Morgunblaðið - 28.04.2007, Síða 10

Morgunblaðið - 28.04.2007, Síða 10
10 LAUGARDAGUR 28. APRÍL 2007 MORGUNBLAÐIÐ Nei takk, mín eru eins og ný, bara aðeins farin að trosna í kringum brjóstvasann, enda síðan um fermingu, bara kannski pæla í að skipta út bláa bindinu yfir í „grænt“ það er orðið svolítið tætt. VEÐUR Skynsamleg leið var farin í um-hverfismálum með „Grænu skrefunum“ og er ljóst að Gísli Mar- teinn Baldursson, formaður Um- hverfisráðs, hefur vaxið af þessu máli. Enda fékk það góðar viðtökur hjá minnihlutanum í borgarstjórn.     Nú skýrist þaðef til vill af hverju sumir sjálfstæðismenn vildu samstarf við Vinstri græna í borgarstjórn. Þá þegar voru uppi hugmyndir meðal sjálfstæð- ismanna um að slík skref gætu orð- ið grundvöllur slíks samstarfs.     Það sem getur orðið til þess aðgrænu skrefin marki dýpri spor í borgarlífinu er að þar er stig- ið fram undir jákvæðum formerkj- um. Borgarbúar eru ekki þvingaðir til neins, en þeim eru gefnir val- kostir og þeim umbunað sem leggja rækt við umhverfi sitt með einföld- um og skýrum hætti, t.d. með ókeypis bílastæðum fyrir visthæfar bifreiðar og ókeypis strætóferðum fyrir námsmenn.     Í grein Gísli Marteins í Morgun-blaðinu á þriðjudag kom fram að bílaeign hefur aukist hratt í Reykjavík undanfarinn áratug og á sama tíma dregið mjög úr notkun almenningssamgangna. Fyrir vikið jókst losun gróðurhúsalofttegunda í Reykjavík um 30% frá 1999 til 2005! Svo virðist sem R-listinn með Vinstri græna innanborðs hafi eng- in svör átt við því.     Mikil sátt hefur skapast umgrænu skrefin í borgarstjórn. Ekki er loku fyrir það skotið að þau stytti leiðina á milli tveggja flokka í landsmálunum, Sjálfstæðisflokks- ins og Vinstri grænna. Ef að því kemur gætu forystumenn Vinstri grænna orðið að spyrja sig hvort vegur þyngra hjá þeim, rauði eða græni liturinn. STAKSTEINAR Gísli Marteinn Baldursson Rauður, grænn og blár SIGMUND                      ! " #$    %&'  (  )                   *(!  + ,- .  & / 0    + -                  12     1  3   4 2- 2  * -  5  1 % 6! (78 9 4 $  (   !             # $      :  *$;<                 !   " !#    !     $  %&  '    () *   +  !  *! $$ ; *! % & '  &  # (  )( =2 =! =2 =! =2 % # '   * + ,$(- < $            8   .  /  ' ( ' 0  $ (  $  (   & (1    8   .  /  ' ( ' 0  $ (  $  (   & (1 *  > ;   " 2  > %( (  ! + $    &'  ) ( 0  ' 2 $  $ ! $ (   3  &      0     (  4$ (! $ 5((  1 6/  (77  (  8 ($ ( *  3'45 ?4 ?*=5@ AB *C./B=5@ AB ,5D0C ).B 1 0 0" "1 1  1" "1 1" 1" 1" 1" 1 1 "1" "1 1"  1""  1" 1 0 0 0 0 0 0" 0 0 0 0 0 0 0 0            Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar- greinum Morgunblaðsins á slóðinni http://morgunbladid.blog.is/ Birgir Ármannsson | 26. apríl 2007 Villandi umræða um misskiptingu Lágtekjumörkin gefa til kynna hversu stór hluti heimila í landinu eigi á hættu að lenda undir fátæktarmörk- um og notaði Hag- stofan samræmdar að- ferðir Evrópusambandsins á því sviði. Niðurstaðan var á þá leið að aðeins í Svíþjóð væru hlutfallslega færri heimili undir lágtekjumörkum en hér á landi. Meira: birgir.blog.is Ólína Þorvarðardóttir | 27. apríl 2007 Á náttsloppnum Einhverju sinni sagði ég við tilvonandi dim- mitanta að þau myndu aldrei ná mér í rúminu – hversu snemma sem þau mættu. Ég myndi nefnilega ekki láta nemendur mína sjá mig ótilhafða að morgni dags. Jæja, þau náðu mér í þetta skipti ómálaðri og úfinni á náttsloppnum. Öðruvísi mér áður brá – en þau voru sigri hrósandi. Meira: olinathorv.blog.is Katrín Anna Guðmundsdóttir | 27. apríl Afturhald Kirkjan sem á að vera í fararbroddi í mann- réttindamálum er hið versta afturhald. Getur Guð ekki farið að senda kirkjunni næsta frels- ara – einhvern annan en Tom Cruise samt? Legg svo til að lögunum verði breytt svo ég og minn heittelskaði getum gengið í staðfesta samvist! Mæli með pistlinum hennar Þor- gerðar Einars í Fréttablaðinu í dag. Meira: hugsadu.blog.is Jakob Smári | 25. apríl 2007 Ólæsi Ég er ólæs. Ekki þó á sama hátt og ungbörn. Ég kann alveg að lesa. Ég lærði það áður en ég fór í skóla, systkini mín sáu um það. Ég fór ekki í leikskóla og ekki heldur í sex ára bekk. Ég hreinlega neitaði