Morgunblaðið - 31.03.2007, Qupperneq 61
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 31. MARS 2007 61
GESTIR þáttarins Orð skulu standa
í dag eru Gunnar Kristinn Sig-
urjónsson ritstjóri og Þórhallur Vil-
hjálmsson markaðsfræðingur. Þeir
ásamt liðstjórunum Hlín Agnars-
dóttur og Davíð Þór Jónssyni fást
við þennan fyrripart, ortan um gleði-
tíðindi vikunnar, með vísun í ögn
þekktari kveðskap:
Lóan er komin, hún léttir vort
geð,
og lofar að senn komi spóinn.
Í síðustu viku var fyrriparturinn
ólíkindakveðskapur um komu far-
fuglanna:
Ég sá í morgun músargrey
við mörgæs standa á tali.
Í þættinum botnaði Björn Teits-
son:
Hún var fljót að fá sér hey
með fyrsta hanagali.
Davíð Þór Jónsson sagðist líka
vera í „ólíkindastíl“:
Sauði hafna áli ei
og asna veiða hvali.
Úr hópi hlustenda hélt Magnús
Geir Guðmundsson áfram með ólík-
indaþemað:
Og hjá þeim glotti gleym-mér-ei,
svo glæst af vorsins kali.
Sigmundur Arnar Arnórsson
einnig:
Og yndisfagra unga mey
í áflogum við hvali.
Eysteinn Pétursson var á sömu
nótum:
Önnur tuggði hálfþurrt hey
en hin var í niðurhali.
Sara Pétursdóttir botnaði svona:
Forðum sagði fögur mey
fleyg orð sem að gleymast ei:
,,Oft stendur illt af kvennahjali.“
Útvarp | Orð skulu standa
Lóan er komin en
hvar er spóinn?
Hlustendur geta sent sína botna í
netfangið ord@ruv.is eða bréfleið-
is til Orð skulu standa, Rík-
isútvarpinu, Efstaleiti 1, 150
Reykjavík.
Eftir Jóhann Bjarna Kolbeinsson
jbk@mbl.is
„ÉG fékk tölvupóst þar sem þeir
sögðust hafa áhuga á að nota mynd-
ina framan á næstu breiðskífu sína,“
segir Ólöf Kristín Helgadóttir, 17
ára gamall áhugaljósmyndari, um
tölvupóst sem hún fékk nýlega frá
skosku hljómsveitinni Belle & Seb-
astian. Ólöf er með heimasíðu þar
sem hún birtir myndir sem hún tek-
ur og þar virðist einhver á vegum
sveitarinnar hafa tekið eftir um-
ræddri mynd. „Ég sendi þeim póst
til baka og reyndi að komast að því
hvort það væri einhver alvara í
þessu. Þá fékk ég svar þar sem þeir
sögðu að myndin kæmi til greina
ásamt nokkrum öðrum myndum,“
segir Ólöf, sem er þó ekki alveg viss
um hvort einhver alvara búi þarna
að baki því hver sem er geti sent
svona tölvupóst. Bréfin eru þó mjög
trúverðug og kom fram að haft yrði
samband við Ólöfu þegar ákvörðun
hefði verið tekin.
Á ekki góða myndavél
Ólöf, sem er dóttir Helga Þorgils
Friðjónssonar listmálara, stundar
nám í margmiðlunarhönnun á lista-
braut í Borgarholtsskóla. Hún segist
hafa fiktað við ljósmyndun um nokk-
urt skeið þrátt fyrir að eiga ekki al-
mennilega myndavél. Hún setti um-
rædda mynd inn á síðuna ásamt
fleiri myndum sem hún tók af vin-
konu sinni, Önnu Guðjónsdóttur.
„Hún er tekin upp við gráleitan vegg
heima hjá vini mínum,“ segir Ólöf,
sem er ánægð með myndina. „Ég
hef nú ekki tekið rosalega margar
frábærar myndir en ég er samt ansi
ánægð með þessa.“
Ekki er hægt að segja annað en að
mynd Ólafar sé mjög í anda þeirra
ljósmynda sem Belle & Sebastian
hefur notað á plötur sínar. Þess má
einnig geta að framan á plötunni
Fold Your Hands Child, You Walk
Like a Peasant sem kom út árið 2000
var mynd af tvíburasystrunum Gyðu
og Kristínu Valtýsdætrum.
Aðspurð segist Ólöf hafa hlustað
töluvert á Belle & Sebastian, sem
hún telur mjög góða hljómsveit.
Falleg Myndin sem B&S hefur áhuga á er af Önnu Guðjónsdóttur.
Fiktar við ljósmyndun
Belle & Sebastian falast eftir íslenskri mynd á næstu plötu
Íslandsvinir Belle & Sebastian.
www.flickr.com/photos/
olofhelgad/
Tvíburar Kristín og Gyða skreyttu umslag Belle & Sebastian árið 2000.
PIETRO MASCAGNI
eftir
HLJÓMSVEITARSTJÓRI: KURT KOPECKY
LEIKSTJÓRI: INGÓLFUR NÍELS ÁRNASON
ÓPERUKÓR HAFNARFJARÐAR
HLJÓMSVEIT ÍSLENSKU ÓPERUNNAR
FRUMSÝNING Á ANNAN Í PÁSKUM, 9. APRÍL UPPSELT
MIÐ. 11. APRÍL KL. 20 LAU. 14. APRÍL KL. 20
SUN. 15. APRÍL KL. 17 LOKASÝNING
MIDASALA S. 511 4200 WWW.OPERA.IS
ELÍN ÓSK ÓSKARSDÓTTIR
JÓHANN FRIÐGEIR VALDIMARSSON
ÓLAFUR KJARTAN SIGURÐARSON
HÖRN HRAFNSDÓTTIR
ÞÓRUNN STEFÁNSDÓTTIR