Morgunblaðið - 28.04.2007, Side 32
32 LAUGARDAGUR 28. APRÍL 2007 MORGUNBLAÐIÐ
UMRÆÐAN
Í UPPHAFI var spurt: Er Sjálf-
stæðisflokknum treystandi fyrir
hagstjórninni? Á
grundvelli þeirra stað-
reynda, sem hér hafa
verið raktar um
reynsluna af hagstjórn
hans á sl. kjörtímabili,
er svarið skýrt: Nei –
Sjálfstæðisflokkurinn
hefur ekki reynst
traustsins verður varð-
andi ábyrga efnahags-
stefnu og trausta hag-
stjórn. Hann fær því
falleinkunn.
Þetta ætti ekki að
koma neinum á óvart,
sem þekkir reynsluna
af langri stjórnarsetu Sjálfstæð-
isflokksins á lýðveldistímanum.
Sjálfstæðisflokkurinn hefur setið
meira og minna samfellt í ríkis-
stjórnum allt frá upphafi seinni
heimsstyrjaldar til dagsins í dag.
Lengst af á þessu tímabili keppti
hann um völdin við Framsóknar-
flokkinn, og saman stjórnuðu þeir
samkvæmt svokallaðri helminga-
skiptareglu.
Flokkar með fortíð
Báðir flokkarnir voru ríkisfor-
sjárflokkar, sem notuðu ríkisvaldið
til að skipta með sér yfirráðasvæð-
um og útdeila hlunnindum til fyrir-
tækja og skjólstæðinga með vænum
skammti af pólitískri spillingu. Báð-
ir hafa flokkarnir staðið dyggan
vörð um ríkisrekið landbúnaðarkerfi
á kostnað skattgreiðenda og neyt-
enda, sem borga fyrir það með tvö-
falt hærri ríkisstyrkjum en tíðkast í
Evrópusambandinu og hæsta mat-
arverði í heimi.
Stóru frávikin frá
þessari fortíðarhags-
tjórn eru eftirfarandi:
Viðreisnartímabilið
(1959–71) og kerfis-
breytingarnar, sem
urðu í tíð vinstri-
stjórnar Steingríms
Hermannssonar (1988–
91) og í tíð Viðeyj-
arstjórnarinnar (1991–
95) og fyrir tilverknað
EES-samningsins síð-
an. Það sem er sameig-
inlegt með þessum
umbótatímabilum er
eitt: Þá voru jafnaðarmenn í rík-
isstjórn. Þeir beittu sér sem frum-
kvöðlar fyrir kerfisbreytingum á
hagkerfi og hagstjórn í þá átt að
losa um fjötra ríkisforsjár og stuðla
að auknu frelsi í viðskiptum.
Jafnaðarmenn
í forystuhlutverki
Þetta gerðist á viðreisnarárunum
undir forystu Gylfa Þ. Gíslasonar,
formanns Alþýðuflokksins. Við-
reisnarstjórnin batt enda á ríkis-
rekið millifærslu- og skömmt-
unarkerfi fyrri tíðar. Hún skráði
gengið rétt og jók innflutningsfrelsi.
En Gylfi fékk engu tauti komið við
Sjálfstæðisflokkinn í landbún-
aðarmálum. Það var vitavonlaust,
þá rétt eins og nú.
Í tíð vinstristjórnar Steingríms
Hermannssonar náðist verðbólgan í
fyrsta sinn niður í eins stafs tölu, í
nánu samstarfi við aðila vinnumark-
aðarins um þjóðarsátt um stöð-
ugleika. Fyrstu skrefin voru stigin í
átt til einkavæðingar bankanna.
Frelsi í viðskiptum og fjármagns-
flutningum var aukið, og útflutn-
ingsbætur landbúnaðarafurða voru
afnumdar.
Það sem mun halda nafni Viðeyj-
arstjórnarinnar á loft er, að hún
tryggði EES-samningnum meiri-
hluta á Alþingi og lagði þannig
grundvöllinn að því framfaraskeiði,
sem enn stendur. Þessar tvær rík-
isstjórnir stýrðu þjóðarbúinu far-
sællega út úr einhverju dýpsta sam-
dráttarskeiði, sem gengið hefur yfir
íslenskan þjóðarbúskap á lýðveld-
istímanum (1988–94). Goðsögnin
um, að vinstristjórnum hafi æv-
inlega brugðist bogalistin í hags-
tjórninni, stenst því ekki dóm stað-
reyndanna.
