Morgunblaðið - 31.03.2007, Page 57
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 31. MARS 2007 57
Krossgáta
Lárétt | 1 varðst var, 8
trjástofn, 9 kjánum, 10
reyfi, 11 duglegum, 13
trjátegund, 15 beinpípu,
18 herbergi, 21 glöð, 22
týna, 23 formóðirin, 24
hreinn.
Lóðrétt | 2 eldiviðurinn, 3
líffærum, 4 stétt, 5 reiður,
6 mestur hluti, 7 litli, 12
ótta, 14 vafa, 15 bæta, 16
sori, 17 hávaði, 18 þrep,
19 börðu, 20 stela.
Lausn síðustu krossgátu
Lárétt: 1 hæpin, 4 gómum, 7 túlks, 8 rottu, 9 kút, 11 ansa,
13 hass, 14 labba, 15 matt, 17 lind, 20 hak, 22 galti, 23
orrar, 24 remma, 25 torga.
Lóðrétt: 1 hætta, 2 pilts, 3 nísk, 4 gert, 5 metta, 6 maurs,
10 útbía, 12 alt, 13 hal, 15 magur, 16 túlum, 18 iðrar, 19
durga, 20 hita, 21 kort.
6
8
11
15
22
1
24
12
3
10
17
21
4
9
13
18
23
14
5
19
7
20
2
16
(21. mars - 19. apríl)
Hrútur Nei, þú ert ekki skrýtin/n. Von og
ótti eru eðlilegar tilfinningar. Engin
ástæða er til að hræðast. Þú hefur ríkt
ímyndunarafl, njóttu þess.
(20. apríl - 20. maí)
Naut Hugulsemi og áhugi á öðrum er
glæsileg samsetning og hluti af kostum
þínum. Samvera styrkir sambönd svo nú er
rétti tíminn til að skipuleggja skemmtilega
uppákomu með makanum.
(21. maí - 20. júní)
Tvíburar Ástvinir þínir eru þurftafrekir
um þessar mundir. Nú er lag að standa
undir væntingum þeirra. Það er mikilvægt
að rækta öll sambönd. Í sumum tilvikum er
nóg að hringja einu sinni í mánuði, önnur
sambönd þurfa meiri athygli.
(21. júní - 22. júlí)
Krabbi Einhver er skotin/n í þér. Frábært!
Jafnvel þótt þú viljir ekki ástarsamband þá
er gott að eignast nýjan vin. Aðdáun er góð
fyrir sjálfstraustið.
(23. júlí - 22. ágúst)
Ljón Fjölskyldan þín er að drekkja þér í
vandamálum. Það er vegna þess að þú ert
raunagóð/ur og útsjónarsöm/samur. Það
gerir þér líka gott að eyða meiri tíma með
fjölskyldunni.
(23. ágúst - 22. sept.)
Meyja Þú uppskerð eins og þú sáir í lífinu.
Þú veist að þú ert góður vinur ef þú átt
góða vini. Vináttan er besta vísbendingin
um velgengni og velferð.
(23. sept. - 22. okt.)
Vog Ástarlíf þitt er í uppnámi en það
lagast. Þú þarft að taka hlutina skref fyrir
skref og brátt geturðu treyst sjálfum þér
og ástvini þínum. Vinur í vogarmerkinu er
rétta manneskjan til að hjálpa þér.
(23. okt. - 21. nóv.)
Sporðdreki Þú ert mótsagnakennd/ur en
það er hluti af sjarma þínum. Stjörnurnar
hvetja þig til að gera kurteislega uppreisn.
Stundum þarf eitthvað stórtækt til að
koma í kring breytingum, þú hefur það
sem þarf!
(22. nóv. - 21. des.)
Bogmaður Þú ert ekki vinnuþjarkur. Þér
leiðist fljótt að vinna eins og þræll, sér-
staklega þegar umbunin er ekki í samræmi
við álagið. Slakaðu á og vertu góð/ur við
sjálfan þig, þannig afkastar þú líka meiru.
(22. des. - 19. janúar)
Steingeit Villtustu draumar þínir geta
ræst. En fyrst verður þú að gera þér grein
fyrir hverjir þeir eru, annars er það ekki
tímabært.
(20. jan. - 18. febr.)
Vatnsberi Félagslífið er blómlegt um
þessar mundir, en þú ert ekki alveg viss
um hvers er krafist af þér. En þú áttar þig
á því og stendur undir kröfum, þú ert hrók-
ur alls fagnaðar.
