Morgunblaðið - 28.04.2007, Side 25
Malarhöfða 2a • 110 Reykjavík
Sími 570 9900 • www.fiat.is
Opið:
virka daga frá 8–18
laugardaga frá 12–16
Saga er umboðsaðili fyrir Alfa Romeo, Ducati, Ferrari, Fiat og Maserati
Byggt til að sigra Nýju hjólin eru komin– og fara hratt!
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 28. APRÍL 2007 25
hver sannleikurinn er.
Sami viðmælandi
Víkverja taldi verð-
kannanir bæði Morg-
unblaðsins og annarra
litlu skipta þar sem
þær næðu til tiltölulega
fárra vörutegunda.
Verzlunarkeðjurnar
væru búnar að átta sig
á því hvaða matvörur
væru teknar í verð-
kannanir sem þessar
og héldu verði á þeim
vörum niðri á sama
tíma og verð væri
óeðlilega hátt á öllum
öðrum vörum, sem
seldar væru í mat-
vöruverzlunum hér.
Er þetta ekki kjörið verkefni fyrir
þær háskólastofnanir, sem hér eru
starfandi?
Víkverji hefur séð tölur um af-
komu matvöruverzlana, sem benda
ekki til þess að eigendur þeirra ríði
feitum hesti frá þeim viðskiptum. En
svo er auðvitað spurning hvernig
bókhaldið er fært og er þá ekki gefið
í skyn, að það sé ekki rétt lögum
samkvæmt en það hljóta að vera
mörg matsatriði í bókhaldi mat-
vöruverzlana eins og t.d. þau hve
mikið af birgðum er afskrifað hverju
sinni. Rýrnun er auðvitað mikil í
matvöruverzlunum.
En þrátt fyrir verðlækkunina 1.
marz sl., sem stóru verzlunarkeðj-
urnar stóðu sig vel í að skila til við-
skiptavina sinna er ljóst að enn ríkir
mikil tortryggni í garð verzlunar-
innar.
Enn er til fólk á Íslandi, sem telur
að verzlunin nýti sér þá sérstöðu ís-
lenzkra neytenda, að þeir geta ekk-
ert annað farið vegna fjarlægðar
okkar frá öðrum löndum.
Einn af viðmæl-endum Víkverja
hafði orð á því á dög-
unum, að matvöru-
kaupmönnum á Íslandi
hefði tekizt vel upp í
því að koma allri sök
yfir á íslenzkan land-
búnað vegna hás mat-
vælaverðs hér á landi.
Veruleikinn væri
hins vegar sá, að það
væri vaxandi einok-
unarþróun í verzlun á
Íslandi, sem ætti mest-
an þátt í því hversu
hátt verðlag væri hér
og ekki bara á mat-
vælum heldur marg-
víslegum öðrum varningi.
Þessi viðmælandi Víkverja sagði
að það væri augljóst, að verzlun í
landinu færðist á æ færri hendur og
undarlegt væri að enginn hefði orð á
því. Raunar taldi sami maður, að
stjórnmálamenn væru hræddir við
stóru keðjurnar í viðskiptalífinu og
vildu ekki standa í átökum við þær.
Þetta væri ekki séríslenzkt fyr-
irbæri heldur ætti við um allan heim
og allavega í okkar heimshluta.
Víkverja þótti þetta athyglisverð
ræða og þó sérstaklega sá hluti
hennar, sem sneri að íslenzkum
landbúnaði. Er hugsanlegt að land-
búnaðurinn hafi verið hafður fyrir
rangri sök og að hátt matvælaverð
megi rekja til annarra ástæðna en
þeirra hversu dýr landbúnaðurinn
sé?
Auðvitað er ekki hægt að slá fram
fullyrðingum um þetta án þess að
finna einhver rök fyrir þeim. Í landi,
þar sem allt er rannsakað og fræði-
menn og rannsóknarsetur eru á
hverju strái hlýtur hins vegar að
vera hægt að komast til botns í því
víkverji skrifar | vikverji@mbl.is Umbo›s- og sölua›ili
Birkiaska ehf.
sími: 551 9239
www.birkiaska.is
Birkiaska
mbl.is
ókeypis
smáauglýsingar
Jóhannes Sigmundsson Syðra-Langholti segir marga hafa
hrokkið við er Jón Baldvin Hanni-
balsson kallaði Þorgerði Katrínu
Gunnarsdóttur, varaformann Sjálf-
stæðisflokksins, „ljóskuna í
menntamálaráðuneytinu“ í Silfri
Egils á sunnudag. Hann yrkir:
Kostuleg var karlremban og þrjóskan
er kratinn gamli tjáði sig hjá Agli.
Í ráðuneyti mennta mætt er „ljóskan“.
Margur hissa varð á slíku stagli.
Jóhannes bendir ennfremur á að
í Íslenskri orðabók, útgefinni 2003,
sé meðal annars eftirfarandi skýr-
ing á orðinu ljóska: „ung, ljóshærð,
vitgrönn kona“. Rúnar Krist-
jánsson á Skagaströnd leikur sér að
því að gera ljóskuvísur:
Býr í húsi gerðu úr gleri
gúrú einn á Krataslóð.
Lofaður af Lennart Meri
en lítt af sinni eigin þjóð!
Jón Baldvin með þaninni þrjósku
þrumaði í Silfrinu hátt.
Lýsti þar einhverri ljósku
sem líklega skildi nú fátt!
Í umræðunni öflug gróskan
eykur mörgum þor.
Jafnvel menntamála-ljóskan
markar þar sín spor!
Jón Baldvin sem merktur mósku
miðlar ei viti stóru.
Einna helst líkur ljósku
sem leitar að eigin glóru!
VÍSNAHORNIÐ
Jón Baldvin
og „ljóskan“
pebl@mbl.is