Morgunblaðið - 28.04.2007, Qupperneq 31

Morgunblaðið - 28.04.2007, Qupperneq 31
stropovits nulega og g framúr- ávinning- orð um að m fari nú slenzkum kur hans. ta til þess érna á Ís- vera hér.“ kom ekki hafa ann- örugglega slenzkum sellóleikur tekið und- um stór- em Rost- ropovits lék tvo konserta eftir Haydn og Dvorák. „Það sem er svo stórkostlegt í tóntúlkun Rostropo- vitch er sá þróttur og tilfinning sem gegnumsýrir alla túlkun hans. Hver tónn er tekinn með ákveðið músík- alskt markmið í huga og mótun stefsins í heild mögnuð galdri þessa markmiðs. Þarna skiptir tæknin ekki máli en er aðeins tæki til að túlka það sem ekki verður útskýrt með orðum, aðeins upplifað. Það er ótrúlega mikil músikk í þessum manni og væri gaman að heyra hann stjórna hljómsveitinni okkar, svo þeim gæfist kostur á að læra af meistaranum. Það er fyrst og fremst hin sterka tónræna upplifun sem gerir Rostropovitch að snillingi snillinganna. Upplifunin er svo sterk, að ekkert orð annað en galdur á þar við.“ Tónsprotinn flaug úr hendi Ashkenazys Guðný Guðmundsdóttir var kons- ertmeistari Sinfóníuhljómsveitar Ís- lands 1978 og sat síðar með Rost- ropovits í norrænni hljómsveitar- stjórasamkeppni í Bergen. Hún segist lítið hafa kynnzt Rostropovits persónulega, þegar hann lék með Sinfóníuhljómsveitinni, en sem lista- maður væri hann ákaflega eftir- minnilegur. „Þvílíkur sellisti! Hann spilaði ótrúlega vel. Það var með ólíkindum hvernig hann dró tónana út úr hljóðfærinu og það lék í hönd- unum á honum. Það er ógleymanleg reynsla að hafa spilað með slíkum snillingi.“ Eftirminnilegt atvik sagði Guðný að hefði verið þegar tónsprotinn í einum hápunktinum flaug úr hönd- um stjórnandans, Vladimirs Ashk- enazys, og út í miðja hljómsveit. Einleikarinn lét sér hvergi bregða og aðrir fóru að dæmi hans; létu þetta ekkert á sig fá og spiluðu ótrauðir áfram! Í Bergen kynntist Guðný persón- unni Rostropovits betur. „Ég tók með mér skyr handa honum og hann varð ákaflega glaður að fá þetta uppáhald sitt frá Íslandi. Þarna kynntist ég því, að hann var hvers manns hugljúfi, mikill sagna- maður og brandarakarl með af- brigðum. Hann var alltaf miðpunkt- urinn og reytti af sér brandarana. Þess í milli sagði hann okkur sögur úr tónlistarheiminum; hann var auð- vitað hafsjór af fróðleik um tónlist og hafði mikil persónuleg kynni af rússneskum tónlistarmönnum. Í Bergen sagði hann mér meðal annars að fyrir leiðtogafundinn í Höfða hefði hann náð símasambandi við Reagan Bandaríkjaforseta og beðið hann að freista þess að fá því framgengt við Gorbatsjov að fjöl- skylda Rostropovits fengi að fara frá Sovétríkjunum og heimsækja hann í tilefni 60 afmælis hans. Eftir því sem ég bezt veit varð ekkert af því.“ Í fyrri Íslandsferðinni, 1954, dvel- ur Rostropvits a.m.k. um mánaðar- tíma á Íslandi. Hann kemur hér ásamt fleiri listamönnum á vegum MÍR, Menningartengsla Íslands og Ráðstjórnarríkjanna, og þeir halda nokkra tónleika og listdanssýningar í september. Hann er svo einleikari á tónleikum Ríkisútvarpsins og Sin- fóníuhljómsveitarinnar 14. septem- ber og spilar á vegum Ríkisútvarps- ins með Páli Ísólfssyni í Dómkirkjunni 21. september. Það voru „fjölmennir hljómleikar í Dóm- kirkjunni“, sagði Morgunblaðið. Fullkominn á sínu sviði Í baksíðufrétt Morgunblaðsins eftir fyrstu hljómleika og listdans- sýningar rússneska listafólksins í Þjóðleikhúsinu segir að listdansinn hafi vakið sérstaka hrifningu og tón- listarfólkinu, þ.