Morgunblaðið - 31.03.2007, Side 16

Morgunblaðið - 31.03.2007, Side 16
16 LAUGARDAGUR 31. MARS 2007 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR Sokkabuxur sem eru sérsni›nar fyrir stórvaxnar konur Á ALÞJÓÐLEGA veðurdeginum 23. mars 2007 var formlega opn- aður í El Escorial á Spáni sameig- inlegur vefur 21 Evrópulands um veðurviðvaranir. Vefurinn er unninn undir merkj- um Eumetnet sem er formlegur samstarfsvettvangur ríkisveð- urstofa þessara landa. Á vefnum má sjá með einföldum og sam- ræmdum hætti hvort í gildi er inn- an hvers lands viðvörun um veður eða veðurtengda þætti fyrir næstu 48 klst og er vefurinn uppfærður á 20 mínútna fresti. Vefurinn er einkum hugsaður til nota fyrir þá sem ferðast á milli landa og þurfa að vita hvort veð- urviðvörun er í gildi í landinu sem ferðast er til. Notaðir eru fjórir meginlitir á viðvörunarkortinu: grænn ef engin viðvörun er í gildi frá viðkomandi veðurstofu, gulur vísar til þess að í gildi sé tiltölulega algeng viðvörun en ef liturinn er appelsínugulur eða rauður er um að ræða mjög fátíða atburði, gjarn- an mjög hættulega. Hafa verður í huga að viðmið- unarmörkin eru mismunandi frá landi til lands, enda tíðni sambæri- legra veðuratburða breytileg frá landi til lands og líkleg skaðsemi ákveðins veðuratburðar sömuleiðis. Sjá nánar á www.vedur.is og www.meteoalarm.eu. Válynd veður Frá opnun vefjarins þar sem hægt er að fylgjast með veður- viðvörunum, f.v.: Michael Staudinger, Austurríki, verkefnisstjóri Meteo- alarm, Fransisco Cadarso, Spáni, og Magnús Jónsson veðurstofustjóri. Hægt að sjá hvort í gildi er viðvörun um veður í Evrópu HUGMYNDASAMKEPPNI um skipulag Vatnsmýrar hófst á veg- um Reykjavíkurborgar í gær. Sam- keppnin er alþjóðleg og fer fram í tveimur þrepum. Afrakstur keppn- innar verður kynntur í nóvember eftir að dómnefnd hefur metið til- lögur í báðum þrepum. Gert er ráð fyrir Reykjavíkurborg semji við einn eða fleiri af vinningshöfum um skipulagningu hluta af Vatnsmýr- arsvæðinu í kjölfar keppninnar. Allar nánari upplýsingar um hugmyndasamkeppnina er að finna á sérstökum vef keppninnar, www.vatnsmyri.is. Morgunblaðið/Golli Samkeppni um Vatnsmýrina STANGVEIÐITÍMABILIÐ hefst á morgun. Veiðimenn taka þá að egna fyrir sjóbirting í ýmsum ám, einkum sunnanlands og vestan. Þá hefst einnig veiði í nokkrum silungavötnum. Veiðimenn sem hefja veiðar í kunnum sjóbirt- ingsám í Vestur- Skaftafellssýslu, svo sem Tungu- fljóti, Geirlandsá og Vatnamótum, sem og Varmá við Hveragerði, mega búast við einhverjum vatnavöxtum í kjölfar mikillar úrkomu sem spáð er í dag. Aðrar ár, eins og Tungulækur í Landbroti, eru meiri lindár og vaxa því síður. Meðal annarra veiðisvæða á Suðurlandi sem verða opnuð á morgun eru Steinsmýrarvötn, Minnivallalækur, Ytri-Rangá neðan Ægissíðufoss, Brúará og flest svæði í Soginu. Á Vesturlandi hefst veiði í Grímsá, Hítará, Andakílsá og Hraunsfirði. Fyrir norðan verður Litlaá í Kelduhverfi opnuð og á höfuðborgarsvæðinu hefst veiði í Vífilstaðavatni, sem verður sífellt vinsælla meðal vorveiðimanna. Stangveiðin hefst á morgun Morgunblaðið/Einar Falur Sjóbirtingur hefur tekið bleikan nobbler í Tungulæk. ÞORSTEINN Hjartarson hefur verið ráðinn framkvæmda- stjóri Þjónustu- miðstöðvar Breiðholts. Þor- steinn hefur gegnt starfi skólastjóra Fellaskóla í Breiðholti frá árinu 2000. Þjónustumiðstöð Breiðholts er ein af sex þjónustumiðstöðvum Reykjavíkurborgar. Þjónustumiðstöð HULDA Gústafsdóttir kom, sá og sigraði í fimmgangi í Meistaradeild