Morgunblaðið - 31.03.2007, Síða 10
10 LAUGARDAGUR 31. MARS 2007 MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
NÚ ER aðeins hálfur annar mán-
uður til Alþingiskosninga og á tíu
dögum fjölgaði framboðum um tvö.
Þjóðin mun því velja milli sjö lista-
bókstafa þegar hún gengur að kjör-
borðinu í vor. Íslandshreyfingin hef-
ur hafist handa við að kynna málefni
sín um landið en enn er heimasíða
hreyfingarinnar óvirk. Vonandi
verður bætt úr því fljótlega.
Skemmtileg samsuða varð til þeg-
ar Baráttusamtök eldri borgara og
öryrkja og Höfuðborgarsamtökin
tilkynntu sameiginlegt framboð. Þó
kann sumum að þykja erfitt að sjá
eitthvað líkt með baráttumálum
hreyfinganna tveggja; að ellilífeyr-
isþegar fái að vinna án þess að bæt-
ur þeirra skerðist og að Reykjavík-
urflugvöllur verði fluttur á
Hólmsheiði hið fyrsta (í næsta ná-
grenni við Morgunblaðið!). Þá verð-
ur áhugavert að fylgjast með því
hvernig flokki með Höfuðborg-
arsamtökin innanborðs reiðir af á
landsbyggðinni.
Framboð sem einblína á ákveðin
málefni verða oft til þess að einmitt
sömu málefni eru tekin á dagskrá
hjá öðrum flokkum. Málefni aldr-
aðra og umhverfismál verða því
kosningamál í vor, þótt undirrituð
ætli að fara varlega í að fullyrða að
Reykjavíkurflugvöllur verði eitt af
stóru málunum. En hvaða mál eru
aðalkosningamálin?
Svarendur í skoðanakönnun
Capacent settu samgöngumál efst á
blað en það eitt og sér er talsvert
merkilegt. Þegar samgöngumál eru
rædd á þingi vilja flokkslínur nefni-
lega oft þoka fyrir kjördæmalínum.
Þess vegna má leiða líkur að því að
samgöngumál séu einn auðveldasti
málaflokkurinn þegar kemur að
störfum Alþingis enda ekkert fyr-
irfram ákveðið um að stjórnarand-
staðan styðji ekki tillögur stjórnar
og öfugt. En eru samgöngur virki-
lega mesta byggðamálið? Munu
samgöngur skera úr um hvort
byggðir lifa eða deyja?
En að öðru. Ósk Vilhjálmsdóttir,
frambjóðandi Íslandshreyfing-
arinnar, gaf ekki mikið fyrir skipt-
ingu í hægri og vinstri í í Silfri Egils
sl. helgi. Íslandshreyfingin skil-
greinir sig engu að síður hægra
megin við miðju en ætla má að það
sé til að forðast básinn sem Vinstri
græn skipa.
Þessi þáttur Egils bar þess greini-
leg merki að kosningar eru í nánd og
hefði einn og sér getað verið efni í
langan pistil. Egill spurði m.a. Jón
Magnússon, frambjóðanda Frjáls-
lynda flokksins, hvort flokkurinn
væri að koma inn í pólitíkina sem
kristilegur repúblikanaflokkur og
Jón svaraði: „Ég væri út af fyrir sig
ánægður með það en ég held ég ráði
því ekki einn.“
Nú ber ekki að oftúlka ummæli
Jóns enda þótt hann hafi áhuga á
slíkum flokki er alls óvíst að félagar
hans í Frjálslynda flokkinum hafi
það líka. Eitt er þó víst og það er að
kristilegur repúplíkanaflokkur
myndi sannarlega breyta flokkaflór-
unni á Íslandi!
Síðar í þættinum þegar rætt var
um innflytjendur vakti Jón athygli á
háu hlutfalli útlendinga í íslenskum
fangelsum miðað við fjölda útlend-
inga í landinu. Hvað er Jón að fara?
Meirihluti þeirra útlendinga sem eru
í íslenskum fangelsum, nánar til-
tekið 70%, hefur verið handtekinn
við innkomu til landsins og hefur
aldrei haft búsetu hér. Árið 2005,
þegar innflytjendur voru 4,6% af
íbúum landsins, voru þeir aðeins
gerendur í 3% brota á hegning-
arlögum.