á m. Rostropovits, frábærlega vel tekið. Í Morgunblaðinu 7. september birtist umsögn um Sovét-listamenn í Þjóðleikhúsinu eftir P(ál)Í(sólfsson). Þar segir m.a.: „Celloleikarinn Rost- ropovitsj er fullkominn á sínu sviði. Leikur hans í verkum eftir Glas- unov, Grieg (fyrsti þáttur hinnar fögru cellosónötu), Borodin, Skrjab- in og Popper var svo meistaralegur, að vart verður lengra komizt. Hér er það ekki tæknin (sem er þó eins og fis í höndum hans) sem athyglina vekur. Maður gleymir henni, því sjálf músíkin býr í þessum lista- manni í óvenju ríkum mæli og verð- ur leikur hans ógleymanlegur öllum sem á hlýddu.“ alds á Íslandi ál hingað“ Morgunblaðið/Ólafur K. Magnússon 978. Í samtali við Morgunblaðið sagði hann, að ið, sem þessi mikli meistari smíðaði“. freysteinn@mbl.is MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 28. APRÍL 2007 31 utninginn og þau kynni af Rostropovits eru gleymanleg. Hann var auðvitað einstakur aður, en ekki síðri í persónulegum kynnum. var einstakur maður á alla lund. Og hann er gleymanlegasti maður sem ég hef kynnzt.“ sagði að National Symphony Orchestra hefði erk hans þrisvar eða fjórum sinnum í Wash- undir stjórn Rostropovits og viku seinna í gie Hall í New York. Eftir Steinþór Guðbjartsson í Winnipeg steinthor@mbl.is Landsbankinn opnaði í gærviðskiptaskrifstofu íWinnipeg í Kanada, tæp-lega 132 árum eftir að fjöldi Íslendinga kom til borgar- innar og settist þar að eða hélt áfram til þar sem nú er Gimli við Winnipegvatn, um 100 km frá Winnipeg. Stefnt er að stofnun úti- bús Landsbankans í Winnipeg inn- an skamms og verður starfsemi hans þá fjölbreyttari en þá fellur hún undir lögsögu fjármálayfir- valda í Kanada. Talið er að um 200.000 Kan- adamenn séu af íslenskum ættum og þar af búi um 80.000–100.000 í Manitoba. Þegar vesturferðirnar stóðu sem hæst var Landsbankinn stofnaður og því má segja að það fari vel á því að Landsbankinn sé fyrsta íslenska fyrirtækið til að hefja rekstur í Winnipeg og opni viðskiptaskrifstofu á meðal afkom- enda Íslendinga í fylkinu. Til að byrja með kynnir Lands- bankinn einkabankaþjónustu þar sem bankinn ávaxtar eignir við- skiptavina, m.a. með aðgangi að verðbréfamörkuðum á Íslandi og 13 öðrum Evrópumörkuðum. Fyrir rekur bankinn skrifstofu í Halifax í Nova Scotia á austurströnd Kan- ada sem annast fyrirtækjaráðgjöf og hefur milligöngu um lánveit- ingar til fyrirtækja. Björgólfur Guðmundsson, for- maður bankaráðs Landsbankans, segir að að vel athuguðu máli hafi verið talið rétt að opna í Winnipeg á eftir Halifax. Móttökurnar hafi verið þess eðlis auk þess sem stofnað hafi verið til mikilla og góðra sambanda við viðskiptamenn bankans í borginni. ,,Okkur líður sérlega vel hér,“ segir hann. Langur aðdragandi Skrifstofan er á 15. hæð í Rich- ardson-byggingunni í miðborginni. Björgólfur Guðmundsson segir að hún hafi verið opnuð til þess að ná bæði til fyrirtækja og einstaklinga. Hér hafi bankinn aðgang að mönn- um sem skipti máli til að halda sókninni áfram inn í Kanada. ,,Við höfum unnið lengi að þessu,“ segir hann og bætir við að vonandi verði þetta byrjunin á mikilli sókn á Kanadamarkaðnum. ,,Við teljum að Kanada henti vel inn í það við- skiptamódel sem við höfum búið til,“ heldur Björgólfur áfram. Hann bendir á að Landsbankinn sé stór í Evrópu og geti brúað bilið þangað fyrir Kanadamenn. Auk þess hafi verið rætt við menn, sem vilja stofna fyrirtæki í Evrópu, um að setja upp aðstöðu á Íslandi á leiðinni til meginlandsins. ,,Við verðum því vonandi í ráðgjöf og al- þjóða viðskiptum,“ segir hann. Samkeppnisforskot