Morgunblaðið - 31.03.2007, Side 40
40 LAUGARDAGUR 31. MARS 2007 MORGUNBLAÐIÐ
UMRÆÐAN
Laugavegur 182 • 4. hæð • 105 Rvík Fax 533 4811 • midborg@midborg.is
Björn Þorri hdl., lögg. fastsali, Karl Georg hrl., lögg. fastsali.
Sími 533 4800
182,9 fm falleg 5 herbergja efri hæð í tvíbýlishúsi, þar af 18,1 fm geym-
sl. Húsið er kjallari og þrjár hæðir og er íbúðin á tveimur efri hæðunum.
Á neðri hæð íbúðar er stigapallur, borðstofa, eldhús, búr, þvottahús,
glæsilegt baðherbergi, hjónaherbergi og eitt barnaherbergi. Geymsla
með útgangi út á litlar svalir. Á efri hæð er stofa og svefnherbergi.
Opið hús í dag milli kl. 13.00 og 14.00. Efri hæð (Brandur 897 1401)
Opið hús í dag kl. 13-14
Bjargarstígur 15
– Ö r u g g f a s t e i g n a v i ð s k i p t i ! –
286 fm einbýli sem skiptist í hæð, ris og kjallara á frábærum stað mið-
svæðis í Reykjavík. Bílskúr þar af 23,2 fm. Eignin skiptist í forstofu, borð-
stofu, tvö herbergi, eldhús, borðstofa, stofu og geymslu á hæðinni. Í
kjallara er þvottahús, hol, geymsla, baðherbergi auk sér 2ja herbergja
íbúðar með sérinngangi. Einnig er sér 2ja herbergja íbúð í risi. V. 75 m.
Opið hús í dag milli kl. 14.00 og 15.00 (Brandur 897-1401)
Opið hús í dag kl. 14.00 - 15.00
Unnarstígur 2
Brynjar Haraldsson | 30. mars
Veröldin er ekki ann-
aðhvort græn eða grá
NÚ ER því haldið
fram að tilveran sé
annaðhvort grá eða
græn. Þetta er afbrigði
þeirrar haldlausu um-
ræðu að annað tveggja
séu hlutirnir svartir
eða hvítir; þeir sem hafa ekki hina
hvítu skoðun séu um leið búnir að
gefa sig á vald svartnættinu og þess
vegna í hinu liðinu – annaðhvort með
eða á móti, engin málamiðlun og
enginn fyrirvari, veröldin er hvít eða
svört.
Meira: brynjarh.blog.is
Eyjólfur Árni Rafnsson | 31. mars
Að axla ábyrgð í al-
þjóðasamfélaginu
Í OPINBERRI um-
ræðu og umfjöllun fjöl-
miðla má oft skilja það
sem svo að uppbygging
orkufreks iðnaðar á Ís-
landi undanfarin ár sé
mistök, byggist á gam-
aldags hugsun, þetta sé iðnaður
gærdagsins og nær væri að „gera
eitthvað annað“. Sá eða sú sem læt-
ur þessi orð falla er jafnvel á sama
tíma að sötra drykk úr áldós hjóla
um á reiðhjóli eða aka um á bifreið
sem er úr áli að mestu eða öllu leyti.
Meira: eyjolfurarni.blog.is
Jónas Gunnar Einarsson | 29. mars
Verðtrygging
húsnæðislána: skyr
eða dauði?
MARKAÐUR dafnar
ekki síst á hæfilegri
hreyfingu viðskipta,
með fjölbreyttu fram-
boði og sölu á vöru og
þjónustu, sem einkum
tekur mið af „mataræði“ við-
skiptavina, ef allt er með felldu í
markaðshagkerfi.
Í þessu ljósi er sala verðtryggðra
húsnæðislána á íslenskum fjármála-
og fésýslumarkaði gegndarlaust
framboð af skyri; endalaus skyrsala
ofan í heimaalin börn þar sem þess
er vandlega gætt að börnin komist
ekki í tæri við aðrar mjólkurafurðir.
Meira: jonasgunnareinarsson.blog.is
Guðbjörn Sigvaldason | 30. mars
Tvískinnungur
Vinstri grænna í
umhverfismálum
GETUR verið að
Vinstri græn hafi aðra
stefnu í umhverf-
ismálum eftir því hvort
þeir eru í minnihluta-
eða meirihluta-
samstarfi? Í minni-
hluta krefjast þeir að fyrirhugaðar
framkvæmdir fari í umhverfismat en
í meirihluta dugar huglægt mat full-
trúa þeirra.
Meira: gudbjorns.blog.is/
Hafnfirðingar ganga til kosninga um deiliskipulag bæjarins vegna fyr-
irhugaðrar stækkunar álversins í Straumsvík hinn 31. mars nk. Morg-
unblaðinu hafa borist margar greinar þar að lútandi.
