Morgunblaðið - 28.04.2007, Blaðsíða 8
8 LAUGARDAGUR 28. APRÍL 2007 MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Frambjóðendur Sjálfstæð-isflokksins heimsóttu okk-ur Morgunblaðsfólk í há-degishléinu í gær og
spjölluðu við áhugasama. Ég er al-
mennt frekar lítið fyrir að láta trufla
mig þegar ég er að borða, nenni ekki
einu sinni að hlusta á fréttir á meðan.
En þar sem ég var komin vel á veg
með nestið mitt tók ég frambjóðand-
anum fagnandi þegar hann spjallaði
við okkur um málefni líðandi stund-
ar.
Við mitt borð í matsalnum var
mestur áhugi á jafnréttismálum og
svonefndum einkabílisma. Við deild-
um um markaðinn og launamisrétti
inn á milli þess sem við hetjurnar
sem þykjumst ætla að hjóla í vinnuna
í næstu viku lýstum yfir áhyggjum af
áhrifum ofnotkunar einkabílsins á
heilsu landsmanna og andrúmsloftið.
Að frátöldum þessum líflegu skoð-
anaskiptum vakti það athygli mína
þegar frambjóðandinn velti því upp
að gott fylgi Sjálfstæðisflokksins í
skoðanakönnunum gæti komið niður
á kosningabaráttu flokksins. Menn
myndu kannski ósjálfrátt verða ró-
legir í tíðinni, jafnvel gleyma sér. Í
framhaldinu fór ég að velta fyrir mér
hvort það geti verið að skoðanakann-
anir verði ekki aðeins til þess að
tímabundinn sigurvegari sofni á
verðinum heldur líka að minna sé
rætt og fjallað um pólitík.
Nú er enginn fjölmiðill með fjöl-
miðlum nema hann birti helst viku-
lega könnun um fylgi flokkanna, ým-
ist í ákveðnum kjördæmum eða fyrir
landið í heild. Síðan þeytumst við
sjálfskipuðu stjórnmálaspekúlant-
arnir fram á ritvöllinn og spáum í
kannanirnar. Þýðir gott gengi Sjálf-
stæðisflokksins í Suðurkjördæmi að
áhyggjur af Árna Johnsen hafi verið
óþarfar? Nær Framsókn sér á strik?
Íslandshreyfingin á þing?
Formenn flokkanna eru í fréttum
inntir eftir viðbrögðum: „Stóra skoð-
anakönnunin er auðvitað 12. maí“,
„við fögnum þessum meðbyr,“ „við
vildum að sjálfsögðu sjá hærri tölur
en höfum trú á því að málefni okkar
eigi erindi við þjóðina.“
Á meðan gefst varla tími til að
senda blaða- og fréttamenn á fundi
þar sem fulltrúar stjórnmálaflokk-
anna sitja fyrir svörum. Ég hef satt
best að segja á tilfinningunni að ég
hafi heyrt fleiri fréttir af skoð-
anakönnunum, og viðbrögðum við
þeim, en af pólitík almennt.
Í öllum þessum pælingum um hvað
gerist að loknum kosningum má ekki
gleymast að skoðanakannanir hafa
sín takmörk þegar kemur að pólitík.
Alltaf er hópur fólks óákveðinn eða
vill ekki gefa upp afstöðu sína. Sífellt
fjölgar þeim sem ekki halda órjúf-
anlega tryggð við einn flokk ævina á
enda og skipta jafnvel um skoðun allt
fram á kjördag. Persónulega ákvað
ég ekki fyrr en samdægurs hvar mitt
X ætti að fara þegar ég gekk að kjör-
borðinu fyrir fjórum árum en kvöldið
áður þræddum við vinkonurnar
kosningaskrifstofur til að reyna að fá
frambjóðendur til að sannfæra okk-
ur. Sú ferð væri reyndar efni í heilan
pistil, en látum það liggja á milli
hluta.
Þegar flokkarnir eru ýmist í stöð-
ugri vörn eða tímabundið í sæti sig-
urvegarans má velta fyrir sér hvort
það verði til þess að pólitíkin verði lit-
lausari. Flokkarnir hika kannski við
að marka sér raunverulega sérstöðu
af ótta við að þeir missi fylgi í næstu
könnun og þá verði enn frekar á
brattann að sækja.
Það er full ástæða fyrir fjölmiðla
að staldra við og velta fyrir sér hvort
við einblínum e.t.v. of mikið á skoð-
anakannanir og hættum á að gleyma
því sem mestu skiptir lýðræðið í að-
draganda kosninga, nefnilega póli-
tískri umræðu. Þótt skoðanakann-
anir gefi vísbendingar um það sem
koma skal að loknum kosningum má
keppni fjölmiðla um hver nær að spá
best, mest og oftast um það sem tek-
ur við að loknum kosningum ekki
verða ráðandi.
Skoðanakannanir í
aðdraganda kosninga
halla@mbl.is
12. MAÍ 2007
Halla Gunnarsdóttir
Nafn Atli Gíslason.
Starf Hæstaréttarlögmaður.
Fjölskylduhagir Fjarbúð með
Rannveigu Sigurðardóttur tjóna-
fulltrúa, á þrjá syni og eina fóst-
urdóttur.
Kjördæmi Suður, 1. sæti fyrir
Vinstrihreyfinguna – grænt fram-
boð.