Já, einn og hálfur mánuður til
kosninga og baráttan er sannarlega
orðin lífleg. Það verður gaman að
fylgjast með hvernig flokkarnir
fimm sem fyrir eru reyna að treysta
sig í sessi, hugsanlega sigla á ný mið,
og hvernig nýju framboðin tvö reyna
að skapa sér trúverðugleika og
mynda raunverulegan valkost við
flokkana sem fyrir eru.
Samgöngur og
útlenskir fangar
12. MAÍ 2007
Halla Gunnarsdóttir
halla@mbl.is
VIÐBRÖGÐ
stjórnmálamanna
eru nokkuð mis-
jöfn við þeim hug-
myndum sem
Björn Bjarnason
dómsmálaráð-
herra greindi frá í
ræðu á fundi
Samtaka um vest-
ræna samvinnu
og Varðbergs í
fyrradag. Þar lagði hann m.a. áherslu
á að öryggis- og varnarmál væru nú
frekar en áður innanríkismál og
áherslan væri á heimavarnir í aukn-
um mæli. Þá greindi hann frá hug-
myndum um stofnun 240 manna
varaliðs lögreglunnar.
Varnarmálin tengd aðildinni að
Atlantshafsbandalaginu
Valgerður Sverrisdóttir utanríkis-
ráðherra segist ekki skilja ummæli
Björns um varaliðið á þann veg að
hann sé að tala um her í þessu sam-
bandi. „Enda væri ég mótfallin því ef
svo væri,“ segir hún. „Hann er þarna
að tala um varalið lögreglu sem hefði
þá valdheimildir á við lögregluna og
ekkert umfram það,“ segir hún.
Spurð um áherslu dómsmálaráð-
herra á heimavarnir og að öryggis-
og varnarmál væru enn frekar en áð-
ur innanríkismál fremur en utanrík-
ismál bendir Valgerður á að Ísland sé
Atlantshafsbandalagsþjóð og það
setji svip sinn á okkar varnarmál.
„Þar sem við erum NATO-þjóð þá
eru okkar varnarmál mjög tengd því.
Það leiðir af aðild okkar að Atlants-
hafsbandalaginu að þetta er ekki
bara innanríkismál, heldur miklu
meira en það, þó ég geri ekki lítið úr
mikilvægi öryggismála innanlands,“
segir Valgerður.
„Út af fyrir sig skil ég það að við
þurfum að sjálfsögðu að hafa ein-
hvern viðbúnað sem við getum kallað
heimavarnir eða viðlagalið sem hægt
er að kalla til ef eitthvað fer alvarlega
úr böndunum,“ segir Guðjón Arnar
Kristjánsson, formaður Frjálslynda
flokksins. Hann tekur h.v. fram að
hann hafi ekki séð hugmyndirnar út-
færðar og geti því ekki tjáð sig ná-
kvæmlega um þær á þessu stigi.
Steingrímur J. Sigfússon, formað-
ur Vinstrihreyfingarinnar – græns
framboðs, setur spurningarmerki við
hugmyndir um stofnun 240 manna
varaliðs lögreglunnar og spyr hvort
ekki sé skynsamlegra að efla þá lög-
gæslu sem fyrir er í landinu, fjölga
löggæslumönnum og bæta starfsað-
stæður áður en ráðist er í stofnun
„einhvers varaútkallsliðs“.
Steingrímur tekur fram að honum
hafi ekki gefist tóm til að kynna sér
hugmyndir dómsmálaráðherra ná-
kvæmlega. Hann segir að megn
óánægja sé með það í byggðum
landsins hversu takmörkuð almenna
löggæslan er í dag. „Má ekki frekar
efla þá almennu löggæslu og björg-
unarþætti sem fyrir er í landinu?“
spyr hann og bætir við að hugmyndir
í þá veru að stofna varalið lykti af
áhuga Björns Bjarnasonar á að koma
á fót vísi að her eða sérsveitum.
Spurður um ummæli Björns um
aukna áherslu á heimavarnir og að
borgaralegar stofnanir komi meira til
sögunnar, sagðist Steingrímur geta
tekið undir þær upp að ákveðnu
marki. „Menn hafa í talsverðum mæli
endurskilgreint öryggishugtakið á
síðustu 10 til 15 árum og ég hef alltaf
haldið því fram að verkefni okkar eru
borgaralegs eðlis. Við erum með þær
stofnanir í landinu sem við þurfum til
þess, þ.e. a.s. löggæsluna, tollgæsl-
una, landamæraeftirlitið og björgun-
arsveitirnar. Það er enginn þörf fyrir
her eða hervarnir.
