Morgunblaðið - 31.03.2007, Side 23
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 31. MARS 2007 23
ANDSTÆÐINGAR herforingjanna
sem rændu völdum í Taílandi efndu
í gær til mótmæla við ráðhúsið í
höfuðborginni Bangkok og sjást
hér veifa þjóðfánanum. Nýjar þing-
kosningar verða í haust.
Reuters
Mótmæli í Bangkok
SVO virðist sem George W. Bush,
forseti Bandaríkjanna, sé nú búinn
að gefa vin sinn, Alberto Gonzales
dómsmálaráðherra, upp á bátinn ef
svo má segja en fyrrverandi aðstoð-
armaður ráðherrans ber nú, að
hann hafi tekið fullan þátt í brott-
rekstri átta alríkisdómara. Gonzal-
es hefur neitað því hingað til.
Kyle Sampson, fyrrverandi að-
stoðarmaður Gonzales, sagði fyrir
dómsmálanefnd öldungadeild-
arinnar, að ráðherrann og Harriet
Miers, ráðgjafi Bush, hefðu ráðið
mestu um brottrekstur dómaranna
en þeir segjast hafa verið reknir
fyrir að ganga ekki erinda rík-
isstjórnarinnar.
Bush átti í fyrradag lokaðan fund
með fulltrúadeildarþingmönnum
repúblikana og var þá spurður um
Gonzales. Sagt er, að hann hafi ekki
tekið upp hansk-
ann fyrir hann,
aldrei þessu
vant, heldur end-
urtekið, að hann
yrði sjálfur að
ráða fram úr sín-
um málum. Eftir
framburð Sam-
psons fyrir dóms-
málanefndinni
sagði Arlen Specter, áhrifamesti
repúblikaninn í henni, að ástæða
væri til að efast um, að Gonzales
hefði sinnt sínu starfi með tilhlýði-
legum hætti.
Gonzales hefur áður borið, að
hann hafi ekki tekið þátt í neinum
viðræðum eða séð nokkur skjöl um
brottrekstur dómaranna. Á hann að
koma fyrir dómsmálanefndina 17.
apríl nk.
Enn hitnar undir Gonzales í
embætti dómsmálaráðherra
Alberto Gonzales
NOKKUÐ ljóst virðist vera, að sá
vinsæli bíll Volkswagen Caddy er
ekki alveg gallalaus. Hann lyktar
nefnilega að innan eins og margir
kettir hafi migið í hann. Hefur ver-
ið kvartað undan þessu, einkum í
Svíþjóð, og talsmaður Volkswagen
þar í landi viðurkennir vandann.
Segir hann, að ástæðan sé sú, að
raki komist inn í bílinn með bens-
íngjöfinni og gangi síðan í samband
við efni, sem eru í gúmmímottunni.
Það valdi lyktinni. Bætti hann því
við, að þeir, sem líkaði ekki lyktin,
gætu komið á næsta Volkswagen-
verkstæði og fengið úr þessu bætt.
Líkar ekki
kattarlyktin
1. apríl er á morgun og rétt að rifja
upp, að 1957 tilkynnti BBC, að búið
væri að útrýma spaghettí-bjöllunni
og nú blómstruðu spaghettí-trén
sem aldrei fyrr. Linnti þá ekki lát-
unum í fólki, sem vildi vita hvar
hægt væri að kaupa spaghettí-tré.
Spaghettí-trén
MIKIL svifryksmengun hefur verið
í Stokkhólmi í mánuðinum og oft
yfir því hámarki, sem ESB-reglur
kveða á um. Er óvanalega milt veð-
ur sagt eiga sinn þátt í því en þó
einkum mikil nagladekkjanotkun.
Hefur hún aukist um 10% frá fyrra
ári. Vegna þess hefur verið lagt til,
að umferð verði stundum bönnuð á
götum nálægt íbúðahverfum.
Umferðin bönnuð
Eftir Kristján Jónsson
kjon@mbl.is
BRESKIR ráðamenn segjast ætla
að þrýsta eftir mætti á stjórnvöld í
Teheran á alþjóðavettvangi vegna
deilunnar um sjóliðana 15 sem Íran-
ar handtóku á umdeildu svæði á
landamærum Írans og Íraks fyrir
viku. Mikil reiði er í Bretlandi vegna
málsins en Tony Blair forsætisráð-
herra sagði í gær að sýna yrði þol-
inmæði; aðaláherslan yrði að vera á
að fá fólkið leyst úr haldi.
Blair lýsti andstyggð sinni á því
hvernig Íranar hefðu notað fangana í
áróðursskyni. Breskur sjóliði,
Thomas Summers, kom fram á ír-
anskri sjónvarpsstöð í gærmorgun
og baðst afsökunar. „Ég ítreka að ég
biðst innilega afsökunar á að hafa
farið inn í landhelgi ykkar,“ sagði
Summers á myndbandi sem var sýnt
á al-Alam-sjónvarpsstöðinni.
Bresk yfirvöld hafa brugðist
harkalega við og telja ljóst að sjólið-
arnir séu þvingaðir til að segja það
sem fyrir þá sé lagt. „Að nota her-
menn okkar í áróðursskyni á þennan
máta er svívirðilegt,“ sagði talsmað-
ur utanríkisráðuneytisins í London.
Áður hafði verið birt svipuð yfirlýs-
ing sjóliðans Faye Turney sem Ír-
anar gáfu í skyn að þeir myndu leysa
úr haldi en þeir hættu síðan við það.
Bresk stjórnvöld fóru með málið
fyrir öryggisráð Sameinuðu þjóð-
anna. Fullyrða Íranar að verið sé að
misnota öryggisráðið, um sé að ræða
tvíhliða deilu ríkjanna sem komi
ráðinu ekkert við. Öryggisráðið lýsti
í yfirlýsingu sinni yfir „þungum
áhyggjum“ vegna málsins og hvatti
til að breskir sendimenn fengju að
ræða við fangana. Vegna andstöðu
Rússa fengu Bretar því ekki fram-
gengt að öryggisráðið fordæmdi að-
gerðir Írana. Áhyggjur vegna deil-
unnar endurspeglast í hækkandi
olíuverði á heimsmörkuðum, fatið
var komið í 69 dollara í gær.
Saka Íran um áróðursstríð
Jerúsalem. AFP. | Ehud Olmert, for-
sætisráðherra Ísraels, segir að um-
bylting hafi orðið í afstöðu arabaríkj-
anna gagnvart friðarumleitunum og
segir raunhæft að samningar takist
innan fimm ára. Ríki Arababanda-
lagsins ítrekuðu í fyrradag gamlar
tillögur sínar um að friður verði sam-
inn gegn því að Ísraelar yfirgefi her-
numdu svæðin.
„Það er að myndast blokk ríkja
sem skilja að þau hafi ef til vill haft
rangt fyrir sér þegar þau töldu Ísr-
ael vera mesta vandamál heimsins,“
sagði Olmert í viðtali við Haaretz í
gær. „Þetta er byltingarkennd af-
stöðubreyting.“ En ráðherrann tók
einnig fram að alls ekki kæmi til
mála að samþykkja kröfu arabaríkj-
anna um að palestínskir flóttamenn
fengju að snúa heim til svæða sem
þeir og forfeður þeirra áttu í Ísrael.
Fagnar frið-
artillögum