Morgunblaðið - 31.03.2007, Side 51
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 31. MARS 2007 51
ÍS
L
E
N
S
K
A
/S
IA
.I
S
/I
C
E
3
69
17
3
/0
7
‘07 70ÁR Á FLUGI
Það er bæði þroskandi og gaman að sjá sig um í heiminum.
Gjafabréf frá Icelandair, full greiðsla eða innborgun
upp í flugfargjald, er fermingargjöf sem opnar nýjar leiðir.
Gjafabréf gildir í tvö ár frá útgáfudegi til allra áfangastaða Icelandair í Evrópu og Bandaríkjunum.
+ Pantaðu fermingargjöfina á icelandair.is/gjafabréf
GEFÐU FERÐALAG
Í FERMINGARGJÖF
Fermingarbarnalistar eru nú að-
gengilegir á mbl.is
Listarnir eru vistaðir undir
liðnum „NÝTT á mbl.is“, í vinstra
dálki á forsíðu mbl.is. Einnig er
hægt að slá inn slóðina mbl.is/
fermingar
Nöfn kirknanna birtast þar í
stafrófsröð og eru nöfn barnanna
skráð undir réttri kirkju.
Nöfn fermingar-
barna á mbl.is
grunnskólanum í Vík laugardaginn
31. mars nk., kl. 11.15–12.
Fjölmennum og kveðjum Engil-
ráð andarunga og félaga hennar.
Sóknarprestur.
Páskaeggjabingó í
Hjallakirkju
Mánudaginn 2. apríl verður hið ár-
lega páskaeggjabingó í safn-
aðarheimili Hjallakirkju, efri hæð.
Bingóið hefst kl. 20 og eru allir vel-
komnir, ungir sem aldnir. Bingó-
vinningar eru margvíslegir; páska-
egg, páskaskraut, sælgætiskörfur
og fleira. Bingóspjaldið kostar kr.
300. Allur ágóði af bingóinu rennur
til barna- og æskulýðsstarfs kirkj-
unnar. Safnaðarfólk, sem og aðrir,
er hvatt til að mæta.
Fjölskylduguðsþjón-
usta í Vídalínskirkju.
Helgina 31. mars–1. apríl er fermt í
öllum kirkjum Garðaprestakalls.
Hægt er að sjá á vefsíðunni
www.gardasokn.is hvenær er
fermt í Garða- og Vídalínskirkju
þessa daga. Á sunnudaginn fyrsta
apríl sem er pálmasunnudagur er
fjölskylduguðsþjónusta í Vídal-
ínskirkju kl. 11. Sr. Hans Guðberg
Alfreðsson leiðir guðsþjónustuna.
Með honum eru Jóhanna Guðrún
Ólafsdóttir djákni og Hjördís Rós
Jónsdóttir. Stundin mun einkennast
af gleði og uppbyggjandi samfélagi.
Brúðuleikrit verður sýnt og jafn-
framt er biblíufræðsla að hæfi
barnanna. Allir velkomnir.
Passíusálmarnir lesnir í
Selfosskirkju á föstu-
daginn langa
Á föstudaginn langa, 6. apríl nk.,
verða Passíusálmarnir lesnir í Sel-
fosskirkju.
Þetta er í fimmta sinn, sem sálm-
arnir eru lesnir með þessum hætti á
Selfossi. Að þessu sinni er lesturinn
tileinkaður Eyvindi Erlendssyni,
leikstjóra, en hann varð sjötugur
14. febrúar sl.
Eyvindur var á sínum tíma frum-
kvöðull að heildarlestri sálmanna
og var það að undirlagi síra Sig-
urðar Sigurðarsonar, vígslubisk-
ups, þá sóknarprests á Selfossi.
Lesturinn hefst kl. 13 og er gert
ráð fyrir að honum ljúki um kl. 17.
Áheyrendur koma og fara að vild.
Lesarar eru eftirtaldir: Árni Valdi-
marsson, Björn Hjálmarsson, Gunn-
ar Björnsson, Gylfi Þ. Gíslason,
Hafsteinn Þorvaldsson, Hjörtur
Þórarinsson, Kjartan T. Ólafsson,
Kristinn Pálmason, Magnús Jóns-
son, Ólafur Helgi Kjartansson,
Ólafur Ólafsson, Óskar H. Ólafsson,
Páll Lýðsson, Sighvatur Eiríksson,
Sigurður Jónsson, Sigurður Símon
Sigurðsson og Valdimar Bragason.
Það er von mín, að sem flestir
noti tækifærið og eignist kyrrláta
og uppbyggilega stund í kirkjunni
þennan dag.
Sr. Gunnar Björnsson.
