Morgunblaðið - 28.04.2007, Page 4
4 LAUGARDAGUR 28. APRÍL 2007 MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Jakob Frímann Magnússon
útgefandi og tónsmiður, Mosfellsbæ
FYRSTA SÆTI
SUÐVESTUR
Eftir Hjálmar Jónsson
hjalmar@mbl.is
SAMFYLKINGIN og Vinstri græn-
ir mælast með jafnmikið fylgi, 21,2%,
á landsvísu, í nýrri skoðanakönnun
Capacent Gallup fyrir Morgunblaðið
og Ríkisútvarpið. Ríkisstjórnin held-
ur naumlega velli og Frjálslyndir fá
þrjá menn kjörna, en Íslandshreyf-
ingin nær ekki mönnum á þing.
Samkvæmt niðurstöðum könn-
unarinnar fær Sjálfstæðisflokkurinn
39,1% fylgi ef kosið yrði nú og tapar
einu og hálfu prósentustigi frá síð-
ustu könnun fyrir viku og er stærsti
flokkurinn í öllum kjördæmum
landsins. Samfylkingin fær 21,2% og
tapar tæpum þremur prósentustig-
um og VG fær sama fylgi og eykur
fylgi sitt um tvö prósentustig frá síð-
ustu könnun. Framsókn bætir við sig
rúmum tveimur prósentustigum og
mælist með slétt 10%. Frjálslyndir
bæta við sig einu og hálfu prósentu-
stigi og mælast nú með 5,3%, en Ís-
landshreyfingin tapar prósenti og
mælist nú með 2,3% og Baráttu-
samtökin mælast með 0,6%.
Samkvæmt þessum niðurstöðum
fengi Sjálfstæðisflokkurinn 26 þing-
menn kjörna, Samfylking og Vinstri
grænir 14 þingmenn hvor flokkur,
Framsóknarflokkur sex þingmenn
og Frjálslyndir þrjá þingmenn. Rík-
isstjórnarflokkarnir eru þannig með
meirihluta eða 32 þingmenn sam-
anlagt og raunar er Framsókn-
arflokkurinn í oddaaðstöðu og gæti
einnig myndað ríkisstjórn með Sam-
fylkingu og VG.
Ívið fleiri konur en karlar styðja
Framsókn og Samfylkingu. Nokkru
fleiri karlar en konur styðja Sjálf-
stæðisflokkinn eða 40,6% saman-
borið við 37,5%. Meira en tvöfalt
fleiri karlmenn en konur styðja hins
vegar Frjálslynda flokkinn eða 7,8%
karlmanna en 3,4% kvenna. VG sæk-
ir hins vegar mun stærri hluta fylgis
síns til kvenna en karla; 24,4%
kvenna styðja VG og 18,1% karla
samkvæmt könnuninni.
Þegar horft er til skiptingar á fylgi
flokkanna eftir einstaka kjördæmum
kemur í ljós að Framsóknarflokk-
urinn nýtur mests fylgis í Norðvest-
urkjördæmi, 21,7%, og minnsts í
Reykjavíkurkjördæmi suður, 4,1%.
Sjálfstæðisflokkurinn er með mest
45,9% í Suðvesturkjördæmi og
minnst í Norðvesturkjördæmi,
28,5%. Frjálslyndir eru með mest
fylgi í Norðvesturkjördæmi, 9,8%, og
þar er einnig Íslandshreyfingin með
mest fylgi, 5,1%. Frjálslyndir njóta
einnig hlutfallslega mikils fylgis í
Reykjavíkurkjördæmi norður, 8,8%.
Mest fylgi Samfylkingar er í Suður-
kjördæmi, 33,9%, og minnst í
Reykjavíkurkjördæmi norður og
Norðvesturkjördæmi, 17,2%. Sterk-
asta fylgi VG er í Norðaust-
urkjördæmi og Reykjavík-
urkjördæmi norður, rúm 23%, en
minnst fylgi hafa þeir í Norðvest-
urkjördæmi og Suðurkjördæmi, rúm
15%.
RÍKISSTJÓRNIN HELDUR NAUMLEGA VELLI Í NÝRRI SKOÐANAKÖNNUN CAPACENT GALLUP
Samfylking og Vinstri grænir mælast
með nákvæmlega jafnmikið fylgi, 21,2%
! "#
$!%&
!$& '
( '
) '
"#
*!!'
!+
!"#
$ !"#
$% !"#
!"#
!"
#
$
!
" %
&
$
(
'
)
&!
Í HNOTSKURN
»Rúm 16% kjósenda Fram-sóknarflokksins í síðustu
kosningum ætla að kjósa Sjálf-
stæðisflokkinn nú og önnur tæp
17% ætla að kjósa Samfylk-
inguna.
»Þá ætla tæp 20% kjósendaSamfylkingarinnar í kosn-
ingunum 2003 að kjósa VG núna.