Halldór J. Kristjánsson, banka- stjóri Landsbankans, segir að fyrir rúmlega tveimur árum hafi Lands- bankinn byrjað í Kanada, í Hali- fax, með aðaláherslu á fjármögnun viðskipta, afurðafjármögnun, verið í alþjóðlegum viðskiptum tengdum sjávarfangi. Síðan hafi verið leitað eftir því að komast í þátttökulán á kanadíska markaðnum. Á síðasta ári hafi Landsbankinn tekið 300 milljónir Kanadadollara að láni og hafi þegar lánað til meira en 10 fyrirtækja áþekka fjárhæð og bankinn hafi gefið út á skulda- bréfamarkaði. Kjarnastarfsemin sé fyrirtækja- og bankaþjónusta en það sem sé einstakt við Manitoba sé að í fylkinu sé fjölmennasta þjóðarbrot Íslendinga og fólks af íslenskum ættum utan Íslands. Í þessum hópi sé fólk sem hafi efnast mjög mikið. ,,Þess vegna töldum við að ef við ætluðum að reyna fyrir okkur í einkabanka- þjónustu, þjónustu við efnameiri einstaklinga og eignastýringu fyrir þá sem hafa nóg fjármagn, þá væri þetta í raun og veru eini staðurinn í Norður-Ameríku þar sem við hefðum eitthvert samkeppnisfor- skot.“ Sandra Sigurdson frá Gimli veit- ir skrifstofunni forstöðu. ,,Það er mjög spennandi verkefni að fá tækifæri til að vinna fyrir Lands- bankann að þessu verkefni,“ segir hún. Fyrir um fjórum árum fór hún sem formaður Íslendingadags- nefndar til Íslands í fyrsta sinn og aldrei hafði hvarflað að henni að hún ætti eftir að vinna fyrir ís- lenskt fyrirtæki. ,,Ég lærði aldrei íslensku að ráði, taldi mig ekki hafa þörf fyrir að læra málið en annað hefur komið á daginn.“ Morgunblaðið/Steinþór Hópur Fjöldi starfsmanna Landsbankans er í Winnipeg vegna opnunar skrifstofunnar og margir voru við- staddir viðburðinn í gær. Sandra Sigurdson heldur á borðanum, en hún mun veita skrifstofunni forstöðu. Byrjun á nýrri sókn í Kanada  Landsbankinn opnar skrifstofu í Winnipeg  Fyrsta íslenska fyrirtækið til að hefja rekstur þar BJÖRGÓLFUR Guðmundsson, formaður bankaráðs Landsbankans, og Almar Grímsson, formaður Þjóðræknifélags Íslendinga, undirrit- uðu í gær samning milli Landsbankans og ÞFÍ. Með samningnum leggur Landsbankinn Snorraverkefni Þjóðræknifélagsins til sex milljónir króna á næstu fimm árum og veitir þátttakendum fræðslu um íslenskt atvinnulíf og sér um starfsþjálfun nokkurra þeirra í útibúum bankans. ,,Þessi samningur hefur geysilega mikla þýðingu fyrir verkefnið,“ segir Almar Grímsson, en markmið Snorraverkefnisins er að efla tengsl fólks af íslenskum uppruna í Vesturheimi við Ísland. Hann bætir við að þrátt fyrir geysilega öflugan stuðning frá ríkisstjórn- inni hafi verið erfitt að ná endum saman, en samningurinn við Landsbankann tryggi verkefnið til frambúðar. Þjóðræknisfélag Íslendinga og Norræna félagið stofnuðu Snorra- verkefnið 1998 og frá 1999 hafa árlega komið hópar ungra afkom- enda íslenskra landnema í Vesturheimi til sex vikna dvalar á Íslandi. Þeir hafa notið fræðslu, kynnst íslensku þjóðlífi, náttúru Íslands og síðast en ekki síst ættingjum sínum á Íslandi, en tæplega 150 ein- staklingar hafa tekið þátt í verkefninu. Landsbankinn styrkir Snorraverkefnið nitsín, höfund Gúlag-eyjaklasans. Rostropo- eri aftur til Rússlands þegar Sovétríkin liðu lok og flutti svítu eftir Bach þegar Berl- úrinn var rifinn. rnvöld í Rússlandi jusu lofi yfir Rostropovits ta mánuði, í tilefni af áttræðisafmæli hans. mír Pútin sagði hann ekki aðeins tónlist- ing heldur einnig „staðfastan málsvara éttinda“. Rostropovits lést á sjúkrahúsi í u eftir langvarandi veikindi.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.