Morgunblaðið - 31.03.2007, Qupperneq 20
20 LAUGARDAGUR 31. MARS 2007 MORGUNBLAÐIÐ
VIÐSKIPTI/ATHAFNALÍF
ÞETTA HELST ...
VIÐSKIPTI
● HÆKKUN varð á Úrvalsvísitölunni
í kauphöll OMX á Íslandi í gær. Hún
fór upp um 0,44% og endaði í 7.493
stigum. Mest hækkun varð á bréfum
Alfesca, eða 2,12%, bréf Össurar
hækkuðu um 1,63% og bréf Glitnis
hækkuðu um 1,12% í um 100 við-
skiptum upp á rúman milljarð króna.
Bréf Flögu lækkuðu um 0,84% og
bréf Icelandic Group um 0,72%.
Mestu viðskiptin voru með bréf Ex-
ista, 11,6 milljarðar, en þyngst vega
kaup fjárfestingafélagsins Kistu á
hlutum í eigu SPRON og Icebank.
Hlutur Kistu í Exista er nú 6,25% en
félagið er í eigu sparisjóðanna.
Glitnir upp um 1,12%
● HANS Petersen
og Strax Holdings
hafa sameinað
verslunarrekstur
sinn undir merkj-
um HP Far-
símalagersins frá
og með morg-
undeginum, 1.
apríl. Strax hefur
rekið Far-
símalagerinn og
sérhæft sig í sölu og dreifingu á far-
símabúnaði. Hans Petersen mun eft-
ir sem áður stunda heildsölurekstur
með ljósmynda- og framköll-
unarvörur. Áætluð velta sameinaðs
félags er um 700 milljónir króna en
sex verslanir verða starfræktar á höf-
uðborgarsvæðinu. Kjartan Örn Sig-
urðsson hefur verið ráðinn fram-
kvæmdastjóri HP Farsímalagersins
en hann var áður hjá Strax.
Farsímalagerinn og
Hans Petersen saman
HP Farsímar og
myndavélar í eitt.
● HALLI á vöruskiptum við útlönd
fyrstu tvo mánuði þessa árs nam
11,2 milljörðum króna, samanborið
við 18,7 milljarða króna á sama
gengi miðað við sama tíma í fyrra,
eða 7,5 milljörðum skárri vöru-
skiptajöfnuður. Í janúar og febrúar sl.
voru fluttar út vörur fyrir 43,2 millj-
arða króna en inn fyrir 54,4 millj-
arða. Í febrúarmánuði einum og sér
var vöruskiptahallinn fimm milljarðar
króna, samanborið við 8,8 milljarða í
febrúar árið 2006. Sjávarafurðir voru
47% alls útflutnings fyrstu tvo mán-
uðina og var verðmæti þeirra 4,5%
meira en á sama tíma árið áður.
Ellefu milljarða króna
vöruskiptahalli
SAMSKIP hafa samið við japanska
umboðs- og flutningafélagið Inter-
ocean Shipping Corporation um að
gerast umboðsaðili í Japan.
Að sögn Kristjáns Más Atlasonar,
sem nýlega tók við starfi fram-
kvæmdastjóra hjá frystivöru- og
flutningsmiðlun Samskipa, með að-
setur í Rotterdam, hefur félagið með
samningnum styrkt stöðu sína enn
frekar í frystivöru- og flutningsmiðl-
un á Asíumarkaði. Þetta sé enn eitt
skrefið í þá átt að styrkja og efla
þjónustu Samskipa á Asíumarkaðn-
um. Fyrir er félagið með skrifstofur í
Pusan og Seúl í Suður-Kóreu,
Qingdao og Dalian í Kína, sem og Ho
Chi Minh-borg í Víetnam.
Interocean Shipping Corporation
var stofnað í Japan árið 1948 af Kit-
amura-fjölskyldunni.
Sterk staða Samskipa
Í tilkynningu frá Samskipum er
haft eftir Kenta Kitamura, forstjóra
fyrirtækisins, að það sé mikið
ánægjuefni að verða hluti af flutn-
inganeti Samskipa. Japan hafi lengi
átt viðskipti með frosnar fiskafurðir
við Ísland, Noreg, Færeyjar og Hol-
land og sterk staða Samskipa í þeim
flutningum sé mikilvæg fyrir Inter-
ocean Shipping. Fyrirtækið hefur
sinnt fiskflutningum og þjónustu við
sjávarútveginn, þó að reksturinn
hafi síðar þróast inn á fleiri svið.
