Morgunblaðið - 28.04.2007, Side 2
2 LAUGARDAGUR 28. APRÍL 2007 MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Fréttir frett@mbl.is Fréttastjórar Ágúst Ingi Jónsson, aðstoðarfréttaritstjóri, aij@mbl.is Sigtryggur Sigtryggsson, aðstoðarfréttaritstjóri, sisi@mbl.is Viðskiptablað vidsk@mbl.is Umsjón Björn Jóhann Björnsson,
bjb@mbl.is Daglegt líf Guðbjörg Guðmundsdóttir, gudbjorg@mbl.is Menning menning@mbl.is Fríða Björk Ingvarsdóttir, ritstjórnarfulltrúi, fbi@mbl.is Umræðan | Bréf til blaðsins Guðlaug Sigurðardóttir, ritstjórnarfulltrúi, gudlaug@mbl.is Minningar minning@mbl.is, Stefán Ólafsson,
Arnór Ragnarsson Dagbók| Kirkjustarf Ellý H. Gunnarsdóttir, elly@mbl.is Íþróttir sport@mbl.is Sigmundur Ó. Steinarsson, fréttastjóri, sos@mbl.is Útvarp | Sjónvarp Hulda Kristinsdóttir, dagskra@mbl.is mbl.is netfrett@mbl.is Guðmundur Sv. Hermannsson fréttastjóri gummi@mbl.is
NÝ ÞJÓNUSTA fyrir áskrifendur
Morgunblaðsins verður opnuð á
mbl.is í dag. Með þessari þjónustu
bjóðast áskrifendum ýmis tilboð.
Aðgangur að smáauglýsingavef
með allt að 10 ókeypis auglýs-
ingum á 30 daga fresti.
Ókeypis aðgangur að pdf-útgáfu
Morgunblaðsins.
Aðgangur að þremur myndum
úr myndasafni með 50% af-
slætti.
Aðgangur að fimm ókeypis
greinum úr gagnasafni á mán-
uði.
Á forsíðu mbl.is er hnappur sem
smellt er á til að skrá sig. Þá birtist
síða þar sem notendur geta slegið
inn kennitölu sína. Í framhaldi er
athugað hvort viðkomandi er
áskrifandi og ef svo er er honum
boðið upp á fyrrnefnda þjónustu.
Áskrifanda er sent lykilorð á
uppgefið netfang og það gengur að
allri þeirri þjónustu sem boðin er.
Áskrifendum sem eru þegar skráð-
ir fyrir einhverri af þessari þjón-
ustu með mismunandi lykilorðum
er gefinn kostur á að skipta út
mörgum lykilorðum fyrir eitt.
Hver notandi er með sína síðu
sem birtist þegar hann slær inn
kennitölu sína. Þar geta notendur
séð fjölda auglýsinga sem þeir hafa
bókað, hversu margar myndir þeir
hafa keypt og það sama gildir um
greinar. Á þessari síðu eru einnig
tenglar beint inn í þá þjónustu sem
viðkomandi vill nýta sér.
Aukin þjónusta
við áskrifendur
Morgunblaðs-
ins á mbl.is
KEPPENDUR sneru, veltu, fóru í
kollhnís og léku ýmsar fleiri
hundakúnstir þegar þeir reyndu
sig í flúðafimi fyrir neðan gömlu
rafstöðina í Elliðaánum í gær. Með
keppninni hófst sumardagskrá
Kajakklúbbs Reykjavíkur og í dag
klukkan 13 er komið að sjókajak-
mönnum að sýna hvað í þeim býr.
Keppendur í flúðafimi geta t.d.
unnið sér inn stig með því að snúa
bátnum 180° með hann flatan, ef
báturinn hallast verulega fá þeir
tvö stig og þrjú stig fær sá sem
getur snúið bátnum í 180° en um
leið haldið honum lóðréttum í
ánni. Of langt mál væri að telja
upp allar hreyfingar sem hægt er
að framkvæma og raunar er ekki
til orð í íslensku yfir margar
þeirra.
Best kvenna í flúðafimi í gær
var Anna Lára Steingrímsdóttir en
Guðmundur Vigfússon vann alla
sína keppinauta í karlaflokki.
