Morgunblaðið - 31.03.2007, Qupperneq 42
42 LAUGARDAGUR 31. MARS 2007 MORGUNBLAÐIÐ
UMRÆÐAN
!" #
$ %
! " #$ $
%&% '!!
Hrafnkell Birgisson | 30. mars
Meiri verðmæti úr
minna hráefni
MIKILVÆGT er að
viðhalda þekkingu í ís-
lensku samfélagi sem
lýtur að sem mestu
efnahagslegu sjálf-
stæði og fjölbreyttu at-
vinnulífi. Það sem að-
greinir íslenskt samfélag frá flestum
öðrum þróuðum ríkjum er að við
höfum að miklu leyti tapað þeim
hæfileika að þróa og framleiða sjálf
það sem okkur skortir úr því sem við
höfum eða getum aflað okkur á ein-
faldan hátt.
Meira: hrafnkellb.blog.is
Helena Stefánsdóttir | 30. mars
Kosið í Hafnarfirði
ÉG HEF fylgst áhuga-
söm með umræðunni
um stækkun álvers í
Straumsvík. Þykir mér
merkilegt að bæj-
arstjóri Hafnarfjarðar
skuli leggja málið und-
ir íbúa bæjarins. Það er ekki mjög
títt á Íslandi og þykir mér að fleiri
mættu fylgja fordæminu. Til dæmis
gæti bæjarstjórn Mosfellsbæjar
boðað til kosninga um lagningu mis-
lægra gatnamóta í Álafosskvosinni.
Meira: helenastefansdottir.blog.is
Guðmundur Ármannsson | 30. mars
Slorið út um gluggann
SENN líður að kosn-
ingum í Hafnarfirði
þann 31. mars næst-
komandi. Í orði kveðnu
fjalla þær um skipu-
lagsmál en eins og öll-
um er ljóst snúast þær
um stækkun á álverinu í Straumsvík
eður ei.
Nú er ég sem þetta skrifa búsett-
ur á Austurlandi og hef aldrei til
Hafnarfjarðar komið og á því víst
ekki að skipta mér af þessu máli að
mati álunnenda.
Meira: gudmundura.blog.is
Ólafur Skúli Indriðason | 30. mars
Liggur okkur á?
Á ÍSLANDI hefur ver-
ið mikil þensla í hag-
kerfinu undanfarin ár.
Stórframkvæmdir á
Austurlandi ráða þar
miklu um en þær hafa
verið umdeildar bæði
út frá vistrænum og hagrænum
sjónarmiðum. Margir harma þau
náttúruspjöll sem virkjanir óhjá-
kvæmilega valda og eru mótfallnir
mengun frá stóriðju, en einnig hafa
verið efasemdir um efnahagslegan
ávinning af orkusölu til áliðnaðarins.
Meira: olafurskuli.blog.is
Guðni B. Guðnason | 30. mars
Álver – stóriðja
hugvits
Í HUGUM margra er
álver einsleitur og ein-
hæfur vinnustaður.
Það er öðru nær. Í einu
álveri er heilt samfélag
margvíslegrar starf-
semi og þar kennir
margra grasa. Þar er flóra iðngreina
og tæknigreina í sinni fjölbreyttustu
mynd. Það eru fáir sem vita að álver
er frjór jarðvegur fyrir hugvit verk-
fræðinga, tölvunarfræðinga og
tæknimenntaðs fólks með menntun
og þekkingu af ýmsum toga.
Meira: gudnigudnason.blog.is
Andrea Ólafsdóttir | 31. mars
Ég treysti á
Hafnfirðinga
ÉG TREYSTI því að
Hafnfirðingar muni
kjósa samviskunni
samkvæmt og hafa
það í huga að mögu-
leikar byggðar í
Hafnarfirði skerðast
verulega við stækkun álvers.
Þarna yrði fórnað dýrmætu bygg-
ingarlandi auk þess sem atvinnulíf
yrði einhæft á svæðinu. Mikilvægt
er að taka ábyrga afstöðu og líta á
álverið í Straumsvík sem barn síns
tíma.
Meira: andreaolafs.blog.is
Benjamín Julian Plaggenborg | 31.
mars
Hugsaðu áður
en þú kýst
BRÁTT verður kosið
um stækkun álvers í
Hafnarfirði. Hér ætla
ég að fá lesendur til að
hugsa um nokkur at-
riði áður en gengið
verður til kosninga.