Samskip á Japansmarkað
Ganga til samstarfs við Interocean Shipping Corporation
Japan Kristján Már Atlason og
Kenta Kitamura handsala samning-
inn milli Samskipa og Interocean.
nefna stöðubyggingu félagsins í
finnska flugfélaginu Finnair, kaup
þess á danska lággjaldafélaginu
Sterling að ógleymdri stöðubygg-
ingu í AMR Corporation, móður-
félagi bandaríska flugrisans Americ-
an Airlines.
Tjá sig ekki um orðróm
Aðspurður um áhuga FL Group á
20% hlut SAS í BMI segir Kristján
Kristjánsson, upplýsingafulltrúi FL
Group, félagið aldrei tjá sig um orð-
róm á markaði.
FL Group orðað við
kaup á hlut í BMI
Fleiri flugfélög sögð áhugasöm um hluti í British Midland
Eftir Guðmund Sverri Þór
sverrirth@mbl.is
MIKLAR vangaveltur eru nú á
markaði í Bretlandi um framtíðar-
eignarhald á breska flugfélaginu
British Midland, BMI. Fyrr í vikunni
var greint frá því í breska dagblaðinu
Times að British Airways, risinn á
breskum flugmarkaði, væri að íhuga
að bjóða um einn milljarð punda,
jafngildi tæplega 129 milljarða
króna, fyrir helmingshlut auk eins
hlutabréfs í félaginu. Sá hlutur hefur
verið í eigu stjórnarformanns félags-
ins, Sir Michael Bishop, og hefur ver-
ið afar eftirsóttur um alllanga hríð.
Beðið eftir Bishop
Aðrir eigendur BMI eru þýska
flugfélagið Lufthansa, sem á 30%
hlut, og skandinavíska flugfélagið
SAS, sem á 20%. Í gær greindi Times
frá því að síðarnefnda félagið væri að
íhuga að selja hlut sinn. Heimildir
blaðsins herma þó að áhugi fjárfesta
sé fremur takmarkaður þar sem þeir
vilji frekar bíða þess að Bishop selji
hlut sinn þar sem sá hlutur veitir
nánast einræði í félaginu.
Þó hafa nokkrir mögulegir kaup-
endur að hlut SAS verið nefndir en
meðal þeirra er fjárfestingarfélagið
FL Group sem hefur farið mikinn í
fjárfestingum á flugmarkaði á und-
anförnum misserum. Má þar t.d.
Í HNOTSKURN
»Mikið líf er í kringum flug-félögin. Eftir lokun mark-
aða í gær bauð bandaríski
sjóðurinn Texas Pacific Group
í spænska flugfélagið Iberia.
»Andvirði tilboðsins er um2,3 milljónir punda, jafn-
virði um 300 milljarða króna.
Til samanburðar er markaðs-
virði Icelandair um 27 millj-
arðar króna.
Heathrow Aðalflugvöllur BMI er Heathrow, líkt og hjá British Airways,
sem sýnt hefur keppinaut sínum áhuga eins og FL Group. Þannig er BA
með þessa flugstöðvarbyggingu í smíðum við Heathrow (Terminal 5) sem
vígja á 27. mars á næsta ári. Um hana munu um 30 milljónir farþegar fara.
Eftir Björn Jóhann Björnsson
bjb@mbl.is
NORÐURÁL hefur falið Lands-
bankanum og Kaupþingi í samein-
ingu að skoða hagkvæmustu leiðir til
fjármögnunar á fyrirhuguðu álveri
Norðuráls í Helguvík, ásamt endur-
fjármögnun vegna Grundartanga.
Áætluð fjárfesting Norðuráls vegna
framkvæmda við álverið í Helguvík
er allt að 70 milljörðum króna.
Til skoðunar er að Kaupþing og
Landsbankinn hafi forystu um
sambankalán, líkt og bankarnir
gerðu á öndverðu árinu 2005 með
365 milljón dollara fjármögnun
vegna stækkunar og endurfjár-
mögnunar álvers Norðuráls á
Grundartanga, jafnvirði um 24 millj-
arða króna nú. Auk Kaupþings og
Landsbankans tóku Glitnir og Spari-
sjóðabankinn, nú Icebank, þátt í
þeirri fjármögnun ásamt erlendu
bönkunum Fortis Bank, HSG Nor-
dbank, NIB, Sumitomo og Credit
Suisse. Var þetta í fyrsta sinn sem
innlendar lánastofnanir önnuðust
fjármögnun af þessu tagi.
Framkvæmdir á árinu?
Ragnar Guðmundsson, fram-
kvæmdastjóri viðskiptaþróunar og
fjármálasviðs Norðuráls, segir að
reynslan af sambankaláninu hafi
verið mjög góð. Áfram verði byggt á
þeim grunni og góður tími gefinn í að
undirbúa fjármögnunina.
