Morgunblaðið - 28.04.2007, Qupperneq 22
|laugardagur|28. 4. 2007| mbl.is
Morgunblaðið/G.Rúnar
Heilinn í hópnum Jón sér um að forrita heilann (tölvuna) í bílnum.
formi og við þurfum að þýða allt yfir á ensku.
Nanótækni er mjög merkilegt fyrirbæri sem
kemur til dæmis við sögu í genabreyttum mat-
vælum og í stofnfrumurannsóknum. Einnig er
fjölmiðlahópur innan hópsins okkar sem fylg-
ist með framgangi verkefnisins og skráir niður
samvinnu og liðsanda hópsins. Fjölmiðlahóp-
urinn okkar heldur uppi heimasíðunni nano-
verurnar.bloggar.is og þar er allur árangur
skráður. Við erum líka að gera myndband frá
keppninni og vinnunni við þetta. Þetta er auð-
vitað allt rosalega mikil vinna og krefst mik-
illar þolinmæði, en þetta er alveg þess virði, af
því að við lærum svo mikið á þessu og þurfum
að finna sjálf út úr hlutunum. Svo er þetta bara
mjög gaman og spennandi, þetta hefur verið
áhugamál hjá okkur frá því við vorum lítil.
Tæknilegó er búið að vera mikið í gangi hér í
skólanum í nokkur ár og líka hjá yngri krökk-
unum,“ segja Nanóverurnar sem eru metn-
aðarfullir krakkar sem stefna hátt í framtíð-
inni. Stelpurnar voru sumar að spá í að fara í
verkfræði og tveir af strákunum ætluðu
kannski að læra til flugmanns.
Eftir Kristínu Heiðu Kristinsdóttur
khk@mbl.is
Auðvitað keppum við til sigurs en þaðeitt að komast í Evrópukeppnina íNoregi er sigur í sjálfu sér,“ segjaNanóverurnar, tíu krakkar úr Sala-
skóla á aldrinum 14–16 ára sem unnu síðast-
liðið haust stóra keppni í tæknilegói sem haldin
var í Öskju undir nafninu First Lego League.
„Samsvarandi keppni var haldin í öðrum
löndum og þetta er eiginlega undankeppni fyr-
ir stóru Evrópukeppnina. Við ætluðum ekki að
trúa því sjálf að við hefðum unnið. Hann Logi,
sem er kennari hér við skólann og er liðsstjór-
inn okkar í tæknilegóinu, hann þurfti að ganga
um í bleikum bol með hreindýrshorn á hausn-
um einn dag hér í skólanum, hann hafði nefni-
lega lofað því fyrir keppnina að gera þetta ef
við myndum vinna. Hann þolir ekki bleikan lit.
Þetta var allt saman mjög skemmtilegt og mik-
il fagnaðarlæti og sum okkar misstu röddina
tímabundið. Við erum auðvitað mjög stolt yfir
því að hafa tekist að sigra og lítum á okkur sem
Íslandsmeistara í tæknilegói og það er meiri
háttar að fá að fara um miðjan maí til Noregs í
Evrópukeppnina. Þarna verða krakkar frá öll-
um heimshornum, Bandaríkjunum, Asíu og
Afríku og við hlökkum rosalega til.“
Mikil vinna en mjög gaman
Keppnin byggist á því að krakkarnir þurfa
að forrita tæknilegóbíl og keppa með honum í
gegnum ákveðna þrautabraut. „Jón hefur séð
um að forrita heilann á bílnum og fínstilla allt
svo þetta gangi upp. Bíllinn þarf að fara eftir
ákveðinni braut, ýta öðrum bíl upp og taka á
móti litlum bolta og setja hann á ákveðinn stað,
keyra með kassa út í horn og allt án þess að við
snertum nokkurn hlut.“
En krakkarnir þurfa að gera meira en kubba
bíl, forrita hann og láta hann komast í gegnum
þrautina án stóráfalla. „Annar liður í þessari
keppni er rannsóknarverkefni sem við þurfum
að vinna og þemað þetta árið var örtækni eða
nanótækni. Við þurfum því að afla okkur alls-
konar uppýsinga um nanótækni og koma þeim
á framfæri, til dæmis með glærum eða á öðru
Morgunblaðið/G.Rúnar
Snillingar Salaskóli má vera stoltur af þessum krökkum. F.v.: Harpa, Valgerður, Kristín, Eyjólfur, Siggi, Ýr, Atli
og Jón við þrautabrautina og legótækin sín. Á myndina vantar Andra Karl og Hallgrím sem eru einnig í liðinu.
Nanóverurnar
keppa til sigurs
Þraut Hluti af brautinni.
daglegtlíf
Það er mikið um falleg húsgögn
og óvenjulega handavinnu á
þessu reisulega heimili á Mel-
unum. »26
innlit
Sumir karlar skilja ekki hvernig
hægt er að koma daglegu lífi
fyrir í einni tösku. En konur
gera það. »28
tíska
Kjörbíll Kaupfélagsins fór nær
daglega um Egilsstaði í 22 ár til
að þjónusta bæjarbúa. Þarf aft-
ur kjörbíl á Egilsstaði? »28
bæjarlífið
FANGAR sem eru í John J. Moran fangelsinu í Cranston á
Rhode Island hafa nú fengið það hlutverk að þjálfa hunda til
að aðstoða fatlaða einstaklinga.
Fangarnir taka þar með þátt í sérstöku verkefni sem ber
heitið NEADS en þar fá þeir tækifæri til að láta gott af sér
leiða fyrir samfélagið.
Fangar þjálfa hundana
Áhugasamir Þjálfunin fer gjarnan fram í klefa Edwards.
Reuters
Vinir Labradorhundurinn Chuck og Edward Parent.
Hægt verður að horfa á keppnina úti í Noregi
í beinni útsendingu 16. maí á Netinu:
www.flloec.org
www.nanoverurnar.bloggar.is