Morgunblaðið - 28.04.2007, Side 21
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 28. APRÍL 2007 21
ÁRBORGARSVÆÐIÐ
Utankjörfundaratkvæðagreiðsla
Utankjörfundaratkvæðagreiðsla vegna alþingiskosn-
inga sem fram fara laugardaginn 12. maí 2007
er hafin.
Kosið er frá kl. 9:00 til 21:00 á skrifstofu
embættisins í Hafnarstræti 107, Akureyri, 2. hæð,
frá mánudegi til föstudags og milli kl. 14:00 og 17:00
á laugardögum og sunnudögum.
Á kjördag er opið frá kl. 10:00 til 21:00.
Á skrifstofu embættisins í lögreglustöðinni við
Gunnarsbraut á Dalvík er kosið milli kl. 9:30 og
13:30 frá mánudegi til föstudags.
Kosið er hjá hreppstjórum í Grýtubakkahreppi og
Grímsey eftir samkomulagi við þá. Kosið er á
skrifstofu bæjarins í Hrísey á opnunartíma skrifstofu.
Kjósendum ber að sýna persónuskilríki.
Sýslumaðurinn á Akureyri, 28. apríl 2007,
Björn Jósef Arnviðarson
Eftir Sigurð Jónsson
Eyrarbakki | „Ég finn vel fyrir sögu safns-
ins. Hér eru margar gamlar bækur sem eru
gull fyrir grúskara. Safnið er hluti af rótum
fólksins hér og það vill hafa safnið hér í
þorpinu sem hluta af kjölfestu sinni í lífinu.
Það er mjög gott að vinna hér á safninu og
það er góð aðsókn að því sem er mjög
ánægjulegt,“ sagði Margrét Steinunn Krist-
insdóttir, bókavörður í Bókasafni Ung-
mennafélags Eyrarbakka, en safnið fagnaði
80 ára afmæli í liðinni viku.
Safnið var stofnað í apríl 1927 af Umf.
Eyrarbakka en Eyrarbakkahreppur greiddi
safninu árlegt framlag. Safnið var þá þegar
á góðum grunni því um 1890 var starfandi
lestrarfélag á Eyrarbakka sem hét um skeið
Lestrarfélag Árnessýslu. Vísi að bókasöfn-
um var að finna víðar á Eyrarbakka um og
eftir aldamótin 1900 svo sem Bókasafn Le-
ofoliiverzlunar fyrir landbúnað og sjávar-
útveg, Lestrarfélagið Fróða og bókasafn
Barnaskólans. Við sameiningu sveitarfélaga
vorið 1998 var Bókasafn UMFE fellt undir
stjórn Bæjar- og héraðsbókasafnsins á Sel-
fossi og rekið sem útibú þaðan ásamt Bóka-
safninu á Stokkseyri.
Bókasafnið er nú til húsa í Blátúni að
Túngötu 40 á Eyrarbakka. Í tilefni af af-
mælinu var nýtt útlánakerfi, Gegnir, tekið í
notkun í bókasafninu en það kerfi auðveldar
alla vinnu við útlán. Á samkomu í tilefni af
afmælinu fékk safnið að gjöf mikið af bók-
um frá Lárusi Blöndal Guðmundssyni sem
fæddist á Garði á Eyrarbakka 1914. Það var
Steinn Lárusson sem afhenti þessa bókagjöf
í minningu föður síns. Að sögn Margrétar
mun þessi gjöf efla safnið verulega.
Konur ráða lestrarefni
fjölskyldunnar
„Mikið af eldra fólki heimsækir safnið og
konur eru í þar meirihluta en athugun hefur
sýnt að konur koma mikið á söfn og sækja
þangað bækur fyrir fjölskylduna og ráða
þar með vali á lestrarefni fjölskyldunnar,“
sagði Margrét þegar þeirri spurningu er
velt upp hvort mikið sé um bóklestur á Eyr-
arbakka. „Mér finnst talsvert um að fólk
lesi hérna. Á dvalarheimilinu les fólk til
dæmis mikið. Svo eru hér á Bakkanum
lestrarhópar sem eru vel virkir enda er lest-
ur skemmtun og menning. Fólk verður víð-
sýnna af lestri bóka um hvað sem er. Það
má vel segja að lestur sé eldsneyti hugans
og hann er um leið slakandi. Þá er alveg
ljóst að ímyndunarafl barna þroskast með
lestri og hann eykur á skilning þeirra,“
sagði Margrét.
Vaxandi lestraráhugi
Hún hefur verið virk í menningar-
starfsemi á Eyrarbakka og meðal annars
tekið þátt í menningardagskránni Vor í Ár-
borg og séð um verkefni sem heitir Lesið á
ljósastaura en þá eru fundin ljóð og annað
efni eftir Eyrbekkinga og hengd á ljósa-
staurana.
Greinilegt er að Margrét lætur sér annt
um bókasafnið og er metnaðarfull fyrir þess
hönd. „Ég sé framtíð bókasafnsins þannig
fyrir mér að það muni vaxa og tengjast
skólanum hérna og verða skóla- og almenn-
ingsbókasafn. Lestraráhugi er frekar vax-
andi hérna en er misjafn eftir árum og síð-
astliðið ár var gott í þessu efni. Hér er
mikið af gömlum bókum sem er ákveðin sér-
staða safnsins,“ sagði Margrét en hún hefur
verið búsett á Eyrarbakka síðan 1999 og
henni fellur vel að búa þar. „Við hjónin er-
um landsbyggðarfólk og okkur fellur þetta
svæði mjög vel,“ sagði Margrét en hún og
maður hennar Vilbergur Prebensson fluttu
frá Ísafirði eftir að hafa búið þar í 23 ár.
