Morgunblaðið - 28.04.2007, Page 6
6 LAUGARDAGUR 28. APRÍL 2007 MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Skógarhlíð 18 • sími 595 1000 • www.heimsferdir.is
Frábær
sólartilboð í maí
frá kr. 39.990
Góð gisting - frábær sértilboð
Fuerteventura, 22. maí
Verð frá kr. 39.990
- Sértilboð á Oasis Royal og Papagayo
Costa del Sol, 23. maí
Verð frá kr. 39.990
- Sértilboð á Principito og Timor Sol
Króatía, 27. maí
Verð frá kr. 39.990
- Sértilboð á Diamant
Mallorca, 25. maí
Verð frá kr. 49.990
- Sértilboð á Las Gaviotas
Munið Mastercard
ferðaávísunina
Kynntu þér þessi og önnur tilboð á
www.heimsferdir.is
Eftir Steinunni Ásmundsdóttur
steinunn@mbl.is
KANNSKI var of mikið sagt að 180
manns hefðu hlotið skaða af því að
vera ofan í göngunum vegna and-
rúmsloftsins. Það er þó til að drepa
málinu á dreif að vera sérstaklega að
tala um það. Málið snýst um að
greinilegt virðist að einhverjir hafi
hlotið af því talsverðan skaða að vera
þarna niðri,“ segir Matthías Hall-
dórsson landlæknir.
„Þetta mál þarfnast rannsóknar of-
an í kjölinn og við miðum vinnu okkar
við það. Við Haraldur Briem sótt-
varnalæknir áttum í gær langan fund
með Þorsteini Njálssyni, yfirlækni
við Kárahnjúka, sem er farinn í frí frá
Kárahnjúkum, ásamt Stefáni Þórar-
inssyni, lækningaforstjóra Heilbrigð-
isstofnunar Austurlands. Einnig
komu þrír sérfræðingar af Landspít-
ala á fundinn og voru okkur til ráðu-
neytis um stöðu mála og framhaldið.
Við stefnum að því að vera á Kára-
hnjúkum nk.
mánudag og fara
ofan í málið. Bæði
aðdragandann að
því sem gerðist
annars vegar og
hins vegar varð-
andi sjúkra-
skrárnar, sem
Þorsteinn hefur
haldið fram að Impregilo hafi tekið
ófrjálsri hendi.“
Ætla að fara ofan í hverjir
eru á 180 manna lista læknisins
Matthías segir að ef rétt reynist
sér þar um alvarlegt mál að ræða.
Enginn eigi að taka gögn annars án
leyfis og þar að auki geti verið um við-
kvæm gögn að ræða. „Við ætlum
einnig að fara ofan í það hverjir eru á
þessum lista. Aðalatriðið er að reyna
að koma upp einhverju kerfi þannig
að svona lagað gerist ekki og nái ekki
að ganga svona langt.“
Sóttvarnalögum var breytt í þing-
lok á þann hátt að ætlast er til að sótt-
varnalækni sé tilkynnt bæði um sýk-
ingar sem breiðast út og um eitranir.
Það hefði verið lækna við Kárahnjúka
að tilkynna slíkt en lögin komu fram
fyrir aðeins nokkrum vikum og reglu-
gerðir og vinnureglur eru ekki mót-
aðar enn. Reyna á að hafa uppi á þeim
mönnum sem hugsanlega eru taldir
hafa orðið fyrir einhverju heilsutjóni,
en læknir Vinnueftirlitsins mun
væntanlega fara nánar ofan í þau
sjúkratilvik sem Kárahnjúkalæknir-
inn hafði til skoðunar. „Sem betur fer
virðist sem flestir hafi náð sér og eng-
inn er lengur á sjúkrahúsi en það er
þó spurning með einhverja hvort þeir
hafi hlotið tjón af.