Til að gera greinarnar aðgengilegri fyrir lesendur blaðsins og til að
auka möguleika Morgunblaðsins á birtingu fyrir kosningarnar, verður
útliti þeirra breytt.
Hafnfirðingar kjósa
Ævar Rafn Kjartansson | 30. mars
Lækjarsprænan
Þjórsá og vald Lands-
virkjunar
ÁFORM Landsvirkj-
unar (LV) um virkjanir
í neðri Þjórsá hafa far-
ið leynt meðan styrinn
stóð um Kára-
hnjúkavirkjun. Meðan
athyglin beindist þang-
að faldi LV allt efni um áform sín í
Þjórsá undir liðnum „Umhverf-
ismál“. Ekki var stafur undir frétta-
tengdu efni eða framkvæmdum.
Meira: aevark.blog.is
Sigurður Sigurðsson | 29. mars
Öryggi kalda
stríðsins og óöryggi
umræðunnar
MJÖG áberandi um-
ræða um símahleranir
og kalda stríðið hefur
verið undanfarið í fjöl-
miðlum. Nokkrir
helstu spekingar okkar
í orðfimi hafa farið um
völlinn og frætt okkur hin sem erum
minni spámenn. Á yfirborðinu virð-
ist sem þessu kalda stríði sé að
mestu lokið nema í íslenskum blaða-
greinum.
Meira: sigurdursigurdsson.blog.is
Jóhannes Gunnarsson | 30. mars
Mæla sig sjálf
Á FUNDI í Hafn-
arborg 20. mars kom
fram í fyrirspurn til
Þórs Tómassonar frá
Umhverfisstofnun að
Alcan sæi um sínar
mengunarmælingar
sjálft og að mengunarmælarnir
væru stundum „nokkuð lengi“ bil-
aðir. Umhverfisstofnun kemur í eft-
irlitsferðir tvisvar á ári og hefur ekki
gripið handvirkt inn í mælingar síð-
astliðin ár þótt mælarnir séu oft bil-
aðir.
Meira: jg.blog.is/
Ingi Karlsson | 29. mars
Úrhrök og annars
flokks manneskjur
NÚ ER yfirvofandi
lögbann á reykingar á
veitinga- og kaffi-
húsum. Að banna
rekstraraðilum og eig-
endum veitinga- og
skemmtistaða að
heimila gestum sínum að reykja,
kjósi þeir það, er illþolanleg for-
ræðishyggja af hálfu hins opinbera
og hreint ótrúlegt að á sama tíma
og verið er að losa ýmis höft sem
hamlað hafa viðskiptalífi okkar
fram til þessa með sölu ríkisfyr-
irtækja, skuli meira að segja sjálf-
stæðismenn hafa samþykkt þessi
lög.
Meira: ingikarlsson.blog.is
Fáðu fréttirnar
sendar í símann þinn
ENN eina kveðjuna fæ ég vegna
kosninganna um stækkun álvers Alc-
an og nú svarar Jón
Sæmundur Sig-
urjónsson fyrir sig und-
ir fyrirsögninni: „Reyn-
ir reynir“ í
Morgunblaðinu síðast-
liðinn þriðjudag. Eitt-
hvað hefur honum svið-
ið grein mín með
fyrirsögninni: „Opið í
báða enda hjá Jóni Sæ-
mundi “, frá 9. mars sl.
Kosningarnar um
stækkun álversins hinn
31. mars eru miklar ör-
lagakosningar í mínum
augum. Þess vegna leyfi ég mér að
skiptast á skoðunum við þá sem mér
finnst tilefni til að eiga orðaskipti við
og Jón Sæmundur er í þeim hópi. Ég
er alinn upp í stórbrotinni náttúru og
skynjaði snemma tengsl mín við hana.
Ég hef sagt að börn, aldraðir og nátt-
úran búi við það hlutskipti á Íslandi,
að eiga sér allt of fáa talsmenn. Mér
finnst sem jafnaðarmanni að ég eigi
að standa með þeim sem hallar á. Ára-
tugum saman hef ég reynt að leggja
því lið að jafnaðarmenn úr ýmsum
áttum sameinist í öfl-
ugan flokk. Það hefur nú
tekist. Dylgjur Jóns Sæ-
mundar um að ég sé nú
að sundra þeim hópi
með sérframboði aldr-
aðra, eru ómerkilegar
og honum ekki sæm-
andi.
Tveir af hverjum
þremur kjósendum
Samfylkingarinnar eru
á móti stækkun álvers-
ins í Straumsvík sam-
kvæmt skoðanakönn-
unum. Það er líka
formaður flokksins og allur þingflokk-
urinn. Það vinnst engin orrusta nema
einhver berjist. Við í Samfylkingunni í
Hafnarfirði sem erum andvíg stækk-
un, fyllum því hóp mikils meiri hluta
flokksmanna auk forustu flokksins.