Flokkar með fortíð:
Sporin hræða
Jón Baldvin Hannibalsson
rifjar upp hagstjórn síðustu
áratugina
» Sjálfstæðisflokk-urinn hefur ekki
reynst traustsins verður
varðandi ábyrga efna-
hagsstefnu og trausta
hagstjórn. Hann fær því
falleinkunn.
Jón Baldvin
Hannibalsson
Höfundur var utanríkisráðherra
1988–1995.
WHO, Alþjóðaheil-
brigðismálastofnunin,
skilgreinir afleiðingar
umferðarslysa sem
eitt stærsta heilbrigð-
isvandamál sem heim-
urinn stendur frammi
fyrir í dag. Í ljósi
þessa var ákveðið að
aðildarlönd SÞ tileinki
þessa viku sem nú
stendur umferðarör-
yggismálum og veki
með því athygli fjöl-
miðla, stjórnmála-
manna og sérstaklega
ungs fólks á þeim
miklu fórnum sem eru
færðar í umferðinni.
Gert er ráð fyrir að
umferðaröryggisvika
verði haldin á þriggja
ára fresti og er þetta
sú fyrsta.
Tilgangur umferð-
aröryggisvikunnar er
m.a.:
Að fá leiðtoga G8-
hópsins og aðildar-
landa Sameinuðu þjóð-
anna til að samþykkja
pólitíska stefnumörk-
un til að uppræta um-
ferðarslys í heiminum.
Að varið sé 300 milljónum dollara
á 10 árum til eflingar umferðarör-
yggis í þróunarlöndum.
Að við úthlutun þróunaraðstoðar
séu að minnsta kosti 10% af fjár-
magni hennar notuð til að fjármagna
aukið umferðaröryggi.
Að efla vitund fjöl-
miðla, stjórnmála-
manna og ungra öku-
manna um umferðar-
öryggi.
Árið 2005 gerðu
milljónir manna kröfu
um útrýmingu fátæktar
í heiminum. Þjóðarleið-
togar G8-hópsins, sam-
tök átta stærstu efna-
hagsvelda heims,
brugðust við með ágæt-
um árangri. Robertson
lávarður, formaður al-
þjóðanefndar SÞ um
umferðaröryggi, segir
að leiðtogar G8 hafi
fljótt gert sér grein fyr-
ir því að vegna þess
mikla kostnaðar sem
fylgir umferðarslysum í
þróunarlöndunum gæti
sá árangur sem náðist í
baráttunni gegn fátækt
fljótt orðið að engu ef
ekki yrði snúið við
þeirri óheillaþróun sem
fylgir ört vaxandi fjölda
umferðarslysa. U.þ.b.
85% allra umferðar-
slysa verða í þróunar-
löndum og fátækari
löndum heims.
Talið er að umferðarslys á Íslandi
kosti á bilinu 21–29 milljarða króna á
ári. Í flestum tilfellum eru orsakir
alvarlegra umferðarslysa áhættu-
hegðun ökumanna og því er ljóst að
mikilvægur þáttur í því að koma í
veg fyrir slysin er breytt viðhorf og
ábyrgari hegðun í umferðinni.
Vikan er undir kjörorðinu „Road
Safety is no Accident“. Hún er
skipulögð af WHO, Alþjóðaheil-
brigðisstofnuninni, í samvinnu við
UNECE, efnahagssamvinnunefnd
Sameinuðu þjóðanna fyrir Evrópu.
Samgönguráðuneytið hefur falið
Umferðarstofu, Umferðarráði og að-
ildarfélögum þess að skipuleggja
fjölbreytta dagskrá vikunnar þar
sem m.a. verða haldnir umræðu- og
fræðslufundir fyrir stjórnmálamenn
og fjölmiðla um umferðarmál á Ís-
landi. Auk þess verður haldinn akst-
ursæfingadagur á gamla varnar-
svæðinu í Keflavík og með því
verður komið til móts við aksturs-
íþróttafólk hvað varðar æfingaað-
stöðu.
Á hverjum degi látast rúmlega
3.000 manns í umferðarslysum í
heiminum. Það er rétt tæplega sá
fjöldi sem fórst í árásinni á World
Trade Center í New York. 500 börn
deyja á hverjum degi í umferðar-
slysum í heiminum. Það þýðir að á
3ja mínútna fresti deyr barn í um-
ferðinni. Sé miðað við slysatölur frá
Íslandi má samkvæmt því gera ráð
fyrir því að 1.500–2.000 börn slasist
alvarlega eða eitt barn á mínútu.
Það er ástæða til að hvetja fólk til
að kynna sér þessi mál. Þitt viðhorf
og framkoma þín í umferðinni skipt-
ir máli. Á heimasíðu Umferðarstofu
www.us.is má sjá tengingu inn á
áhugaverðar heimasíður sem vert er
að skoða.