Aðalatriði er að reyna að fylgjast
með því hvort allir nái sér að fullu og
að reyna að koma í veg fyrir á ein-
hvern hátt að svona endurtaki sig og
að farið verði betur eftir því að til-
kynna strax um leið og grunur vakn-
ar. Það þarf ekki að vera nein stað-
festing á að eitthvað sé í ólagi að
tilkynna til sóttvarnarlæknis, heldur
aðeins grunur og þá er það hans að
gera sínar ráðstafanir.“
Fram kemur í sameiginlegri yfir-
lýsingu Heilbrigðisstofnunar Austur-
lands og Impregilo, sem hafa fundað
um gang mála á Kárahnjúkum, að af-
ar óheppilegt hafi verið og andstætt
reglum að bráðabirgðalisti um þá sem
hugsanlega gætu hafa orðið fyrir
mengunaráhrifum barst í hendur
stjórnenda Impregilo. Listanum
verði skilað til Heilbrigðisstofnunar
Austurlands.
Landlæknir að Kárahnjúkum
til að fá botn í mengunarmálið
Vill hafa uppi á mönnum sem hugsanlega hafa orðið fyrir heilsutjóni vegna mengunar
Í HNOTSKURN
»Landlæknir mun faraaustur að Kárahnjúkum á
mánudag til að kanna nánar
aðdraganda mengunarmáls-
ins, grafast fyrir um 180
manna listann margumrædda
og reyna að finna þá menn
sem kunna að hafa veikst
vegna mengunar.
Matthías
Halldórsson
Eftir Steinunni Ásmundsdóttur
steinunn@mbl.is
VINNUEFTIRLIT ríkisins hefur
heimilað að fyrsti hluti þess kafla
aðrennslisganga Kárahnjúkavirkj-
unar sem var lokað vegna meng-
unarhættu 24. apríl sl. verði opn-
aður nú í morgunsárið.
Harald Alfreðsson hjá VIJV,
framkvæmdaeftirliti Landsvirkj-
unar, sagði í gærkvöldi að sá hluti
sem opnaður yrði fyrst væri næst
aðgöngum 2 og aðrir hlutar yrðu
svo opnaðir koll af kolli eftir því
sem tækist að ljúka þar fullnægj-
andi mengunarvörnum. Hann
reiknar með að það gerist yfir
helgina.
Heilbrigðisstofnun Austurlands
(HSA) og Impregilo sendu í gær frá
sér sameiginlega yfirlýsingu þar
sem m.a. kemur fram að yfirlæknir
HSA við Kárahnjúka hafi unnið
bráðabirgðalista með nöfnum 180
einstaklinga sem leitað hafi til
heilsugæslunnar á tímabilinu 12.–
24. apríl vegna einkenna sem hugs-
anlega gátu verið vegna mengunar.
Innihald skjalsins hafi komist í há-
mæli áður en tími gafst til að vinna
nánar með listann og flokka frá þá
sem ástæðulaust var að skoða frek-
ar. Með þessu orðalagi er greini-
lega reynt að lægja þær öldur sem
orðið hafa milli yfirlæknisins við
Kárahnjúka og Impregilo og
Landsvirkjunar, þar sem fyr-
irtækin hafa dregið trúverðugleika
umrædds 180 manna lista læknisins
ítrekað í efa.
Stjórnendur Impregilo og HSA
segjast í yfirlýsingunni sammála
um að skynsamlegt og rétt hafi ver-
ið hjá lækninum að flokka alla með
einkenni í áhættuhóp.
Grænt ljós gefið á
vinnu í göngunum
Impregilo og HSA fjalla um listann
AÐ minnsta kosti 1.000 íbúðir í nýj-
um hverfum á ári, uppbyggingar- og
úthlutunaráætlun á sérstakri vef-
síðu, sanngjarnar úthlutunarreglur,
fast lóðaverð sem á að tryggja að all-
ir hafi sama tækifæri til að fá lóð og
stóraukið framboð sérbýlis var með-
al þess sem fram kom á blaðamanna-
fundi borgarstjórnarmeirihlutans í
Reykjavík í gær.
Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson borg-
arstjóri opnaði nýjan vef fyrir borg-
arbúa sem sýnir áætlun næstu ára í
lóðaúthlutun. Borgarbúum er nú í
fyrsta sinn gert kleift að skoða á
Netinu ný íbúðarsvæði og lóðir sem í
boði verða. Vefurinn felst í ná-
kvæmu upplýsingakorti sem sýnir
uppbyggingarsvæðin í borginni,
hvar þau eru og hvenær úthlutun
hefst.