(19. feb. - 20. mars)
Fiskar Tímalína eins og við þekkjum hana
á að koma í veg fyrir að allt gerist á sama
tíma. Það virkar ekki í dag. Ekki berjast
gegn óreiðunni, láttu hlutina flæða.
stjörnuspá
Holiday Mathis
1. e4 c5 2. Rf3 d6 3. d4 cxd4 4. Rxd4 Rf6
5. Rc3 a6 6. Be3 e5 7. Rb3 Be6 8. Dd2
Be7 9. f3 0-0 10. 0-0-0 Rbd7 11. g4 b5
12. Hg1 Rb6 13. Ra5 Dc7 14. g5 Rfd7
15. Rd5 Bxd5 16. exd5 Rxd5 17. Dxd5
Dxa5 18. Bd3 Dc7 19. g6 Rf6 20. gxf7+
Kh8
Staðan kom í blindskák þeirra Visw-
anathan Anand (2.779) og Loek Van
Wely (2.683) á nýafstöðnu Amber-
mótinu í Mónakó. Anand hafði hvítt og
gerði nú snaggaralega atlögu að svarta
kóngnum. 21. Hxg7! Kxg7 svartur
hefði orðið mát eftir 21. … Rxd5 22.
Hxh7#. 22. Hg1+ Kh8 23. Bh6 Rg4
svartur hefði orðið mát eftir 23. …
Rxd5 24. Bg7#. 24. Hxg4 Hxf7 25.
Dxa8+ og svartur gafst upp.
SKÁK
Helgi Áss Grétarsson | ritstjorn@mbl.is
Hvítur á leik.
Íslandsmótið.
Norður
♠ÁG105
♥D62
♦Á
♣KD1082
Vestur Austur
♠K6 ♠932
♥954 ♥G10
♦107643 ♦DG98
♣G65 ♣Á743
Suður
♠D874
♥ÁK873
♦K52
♣9
Suður spilar 6♥
Það er engin leið að fara niður á sex
hjörtum eins og landið liggur, en
hvernig er best að spila með trompi út?
Hjartað verður að brotna, en það
væri ákjósanlegt að losna við svín-
inguna í spaða. Sú hugmynd er því
lokkandi að taka fyrsta slaginn heima,
spila laufníu og láta hana rúlla til aust-
urs. Það kostar ásinn – sem er gott –
en vandinn er ekki þar með leystur.
Ekki er með góðu móti samgangur til
að trompa tígul, svo gosinn í laufi verð-
ur helst að falla. Sennilega er best að
taka nú hreinlega trompin og prófa
laufið. Hér kemur gosinn, en annars
yrði spaðasvíningin ekki umflúin.
Þessi leið byggist á þeirri forsendu
að vestur sé ekki snillingur (eða með-
vitundarlaus) og dúkki laufið fumlaust
með ásinn.
BRIDS
Guðmundur Páll Arnarson | ritstjorn@mbl.is
1 Helstu eigendur Glitnis takast á um yfirráðin í bank-anum. Hver er stjórnarformaður Glitnis núna?
2 Íbúasamtök í kringum Laugardalinn eru ekki sátt viðborgina. Af hverju ekki?
3 Hvað þurfa Íslendingar að leggja mikla fjármuni til við-bótar vegna stækkunar EES?
4 Krónikan hefur verið seld DV. Hver er ritstjóri DV?
Svör við spurningum gærdagsins:
1. William Hague fundaði hér á landi með Valgerði Sverr-
isdóttur. Fyrir hvað er hann þekktastur? Svar: Formaður
breska íhaldsflokksins. 2. Samkomulag hefur orðið milli
stjórnvalda og útgerðar Wilson Muuga um að fjarlægja skipið.
Hver er forstjóri útgerðarinnar Nesskips? Svar: Guðmundur
Ásgeirsson. 3. Hvað heitir fyrirtæki Sigurjóns Sighvatssonar
sem samið hefur við 1.100 leigur í Danmörku? Svar: Scanbox.
4. Gunnar Þór Gunnarsson lék sinn fyrsta A-landsleik í leiknum
gegn Spáni. Með hvaða liði leikur hann? Svar: Hammarby.
Spurter… ritstjorn@mbl.is
dagbók|dægradvöl
Sudoku
Miðstig
Lausnir síðustu Sudoku
Lausn, ábendingar og tölvuforrit á www.sudoku.com
Frumstig Miðstig Efstastig
Frumstig
© Puzzles by Pappocom
Þrautin felst í því að fylla út í reitina
þannig að í hverjum 3x3-reit birtist
tölurnar 1-9. Það verður að gerast þannig
að hver níu reita lína bæði lárétt og lóðrétt
birti einnig tölurnar 1-9 og aldrei má
tvítaka neina tölu í röðinni.
Efstastig
Sr. Bragi Friðriksson,
heiðursborgari Garða-
bæjar, fagnaði nýverið
80 ára afmæli sínu. Af
því tilefni ákváðu bæjar-
stjórn Garðabæjar og
Garðasókn að styrkja út-
gáfu ritverks sr. Braga
um séra Pál Þorláksson
sem var einn helsti
frumherji meðal Vestur-
Íslendinga á upphafsár-
um þeirra í Vesturheimi.
Með því að styrkja út-
gáfu ritsins vill bæjar-
stjórn Garðabæjar sýna
sr. Braga örlítinn þakk-
lætisvott fyrir óeigingjörn störf hans
í þágu bæjarfélagsins og íbúa þess.