Í dag klukkan 13 verða sjókajak-
menn ræstir frá Geldinganesi í
kappróðrinum um Reykjavíkurbik-
arinn. Aðalkeppnisleiðin er 10
kílómetrar en róðurinn gæti
reynst óvenjustrembinn þar sem
spáð er 10–15 m/s af suðaustan.
Fimir í
flúðunum
Morgunblaðið/Golli
Fimur Jón Skírnir Ágústsson átti góða spretti í gær en það dugði honum þó ekki nema í fjórða sætið.
LÖGREGLUMENN voru kallaðir
með hraði að bankaútibúi Glitnis í
Lækjargötu í gær vegna tilkynning-
ar starfsfólks um bankarán. Tildrög-
in voru þau að hópur dimmitterandi
framhaldsskólanema í bæjarferð
hafði komið með látum inn í bankann
og hrópað að um bankarán væri að
ræða. „Ég ætla að drepa þig,“ hróp-
aði einhver að auki að sögn Hann-
esar Guðmundssonar útibússtjóra.
Fólki brá á annarri hæð
Um hugsunarlausan hrekk mun
hafa verið að ræða, en krakkarnir
voru klæddir í víkingaföt og vildu
láta ófriðlega. Hannes segir að
hrekkurinn hafi ekki valdið teljandi
misskilningi hjá starfsfólki á fyrstu
hæð hússins enda sást hvers eðlis
þessi heimsókn var, en á efri hæð-
inni var aðra sögu að segja. Þar
heyrði fólk ummælin og lætin án
þess að sjá hvað var á seyði. Var
fólki því brugðið og samkvæmt ör-
yggisreglum var hringt í 112 í stað
þess að ganga inn í aðstæður sem
eru ókunnar og jafnvel varasamar.
„Lögreglan var komin eftir eina til
eina og hálfa mínútu,“ sagði Hannes.
„Lögreglan fann krakkana sam-
kvæmt lýsingu og gerði þeim grein
fyrir alvöru málsins. Svona lagað
getur frá einu sjónarhorni verið
glens og gaman en frá öðru sjón-
arhorni háalvarlegt því lögreglan ók
á vettvang með blikkljósum og setti
sig og aðra í ákveðna hættu. Af hálfu
bankans munu engin eftirmál verða
af þessu.“
Hannes segir að krakkarnir hafi
líklega talið sig vera að hegða sér að
víkingahætti með þessum bægsla-
gangi en hugsunarleysi hafi átt sinn
þátt í því að þau vöktu umrædd við-
brögð.
Töluvert hefur verið um dimmitt-
erandi framhaldsskólanema í mið-
bænum að undanförnu og var gær-
dagurinn engin undantekning.
Hrópuðu banka-
rán og fengu tiltal
UNGA piltinum sem fannst meðvit-
undarlaus á botni sundlaugar
Kópavogs á fimmtudagsmorgun er
enn haldið sofandi á gjörgæsludeild
Landspítala – háskólasjúkrahúss.
Samkvæmt upplýsingum frá lög-
reglunni á höfuðborgarsvæðinu er
rannsókn í fullum gangi og í gær
var reynt að hafa uppi á sjón-
arvottum og upptökur úr eftirlits-
myndavélum skoðaðar.
Pilturinn var í skólasundi þegar
slysið átti sér stað en að sögn lög-
reglu voru flestir nemendur komn-
ir upp úr þegar hann fannst. Engin
niðurstaða liggur fyrir um orsakir
slyssins.
Liggur enn
þungt haldinn á
gjörgæsludeild
♦♦♦
Eftir Guðmund Sverri Þór
sverrirth@mbl.is
ERFIÐUR rekstur rækjuvinnslu fiskvinnslu-
fyrirtækisins Bakkavíkur hf. í Bolungarvík hef-
ur neytt fyrirtækið til þess að segja upp 48 af 60
starfsmönnum í landvinnslu sinni. Samkvæmt
tilkynningu frá fyrirtækinu hefur rekstur
rækjuvinnslunnar gengið erfiðlega á undan-
förnum árum og hefur það haft slæm áhrif á
lausafjárstöðu fyrirtækisins. Jafnframt hafi
fyrirtækinu gengið illa að afla hráefnis það sem
af er ári enda hafi rækjuafli dregist saman bæði
hér á landi og annars staðar. Það hráefni sem
fæst er samkvæmt tilkynningunni of dýrt til
þess að hægt sé að láta enda ná saman. Fyr-
irtækið seldi nýlega hlut sinn í útgerðarfélag-
inu Rekavík til þess að greiða upp lausaskuldir
sínar en við það skapaðist óvissa um hráefn-
isöflun sem að stórum hlut fór fram í gegnum
Rekavík.
