Morgunblaðið - 31.03.2007, Qupperneq 26
26 LAUGARDAGUR 31. MARS 2007 MORGUNBLAÐIÐ
AKUREYRI
ÁRBORGARSVÆÐIÐ
Eftir Sigurð Jónsson
Selfoss | „Við erum á kafi í verk-
efnum í kringum vaxtarsamninginn
fyrir Suðurland. Ég tel að sókn-
arfærin á Suðurlandi séu sterkust í
gegnum samstarf og samvinnu. Við
þurfum að efla samstarfsnetið á
Suðurlandi og hvetjum fólk til sam-
starfs en það er mikilvægt að fólk
þori að vinna saman. Vaxtarsamn-
ingurinn nýtist þeim sem vilja nýta
sér hann,“ sagði Steingerður
Hreinsdóttir, verkefnastjóri hjá At-
vinnuþróunarfélagi Suðurlands.
„Það liggja mikil sóknarfæri í
skólamálum og menntun, það er
nauðsynlegt að efla háskóla-
menntun á svæðinu en Suðurland er
undir landsmeðaltali hvað snertir
háskólamenntað fólk. Háskóla-
starfsemi mun draga að háskóla-
menntað fólk sem vill búa á svæðinu
og skapar um leið umhverfi í kring-
um sig. Ég vil sjá meiri samvinnu á
háskólasviðinu þannig að fólk geti
sótt sér háskólamenntun í gegnum
háskólaklasa sem svo myndar
ákveðið samfélag utan um menntun
á mismunandi sviðum háskóla-
náms.“
Þarf frjóa hugmynd
Fólk sem hefur hug á að byggja
upp atvinnustarfsemi getur leitað til
Atvinnuþróunarfélags Suðurlands
um aðstoð við að gera hugmyndir
að veruleika. „Við hjálpum fólki að
byggja upp sína starfsemi hvort
sem er frá grunni eða við að stækka
þann rekstur sem fyrir er.
Það þarf bjartsýni og jákvæðni til
að gera það sem mann langar til og
við hvetjum fólk til að koma með
hugmyndir til okkar og hafa þær
sem mótaðastar. Við búum ekki til
hugmyndir, fólk verður að hugsa
þær sjálft en það er alveg klárt að
það þarf frjóa hugsun til að móta
nýja viðskiptahugmynd og þor til að
hrinda henni í framkvæmd,“ sagði
Steingerður og lagði áherslu á að
fólk væri hvatt til að fara vel í gegn-
um eigin hugmyndir um fyrirtæki
og vera gagnrýnið.
„Það er mjög mikilvægt að fyr-
irtæki á Suðurlandi standi saman
og vinni saman. Vaxtarsamning-
urinn gefur litlum félögum tækifæri
til að taka sig saman og markaðs-
setja sig sem heild eða standa sam-
an að útboði til að ná meiri árangri
en ella. Ég held að það sé jarðvegur
fyrir þessa hugsun. Mér finnst
þetta vera að breytast og fólk er
smám saman að kveikja á klasa-
hugmyndinni sem byggist á sam-
starfi í samkeppni. Fyrirtækin eru í
samkeppni en vinna saman að því
að fá stærri verkefni inn á svæðið.
Svo held ég að samfélagsgerðin
hérna sé smám saman að breytast.
Það eru margir sem keyra til
Reykjavíkur eftir vinnu en ég held
að það verði stutt í að fólk fari að
hugsa stærra og að hérna verði
meira umfang í atvinnustarfsemi.
Aðstæðurnar hér geta skapað
grundvöll fyrir stórhuga áform, fólk
vill hafa slíka möguleika nálægt
sér,“ sagði Steingerður, sem líkar
mjög vel við starfið sem hún er í.
Lifandi og frjótt starf
„Þetta er rosalega skemmtilegt
starf, lifandi og frjótt. Það sem er
skemmtilegast við það er að hér
vinnum við með einyrkjum og smá-
fyrirtækjum en líka stórfyr-
irtækjum og sveitarstjórnum. Hér
er því öll flóra atvinnulífsins undir
og það gefur starfinu mikið gildi.
Mér finnst fólk svo áhugavert og
skemmtilegt. Það er nú einu sinni
þannig að því breiðari flóru mann-
lífsins sem maður umgengst því
meira lærir maður en öll atvinnu-
uppbygging snýst að einhverju leyti
um samskipti,“ sagði Steingerður
sem býr á Selfossi með tveimur
börnum sínum, 13 og 15 ára, og nýt-
ur þess að vera í samskiptum við
þau.