því á sínum tíma. En ég man eftir því í sjö ára bekk þegar Oddný kennari lét mig lesa öftustu síðuna í lestrarbókinni og sagði við mig að loknum lestri : „Þú ert fluglæs“. Ég var montinn með það. En hvað á ég þá við með að segja að ég sé ólæs ef ég var fluglæs í sjö ára bekk? Þýðir það að læsið hafi elst af mér? Að einhvers konar aflæsi hafi átt sér stað? Nei, nei, þetta meinta ólæsi mitt í dag felst sennilega meira í sam- blandi af leti og einbeitingarleysi þegar kemur að bókalestri. Ég hef allt sem þarf til að geta lesið. Ég hef ágæta sjón og svo er ég með heila, en það er sennilega það síðarnefnda sem er annað hvort skemmt eða gallað. Þetta háir mér svo sem ekki mikið í hinu daglega lífi nema þegar ég fer á bókamarkaði. Ég hef nefni- lega gaman að því að fara á bóka- markað en á meðan ég rölti þar um fyllist ég vonleysi því ég veit að ég mun ekki hafa eirð í mér til að lesa þessar bækur sem þar fást. Ég finn fyrir tilgangsleysi og verð minni máttar gagnvart hinu ritaða máli sem liggur þarna á borðum á frá- bæru verði. Ég er nefnilega veikur fyrir útsölum. Ég les reyndar bæk- ur eftir bloggvin minn Þórarin Eld- járn og hef gaman af. Hann er frá- bær rithöfundur. Ég kláraði að vísu aldrei Baróninn, en komst í gegnum Skuggabox á sínum tíma. Ég get alltaf gluggað í bók eftir Þórarin og haft gaman af. Hann er Stranglers bókmenntanna í mínum huga. Ég veit hins vegar ekki hvort það er hrós fyrir hann að ólæs maður sé hrifinn af bókunum hans. Svo las ég auðvitað Da Vinci-lykilinn og Engla og Djöfla eftir Dan Brown. En hver hefur ekki lesið Da Vinci-lykilinn? Það verður að líta á þetta sem ákveðna tegund af fötlun. Ég er jú hluti af mikilli bóka- og menning- arþjóð og ætti að skammast mín. Ég hef aldrei lesið Laxness eða Þór- berg. Hvað þá Íslendingasögurnar. Meira: jakobsmagg.blog.is BLOG.IS FARÞEGAR hvalaskoðunarbátsins Aþenu í eigu Gentle Giants á Húsa- vík héldu fyrst að um steypireyð- arkálf væri að ræða en sáu þegar nær var komið að steypireyðurin var með lítinn hnúfubakskálf í fóstri. Þetta segir Stefán Guð- mundsson, framkvæmdastjóri fyrirtækisins, sem segist aldrei hafa séð þetta fyrr. „Það var mjög magnað að sjá þetta,“ segir Stefán. „Við sáum ekki hvort steypireyðurin var karl- kyns eða kvenkyns. Þau virtust una sér vel hvort með öðru hlið við hlið. Það var engu líkara en steypireyð- urin væri áfjáð í að bægja kálfinum frá þegar báturinn nálgaðist,“ segir Stefán, sem telur það til merkis um að hún hafi viljað vernda kálfinn. Hvalaskoðunin á Húsavík byrjar óvenjusnemma í ár. Að sögn Stefáns voru farþegar í hvalaskoðun á Húsavík í heild upp- undir 40.000 á síðasta ári og er bú- ist við að þeim fjölgi um 10 til 15% í ár. Hver ferð kostar 3.800–3.900 kr. og að meðtöldum margföldunar- áhrifum er reiknað með milljóna- aukningu í tekjum. „Magnað að sjá þetta“ SAMNINGUR um samstarf menntamálaráðuneytis og sam- gönguráðuneytis við 16 sveitarfélög á Norðurlandi eystra um menning- armál og menningartengda ferða- þjónustu var undirritaður á Húsavík í gær. Þorgerður Katrín Gunnars- dóttir menntamálaráðherra undir- ritaði samninginn f.h. ríkisins en Björn Ingimarsson, formaður sveit- arfélaganna í Eyþingi, undirritaði samninginn fyrir hönd sveitarfélag- anna. Er þetta í fyrsta sinn sem gengið er til slíks samstarfs við Norðurland eystra en áður hefur verið gengið til samstarfs við Aust- urland árið 2001 og Vesturland árið 2005 með sambærilegum hætti. Tilgangur samningsins er að efla menningarstarf og beina stuðningi ríkis og sveitarfélaganna við slíkt starf í einn farveg. Áhrif sveitarfé- laga á forgangsröðun verkefna eru aukin. Menningarráð Eyþings verð- ur skipað 7 fulltrúum, þremur aust- an og þremur vestan Vaðlaheiðar auk fulltrúa Háskólans á Akureyri, og verður samstarfsvettvangur sveitarfélaganna. Framlög ríkisins til samningsins verða 25 milljónir kr. 2007, 30 millj. 2008 og 31 millj. 2009 en sveitar- félögin leggja jafnframt fram fé til sameiginlegra verkefna hvort heldur er með framlögum frá einkaaðilum eða með eigin framlögum. Menningarsamstarf á Norðurlandi eystra

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.