Morgunblaðið - 31.03.2007, Side 28

Morgunblaðið - 31.03.2007, Side 28
Skrautlegir Þessa bolla hannaði Áslaug Höskulsdóttir. Kaffisamsæti Leirlistakonunum Ingunni Ernu, Ragnheiði og Áslaugu þykir kaffisopinn góður á vinnustofunni. Morgunblaðið/Sverrir |laugardagur|31. 3. 2007| mbl.is daglegtlíf Líbanski fatahönnuðurinn Elie Saab er sjálflærður, en hann var aðeins átján ára þegar hann byrjaði í bransanum. » 31 tíska Edda Björk Kristjánsdóttir og fjölskylda hennar eru meðal frumbyggja í Akrahverfinu í Garðabæ. » 32 innlit Svart/hvíti draumurinn er kominn aftur og að þessu sinni geta allir fundið eitthvað við sitt hæfi. » 30 hönnun Eftir Unni H. Jóhannsdóttur uhj@mbl.is Ég hugsa mikið um nota-gildi bollans, hvernig erað halda á honum ogsnerta brúnirnar en líka fagurfræðilegt gildi hans,“ segir listakonan Áslaug Höskuldsdóttir og handleikur einn af bollum koll- ega síns, Ingunnar Ernu Stefáns- dóttur. Ingunni finnst skreyting- arnar skipta máli og bregður þar oft á leik, stundum með þjóðlegum vísunum. „Mér finnst hönnunin líka skipta máli,“ segir hún og tekur upp hvítan bolla nöfnu sinnar, Ragnheiðar Ingunnar Ágústs- dóttur, sem er með skemmtilegu gráu, risastóru haldi. Umrædd Ragnheiður segist vera mikil kaffi- kerling. „Ég vil hafa kaffið svolítið heitt og mín kaffibollahönnun mið- ast svolítið við það að kaffið haldist heitt í bollanum. Heppilegast er að hafa bollann ljósan að inna, þannig get ég séð hversu sterkt kaffið er,“ segir hún og hlær. Þær stöllur reka saman vinnu- stofuna Okkur á Seljavegi 32. „Margir halda að þetta sé beyging á fornafninu við en það er það ekki heldur er þetta íslenskt heiti á oxíðí í keramíkinni,“ útskýra þær. „Það er samt alltaf jafngaman að svara í símann „hjá Okkur“ því viðbrögðin eru mörg svo skemmtileg,“ segja þær hlæjandi. Húsið á Seljaveginum er sann- kallað listhús en þar eru vinnustof- ur um 50 listamanna sem eru í SÍM, Sambandi íslenskra myndlistarmanna. „Við höfum verið hér í tæpt ár og andinn er mjög góður,“ segir Ingunn Erna. Þær ítreka að fólk er velkomið í heim- sókn á vinnustofurnar. „Það á ekk- ert að vera feimið við það. Það má alveg koma og skoða, það þarf ekk- ert að kaupa. Fólki finnst það oft skyldugt til þess en það er það ekki.“ Áslaug slær botninn í þessar kaffibollapælingar og segir leirlist ekkert frábrugðna öðrum list- greinum. „Hún byggist á sam- skiptum þeirra sem búa listina til og þeirra sem njóta hennar.“ Leirinn aldrei leiðinlegur En listakonurnar hafa fleiri ástæður fyrir að skála í kaffi en alla þá fallegu kaffibolla sem þær hafa rennt og mótað í gegnum tíðina. Nú stendur yfir sýning Leirlistarfélag Íslands í Kringlunni en þar sýna 26 félagar handgerða kaffibolla. „Tilgangur sýningarinnar er að vekja athygli á verkum leirlista- fólks, hversu fjölbreytileg, skapandi og falleg hönnun þess er. Fallegur kaffibolli er raunveruleg nytjalist. Það er allt önnur tilfinning að drekka kaffi eða te úr handgerðum bolla. Bolla sem listamaður hefur skapað og strokið heldur en vél- rænni framleiðslu. Það verður svo miklu persónulegra,“ segja lista- konurnar sem eins og aðrar í Leir- listarfélagi Íslands, því nú er þar enginn karlmaður, auðkenna verk sín með sérstökum stimpli, LEIR. „Menntun leirlistafólks er fjöl- þætt en allir félagar í Leirlistar- félagi Íslands eru með að minnsta kosti fjögurra ára framhalds- menntun í myndlist og sumir með háskólagráðu. Við leggjum áherslu á þekkingu, gæði og fagmennsku og merkið er trygging fyrir því. Við notum t.d. hvorki blý né kadmíum í matar-og drykkjarílátum,“ segja þessar fagkonur og segja glímuna við leirinn aldrei verða leiðinlega. „Hann er alltaf að koma á óvart.“ Og á þeim orðum lýkur sameig- inlegu kaffidrykkjunni úr skemmti- legu bollunum. Náttúruvænir Ingunn Erna Stefánsdóttir mótaði þessar könnur. Kaffidrykkja er fyrir suma eins og að vakna á morgnana. Vani. En hún getur líka verið sam- drykkja hvunndagsfólks- ins og listarinnar. Haldgóðir Höldurnar skapa þessa bolla. Listakonur í keramik bjóða upp á kaffibolla Það er allt önnur tilfinning að drekka kaffi eða te úr handgerðum bolla. Bolla sem listamaður hefur skapað og strokið heldur en vélrænni framleiðslu. Óvenjulegur Heiðurinn af þessum á Ragnhildur Ingunn Ágústsdóttir

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.