Bakkavík er að sögn Gríms Atlasonar, bæj-
arstjóra Bolungarvíkur, stærsti atvinnuveit-
andi bæjarins og því er sú staða sem komin er
upp langt frá því að vera óskastaða þótt vissu-
lega hafi verið búist við þessu.
„Viðbrögð bæjarstjórnarinnar verða að
minnka það sem við getum minnkað, þannig að
þetta verði ekki eins mikið högg og það gæti
orðið. Verði þessar uppsagnir að veruleika
missir fyrsti hópurinn vinnuna eftir mánuð og
hluti eftir þrjá mánuði og bærinn mun þá leita
leiða til þess að hraða þeim verkefnum sem við
getum hraðað og ráða fleiri í vinnu í sumar en
til hafði staðið,“ segir Grímur.
Grímur segir að ekki sé við stjórnendur
Bakkavíkur að sakast, fyrirtækið hefur verið
vel rekið og gott fólk að baki því en rekstr-
arforsendur séu einfaldlega ekki fyrir hendi
þegar hráefnið skortir. Það veki hins vegar
spurningar um fiskveiðistjórnunarkerfið og af-
leiðingar þess á byggðir landsins.
Íbúar í Bolungarvík eru að sögn Gríms 905
og telur hann að hér sé um að ræða um 8% af
útsvarsbærum mönnum í bænum. „Þetta er því
töluvert áfall en við munum spýta í lófana og
gefumst ekki upp,“ segir Grímur Atlason.
Þýðir ekki að hrökkva til baka
„Þetta er dapurlegt en við reynum að vera
bjartsýn því það þýðir ekki að allir hrökkvi til
baka,“ segir Lárus Benediktsson, formaður
Verkalýðs- og sjómannafélags Bolungarvíkur.
„Við höfum lent alltof oft í þessari stöðu og það
grátlega er að það virðist aldrei ætla að taka
enda. Það eru ekki nema sex ár síðan við lent-
um í því að stórt fyrirtæki varð hér gjaldþrota
og þá var Bakkavík stofnuð og nú gerist þetta,“
bætir hann við.
Lárus segir ástæðurnar fyrir þessu fyrst og
fremst vera aðgerðir stjórnvalda. „Síðan kvóta-
kerfið var sett á laggirnar hefur lífsviðurværið
smám saman verið kroppað af okkur hér á
landsbyggðinni og það er mun erfiðara að lifa
við þetta en áður. Okkar stóriðja er fiskurinn,
sem er stutt að sækja hérna á miðin.“
Að sögn Lárusar mun verkalýðsfélagið
reyna allt sem í þess valdi stendur til þess að
greiða götu félagsmanna. Þegar hefur verið
auglýst opið hús strax á mánudaginn þar sem
fólk getur komið saman og reynt verður að gera
gott úr því sem komið er.
„Ef við ætlum að byggja allt landið þurfum
við að fá eitthvað til okkar. Þetta sogast allt
þangað sem þenslan er en hér er engin þensla.
Mönnum verður tíðrætt um kaupmáttaraukn-
ingu en hér er engri slíkri fyrir að fara. Hér hef-
ur þróun kaupmáttar verið neikvæð. Í tillögum
Vestfjarðanefndarinnar hefur mikið verið talað
um stofnanastörf, sem er ágætt út af fyrir sig,
en enginn hefur minnst á verkafólk. Við mynd-
um gjarnan vilja fá hingað til Bolungarvíkur
10–20 störf fyrir verkafólk við tölvuskráningu
eða eitthvað þess háttar,“ segir Lárus.
48 starfsmönnum sagt upp
Stjórnvaldsaðgerðum um að kenna segir formaður Verkalýðs- og sjómannafélags Bolungarvíkur
Ekki við stjórnendur fyrirtækisins að sakast segir bæjarstjóri Bolungarvíkur