Við upphaf kosningabaráttu Alcan
var mengunaraukningu haldið frá
umræðunni um álverið. Sumir héldu
því jafnvel fram að mengun ykist
ekki neitt. Annað kom á daginn.
Meira: benjamin.blog.is
Bjarni Óskarsson | 31. mars
Stækkun álvers
í Straumsvík ekki
einkamál
Hafnfirðinga
ÞAÐ er ekki einkamál
Hafnfirðinga hvort
stækka á álverið í
Straumsvík eða ekki.
Það er ekki einu sinni
einkamál Íslendinga.
Það er í raun mál alls
heimsins rétt eins og okkur Íslend-
ingum finnst ekki einkamál Breta
hvort þeir losi kjarnorkuúrgang frá
Sellafield í Atlantshafið. Okkur
finnst okkur komi það við vegna
þess að það ógnar lífríki hafsins.
Meira: http://bjarnioskarsson.blog.is
Konráð Þórisson | 30. mars
20. eða 21. öld í
Straumi?
FRAM yfir miðja síð-
ustu öld var bágt
ástand á ýmsum svið-
um íslensks þjóðlífs.
Margir voru án vinnu
og þeir sem höfðu ein-
hverja vinnu náðu ekki
alltaf að fæða sig og klæða. Á þeim
tíma tilheyrðum við þriðja heim-
inum. Við slíkar aðstæður er fólk
tilbúið að fórna miklu fyrir trygga
atvinnu og auknar tekjur.
Meira: konradt.blog.is
Kristín Guðmundsdóttir | 30. mars
Samviskubit
SAMVISKUBIT. Við
ættum að hafa sam-
viskubit, Hafnfirð-
ingar, ef við segjum
ekki nei við stækkun
álvers. Við ættum að
hafa samviskubit yfir
að binda hendur komandi kynslóða.
Við ættum að hafa samviskubit yfir
að gera ímynd bæjarins okkar verri
og fyrir að valda mengun.
Meira: kristingudmundsdottir.blog.is
Þorsteinn Siglaugsson | 30. mars
Að toga sjálfan sig
upp á hárinu
ÁRIÐ 1998 gaf Lands-
virkjun út skýrsluna
„Mat á þjóðhagslegum
áhrifum stóriðju á Ís-
landi 1966–1997“, eftir
dr. Pál Harðarson. Þar
kemur fram að arður
Landsvirkjunar af virkjunum fyrir
stóriðju nemi ríflega 4% á ári á tíma-
bilinu. Þetta virðast margir telja
ásættanlegt.
Meira: tsiglaugsson.blog.is
Ingimar Ingimarsson | 30. mars
Álversumræða
á villigötum?
ÉG TELST til þeirra
sem eru lýðræðissinn-
aðir. Þess vegna á ég
vægast sagt mjög erf-
itt með að skilja þá
braut sem margir virð-
ast vera komnir á í um-
ræðu um kosningarnar um deili-
skipulag álversins. Það virðist eins
og ákveðin heift sé hlaupin í málið og
fylkingar þeirra sem eru með og á
móti geta ekki unnt hvor annarri að
hafa sínar skoðanir. Af þessari
ástæðu ætla ég að minna þá sem
taka þátt í umræðunni á að gæta
hófs.
Meira: ingimar.blog.is/blog/ingimar
Elías Kristjánsson | 31. mars
Össur og lýðræðið
ÞEGAR mál álvers
Alcan í Straumsvík er
skoðað og hvernig á
því stendur að Sam-
fylkingin er að gefa
það fordæmi að hægt
sé að kjósa fyrirtæki
út úr sveitarfélagi er gott að fara
aftur í tímann og skoða afstöðu
manna eins og Össurar Skarphéð-
inssonar til lýðræðislegrar ákvörð-
unartöku.
Á síðasta flokksþingi Alþýðu-
flokksins sáluga, sem haldið var á
Grand Hótel Reykjavík í sept-
ember 1998, var aðaltilgangurinn
að samþykkja sameiningu við hluta
úr Alþýðubandalaginu og eitthvað
af öðrum pólitískum heimilisleys-
ingjum.
Meira: qwer.blog.is