VÍS í fyrrakvöld. Hún skaut þar með sigurvegurum í fimmgangi í fyrra ref fyrir rass. Hulda var efst eftir forkeppni á Galsasyninum Galdri frá Flagbjarnarholti en þurfti að hafa fyrir úrslitunum þar sem hún háði bráðabana við Viðar Ingólfsson og Riddara frá Krossi. Fimmgangur NÝI færanlegi hafnarkrani Eim- skips, Jötunn, sýndi í fyrradag kraft sinn þegar hann lyfti 115 tonna rafli og 93 tonna túrbínu. Rafallinn og túrbínan voru flutt til landsins með Goðafossi en verða nú send til Hellisheiðarvirkjunar Orkuveitu Reykjavíkur. Kraftur Jötuns BÁRA Agnes Ketilsdóttir hefurverið ráðinn hjúkrunarfræðingur World Class heilsuræktar, deild- arstjóri útivistartíma og tengiliður stöðvarinnar við heilbrigðisstéttir. Gígja Þórðardóttir hefur verið ráð- inn faglegur deildarstjóri þjálfara og námskeiða hjá World Class heilsurækt og tengiliður stöðv- arinnar við heilbrigðisstéttir. Heilsurækt KOSTNAÐUR stjórnvalda af hval- veiðum og tengdum verkefnum á tímabilinu 1990–2006 nemur samtals tæplega 749 milljónum króna á verð- lagi dagsins í dag. Þetta kemur fram í samantekt sem Þorsteinn Sigur- laugsson rekstrarhagfræðingur vann nú í byrjun árs fyrir International Fund for Animal Welfare og Nátt- úruverndarsamtök Íslands og kynnt var á blaðamannfundi í gær. Fram kom í máli Þorsteins að markmiðið væri að draga saman ann- ars vegar beinan kostnað ríkisins vegna hvalveiða og hins vegar óbein- an kostnað, þ.e. kostnað sem líklegt er að fallið hafi til á alþjóðavettvangi vegna afstöðu Íslands. Sagði hann kostnaðarliðina vera fjóra, þ.e. kostn- aður vegna vísindaveiða sem samtals nemur 235 milljónum króna, kostn- aður vegna alþjóðasamstarfs sem samtals nemur 168 milljónum (undir þennan lið fellur kostnaður við ár- gjöld vegna aðildar að Alþjóðahval- veiðiráðinu og Norður-Atlantshafs- sjávarspendýraráðinu), kostnaður vegna kynningar á málstað Íslands erlendis sem samtals nemur tæpum 197 milljónum og annar hvalveiði- tengdur kostnaður sem samtals nem- ur 149 milljónum. Samtals gerir þetta tæplega 749 milljónir. Tók Þorsteinn fram að kostnaðar- tölurnar væru komnar frá sjávarút- vegsráðuneytinu, bæði sem svar við skriflegum fyrirspurnum frá rann- sakendum og fyrirspurnum þing- manna á þingi. Nýta hefði mátt féð betur Í samtali við Morgunblaðið segir Árni Finnsson, formaður Náttúru- verndarsamtaka Íslands, mikilvægt að dregin sé upp heildarmynd af því hversu miklu af almannafé hafi á um- liðnum árum verið varið í það verk- efni stjórnvalda að hefja hvalveiðar að nýju. „Þessi barátta stjórnvalda fyrir endurupptöku hvalveiða hefur nú staðið í 16–17 ár og menn hafa lagt í það mikinn kostnað. Að okkar viti hefur þetta ekki gefið neitt. Eins og staðan er núna er fátt sem bendir til að hægt sé að selja þetta hvalkjöt sem vannst úr þessum sjö langreyðum sem Kristján Loftsson veiddi. Þá vaknar spurningin hvort ekki hefði verið hægt að nýta þessa fjármuni, sem nánast er verið að henda út um gluggann, betur. Hugsaðu þér hvað hefði verið hægt að gera fyrir þessa peninga í umhverfisvernd eða til rannsókna á lífríki hafsins hér við land. T.d. hefur skort rannsóknir á hugsanlegum áhrifum loftslagsbreyt- inga fyrir fiskveiðar,“ segir Árni. Kostnaður vegna hval- veiða 749 milljónir Dýrt Hvalveiðar eru sagðar hafa kostað stjórnvöld 749 milljónir króna. Formaður Náttúruverndarsamtaka Íslands segir peningum stjórnvalda vegna hvalveiða hafa verið hent út um gluggann Morgunblaðið/Ómar

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.