Morgunblaðið - 31.03.2007, Blaðsíða 64

Morgunblaðið - 31.03.2007, Blaðsíða 64
64 LAUGARDAGUR 31. MARS 2007 MORGUNBLAÐIÐ / KRINGLUNNI ROBINSON FJÖLSKYLDAN m/ísl. tali kl. 1:50 - 4 - 6:10 LEYFÐ DIGITAL 3D MEET THE ROBINSONS ótextuð m/ensku tali kl. 8:10 - 10:20 LEYFÐ DIGITAL 3D WILD HOGS kl. 3:50 - 6 - 8:10 - 10:20 B.i. 7 ára 300 kl. 8 - 10:30 B.i. 16 ára DIGITAL NORBIT kl. 1:30 - 3:40 - 5:50 LEYFÐ VEFURINN HENNAR KARLOTTU m/ísl. tali kl. 1:30 LEYFÐ DIGITAL Hagatorgi • Sími 530 1919 • www.haskolabio.is SCIENCE OF SLEEPS (SCIENCE DES RÊVES, LA) kl. 5:50 LADY CHATTERLEY kl. 3 - 6 - 9 HORS DE PRIX ísl. texti kl. 3 TELL NO ONE (NE LE DIS À PERSONNE) kl. 8 - 10:20 PARIS, JE T'AIME kl. 3 ALLIANCE FRANÇAISE, Í SAMVINNU VIÐ PEUGEOT OG BERNHARD, KYNNA: FRÖNSK KVIKMYNDAHÁTÍÐ Í HÁSKÓLABÍÓ 3.MARS TIL 1. APRÍL VAR VALINN BESTA MYND ÁRSINS Í FRAKKLANDI SÝND Í SAMBÍÓ KRINGLUNNI eeee VJV, TOPP5.IS eeee V.J.V. eeee KVIKMYNDIR.IS eeeee FILM.IS MISS POTTER kl. 3 - 5:40 - 8 - 10:20 LEYFÐ THE GOOD GERMAN kl. 5:40 - 8 - 10:20 B.i. 16 ára ROBINSON FJÖLSKYLDAN m/ísl. tali kl. 3 - 5 - 7 LEYFÐ 300 kl. 9 B.i. 16 ára RENÉE ZELLWEGER VAR TILNEFND TIL GOLDEN GLOBE SEM BESTA LEIKKONA Í AÐALHLUTVERKI. SANNSÖGULEG MYND UM BEATRIX POTTER, EINN ÁSTSÆLASTA BARNABÓKAHÖFUND BRETA FYRR OG SÍÐAR „HREIN UNUN FRÁ BYRJUN TIL ENDA“ eeee SUNDAY MIRROR eee - S.V., Mbl eee - K.H.H., Fbl AUDREY TAUTOUGAD ELMALEH eee H.J. MBL. eee Ó.H.T. RÁS2 Eftir Arnar Eggert Thoroddsen arnart@mbl.is MÚSÍKTILRAUNIR Tóna- bæjar, sem fram fara í tuttugusta og fimmta skipti í kvöld, hafa getið af sér margar farsælar sigursveitir í gegnum tíðina, hljómsveitir eins og Greifana, Maus, Botnleðju, Mínus, XXX Rottweilerhunda og Jakobín- urínu svo nokkrar séu taldar. Á Til- raununum er hljómsveitum skipað í þrjú vinningssæti, en auk þess hafa athyglisverðar sveitir verið verð- launaðar sérstaklega. Það segir sig sjálf að vinningssveitirnar eru þær sem hala inn mestu athyglina í kjöl- farið en um leið er klárt að sveit- irnar í öðru og þriðja sæti geta varla staðið sigurvegurunum langt að baki, og stundum hefur hársbreidd ráðið því hvernig hljómsveitirnar raðast upp. Þar að auki hafa merkar sveitir tekið þátt í tilraununum án þess að komast nokkru sinni á pall. Striga- skór nr. 42, ein helsta dauðarokks- sveit landsins, var þannig með þrisvar án þess að hafna í verð- launasæti. Sveitin átti síðar eftir að gefa út plötuna Blót, eina til- komumestu rokkplötu sem út hefur komið hérlendis. Leiðtogi hennar, Hlynur Aðils Vilmarsson, hefur ver- ið áberandi í tónlistarlífi landsins síðan, starfar jöfnum höndum sem