Morgunblaðið - 31.03.2007, Síða 58
Ég átti það til að stara
á hana þegar hún lá
nakin í sólbaði við sundlaug-
arbakkann … 63
»
reykjavíkreykjavík
Eftir Flóka Guðmundsson
floki@mbl.is
„ÞAÐ SEM sameinar okkur fyrst og fremst er
ákveðin miðlun á orku. Við erum báðar að reyna
að skoða einhvers konar heim að handan.“ Þannig
lýsir myndlistarkonan Guðrún Benónýsdóttir,
Gurra, m.a. listrænum snertifleti sjálfrar sín og
myndlistarkonunnar Sirru Sigrúnar Sigurð-
ardóttur, en þær stöllur opna í dag sameiginlega
sýningu í Nýlistasafninu.
„Við höfum ekki unnið svona náið saman áður,
bara á stærri sýningum,“ upplýsir Sirra. „Við
höfum hins vegar haft áhuga á því lengi að vinna
saman og höfum oft talað um það,“ bætir Gurra
við og lýsir yfir ánægju með að það samstarf sé
nú orðið að veruleika.
Sýningin ber yfirskriftina Fata Morgana.
Merking orðanna er sjónblekkingar, „eins og t.d.
í eyðimörkinni,“ útskýrir Sirra og bætir við:
„Þetta á við um það fyrirbæri þegar sjóndeild-
arhringurinn leysist upp“. „Þetta er samt ekki
eitthvað sem hægt er að festa á filmu heldur í
rauninni eitthvað sem gerist í ímyndun mann-
eskjunnar við ákveðnar aðstæður,“ áréttar
Gurra. Listakonurnar segjast hafa munað eftir
orðinu úr Tinnabók, er örþreyttir Skapti og
Skafti eigra um eyðimörkina og reyna að stinga
sér til sunds í sundlaug sem er einungis til í
þeirra eigin huga. „Þá kölluðu þeir vonsviknir:
Fata Morgana!“
Að sögn listakvennanna er grunnhugmyndin að
sýningunni einmitt blekkingar og tálsýnir, jafnvel
töfrar. Þær árétta þó að þrátt fyrir að verkin
tengist hugmyndalega undir sameiginlegri yf-
irskriftinni sé um að ræða sitt hvora innsetn-
inguna í sitt hvorum salnum.
„Þetta eru mjög ólíkar innsetningar,“ fullyrðir
Sirra. „Báðar eru sérhugsaðar inn í sitt pláss; ég
er sunnanmegin og Gurra norðanmegin, sem býð-
ur upp á mismunandi notkun. Við nýtum báðar
húsnæðið, möguleika þess og birtuna í innsetn-
ingunum.“
Gurra segir sameiginlegt með innsetningunum
að þær Sirra vinna báðar mikið með spegla og
einnig sé náttúran mikilvæg í list þeirra beggja.
„En við tökum hana svolítið úr samhengi,“ bætir
hún við. Að öðru leyti segir Gurra innsetning-
arnar harla ólíkar: „Þetta er sitt hvor heimurinn.“
Nóg að gera
Það er engin lognmolla í kringum Sirru og
Gurru þessi misserin. Margvísleg verkefni bíða
þeirra beggja þegar sýningum lýkur í Nýló. Sirra
heldur brátt til Kanada þar sem hún tekur þátt í
samsýningu í Calgari og síðan er ferðinni heitið
til Prag í júní þar sem tvær sýningar eru á
stefnuskránni. Gurra mun einnig leggja land und-
ir fót á næstunni því framundan er þátttaka í
samsýningu í Osló og þriggja mánaða vinnustofa í
Bergen síðar meir, en hún tengist Noregi mikið
enda búsett þar í mörg ár og lærði þar sína list.
Að fram á nótt
„Ég nýt þeirrar gæfu að fá listamannalaun í
tvö ár þannig að núna get ég einbeitt mér alveg
að þessu,“ upplýsir Sirra aðspurð hvort þær geti
sinnt myndlistinni eingöngu. „En ég hef alltaf
reynt að vinna að einhverju tengdu myndlistinni
þegar þannig hefur verið.“
Gurra segist hins vegar vinna fulla vinnu með-
fram listinni, sem aðstoðartæknistjóri í Þjóðleik-
húsinu. „Mér finnst það ekkert svo slæmt. Það er
náttúrulega oft ákveðin togstreita þarna á milli
en að vissu leyti er það ákveðið „dræf“ líka. Það
er áhugavert að tengjast ekki bara myndlist-
arheiminum, ef maður heldur dampi báðum meg-
in.“
Þegar hér er komið geispar Sirra og við-
urkennir að hún sé þreytt og „rosaúldin“ enda
hafi hún verið að í Nýlistasafninu langt fram á
nótt. „Það er svo fyndið með svona sýningar að
þær verða tilbúnar nákvæmlega þegar þær þurfa
að vera tilbúnar. Maður heldur alltaf áfram eins
lengi og maður getur. Það er náttúrulega þannig
að þegar maður er að vinna svona beint í rýmið
þá hefur maður svo stuttan tíma.“
Fata Morgana Yfirskrift sýningarinnar vísar í blekkingar, tálsýnir og jafnvel galdur. Opnunin er í dag.
Sjónblekkingar
Sirra „Við nýtum báðar húsnæðið.“
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Gurra „Þetta er sitt hvor heimurinn.“
Segja má að skrattinn hitti ömmu
sína á sunnudaginn þegar Pétur Jó-
hann Sigfússon verður gestur Jóns
Ársæls í Sjálfstæðu fólki á Stöð 2.
Eitt af vinsælli uppátækjum Péturs
Jóhanns hefur verið að bregða sér í
gervi þáttastjórnandans með slíkum
árangri að vart má greina þá í sund-
ur.
Reikna má með allsúrrealísku
sjónvarpsefni annað kvöld þegar Jón
Ársæll tekur viðtal við „sjálfan sig“.
„En segðu mér, hver er
Pétur Jóhann?“
Fyrsta plata Silvíu Nætur, Gold-
mine, kemur út á mánudaginn. The
Silvía Night Show hefur farið mis-
jafnlega ofan í fólk enda svolítið
skrítið að fylgjast með endursýndri
atburðarás sem þjóðin varð vitni að
í beinni á síðasta ári.
Platan ætti hins vegar að falla
öllum aðdáendum Silvíu Nætur í
geð. Stútfull breiðskífa af frábær-
um stuðperlum sem hægt er að
hlusta á í heild sinni á Tónlist.is.
Furðulegt samt hvað Silvía hefur
bætt sig í söng síðan hún kom fram
á sjónarsviðið fyrst. Alveg ótrúleg-
ar framfarir!
Nýja plata Silvíu Nætur
Goldmine á Tónlist.is
Fregnir
hafa borist
af því að
Volta, ný
plata Bjark-
ar Guð-
munds-
dóttur, sem
koma á út í byrjun maí, hafi lekið á
Netið. Því til sannindamerkis vísa
menn á stutta búta úr lögunum sem
finna má á netinu, bæði sem mynd-
bönd á YouTube og eins á MyS-
pace-síðum.
Talsmenn Bjarkar hafa staðfest
að um sé að ræða brot úr lögum
hennar, en flest bendir til þess að
um vísvitandi leka sé að ræða. Sjá
myspace.com/itishardtof-
indbandnames.
Lak Volta?