Umferðarslys – eitt
stærsta heilbrigðis-
vandamál nútímans
Einar Magnús Magnússon
skrifar í tilefni umferðar-
öryggisviku
Einar Magnús
Magnússon
» Á einum degideyja rúm-
lega 3.000
manns í umferð-
arslysum í
heiminum. Það
er rétt tæplega
sá fjöldi sem
fórst í árásinni á
World Trade
Center.
Höfundur er upplýsingafulltrúi
Umferðarstofu.
Fréttir í
tölvupósti
Bæjarhrauni 10 • Hafnarfirði • Sími 520 7500 • www.hraunhamar.is
Opið hús í dag
milli kl. 14.00 og 16.00.
Til sölu Lúxus sumarhús í Ásgarðs-
landi. Nýkomin í einkasölu glæsilegt, ný-
legt (2005), vandað 80 fm sumarhús, auk
20 fm gestahús, í landi Ásgarðs í Gríms-
nesi. Húsið skiptist m.a. þannig: Tvö
rúmgóð herbergi, stór stofa og eldhús,
baðherbergi, geymsla o.fl. Gestahús:
Svefnherbergi og baðherbergi. Hitaveita. Kjarri vaxin 0,8 ha eignalóð. Parket og
náttúruflísar á gólfi. Ca 150 fm verönd m. heitum potti. Ca 60 km frá Reykjavík.
Hólmfríður býður ykkur velkomin s. 693-1317.
Sumarhús Ásgarðsland - Grímsnes
Skógarhlíð 18 • sími 595 1000 • www.heimsferdir.is
Montreal
17. maí
frá kr. 33.990
Vikuferð - Síðustu sætin
Frá kr. 49.990
Netverð á mann. Flug, skattar og gisting í
tvíbýli á Travelodge Montreal m/morgun-
verði í 7 nætur, 17.-24. maí. Aukagjald fyrir
einbýli kr. 19.900. Ferðir til og frá flugvelli
kr. 1.900.
Munið Mastercard
ferðaávísunina
Ótrúlegt tilboð
aðeins
10 herbergi í boði
Heimsferðir bjóða
frábært tilboð á síðustu
sætunum í aukaferð til
Montreal 17. maí.
Þetta er einstakt tæki-
færi til að njóta vorsins
og lífsins í þessari
stórkostlega spennandi
borg sem er önnur
stærsta borg Kanada.
Í borginni mætast gamli
og nýi tíminn, rík sagan
og iðandi nýbreytnin á
einstaklega skemmti-
legan hátt. Það er frábært að skoða sig um, versla og njóta lífsins í
Montreal; fallegar byggingar, endalaust úrval verslana og veitingastaða
og mjög hagstætt verðlag. Gríptu tækifærið og smelltu þér til Montreal
og njóttu þess besta sem þessi spennandi heimsborg hefur að bjóða.
Frá kr. 33.990
Netverð á mann. Flugsæti báðar leiðir með
sköttum, 17.-24. maí.
Beint flug
…sagði Jón Sigurðsson for-
maður Framsóknarflokksins, að-
spurður í sjónvarpsfréttum í
gærkvöldi, um ástæður þess að
Jóhannesi Geir var skipt út fyrir
Pál Magnússon fyrrverandi að-
stoðarmann Valgerðar Sverris-
dóttur, í stjórnarformennsku
Landsvirkjunar eftir 12 ára setu
þar.
Þarna hitti Jón naglann á höf-
uðið. Menn eiga ekki að sitja of
lengi í valdastöðum, – og menn
eiga ekki heldur að sitja of lengi
í ríkisstjórn. Þeir verða væru-
kærir, – valdspilltir. Nú er bit-
lingaúthlutunin í fullum gangi
hjá stjórnarliðinu og daglega
birtast okkur dæmi þar sem
reynt er að krafsa yfir stór-
felldar vanrækslusyndir undan-
farinna ára.
Kjósendur ættu að taka þessi
orð formanns Framsóknar-
flokksins alvarlega og fara að
ráðum hans í þessum efnum. Það
er ekki hollt fyrir neinn hvorki
flokk né fólkið í landinu að sömu
menn stjórni of lengi. Eftir 12 og
16 ára stjórnarsetu er kominn
tími til að breyta.
Ásta R. Jóhannesdóttir
„Menn eiga ekki að
sitja í stjórn of lengi“
Höfundur er þingmaður Samfylk-
ingarinnar í Reykjavík.