Morgunblaðið - 31.03.2007, Side 68
LAUGARDAGUR 31. MARS 90. DAGUR ÁRSINS 2007
»MEST LESIÐ Á mbl.is
»VEÐUR mbl.is
5 6 9 1 1 0 0
Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is
Auglýsingar: augl@mbl.is
Áskrift: askrift@mbl.is | sími 5691100
mbl.is: netfrett@mbl.is
Í LAUSASÖLU 200 ÁSKRIFT 2650 HELGARÁSKRIFT 1600 PDF Á MBL.IS 1700
SPARIÐ MEIRA EN HELMING MEÐ ÁSKRIFT
Morgunblaðið bíður
eftir þér þegar þú
vaknar á morgnana
ÞETTA HELST»
I-listi með 5,3% fylgi
I-listi Íslandshreyfingarinnar –
lifandi lands fengi 5,2% kjörfylgi ef
kosið yrði nú samkvæmt niður-
stöðum könnunar Gallups. Fylgi
annarra flokka er svipað og í síðustu
könnun nema VG sem tapar 3,6 pró-
sentustigum.
Kosið í Hafnarfirði
Kjósendur í Hafnarfirði kjósa í
dag um tillögu að deiliskipulagi sem
gerir ráð fyrir stækkun álversins í
Straumsvík. Samkvæmt ákvörðun
bæjarstjórnar verður niðurstaða
kosninganna bindandi og mun ráða
því hvort fyrirliggjandi deiliskipu-
lagstillaga, sem er samþykkt til aug-
lýsingar, verði sett í auglýsingu.
Icelandair sektað
Samkeppniseftirlitið hefur úr-
skurðað að Icelandair hafi brotið
gegn samkeppnislögum og er félag-
inu gert að greiða 190 milljónir
króna í stjórnvaldssekt.
Kippur í fasteignasölu
Fasteignamarkaðurinn hefur tek-
ið mikinn kipp undanfarnar vikur og
met var slegið nú í vikunni þegar
eignir fyrir tæplega 8,1 milljarð
króna seldust á höfuðborgarsvæð-
inu, ef marka má nýjar tölur Fast-
eignamats ríkisins.
SKOÐANIR»
Staksteinar: Breyttur blaðamarkaður
Ljósvakinn: Húrra fyrir Gettu betur
Forystugreinar: Öryggismál
Af listum: Höfðingjar og indjánar
UMRÆÐAN»
Hafnfirðingar kjósa
Raforkusala til stóriðju ábatasöm
Börnin í forgang
Hreint land – hreint samfélag?
Lesbók: Trú og samfélag á 21. öld
Börn: Fallegt skraut á páskaborðið
Enski: Man. United verðmætast
LESBÓK | BÖRN | ENSKI»
2 %8"& - $ "*
$%
9 $#
$ $#""/"
"
. . . . .
. .
. . .
. . , 0 6 &
.
. . .
. .
:;<<=>?
&@A><?B9&CDB:
0=B=:=:;<<=>?
:EB&0"0>FB=
B;>&0"0>FB=
&GB&0"0>FB=
&7?&&B/"3>=B0?
H=C=B&0@"HAB
&:>
A7>=
9AB9?&7*&?@=<=
Heitast 13 °C | Kaldast 6 °C
Suðaustlæg átt og
rigning eða súld um
mestallt land, síst þó á
Austurlandi. »8
Botnaðu eftirfarandi
fyrripart:
Lóan er komin, hún
léttir vort geð, og
lofar að senn komi
spóinn.
ÚTVARP»
Orð skulu
standa
TÓNLIST»
Benni Hemm Hemm er
lúsiðinn. »62
Ef marka má þýsk-
an vefmiðil verður
síðasta bókin um
Harry Potter
kannski ekki sú síð-
asta. »63
BÓKMENNTIR»
Harry Pott-
er tórir
TÓNLIST»
Margir hafa tekið þátt í
Músíktilraunum. »64
FÓLK»
Plötuumslag Belle &
Sebastian? »61
reykjavíkreykjavík
VEÐUR»
1. Viktoría noti brjóstahaldara
2. Jolie tengdari hinum ættleiddu
3. Ricky Gervais svívirtur í beinni
4. Bíl ekið um Hvalfjarðargöng…
BOGI Nilsson ríkissaksóknari segir
íslensk hegningarlög ekki geyma
ákvæði sem leggur refsingu við
heimildarlausri myndatöku af
manni sem t.d. fer fram þegar mað-
urinn er utan almannafæris. Þetta
segir ríkissaksóknari í yfirlýsingu
sinni vegna umfjöllunar um sýknu-
dóm yfir manni sem myndaði nakta
stúlku og sýndi kunningjum sínum
afraksturinn. Höfðaði ríkissaksókn-
ari sakamál á hendur honum en tap-
aði því fyrir Héraðsdómi Norður-
lands vestra á miðvikudag. Bogi
bendir á að margir telji löngu tíma-
bært að hugað verði að endurskoð-
un refsiákvæða hegningarlaga um
brot gegn friðhelgi einkalífs.