Bóklesturinn er eldsneyti hugans
Morgunblaðið / Sigurður Jónsson
Bækur Margrét Steinunn Kristinsdóttir bókavörður lætur sér annt um bókasafnið og er metn-
aðarfull fyrir þess hönd. Hún sér fyrir sér að safnið muni vaxa og dafna og tengjast skólanum.
Í HNOTSKURN
»Safnið var stofnað í apríl 1927 afUmf. Eyrarbakka en Eyr-
arbakkahreppur greiddi safninu árlegt
framlag
»Í tilefni af afmælinu var nýtt út-lánakerfi, Gegnir, tekið í notkun í
bókasafninu en það kerfi auðveldar
alla vinnu við útlán.
»Á samkomu í tilefni af afmælinufékk safnið að gjöf mikið af bókum
frá Lárusi Blöndal Guðmundssyni sem
fæddist á Garði á Eyrarbakka 1914.
Bókasafnið á
Eyrarbakka fagnar
80 ára afmæli
LANDIÐ
SPARISJÓÐUR Suður-Þingeyinga
hélt aðalfund fyrir árið 2006 að
Breiðumýri 25.4. 2007. Rekstur
Sparisjóðsins gekk vel síðastliðið ár
og var hagnaður ársins kr.
62.113.796 kr. eftir skatta.
Í ljósi góðrar afkomu ákvað
stjórn Sparisjóðsins að veita tvo
styrki til eflingar íþróttastarfsemi á
starfssvæðinu. Ákveðið að veita
Þorsteini Ingvarssyni frjálsíþrótta-
manni, Halldórsstöðum 2, Þingeyj-
arsveit, styrk að fjárhæð kr.
500.000 á árinu 2007. Þorsteinn er
einn efnilegasti frjálsíþróttamaður
landsins og er það von stjórnar
Sparisjóðsins að með styrkveiting-
unni geti Þorsteinn einbeitt sér enn
betur að því að vera í fremstu röð
afreksmanna.
Þá var ákveðið að styrkja Hér-
aðssamband Suður-Þingeyinga
(HSÞ) um kr. 2.000.000 til að ljúka
við gerð íþróttavallar að Laugum.
Ljóst er að þegar því verki verður
lokið má segja að aðstaða til
íþróttaiðkunar á Laugum verði sú
besta á Norðausturlandi. Sparisjóð-
ur Suður-Þingeyinga hefur um ára-
bil verið helsti stuðningsaðili HSÞ.
Sjóðurinn styrkir íþróttir
Mývatnssveit | Söng-
félagið Sálubót flutti
vortónleika í Skjól-
brekku í vikunni við
góða aðsókn og frábær-
ar undirtektir. Kórinn,
sem að mestu er skip-
aður söngfólki úr Þing-
eyjarsveit, heldur tón-
leika á fimm stöðum á
NA-landi um þessar
mundir og voru þetta
þriðju tónleikarnir.
Kórinn hefur í mörg ár
verið undir stjórn Jaan
Alavere sem einnig
leikur undir á píanó.
Flutningur kórsins á
fjölbreyttri efnisskrá
var hljómfagur og
kröftugur hjá öruggum
og einbeittum stjórn-
anda.
Vortónleikar Sálubótar
Morgunblaðið/BFH
Raufarhöfn | Fuglakomur á Mel-
rakkasléttu hafa verið með líku
sniði þetta vorið og undanfarin ár.
Það má segja að hingað séu flestir
fuglar komnir 5–8 dögum eftir að
þeir sjást fyrst á Suðurlandi.
Hrafninn varp í lok einmánaðar
og veiðibjallan er að byrja varp
fyrstu daga hörpu. Einstaka svart-
þröstur hefur slæðst hingað af og
til undanfarna vetur en sú breyt-
ing hefur orðið á að 10–15 svart-
þrestir hafa sést hér síðan á
þorra.
Á miðri góu birtust nokkrar
vepjur sem stöldruðu stutt við.
Brandugla sást á dögunum. Síð-
asta sunnudag greindi undirrit-
aður 11 andategundir á einum og
sama blettinum við Neslón. Þar
sem einnig má sjá himbrima, lóm,
skarf, gæs, álft og máva, auk þess
alla flóruna af vaðfuglum. Það eru
fáir staðir á landinu sem bjóða
upp annað eins sjónarspil. Í Geng-
isvík spígsporaði tjaldur í dag,
sem er ljósari en gerist og gengur,
með hvítan kraga. Undirritaðan
grunar að hann sé á leið á presta-
stefnuna á Húsavík. Það hefur
kvisast að farfuglinn Jósep á gulu
hjóli sé væntanlegur 8. maí. Nú er
það spurningin: Verður hann á
undan kríunni þetta árið?
Tjaldur á
leið á
prestastefnu
Ljósmynd/Erlingur Thoroddsen