Áhugamál Garðyrkja, mannrétt-
indapólitík og lestur.
Hvers vegna pólitík?
Ég er afskiptasamur maður um
umhverfi mitt og náunga.
Er Alþingi áhugaverður
vinnustaður?
Já og nei, áhugaverður ef maður er
í stjórn en minna ef maður er í
stjórnarandstöðu. Þetta er samt
mjög góður vinnustaður og góð
umgjörð og afar gott starfsfólk.
Fyrsta mál sem þú vilt
koma á dagskrá?
Umhverfismálin. Ég vil koma í veg
fyrir frekari spjöll á íslenskri nátt-
úru og útblástur gróðurhúsa-
lofttegunda. Önnur mál verða
tengd mismunun og mannrétt-
indum, m.a. kvenfrelsisbaráttunni
og byggðamálum. Í Suður-
kjördæmi er fólki mismunað eftir
búsetu og öll umgjörð er allt önnur
en í þéttbýli, t.d. varðandi mennt-
un, heilbrigði, samgöngur, banka,
fjarskipti og svona get ég lengi tal-
ið.
Þarf breytingar?
Já, það þarf töluvert miklar breyt-
ingar og fyrst og fremst hugarfars-
breytingar. Fólki er mismunað.
Það eru mannréttindi brotin á kon-
um og mannréttindi brotin á lands-
byggðarfólki vegna búsetu. Og ég
þoli ekki mannréttindabrot.
Nýir frambjóðendur | Atli Gíslason
Morgunblaðið/Golli
Afskiptasamur Atli Gíslason segist
vera afskiptasamur maður.
Afskiptasamur og þolir
ekki mannréttindabrot
Nafn Ármann Kr. Ólafsson.
Starf Forseti bæjarstjórnar í
Kópavogi og á fullu í kosningabar-
áttu!
Fjölskylduhagir Kona og tvö börn.
Kjördæmi Suðvestur, 3. sæti fyrir
Sjálfstæðisflokkinn.
Helstu áhugamál?
Við fjölskyldan förum á skíði saman
og reynum að fara í nokkra veiði-
túra á hverju sumri. Svo hefur póli-
tíkin verið áhugamál í gegnum tíð-
ina.
Hvers vegna pólitík?
Þetta er eitthvað sem hefur alltaf
fylgt mér. Pólitík var talsvert rædd
á mínu heimili þegar ég var krakki
og enn meira hjá ömmu og afa. Svo
var mjög pólitískt umhverfi í
Menntaskólanum á Akureyri á
þeim tíma sem ég var þar. Ein-
hvern veginn fór ég svo að fylgja
þessu eftir og eitt leiddi af öðru.
Ég fór í SUS um tvítugt, varð svo
aðstoðarmaður samgöngu-
ráðherra 1995, þaðan í bæj-
arpólitíkina og síðan núna í fram-
boð til Alþingis.
Er Alþingi áhugaverður
vinnustaður?
Ég held að það sé engin spurning
um að þetta sé áhugaverður og
skemmtilegur vinnustaður. Ég er
ekki í vafa um að það verði
skemmtilegt að fást við þau verk-
efni sem þar eru og mér verður
falið að vinna.
Fyrsta mál sem þú vilt
koma á dagskrá?
Það gef ég ekki upp núna.
Þarf breytingar?
Að sjálfsögðu þurfa alltaf að verða
breytingar og það er hlutverk
stjórnmálamannsins að fylgjast sí-
fellt með. Stjórnmál eru í eðli sínu
þannig að þú lýkur í raun aldrei
starfi þínu heldur færist víglínan til
frá einum tíma til annars. En ég
undirstrika það að ég tel Sjálfstæð-
isflokkinn hafa verið á réttri braut
og það sé nauðsynlegt fyrir þjóðfé-
lagið að halda áfram á sömu braut.
Nýir frambjóðendur | Ármann Kr. Ólafsson
Morgunblaðið/Brynjar Gauti
Enginn endir Stjórnmálastarfi lýk-
ur aldrei, segir Ármann Kr.
Í pólitísku umhverfi
frá blautu barnsbeini
BARÁTTUSAMTÖK eldri borg-
ara og öryrkja skiluðu framboðs-
gögnum til yfirkjörstjórnar í
Reykjavíkurkjördæmi suður, laust
eftir klukkan eitt eftir hádegi í
gær. Framboðsfrestur rann út á
hádegi, en þá hafði flokkurinn að-
eins skilað lista og meðmælum til
yfirkjörstjórnar í Norðausturkjör-
dæmi.
Sveinn Sveinsson, oddviti yfir-
kjörstjórnar Reykjavíkurkjör-
dæmis suður, sagði í samtali við
fréttavef Morgunblaðsins að tekið
hefði verið á móti gögnunum og að
farið yrði yfir málið á fundi yf-
irkjörstjórnar í dag.
Þórunn Guðmundsdóttir, oddviti
yfirkjörstjórnar í Reykjavíkur-
kjördæmi norður, sagði að þar
hefði gögnum ekki enn verið skilað
en sagði að tekið yrði á móti gögn-
unum og farið yfir málið í kjölfar-
ið, líklega í dag. Hún ítrekar þó að
framboðsfrestur hafi runnið út á
hádegi í gær.
Listi í NA
kjördæmi
Fáðu
sms-fréttir
í símann
þinn af
mbl.is