Ef Björn Bjarnason er að átta sig á
þessu þá er það gott. Þetta hef ég
sagt í tíu ár, nú er herinn farinn og
kannski er Björn bara að endurmeta
sín viðhorf í þessu. Hann var áður
fyrr mikill talsmaður hervarna og
sýnilegra loftvarna eins og það hefur
verið kallað.“
Steingrímur
tók fram að hann
vildi ekki fella
dóma yfir þessum
hugmyndum fyrr
en hann hefði
kannað þær betur
og í heild sinni.
„Ég hef ekki
heyrt neinn rök-
stuðning fyrir því
hvaða þörf er á þessum liðsafla og
hvaða hætta steðjar að okkur innan-
lands, sem gerir að verkum að við
þurfum að koma upp svona liði,“ seg-
ir Þórunn Sveinbjarnardóttir, þing-
maður Samfylkingarinnar, um hug-
myndir um stofnun 240 manna
varaliðs lögreglunnar. „Mér leikur
forvitni á að vita hvaða hættugrein-
ing og þarfagreining liggur að baki
þessari niðurstöðu í dómsmálaráðu-
neytinu.“
Finnst þessi hugmynd fráleit
Þórunn segir þessa hugmynd
koma eins og skrattinn úr sauðar-
leggnum. ,,Nú halda aðrir ráðherrar í
ríkisstjórninni því fram að varnir
okkar séu að fullu tryggðar,“ segir
hún og bætir við að auk þess sé rætt
um aukið samstarf við önnur Norð-
urlönd á N-Atlantshafi. „Ég velti því
fyrir mér hvar þessar hugmyndir
Björns Bjarnasonar passa inn í þessa
heildarmynd sem ég hélt að ríkis-
stjórnin hefði reynt að teikna upp af
stöðunni,“ segir Þórunn.
Hún tekur fram að hún hafi ekki
haft tækifæri til að kynna sér þessar
hugmyndir til hlítar og þekki ekki
hvaða vinna liggi þarna að baki. En
fram hafi komið í svörum dómsmála-
ráðherra í fjölmiðlum að verkefni
varaliðs gætu m.a. komið til ef um
náttúruhamfarir eða aðrar hamfarir
innanlands yrði að ræða. Hún bendir
á að hér sé til staðar öflugt almanna-
varnakerfi og mjög öflugar björgun-
arsveitir. Því sé þeirri spurningu
ósvarað hvað heimavarnalið eigi að
gera. Auk þess vanti rökstuðning fyr-
ir því að setja mörg hundruð milljónir
í að stofna svona lið og reka það.
„Mér finnst því þessi hugmynd frá-
leit.“
Misjafnar skoðanir á
heimavörnum og varaliði
Valgerður
Sverrisdóttir
Steingrímur J.
Sigfússon
Guðjón A.
Kristjánsson
Þórunn
Sveinbjarnardóttir
FIMM lögregluþjóna þurfti til að yf-
irbuga trylltan mann í annarlegu
ástandi sem gekk í skrokk á roskn-
um manni við hús á Miklubrautinni í
gær. Auk árásarinnar braut maður-
inn útidyrahurð að sögn lögreglu. Í
fyrstu var talið að árásarmennirnir
væru tveir en síðar kom í ljós að einn
maður var að verki.
Beita varð piparúða á manninn og
var farið með hann á slysadeild til
þess að hreinsa augu hans. Var hann
látinn gista fangageymslur lögreglu
áður en yfirheyrslur hæfust.
Sá sem varð fyrir árásinni var
einnig fluttur á slysadeild en hélt
meðvitund.
Yfirbugaður
með piparúða
ÁRNI Stefánsson, forstjóri Vífilfells,
segir að nýhafin kynningarherferð á
Coke Zero hafi skilað góðum
árangri. „Við erum mjög ánægð með
árangurinn,“ segir hann.
Coke Zero er sykurlaus kóla-
drykkur og er auglýsingaherferðin
samræmd í markaðslöndunum. Árni
Stefánsson segir að bæði jákvæðar
og neikvæðar athugasemdir hafi
borist vegna herferðarinnar og hafi
verið tekið tillit til sumra þeirra og
nokkrum slagorðum breytt. Her-
ferðin hafi gengið mjög vel og sjáist
það vel á sölunni. „Hún er í samræmi
við væntingar,“ segir hann.
Ánægðir með
herferð