Að sögn Ragnars er stefnt að því
að hefja jarðvinnu og aðrar undir-
búningsframkvæmdir síðar á þessu
ári. Verkið verður áfangaskipt og
miðað við að byggingu fyrsta áfanga
verði lokið síðari hluta árs 2010,
þannig að framleiðsla áls geti þá haf-
ist. Framkvæmdum við álverið verði
lokið eigi síðar en árið 2015.
Ragnar segir skipulagsmál í góð-
um farvegi í samstarfi við heima-
menn á Suðurnesjum, sem og und-
irbúning fyrir mat á umhverfis-
áhrifum. Reiknað sé með því að
senda endanlegar tillögur til Skipu-
lagsstofnunar í byrjun apríl, í fram-
haldinu verði mat á umhverfisáhrif-
um auglýst og síðsumars gæti
framkvæmdaleyfi legið fyrir.
Álverið í Helguvík í fjármögnun
Landsbanki og Kaupþing undirbúa fjármögnun 70 milljarða fjárfestingar
Helguvík Undirbúningur álvers
Norðuráls í Helguvík er í fullum
gangi, fjármögnunin þar á meðal.
MEST hefur
keypt fyrirtækið
Timbur og stál
og mun það
verða rekið
áfram í svipaðri
mynd og áður á
Smiðjuvegi í Kópavogi. Kaupverðið
er ekki gefið upp. Timbur og stál er
um 30 ára fyrirtæki sem hefur
þjónustað byggingariðnaðinn.
MEST varð til með samruna
Steypustöðvarinnar og Merkúrs um
áramótin 2005 og 2006. Starfsemi
Merkúrs fólst í megindráttum í inn-
flutningi og sölu á byggingarvörum
auk véla og tækja fyrir sjávar-
útveg, verktaka og ýmsan annan
iðnað. MEST er með starfsstöðvar í
Hafnarfirði, þar sem aðalskrif-
stofan er til húsa, Reykjavík, á Sel-
fossi og Reyðarfirði. Hjá fyrirtæk-
inu starfa rúmlega 270 manns.
Timbur og
stál fara
til MEST
!
" #$%&'()
!" #$%&
' ($ & %& ) )
* + , -.- /
"0 $ 1
& ! &$ 1
&
23 . 4)5 67 6 7$$$,, 8 ,
*- #$* , &
! & ! ,.
!
:9;;
<9=>
9;;
9?;
9:;
@?9:;
@:9;;
9:;
>;@?9;;
>9=;
:9;;
>9:;
@;9;;
>@9;;
@:9=;
@9 @:9>;
9=
>9>;
;9;;
<9?
=9 <9 >9=
>@9 :9;
!& +
,
&$
6 ,A &$B
' *
>??:?
>;;?;;:
@==;;;;;
>?>@
@@?;:< :;<@ <@><;==:
>@:=>?; <:>@
>>?::>
@;:=::@?
@===@>?
>?=@ ?:>><=
<>:@:;;
>>>:@>@?=
;:>?
>;?>>:;
>=>???;
+
+
@@<@@
<=>@;;
+
+
+
+
:9;;
<9=;
9;;
9?>
9@;
@?9 @:9;;
9:;
>;@9;;
>9 :9;;
>9:;
>?9?;
>@<9;;
@:9:;
@9 @9?;
9=;
>9>;
+
<9?
=9<;
<9 +
>>9;;
+
: <9=
:9;;
9?@
9:;
@?9=;
@:9>;
9=;
>;;9;;
>9=;
:9;;
>9?;
@;9;;
>@9;;
@:9?;
@9 @:9>;
9?;
>9?;
+
<9??
=9=;
+
+
>@9 :9:;
8, A C
6!D $ .&
,
>
::
@
@<
>?
@
??
:
>;=
<
?
>;
:<
>;
<<
@
>@
>=
+
+
>
@
+
+
+
+
*A,
,
,
2&E
*F;;
#
#
* +
6*"
G # #
+ *
H H<;
4)5* # # *
4)5 2
# * *
1H"5>
G IJ
#
# * *
FL Group hefur selt hlut sinn í
Kynnisferðum. Kaupandi er eign-
arhaldsfélagið Reynimelur, sem er í
eigu fjárfesta undir forystu SBA-
Norðurleiðar og Hópbíla. Kynn-
isferðir halda m.a. uppi ferðum
milli Reykjavíkur og Leifsstöðvar
og velta fyrirtækisins á síðasta ári
nam 1,5 milljörðum króna. Þar með
hefur FL Group selt öll dótturfyr-
irtæki sín sem tengdust gamla
ferðaþjónustuhluta Flugleiða.
Kynnisferðir fá
nýja eigendur
♦♦♦