Sr. Bragi var kjörinn sóknarprestur í
Garðaprestakalli árið 1966. Hann
hafði þá þegar búið í Garðahreppi um
árabil og verið prófastinum til aðstoð-
ar. Meðal annars studdi hann af heil-
um hug starf Kvenfélags Garða-
hrepps við endurgerð Garðakirkju
sem var vígð 1966, sama ár og sr.
Bragi tók við starfi sóknarprests.
Það er á engan hallað þótt því sé
haldið fram að tilkoma sr. Braga í
starf sóknarprests hafi verið mikil
lyftistöng fyrir það
samfélag sem var á
þessum árum að verða
til í Garðahreppi og
síðar Garðabæ. Sr.
Bragi var ekki aðeins
virtur sem prestur
heldur vann hann mik-
ið frumkvöðlastarf á
ýmsum sviðum bæjar-
lífsins og átti stóran
þátt í stofnun ýmissa
félaga sem enn lifa
góðu lífi í bænum.
Hann stofnaði m.a.
æskulýðsfélag við
kirkjuna og var einn af
þeim sem stóðu að stofnun Ung-
mennafélagsins Stjörnunnar og
Skátafélagsins Vífils. Þessi félög hafa
sett mikla mynd á bæjarlífið í Garða-
bæ alla tíð og gera enn. Sr. Bragi
hafði einnig frumkvæði að stofnun
Bræðrafélags Garðakirkju sem m.a.
stóð að byggingu safnaðarheimilis og
hann var einn af helstu hvatamönn-
um að stofnun Tónlistarskóla Garða-
bæjar. Öllum þessum verkefnum
sinnti sr. Bragi af mikilli atorku og
heilindum. Sr. Bragi hafði sjálfur
þjónað sem prestur Íslendinga í Vest-
urheimi og hefur eflaust komið með
margar hugmyndir þaðan sem hann
nýtti kraft sinn og þokka í að koma í
verk í Garðasókn.
Sr. Bragi hefur í meira en þrjá ára-
tugi verið sem klettur í bænum okk-
ar. Hann hélt utan um söfnuðinn á
tíma mikillar uppbyggingar með
kærleiksríku viðmóti sínu, góðri
kímnigáfu og krafti. Eiginkona hans
Katrín Eyjólfsdóttir tók alla tíð mik-
inn þátt í starfinu með honum og hafa
þau hjónin komið víða við sögu í bæn-
um okkar, bæði í persónulegu lífi
margra Garðbæinga og bæjarlífinu.
Sr. Bragi er mikill maður í ólíkum
skilningi þeirra orða. Hann er stór
vexti og persónuleiki hans er stór og
umvefjandi. Hann er glæsimenni,
með djúpa og góða rödd og á auðvelt
með að hrífa fólk með sér til góðra
verka eins og ævistarf hans sýnir og
sannar.
Sr. Bragi var útnefndur heiðurs-
borgari Garðabæjar á hátíðarfundi
bæjarstjórnar 4. janúar 2001 í tilefni
af aldarfjórðungs kaupstaðarafmæli
bæjarins. Hann er enn eini heiðurs-
borgari bæjarins.
Þótt sr. Bragi hafi látið af störfum
sem prestur árið 1997 er hann engan
veginn sestur í helgan stein. Hann
varði meistaraprófsritgerð sína um
sr. Pál Þorláksson árið 2005 en hún
ber heitið „Fórnfús frumherji. Sr.
Páll Þorláksson, prestur íslenskra
landnema í Vesturheimi.“ Eflaust
hefur sr. Bragi fundið til samkenndar
með þessum frumherja í Vesturheimi
sem þó ólíkt honum lést fyrir aldur
fram. Verkið verður gefið út á næst-
unni og er útgáfa þess afmælisgjöf
bæjarstjórnar Garðabæjar og Garða-
sóknar til sr. Braga.
Sem Garðbæingur hef ég haft sam-
skipti við sr. Braga bæði persónulega
og í gegnum störf mín fyrir Garðabæ.
Ég var 25 ára gamall þegar ég tók við
starfi æskulýðsfulltrúa hjá Garðabæ
og átti þá gott samstarf við sr. Braga
sem var mér hvatning og stoð í starfi.
Af persónulegum samskiptum get ég
nefnt að sr. Bragi skírði son minn á
heimili okkar fjölskyldunnar. Mér er
helst í minni frá þeim degi að mikið
var lagt í að hafa nægar og góðar veit-
ingar, ekki síst handa prestinum stór-
vaxna sem var þekktur fyrir að taka
vel til matar síns. Það er mér mikill
heiður að hafa fengið að kynnast sr.
Braga og fylgjast með störfum hans.
Ég óska sr. Braga og fjölskyldu hans
innilega til hamingju með tímamótin
og fyrir hönd bæjarstjórnar þakka ég
honum fyrir hans miklu störf í þágu
Garðabæjar og Garðbæinga í gegn-
um tíðina.
Gunnar Einarsson.
Bragi Friðriksson