liggja á lausu.
Ég er stolt af hverju einasta tölu-
blaði og öllu því vandaða efni sem
birt var. Ég er stolt af því að hafa
stýrt þessum öfluga hópi fólks, sem
ég jafnframt sé verulega eftir.
Ég trúði því að lukkan myndi snú-
ast okkur í hag og salan á blaðinu
myndi aukast. Þegar sjöunda og síð-
asta tölublað Krónikunnar var farið í
prentun sagði ég yfir hópinn: „Sjö er
töfratala. Nú mun eitthvað gott ger-
ast.“ Ég átti þó aldrei von á því að
sjöunda blaðið yrði það síðasta. Ég
verð bara að trúa á það að nú hafi
eitthvað gott gerst – fyrir okkur öll.
Þótt ég sjái mikið eftir Krónik-
unni hef ég einsett mér að horfa
fram á veginn með bjartsýni og jafn-
framt að vera þakklát fyrir að hafa
fengið tækifæri til að vinna með því
góða fólki sem var með mér á
Krónikunni. Fyrir það eitt, að hafa
kynnst þeim á þennan hátt, er ég
þakklát. Ég óska þeim öllum vel-
farnaðar […]
Meira: http://www.sigridurdogg.blog.is
BLOG.IS