Morgunblaðið - 28.04.2007, Page 28
Hólf Stórar töskur með mörgum hólfum eru handhægar
eins og þessi sem er úr haustlínu hönnuðarins Barbara Bui.
Morgunblaðið/G.Rúnar
Skreyttar Stórar töskur, í öllum regnbogans litum og jafnvel steinum skreyttar og málmlituðum hnöppum og hringjum eru áberandi í vor og sumar. Fjólublá, 4.290 kr. Aldo. Hvít, 4.995 kr.
Skarthúsið. Bleik, 5.900 kr. Hygea. Rauð, 3.995 kr. skór.is. Gyllt, 4.500 kr. Bianco. Gul, 4.690 kr. Friis & Company. Ljósbrún, 7.490 kr. Oasis.
Svart/hvítt Það er Chanel-bragur yfir
þessari tösku, 22.900 kr. Karen Millen.
Röndótt Hönnuðurinn Sonia Rykiel er
röndóttur í sumar, 13.900 kr. Kisan.
Kassi Hjá Versace verður hönnunin klassísk í
haust en töskurnar áfram stórar og kassalaga.
Nýr litur Fölbleikur er áberandi núna og
staðgengill þess ljósbrúna, 14.995 kr.Valmiki.
Litríkt Það er sumargleði í klassíkinni hjá
hönnuðunum hjá Guess, 19.500 kr. Leonard.
Handsömuð!
Í lífi hverrar konu eru töskur – handtöskur
Sumir karlmenn skilja ekki hvernig hægt er að koma daglegu lífi fyrir íeinni tösku. Það gera konur, enda troða þær því þar daglega. Lífið ítöskunni er skipulagt en vissulega óreiða – nokkuð sem virðist örva
reglulega hláturtaugar sumra karlmanna og fara í taugarnar á öðrum. Eins
og þegar hinar skipulögðu leita að lyklum en finna óvænt rósrauða varalitinn
frá Yves Saint Laurent sem þær voru búnar að leita að síðan í fyrrasumar.
Eða þegar taskan byrjar að spila „I love to love“ með Tinu Charles og þær
ætla að grípa gemsann glóðvolgan en standa í stað þess vandræðalegar, í tutt-
ugu sekúndur, gramsandi í tösku sem virðist hafa öðlast sjálfstætt, jóðlandi
líf. Og einmitt á þeirri sekúndu sem síminn þagnar, rífa kvendin stolt upp úr
töskunni og veifa – ekki símanum, heldur kortaveskinu frá Atson! Konur sem
náð hafa þessari færni hafa algjörlega handsamað lífið – í töskunni.
Konur hafa nefnilega fullkomna stjórn á því lífi, þótt karlmenn haldi stund-
um annað. Það er flóknara að hafa yfirsýn yfir margt en fátt og í kventösku
geta verið allt að tuttugu ólíkir munir. Þá skiptir máli að missa sig ekki yfir
smámunum. Þetta vita konur. Þess vegna brosa þær bara þegar þær finna
varalitinn eða krítarkortaveskið í stað lyklanna sinna eða gemsans. Konur
njóta þess að finna eitthvað nýtt. Jafnvel þótt þær séu næstum alltaf með
sömu hlutina í veskinu eru þær alltaf að uppgötva nýja hluti. Á hverjum degi
– og njóta þess. Á tímum jafnréttis ætti að hvetja karlmenn til þess að fá sér
handtösku, þessar með mörgu hólfunum eru sérstaklega skemmtilegar, bjóða
upp á fjölmarga möguleika til þess að týna sér í. Að týna sér dálítið í lífinu í
töskunni, handleika það og handsama svo – það er ógeðslega skemmtilegt!
uhj@mbl.is
tíska
28 LAUGARDAGUR 28. APRÍL 2007 MORGUNBLAÐIÐ
fjallaland.is
Til sölu glæsilegar lóðir á einu eftirsóttasta
sumarhúsasvæði landsins!
Upplýsingar á www.fjallaland.is og í síma 893 5046.
„Hvernig stendur á því að stjórn-
málaflokkarnir reyna ekkert að tala
við okkur kjósendurna?“ sagði mað-
ur við mig í gær. „Þeir senda okkur
ekki einu sinni stefnuskrár sínar! Ef
við förum ekki inn á vefsíður flokk-
anna eða löbbum inn á nýopnaðar
kosningaskrifstofur þeirra hér á
Austurlandi gerist ekki neitt.“ Mað-
urinn var bara heldur argur. Það er
líklega nokkuð til í þessu. Búið er að
halda tvo sameiginlega, opna stjórn-
málafundi framboðanna á Egils-
stöðum. Annar var almenns eðlis og
auglýstur í staðarblaðinu, hinn ein-
vörðungu um landbúnaðarmál og að
ég veit sannast aðeins auglýstur í
Bændablaðinu. Jú, og svo hefur
frést af nokkrum vandræðalegum
frambjóðendum á vinnustöðum. Að
öðru leyti verður tæpast vart við
kosningabaráttu nema í fjölmiðlum
og þá á forsendum fjölmiðlanna,
ekki pólitíkusanna eða framboðanna.
Og það er út af fyrir sig býsna
skringileg staða. „Það skiptir engu
máli hvort maður heyrir eitthvað í
þeim eða ekki, maður asnast til að
kjósa eitthvað“ sagði annar kunningi
minn í gær.
Aðeins meira um framboðin. Menn
skemmta sér yfir því á Egilsstöðum
að Vinstri græn séu í Afríku og þar
að auki beint undir nefinu á höfuð-
vígi Framsóknarflokksins á svæð-
inu. Þeir leigja m.ö.o. í gömlu hrófa-
tildri sem eitt sinn hýsti bakarí og
aðstöðu pípulagningamanna og nú
er kallað Afríka. Kaupfélagsstjóra-
bústaðurinn þar sem Þorsteinn
Sveinsson réð lengi ríkjum trónir of-
an við Afríku, sem og núverandi
heimili þessa aldna Framsóknar-
forkólfs. Svo það er margt í pípunum
hjá VG segja menn; þeir í Afríku og
Framsókn á Kanarí. Síðan hafa
menn það fyrir augunum daglega að
Frjálslyndi flokkurinn leggur þræl-
merktum húsbíl af stærri gerðinni
beint fyrir auglýsingaskilti Fram-
sóknar við kosningaskrifstofu þeirra
í kjallara Austrahússins gamla.
Frjálslyndir fengu inni á jarðhæð-
inni á kontór hjá fasteignasölu.
Þetta er heldur skondið.
Einu sinni var rekinn svokallaður
kjörbíll á Egilsstöðum, frá árunum
1966 til 1988. Hann ók um daglega
og fólk gat þarna keypt ýmsar nauð-
synjar án þess að fara í sjálft kaup-
félagið. Nú hefur bærinn stækkað
svo mikið í allar áttir að það er að
verða fjallabaksleið fyrir marga,
ekki síst eldra fólkið sem ekki er
kannski allt akandi, í verslun í mið-
bænum. Annað hvort þarf að fá kjör-
bíl aftur eða byggja upp nauðsyn-
lega þjónustu víðar í bænum í
samræmi við útþenslu hans.
EGILSSTAÐIR
Eftir Steinunni Ásmundsdóttur
úr bæjarlífinu