Við unum því heldur ekki að erlent
auðfyrirtæki ráði hér kosningum með
peningum og þýstingi á allt og alla.
Samfylkingarfólk með sjálfsvirðingu
á ekki að láta bjóða sér slíkt.
Ég ætla ekki að svara orðum Jóns
Sæmundar um að ég óvirði íslenskt
alþýðufólk, ætli fólki að hokra í raf-
magnsleysi af því að náttúran sé
ósnertanleg og noti róginn í stíl Jón-
asar frá Hriflu. Sá ágæti maður hefur
nú stundum verið nefndur guðfaðir
Alþýðuflokksins og jafnaðarmenn
eiga að bera virðingu fyrir guðföður
sínum. Ef tveir af hverjum þremur
kjósendum Samfylkingarinnar í
Hafnarfirði segja nei við stækkun ál-
versins hinn 31. mars, fellur skipu-
lagstillagan. Svo einfalt er það.
Vitleysan í Reyni
– Jóni Sæmundi svarað
Reynir Ingibjartsson svarar
Jóni Sæmundi Sigurjónssyni » Áratugum saman hefég reynt að leggja
því lið að jafnaðarmenn
úr ýmsum áttum sam-
einist í öflugan flokk.
Það hefur nú tekist.
Reynir Ingibjartsson
Höfundur er félagi í Samfylkingunni.
SIGURJÓN Þórð-
arson þingmaður skrif-
ar í Mbl. 29. mars sl. og
segir, að pistill eftir
hann sjálfan á Útvarpi
Sögu valdi ólgu. Megnið
af greininni fjallar um
ótrúlega glímu hans
sjálfs við RÚV og Pál
Magnússon og lætur
ritari, J.Bj., það alveg
ósnert. – En hluti af
greininni er til að svara
ritara fyrir grein í Mbl.
24. mars sl. og er það
eiginlega allt rugl og
eiginlega er tæpast
unnt að svara því, en
það fjallar um þorsk-
hrun við Kanada. En
þingmaðurinn segir, að
þorskurinn hafi vaxið
hægt og verið lifrarrýr
um það leyti sem þorsk-
gengd minnkaði snarlega við Kanada
og vildi þingmaðurinn ekki fallast á
að skýringar J.Bj. um erfðabreyt-
ingar. – Það eru heil vandræði að eiga
orðastað við þingmanninn, en honum
tekst að klúðra saman mörgum röng-
um atriðum í fáeinum setningum. Í
fyrsta lagi þá gerðust umræddar
breytingar á aflabrögðum þorsks
ekkert snarlega. Þau fóru minnkandi
í mörg ár, en kuldaskeið í lokin
breytti litlu um það. Svo vill hann
ekki fallast á að erfðabreytingar, sem
veiðarfæri hafa valdið, séu skýringin.
Auðvitað er það líka vitlaust hjá þing-
manninum. Þær breytingar gerðust
einnig smám saman með botnvörpu-
veiðum á áratugum við Kanada, en
endalok veiðanna urðu 1992. – Svo vill
hann vara ritara við því að gleypa
hráan málflutning nokkurra fræði-
manna, sem gáfu vitnisburð fyrir
sjávarútvegsnefnd kanadíska þings-
ins í Ottawa á árinu 2005. Hvílík
della! Ritari styðst við gögn tuga vís-
indamanna og hundruð vísindagreina
og þingmaðurinn hefur enga ástæðu
til að ætla að ritari, J.Bj., sé að gleypa
eitthvað hrátt; hann afhjúpar bara
sjálfan sig og vonandi stundar hann
ekki þvílík vinnubrögð á þingi. Hon-
um til upplýsingar þá vill ritari benda
á nýja vísindagrein, sem er að finna í
gögnum Alþjóða hafrannsóknaráðs-
ins: – ICES CM 2006/H :19 „Body
condition and evolution of maturation
of Atlantic cod in Newfoundland.“
Þessi grein fjallar nákvæmlega um
deiluefnið og er rituð af Loïc Baulier,
Mikko Heino, George R. Lilly, and
Ulf Dieckmann og hún er studd með
20 tilvitnunum. Ekki er unnt að halda
upp vitrænni orðræðu um þetta mál
án þess að hafa lesið þessa grein.
Hættu ruglinu, Sigurjón
Jónas Bjarnason
svarar grein Sigur-
jóns Þórðarsonar
»… hann afhjúparbara sjálfan sig og
vonandi stundar hann
ekki þvílík vinnubrögð á
þingi.
Jónas Bjarnason
Höfundur er efnaverkfræðingur
dr.rer.nat.