Morgunblaðið - 31.03.2007, Qupperneq 56
56 LAUGARDAGUR 31. MARS 2007 MORGUNBLAÐIÐ
Sýningin er opin
alla daga frá 10–17
Aðalstræti 16
101 Reykjavík
www.reykjavik871.is
Lífið á
landnámsöld
Grettir
Smáfólk
Kalvin & Hobbes
Hrólfur hræðilegi
Gæsamamma og Grímur
Úthverfið
Kóngulóarmaðurinn
Ferdinand
ÉG
SKAL
OPNA
MJÓLKINA
SUMIR
HUNDAR
BÍÐA ALLAN
DAGINN
EFTIR TÆKI-
FÆRI TIL AÐ
BÍTA BRÉF-
BERANN
EN ÉG ER
EKKI ÞANNIG
HUNDUR... HVERSU
VONDUR
ER HÆGT
AÐ VERA?
OG ÉG MUNDI AUÐVITAÐ
ALDREI HUGSA UM AÐ
BÍTA BRÉFBERA SEM ER AÐ
BERA ÚT JÓLAKORT!
ALLT Í LAGI! ÉG ER AÐ FARA! HÆTTU ÞESSU! SLEPPTU
MÉR! ÉG GET GENGIÐ
SJÁLFUR! ÉG ÆTLA BARA
AÐEINS... ALLT Í LAGI ÉG
ER Á LEIÐINNI ÚT!
ÞÉR FINNST KANNSKI SKÓLINN
FRÁBÆR NÚNA, EN EFTIR
NOKKUR ÁR ÁTTU EFTIR AÐ
SAKNA MÍN! BÍDDU BARA!
ÞAÐ HLÝTUR
AÐ VERA
ROSALEGA
ERFITT AÐ VERA
LEIÐTOGI!
HRÓLFUR EYÐIR
SVO ROSALEGA MIKLUM
TÍMA EINN MEÐ
SJÁLFUM SÉR
ÉG
VEIT!
ÉG ER BÚINN
AÐ SEGJA HONUM Í
MÖRG ÁR AÐ FARA
OFTAR Í BAÐ!!
ÞETTA ER EKKERT SMÁ
SKRÍTIÐ! SVÍNIÐ SEM ÉG
GLEYPTI ER EKKI ENNÞÁ BÚIÐ
AÐ MELTAST OG GERI EKKI
ANNAÐ EN AÐ ROPA KLINKI!
HVAÐ
ER ALLT
ÞETTA?
ÉG LAS AÐ BESTA
LEIÐIN TIL ÞESS AÐ
SIGRAST Á SVEFNLEYSI
VÆRI FÁ LÍKAMANN TIL AÐ
LANGA TIL AÐ SOFNA
ÞESS VEGNA LIGG
ÉG Í BAÐINU, MEÐ
KVEIKT Á ILMKERTUM
OG STÓRAN BOLLA AF
KAMILLUTEI
ÉG HELD AÐ ÉG HAFI
DRUKKIÐ OF MIKIÐ TEI
ÉG VERÐ AÐ KOMAST AÐ ÞVÍ
HVERT LÆKNIRINN ER AÐ FARA MEÐ
BLÓÐPRUFURNAR MÍNAR...
...OG EKKERT
GETUR
STÖÐVAÐ MIG!
UH-OH!
EÐA NÆSTUM
EKKERT
dagbók|velvakandi
Kæri bílstjóri
HVAÐ hef ég gert, kæri bílstjóri,
sem olli því að þú þurftir að flauta á
mig? Þú varst greinilega reiður og í
uppnámi þennan morgun. Ert þú ef
til vill oft svona æstur í umferðinni?
Það er ekki gott! Ég var nú bara að
fara í vinnuna eins og þú, ein á mínu
farartæki eins og þú. Ég hjólaði nið-
ur brekkuna á líklega 30 km hraða
en þér fannst ólíðandi að þurfa að
hægja aðeins á ferð þinni. Er það
vegna þess að þú ert með meira
blikk í kringum þig heldur en ég?
Hefðir þú flautað og steytt hnefann
ef ég hefði verið á valtara eða trak-
tor?
Hefur þú einhvern tíma hugleitt
að það er þér í hag að sem flestir
noti reiðhjól í staðinn fyrir bíl? Reið-
hjólin menga ekki loftið með út-
blæstri. Þau spæna ekki upp göt-
urnar eins og þú á nagladekkjunum
þínum. Þannig að þú gætir andað
betra lofti að þér og þyrftir ekki að
hafa áhyggjur af svifryki sem er
heilsuspillandi fyrir þig og börnin
þín. Reiðhjól krefjast ekki allra
þessara milljarða í vegafram-
kvæmdir sem stöðug fjölgun einka-
bíla kallar á. Þetta eru jú skattpen-
ingarnir okkar allra sem fara í
auknum mæli í þessi mál. Auk þess
er minn fararskjóti mjór og nettur
og ég tek ekki bílastæði frá þér. En
samgönguráðherra minntist ekki
einu aukateknu orði á hjólreiða-
samgöngur í nýjustu samgöngu-
áætluninni. Þar á ég við að við hjól-
reiðamenn ættum að fá greiðar
leiðir meðfram stofnbrautunum og
geta notað hjólið sem samgöngu-
tæki. Núverandi reiðhjólaleiðir eru í
lagi fyrir frístundatrimm. En hver
nennir að hjóla um óteljandi auka-
króka, 90 gráðu beygjur og háa
kanta dag eftir dag? Hverjum finnst
í lagi að stoppa stöðugt fyrir fót-
gangandi fólki sem notar sömu leiðir
og víkur seint eða ekki?
Kæri bílstjóri, ef við fengjum full-
nægjandi reiðhjólabrautir er ég viss
um að þú þyrftir aldrei oftar að
skammast út í okkur á þínum veg-
um.
Úrsúla Jünemann.
Gourmet-páskaegg
ÉG Er mikill sælkeri og friðsamur
víst. Ég er forfallinn aðdáandi Kons-
úm-suðusúkkulaðis og síðustu páska
gerði ég því dauðaleit að páskaeggj-
um úr þess konar súkkulaði í öllum
helstu verslunum höfuðborgarsvæð-
isins.
Það er skemmst frá því að segja
að leitin bar engan árangur og alls
staðar blöstu við mér breiður ljósra
páskaeggja. Ég þurfti því hvað eftir
annað að halda heim á leið með
brostnar vonir.
Ég geri mér fyllilega grein fyrir
því að það er heldur seint að bera
þetta upp núna þar sem byrjað er að
selja páskaegg fyrir komandi páska,
en ég veit að ég tala fyrir hönd
margra svo ég gat ekki setið á mér
lengur. Það koma jú páskar eftir
þessa páska!
Ég vil nota tækifærið og óska
landsmönnum öllum gleðilegra
páska. F.h. sælkera,
Böðvar.
Hvar er myndin?
ER EINHVER sem getur gefið
upplýsingar um hvar þessi mynd
eftir Svein Björnsson er nið-
urkomin?
Vinsamlega hafið samband í síma
865 7968 eða 555 2561.
Svarað í síma 5691100 frá 10–12 og
13–15 | velvakandi@mbl.is