Fjölbreytni, framboð og gæði
Í máli borgarstjóra um uppbygg-
ingar- og úthlutunaráætlun fyrir
íbúðarbyggð í Reykjavík kom m.a.
fram að lykilorðin eru fjölbreytni,
framboð og gæði. Lykilsvæðin á
næstu árum eru Úlfarsárdalur,
Reynisvatnsás, Slippasvæðið, Geld-
inganes, Örfirisey og Vatnsmýrin.
Að sögn borgarstjóra er markmið-
ið að allir sem vilja geti byggt og bú-
ið í Reykjavík og að borgin verði
fyrsti búsetukostur sem flestra. Seg-
ir hann ennfremur að uppbygging-
aráform borgarinnar verði öllum að-
gengileg með þessum vef og
notendur geti öðlast heildarmynd af
uppbyggingarsvæðum og úthlutun
lóða.
Úthlutað þrisvar
sinnum ár hvert
Hanna Birna Kristjánsdóttir, for-
maður skipulagsráðs, segir að til út-
hlutunar á næstu árum verði að
minnsta kosti 1.000 íbúðir í nýbygg-
ingarhverfum, u.þ.b. 500 nýjar íbúð-
ir í miðborginni og nágrenni og að
úthlutað verði þrisvar á ári eða í maí,
september og desember.
Segir hún að nægt framboð lóða í
Reykjavík sé framtíðin og í sam-
ræmi við málefnasamning Sjálfstæð-
isflokks og Framsóknarflokks í
borginni.
Í máli borgarstjóra kom fram að
nú verði nýjar úthlutunarreglur við-
hafðar í Reykjavík. Hver einstak-
lingur geti sótt um eina lóð og að
lokinni yfirferð yfir allar umsóknir
verði dregið úr þeim umsóknum sem
uppfylla öll skilyrði. Fast verð er á
lóðum í nýju reglunum, 11 milljónir
fyrir einbýlishús, 7,5 milljónir fyrir
parhús og raðhús og 4,5 milljónir
fyrir fjölbýlishús.
Á vefnum geta notendur skoðað
hvert svæði fyrir sig, stækkað
myndir og opnað skjöl með nánari
upplýsingum um svæðin, lesið grein-
argerðir, séð þrívíddarmyndir, yfir-
litsuppdrætti og sneiðmyndir svo
dæmi sé tekið.
Úthluta 1.000 lóðum
á ári í nýjum hverfum
Ný vefsíða helguð úthlutunaráætlun borgaryfirvalda
Morgunblaðið/G.Rúnar
Lóðaúthlutanir Björn Ingi Hrafnsson, fomaður borgarráðs, Gísli Marteinn Baldursson, Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson
borgarstjóri, Þorbjörg Helga Vigfúsdóttir, Óskar Bergsson og Hanna B. Kristjánsdóttir, formaður skipulagsráðs.
HÉRAÐSDÓMUR Reykjavíkur
hefur dæmt tvo litháenska karlmenn
í fjögurra mánaða fangelsi, en frest-
að fullnustu refsingarinnar, fyrir
þjófnaði. Mennirnir voru auk þess
dæmdir til að greiða málsvarnarlaun
verjenda sinna, tæpar 274 þúsund
krónur.
Mönnunum var gefið að sök að
hafa í félagi stolið þremur fartölvum,
tveimur í verslun í Kringlunni og
einni á Akranesi, í síðasta mánuði.
Annar mannanna játaði verknaðinn
og sagðist hafa verið einn að verki og
neitaði hinn sök. Í niðurstöðu dóms-
ins kemur fram að framburður
mannsins sem neitaði sök hafi verið
ótrúverðugur og að engu hafandi.
Taldi dómurinn hafið yfir skynsam-
legan vafa að mennirnir stóðu að
þjófnaðinum í sameiningu, og voru
báðir sakfelldir.
Mennirnir hafa báðir hlotið dóma
áður – utan Íslands – en ekki var litið
til þeirra við ákvörðun refsingar þar
sem ófullnægjandi upplýsingar lágu
fyrir.
Héraðsdómarinn Ásgeir Magnús-
son kvað upp dóminn. Þuríður Björk
Sigurjónsdóttir, fulltrúi lögreglu-
stjórans á höfuðborgarsvæðinu, sótti
málið og Jón Höskuldsson hrl. og
Erlendur Þór Gunnarsson hdl. vörðu
mennina.
Í fangelsi
fyrir þjófnað