FRAMSÓKNARFLOKKURINN
hefur eytt mestu í auglýsingar vegna
alþingiskosninganna framundan,
samkvæmt samantekt Capacent Gall-
up eða tæpum sjö milljónum króna
sem er tæpur fjórðungur þeirra 28
milljóna sem samkomulag er um að sé
þak á útgjöldum vegna þessa.
Útgjöldin taka til tímabilsins frá 27.
mars til og með 25. apríl. Næstmest
hefur VG eytt í auglýsingar eða 5,7
milljónum sem er rúmur fimmtungur
af auglýsingafé flokksins. Frjálslyndi
flokkurinn og Samfylkingin hafa hvor
um sig eytt rúmum 17% af sínu aug-
lýsingafé, en Sjálfstæðisflokkurinn
hefur varið lægstu upphæðinni í
þessu skyni eða rúmum 3,4 milljónum
kr. sem rúm 12% af auglýsingafé
flokksins.
Langstærstur hluti auglýsinga
flokkanna hefur birst í blöðum eða
tæp 21 milljón kr. af 26 milljón króna
heildarútgjöldum í þessu skyni.
Framsóknarflokkurinn er jafnframt
eini flokkurinn sem hefur birt auglýs-
ingar í sjónvarpi en hann hefur aug-
lýst þar fyrir 4,1 milljón kr. Þá hefur
rúmum 800 þúsund krónum verið var-
ið til útvarpsauglýsinga.
Framsókn hefur eytt mestu
&
&' (
STARFSHÓPUR um stækkun frið-
landsins í Þjórsárverum leggur til að
friðlandið verði nær þrefaldað að
stærð og stækkað í 1.041,1 km2. Nú er
friðlandið 353,3 km2 að stærð. Þá er
lagt til að reglugerð um friðlandið
verði breytt þannig að öll umfjöllun
um lónhæð falli út og reglum um frið-
landið verði breytt.
Tillögur nefndarinnar gera ráð fyr-
ir stækkun kjarnasvæðis hinna eig-
inlegu Þjórsárvera. Telur nefndin að
full samstaða geti skapast um að frið-
landið verði stækkað.
Nefndin leggur til að friðlandið „af-
markist af vatnasviði Þjórsár á Hofs-
jökli. Austan Hofsjökuls verði allt
gróðurlendi vestan Þjórsár innan
friðlandsins. Mörkum friðlandsins
verði breytt við Kvíslavötn þannig að
þau fylgi vesturmörkum lóna og
skurða. Vesturmörk friðlandsins fylgi
vatnasviði Hnífár og að sunnan verði
mörk friðlandsins óbreytt vegna rétt-
aróvissu um virkjanaframkvæmdir“.
Þá er lagt til að Þjórsárveranefnd
og sveitarstjórn geti takmarkað
ríðandi umferð um viðkvæm svæði.
Í nefndinni voru ræddar hugmynd-
ir um stofnun Hofsjökulsþjóðgarðs
sem næði yfir Þjórsárver, Kerlinga-
fjöll, friðlandið í Guðlaugstungum og
rústasvæði norðan Hofsjökuls. Vel
var tekið í að skoða slíkar hugmyndir
en frekari vinna krefst aðildar við-
komandi sveitarstjórna beggja vegna
jökuls.
Tillaga um stækkun
friðlands Þjórsárvera
LÖGREGLAN á höfuðborgarsvæð-
inu lagði hald á 120 grömm af ætl-
uðu maríjúana í fyrirtæki í aust-
urborginni fyrradag. Á sama stað
fannst lítilræði af ætluðu amfeta-
míni í neysluskömmtum. Karl-
maður um fertugt, sem hefur áður
komið við sögu hjá lögreglu,var
handtekinn vegna málsins sem telst
að mestu upplýst.
Á öðrum stað í austurborginni
fundust ætluð fíkniefni í vist-
arverum karlmanns á líkum aldri
og í íbúð í miðborginni fundust
sömuleiðis ætluð fíkniefni. Í seinna
málinu er karlmaður á þrítugsaldri
grunaður um fíkniefnamisferli.
Hald lagt
á fíkniefni
ÁTJÁN umferðaróhöpp urðu í um-
dæmi lögreglunnar á höfuðborg-
arsvæðinu frá hádegi í gær. Í
tveimur tilvika urðu slys á fólki en
þó ekki alvarlegs eðlis að sögn lög-
regluvarðstjóra. Í einu tilvika varð
þriggja bíla árekstur á mótum
Höfðabakka og Stekkjarbakka
klukkan 14 og var einn fluttur á
slysadeild. Þá varð tveggja bíla
árekstur klukkustund síðar við
Sævarhöfða. Þar meiddist einn á
hendi og kom sér sjálfur á slysa-
deild. Taka þurfti annan bílinn með
krana og sömuleiðis urðu bílar
óökufærir í fyrra slysinu við Höfða-
bakka.
Átján um-
ferðaróhöpp