„Við bíðum eftir vorinu til að
komast út en við höfum mjög gam-
an af að ferðast, hvort sem er um
landið eða til að njóta þess að vera á
sólarströnd,“ sagði Steingerður en
eitt af því sem hún stundar til að
efla sjálfan sig er hin áreynslumikla
líkamsrækt sem ber heitið „Boot
Camp“. „Það er æðisleg útrás í
þessu,“ sagði Steingerður Hreins-
dóttir verkefnisstjóri hjá At-
vinnuþróunarfélagi Suðurlands.
Við þurfum að efla samstarfs-
net fyrirtækja á Suðurlandi
Morgunblaðið/Sigurður Jónsson
Atvinnuþróun Steingerður Hreinsdóttir segir að mikil tækifæri liggi í auk-
inni menntun og hún vill auka háskólamenntun á Suðurlandi.
Atvinnuráðgjafinn
stundar „Boot
Camp“ af dugnaði
Í HNOTSKURN
»Steingerður Hreinsdóttirhefur starfað að atvinnu-
málum á Suðurlandi frá því í
ágúst 2005.
»Hún lauk 4 ára háskóla-námi í Bretlandi í alþjóða-
samskiptum og er með meist-
arapróf í þeim fræðum og
MBA-próf í viðskiptastjórnun.
Eftir Hafþór Hreiðarsson
Húsavík | Bátar hvalaskoðunarfyr-
irtækisins Gentle Giants á Húsavík
standa nú uppi á landi þar sem ver-
ið er að skvera þá fyrir hvalaskoð-
unina á komandi sumri. „Við ætl-
um að byrja fyrr í ár en áður, eða
1. maí nk., þannig að við eru fyrr á
ferðinni við undirbúning bátanna
en áður. Ætlum að hafa tímann
fyrir okkur,“ segir Stefán Guð-
mundsson, framkvæmdastjóri
Gentle Giants, og bætir við að hon-
um finnist ýmislegt benda til þess
að töluvert verði af hval á ferðinni
í Skjálfanda og hann verði snemma
á ferðinni í ár.
„Það gekk óvenjumikið af loðnu
á grunn norðanlands um daginn,
töluvert meira en í fyrra, að því er
virðist, og Skjálfandi var þar engin
undantekning. Það er ljóst að mik-
ið líf fylgir slíkum göngum og hafa
nú þegar sést höfrungar í hundr-
aðavís ásamt einhverju af hrefnu
og í það minnsta einn hnúfubakur.
Þetta er óvenju snemmt,“ segir
Stefán.
Ógætileg pólitísk ákvörðun
En hver voru viðbrögð við-
skiptavina við hvalveiðum Íslend-
inga? „Hvalveiðarnar síðasta haust
urðu til þess að óhemju mikið barst
til okkar af tölvupósti á meðan þær
stóðu yfir. Í þeim var fólk ann-
aðhvort að lýsa yfir vanþóknun
sinni á þessum veiðum, sagðist í
leiðinni ekki heimsækja Ísland á
meðan þær væru stundaðar, eða
hreinlega afbóka ferðir til okkar.
Eftir að veiðum lauk hefur lítið
borið á slíkum mótmælum. Mér
finnst eðlilegt að fólk láti skoðanir
sínar í ljós með þessum hætti, enda
eiga þessar hvalveiðar okkar lítið
skylt við vísindi að mínu mati. Það
væri auðveldlega hægt að afla
þessara upplýsinga með öðrum
hætti, eins og t.d. með atferlisrann-
sóknum sem ættu auðvitað að
koma löngu á undan svona dráps-
rannsóknum. Þetta var auðvitað
bara ógætileg pólitísk ákvörðun,“
sagði Stefán hvalaskoðunarmaður.
Gentle Giants fékk fyrir
skemmstu afhentan bláfánann, al-
þjóðalegt merki sem hefur þann
tilgang að stuðla að verndun hafna
og baðstranda. „Þessi viðurkenn-
ing til okkar frá Landvernd í formi
bláfánans er í raun bara góð stað-
festing á því sem við höfum verið
að gera undanfarin ár í fyrirtæk-
inu. Um leið er þetta staðfesting á
því sem ég hef verið að gera sjálf-
ur þau rúm þrjátíu og fimm ár sem
ég hef umgengist Skjálfandaflóa.
Það hef ég gert í takt við það sem
forfeður mínir gerðu á þeim slóð-
um öldum fyrr, það er að umgang-
ast flóann með nærgætni og virð-
ingu,“ sagði Stefán Guðmundsson.