Hallgrímskirkja – „Nú
stillir alla storma
hafa og landa“
Síðar um daginn kl. 17 verður dag-
skrá í suðursal Hallgrímskirkju um
hina þekktu dönsku sálma-
skáldkonu Lisbeth Smedegård
Andersen. Þessi dagskrá ber tit-
ilinn: „Nú stillir alla storma hafa og
landa“ og er í umsjá Margrétar
Eggertsdóttur, formanns Listvina-
félags Hallgrímskirkju og Þórðar
Helgasonar, skálds og dósents við
Háskóla Íslands. Kynntar verða
þýðingar Þórðar á píslarsonnettum
hinnar dönsku skáldkonu, fjallað
um hana og lesið úr öðrum verkum
hennar, en það gerir Annette Las-
sen, lektor í dönsku. Allir velkomn-
ir.
Kópavogskirkja –
Litla orgelmessan
Í guðsþjónustu sem hefst kl. 11 á
föstudaginn langa verður hluti af
Litlu orgelmessunni eftir Haydn
fluttur. Það eru kórar Kópavogs-
kirkju og Óháða safnaðarins sem
flytja messuna undir stjórn Sigrún-
ar Steingrímsdóttur og Arngerðar
Maríu Árnadóttur. Einnig flytja
kórarnir Ave verum corpus eftir
Mozart. Orgelleikari Friðrik Vignir
Stefánsson og einsöngvari Lilja
Eggertsdóttir. Á undan Orgelmess-
unni verður Píslarsagan lesin og
viðeigandi tónlist leikin og sálmar
sungnir við orgelleik Sigrúnar
Steingrímsdóttur og sellóleik Krist-
ínar Lárusdóttur.
Neskirkja
fimmtíu ára
Kirkjan við Hagatorg varð tákn um
nýjan tíma í kirkjulífi Íslendinga.
Neskirkja var vígð á pálmasunnu-
degi árið 1957 og er því fimmtug.
Biskupsmessa verður í kirkjunni kl.
11 á pálmasunnudegi. Barnastarfið
hefst á sama tíma og börnin fá bók í
afmælisgjöf. Herra Karl Sig-
urbjörnsson prédikar í messunni.
Auk Neskirkjupresta, sr. Arnar
Bárðar Jónssonar og sr. Sigurðar
Árna Þórðarsonar, þjóna við at-
höfnina þeir sr. Frank M. Hall-
dórsson, sr. Halldór Reynisson, sem
voru prestar kirkjunnar, og pró-
fastur, sr. Jón Dalbú Hróbjartsson.
Kór Neskirkju syngur undir stjórn
Steingríms Þórhallssonar org-
anista. Pálmasunnudagsmessan
markar upphaf hátíðar Nessafn-
aðar sem stendur heilt ár og með
ýmsum viðburðum. Fyrir vígslu
Neskirkju notaði söfnuðurinn Há-
skólakapelluna til helgihalds. Til að
minnast þess verður kl. 9.30 efnt til
tákngöngu frá Sæmundarstyttunni
við HÍ. Gengið verður til Neskirkju.
Veitingar verða á kirkjutorginu í
safnaðarheimilinu bæði fyrir og
eftir messu. Hátíð í Neskirkju og
allir velkomnir.
Hallgrímskirkja –
pálmasunnudagur
Pálmasunnudagur er upphafs-
dagur dymbilviku og hinn hátíðlegi
aðdragandi páskahátíðar. Písl-
arsaga Jesú Krists er hinn rauði
þráður alls helgihalds vikunnar. Í
messunni kl. 11 munu þau sr. María
Ágústsdóttir og sr. Birgir Ásgeirs-
son predika saman út frá 12. kafla
Jóhannesarguðspjalls, þar sem sagt
er frá því þegar María, systir Mörtu
og Lazarusar, smyr fætur Jesú og
þerrar þá með hári sínu og einnig
er lagt út frá innreið Jesú í Jerúsal-
em. Þessar áhrifamiklu frásagnir
Jóhannesar kallast á og eru sá inn-
gangur að píslarsögu frelsarans,
sem er eins og upphafinn og snertir
hvern þann djúpt, sem les eða heyr-
ir og setur sig inn í þessar átak-
anlega sterku aðstæður. Í messunni
aðstoða messuþjónar ásamt ferm-
ingarbörnum. Börn sunnudagsskól-
ans taka þátt í inngöngu með
blómagreinum. Organisti er Hörð-
ur Áskelsson, söngmálastjóri og
Mótettukórinn syngur og leiðir al-
mennan safnaðarsöng.
Grafarvogskirkja – fjöl-
skylduguðsþjónusta
Næstkomandi sunnudag – pálma-
sunnudag verður fjölskylduguðs-
þjónusta í Borgarholtsskóla kl. 11.
Barna- og unglingakór kirkjunnar
syngur undir stjórn Svövu Krist-
ínar Ingólfsdóttur. Umsjón hafa
þau Gunnar, Díana og Guðrún
María. Undirleikari er Guðlaugur
Viktorsson. Á sama tíma verður
barnaguðsþjónusta í Grafarvogs-
kirkju kl. 11. Umsjón hafa hjónin
Hjörtur og Rúna. Prestur er séra
Lena Rós Matthíasdóttir. Undir-
leikari er Stefán Birkisson.
Morgunblaðið/ Atli VigfússonLjósavatnskirkja.