poppari/rokkari og nútímatónskáld. Ein vinsælasta poppsveit landsins á tímabili, Skítamórall, tók þátt í til- raununum 1992 án þess að ná í eitt af þremur efstu sætunum og tónlist- in allt öðruvísi en sú sem hún átti eftir að brúka síðar meir, einhvers konar „thrash“-rokk. Frægt er þá þegar S/H draumur, sveit dr. Gunna, tók þátt í fyrstu tilraun- unum árið 1982. Á fjögurra sveita undanúrslitakvöldi sat hún eftir með sárt ennið en Sokkabandinu og Ref- lex var hleypt áfram. Músíktilraunir hafa þannig virkað sem eins konar æfingastöð fyrir tónlistarmenn framtíðarinnar; og það er ótrúlegt hversu mikill fjöldi þeirra hefur stigið sín fyrstu skref þar. Á tilraun- unum gafst þeim mörgum hverjum í fyrsta sinn tækifæri til að spila í al- mennilegu hljóðkerfi og ekki spillti að hafa sal fullan af áhorfendum fyr- ir framan sig, auk málsmetandi dómara. Hljómsveitirnar sem nefndar hafa verið hér á undan sýna líka að ekki er nóg að sigra ætli menn sér stóra hluti í dægurtónlist- inni, og þó að menn komist hvorki á pall né upp úr undanúrslitum er ástæðulaust að leggja upp laupa. Nirvana á Músíktilraunum! Þannig keppti Jón Þór Birgisson, söngvari og gítarleikari í Sigur Rós, tvisvar sinnum á Músíktilraunum með hljómsveitinni Bee Spiders, ár- in 1995 og 1996. Hann notaðist við sviðsnafnið Djonní Bí og tónlistin var gruggrokk, með afar sterkum Smashing Pumpkins-áhrifum. Bee Spiders var valin athyglisverðasta sveit Tilraunanna árið 1995 og Kjartan nokkur Sveinsson, síðar í Sigur Rós, dansaði með í dragi. Ári fyrr sigraði Maus í Músíktil- raunum en þá hafnaði í öðru sæti Seltjarnarnessveitin Wool, sem lék einhvers konar hippíska nýbylgju. Söngvari þar var Höskuldur nokkur Ólafsson, sem átti síðar eftir að gera garðinn frægan með Quarashi, en trymbill var Orri Páll Dýrason, nú í Sigur Rós. Árið 1995, er Botnleðja sigraði, hafnaði í þriðja sæti sveit frá Ak- ureyri sem hafði á að skipa korn- ungum meðlimum (eins og gjarnan er raunin á Músíktilraunum). Þetta voru 200.000 naglbítar og sungu þeir á ensku. Nokkrum árum síðar Ekki bara að vinna, heldur að vera Metall Gylfi Blöndal, gítarleikari í nýrokksveitinni Kimono, spilaði þunga- rokk á bassa með Opus Dei sem tók þátt tvö ár í röð. Óttar Rolfsson söng. Hippar Wool var með Höskuld Ólafsson, fyrrverandi Quarashi-mann, sem söngvara, en Orri Páll Dýrason, sem nú er í Sigur Rós, spilaði á tommur. Ljósmynd/Björg Sveinsdóttir Drag Jón Þór Birgisson í Sigur Rós keppti með Bee Spiders 1996 undir nafninu Djonní Bí, og Kjartan Sveinsson félagi hans í Sigur Rós söng með.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.