Morgunblaðið/Hafþór Hreiðarsson
Vertíðin undirbúin Aþena og Faldur eru í skverun á hafnarkantinum þessa
dagana. Aðalsteinn Ólafsson hjá Gentle Giants háþrýstiþvær Aþenu.
Bátarnir skveraðir
LANDIÐ
KOMUM við í sjónvarpinu? spurðu
þau hvert í kapp við annað, börnin í
3. bekk Glerárskóla þegar Sigurður
Hlöðversson frá akureyrsku sjón-
varpsstöðinni N4 mætti á Glerár-
torg í hádeginu í gær með græjur
sínar. Börnin voru viðstödd opnun
sýningar á teikningum nemenda 3.
bekkja allra grunnskóla bæjarins,
þar sem viðfangsefnið er nauðsyn
þess að nota hlífðarhjálma þegar
farið er út að hjóla eða á skauta.
Morgunblaðið/Skapti Hallgrímsson
Komum við í sjónvarpinu?
EKKI er gert ráð fyrir því, í starfs-
áætlun íþróttaráðs til þriggja ára,
sem samþykkt hefur verið í bæj-
arráði, að nýtt keppnisgólf verði
sett í Íþróttahöllina eða íþróttahús
KA. Jóhannes G. Bjarnason, Fram-
sóknarflokki, lét bóka að inn í áætl-
unina vantaði kafla um byggingu
ökugerðis og aksturssvæðis fyrir
Bílaklúbb Akureyrar, auk þess að
flokkur hans ítrekaði þá afstöðu að
Akureyrarvöllur yrði byggður upp
sem keppnisvöllur og félagssvæði
íþróttafélaganna byggð upp.
Ekki nýtt gólf
ÞRJÚ leikverk verða í boði á Ak-
ureyri um páskana á vegum Leik-
félags Akureyrar. „Það má segja að
þetta sé lítil leiklistarhátíð,“ segir
Magnús Geir Þórðarson leikhús-
stjóri. Stóru leikhúsin í Reykjavík
eru lokuð um páskana, gjarnan hefur
eitt verk verið sýnt á Akureyri en nú
blæs Magnús til sóknar.
„Ég held það sé óhætt að fullyrða
að aldrei hafi gestir Akureyrar haft
úr meira úrvali leiksýninga að velja,“
segir hann. Verkin sem sýnd verða
eru Lífið – notkunarreglur, Best í
heimi og Ausa Steinberg.
Lífið var frumsýnt í síðustu viku
og þegar er uppselt á flestar sýn-
ingar í páskavikunni en aukasýning-
um hefur verið bætt við á skírdag og
laugardaginn fyrir páska.
Þriðjudaginn 3. apríl hefjast sýn-
ingar á gestasýningunni Best í heimi
sem sýnd var í Iðnó í vetur en þar
var uppselt á allar sýningar. Best í
heimi er háðsádeila á íslenskt sam-
félag í dag. Gert er grín að þjóðar-
stolti Íslendinga og varpað ljósi á
spaugilegar aðstæður útlendinga við
að fóta sig í nýju landi, segir Magnús
Geir.
Haustið 2004 frumsýndi LA í sam-
starfi við Borgarleikhúsið leikritið
Ausa Steinberg eftir Lee Hall. Sýn-
ingunni var afar vel tekið og ekki síst
hlaut Ilmur Kristjánsdóttir frábæra
dóma fyrir túlkun sína á hinni níu
ára gömlu Ausu.
Vegna fjölda áskorana var ákveðið
að taka verkið til sýninga á ný og
verða þrjár sýningar á Akureyri í
dymbilviku. Sýningin er endurunnin
og er verkið nú leikið í heild sinni.
Sýningar eru í Akureyrarkirkju en
aðstandendum þykir kirkjan henta
umfjöllunarefni verksins sérstak-
lega vel. Aðeins verða þrjár sýning-
ar, þar á meðal eftirmiðdagssýning á
föstudaginn langa.
„Leiklistarhátíð“
LA um páskana
VERÐ á skólamáltíðum í leik- og
grunnskólum á Akureyri hefur ver-
ið lækkað. Verð á hverri máltíð er
nú 229 kr. ef miðað er við ann-
arkort, 274 kr. ef keypt er mán-
aðarkort og 309 kr. fyrir stakar
máltíðir. Verð til starfsmanna hef-
ur verið lækkað niður í 200 kr. fyrir
hverja máltíð.
Verð skóla-
máltíða lækkar