Hæstaréttarlögmennirnir Atli
Gíslason og Sif Konráðsdóttir
gagnrýna dóminn og lýsir Atli
þeirri skoðun sinni að ríkissaksókn-
ari verði að áfrýja honum. Sif segir
dóminn vera „lögfræðilega steypu“.
Segir hún gæta grundvallarmis-
skilnings hjá dómaranum á hugtak-
inu „lostugt athæfi“ sem leiði til
þessa að lagatúlkun hans sé ekki í
samræmi við inntak lagaákvæðis-
ins eins og það hefur verið skýrt.
Að sögn Sifjar er venjan sú að túlka
annars vegar „lostugt athæfi“ og
hins vegar blygðunarsemi sem at-
hæfi sem hafi yfir sér kynferðisleg-
an blæ. Í því felist hins vegar ekki
að „lostugt athæfi“ merki að hátt-
semi gerandans sé til þess fallin að
veita honum einhverja kynferðis-
lega fullnægju.
Atli Gíslason segir ljóst að
breyta þurfi löggjöfinni er málið fer
fyrir Hæstarétt og dóminum verði
ekki hnekkt. | 14
Dómurinn „lög-
fræðileg steypa“
Ríkissaksóknari verður að áfrýja sýknudómi vegna
gsm-nektarmyndatöku segir hæstaréttarlögmaður
Í HNOTSKURN
»Margir telja tímabærtað hugað verði að end-
urskoðun refsiákvæða
hegningarlaga um brot
gegn friðhelgi einkalífs.
»Lögmaður segir venjuað túlka annars vegar
lostugt athæfi og hins vegar
blygðunarsemi sem athæfi
með kynferðislegum blæ.
KOLBEINN Sigþórsson,
knattspyrnumaðurinn
ungi úr HK, fer á morg-
un til hollenska stórliðs-
ins Ajax til æfinga. Hann
fer síðan með unglinga-
liði félagsins til Spánar
þar sem það tekur þátt í
sterku móti um páskana.
Þar er Ajax í riðli með
spænsku liðunum Barce-
lona, Villarreal og Real Sociedad en í hin-
um riðlinum eru Real Madrid, Rosenborg
frá Noregi, Osasuna og spænskt úrvalslið.
Mótið hefst á fimmtudag og því lýkur á
mánudag.
Kolbeinn, sem er nýorðinn 17 ára, vakti
mikla athygli fyrir frammistöðu sína með
drengjalandsliði Íslands í milliriðli Evr-
ópukeppninnar í Portúgal fyrr í þessum
mánuði. Hann skoraði þar 6 af 8 mörkum
Íslands og var markahæstur í riðlinum en
þar af skoraði hann fjögur mörk í fyrri
hálfleik í mögnuðum sigri Íslands á Evr-
ópumeisturum Rússa, 6:5. Mörg erlend fé-
lög hafa í kjölfarið spurst fyrir um Kol-
bein, sem hóf að leika með meistaraflokki
HK á síðasta ári, þá aðeins 16 ára gamall.
Kolbeinn með
Ajax til Spánar
Kolbeinn
Sigþórsson
Eftir Birtu Björnsdóttur
birta@mbl.is
ÞAÐ VAR vitneskjan um hver málaði Fæðingu
Venusar sem tryggði liði Menntaskólans í Reykja-
vík sigur í Gettu betur í gærkvöldi en liðið atti
kappi við lið Menntaskólans í Kópavogi.
Keppnin var afar spennandi og henni lauk í
bráðabana.
Liðin skiptust á að leiða keppnina. MR hafði
fleiri stig að loknum hraðaspurningum en MK
sótti á og hafði yfirhöndina mestan hluta bjöllu-
spurninganna.
Fjórum stigum munaði þegar tvær vísbend-
ingaspurningar voru eftir og náði MR að jafna
metin með fyrrgreindum afleiðingum.
Hilmar Þorsteinsson er fyrirliði liðs MR og hann
gerði nokkurra mínútna hlé á fagnaðarlátunum
þegar blaðamaður hafði samband við hann.
„Þetta er ótrúlegt!“ sagði Hilmar, en bætti við
að hann hefði haft trú á sínu liði allan leikinn.
„Við vissum allan tímann að við gætum þetta,
sama hvernig stigin stóðu.“
Galdurinn segir Hilmar einfaldlega vera mikla
vinnu.
„Við erum búnir að vinna, vinna og vinna að
þessu markvisst í tvö ár og erum loksins að upp-
skera eins og við sáðum.“
Auk Hilmars skipa lið MR þeir Magnús Þorlák-
ur Lúðvíksson og Björn Reynir Halldórsson.
Morgunblaðið/ÞÖK
MR-ingar gátu betur á endasprettinum