Morgunblaðið - 28.04.2007, Blaðsíða 33

Morgunblaðið - 28.04.2007, Blaðsíða 33
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 28. APRÍL 2007 33 SPROTATORG MEÐ ÍSLENSKUM FRUMKVÖÐLUM í kosningamiðstöð Vinstri grænna að Grensásvegi 16A, þéttofin dagskrá frá 13:00 – 17:00 Tónlist, skemmtun og uppákomur. Allir velkomnir! Samræður frummælenda og gesta að loknum framsögum Fundarstjóri: Katrín Jakobsdóttir, varaformaður Vinstrihreyfingarinnar - græns framboðs Allir velkomnir! Málþing um sköpun og "Allt annað" í Listamiðstöðinni Straumi, í dag 28. apríl kl. 10:00 - 12:00 Frummælendur Sveinn Hannesson framkvæmdastjóri Samtaka iðnaðarins, Berglind Hallgrímsdóttir framkvæmdastjóri Impru, Aðalbjörg Þorsteinsdóttir frá fyrirtækinu Villimey á Tálknafirði, Karl Benediktsson dósent í landafræði við Háskóla Íslands, Svanborg R. Jónsdóttir nýsköpunarkennari og doktorsnemi við KHÍ, Magnús Þór Þorbergsson fagstjóri í Fræði og framkvæmd í leiklistardeild LHÍ og Haukur Halldórsson frá Víkingahringnum í Straumi Frumkvöðlar og aðrir hugmyndaríkir Mundi design fatahönnun, Húfur sem hlæja, Shiva vistvænn fatnaður, Græni hlekkurinn, Akur grænmeti í áskrift, Birna Þórðardóttir Menningarganga Birnu, Bjargey Ingólfsdóttir heilsupúðar, Gámaþjónustan og margt fleira. VIÐ erum oft æði fljót að mynda okkur skoðun um náungann, komast að ákveðinni niðurstöðu um hann. „Þetta fólk verður aldrei eins og við,“ er setning sem stundum er sögð um fólk sem tilheyrir minni- hlutahópum; fatlaða, samkynhneigða og út- lendinga. Það að vera fatlaður eða útlendingur fer að mörgu leyti eftir aðstæðum hverju sinni, eftir því hvar við erum stödd. Við höfum flest upplifað að vera útlend- ingar þegar við dveljum í öðru landi. Segja má að heyrnarlausir séu eins og útlendingar í sínu eigin landi þar sem þeir þurfa enn að berjast fyr- ir að fá táknmálið viður- kennt sem sitt móðurmál. Við erum ekki fötlunin eða samkynhneigðin heldur fyrst og fremst manneskjur. Að horfast í augu við lífið og sjálfan sig getur verið erfitt en einnig þroskandi. Við það að þroskast sjáum við lífið í öðru ljósi. Við verðum ekki eins þröng- sýn, horfum ekki á heiminn út um skráargat, heldur opnum dyrnar og göngum út til að þiggja lífið. Listahátíðin List án landamæra mun hefja sig til flugs í fjórða sinn hinn 26. apríl. Að hátíðinni standa: Átak, fé- lag fólks með þroskahömlun, Fjöl- mennt, Hitt húsið, Landssamtökin Þroskahjálp og Öryrkjabandalag Ís- lands. Hafa þessir aðilar í samstarfi við ýmsa hópa hrint af stað kröftugri hátíð sem sett hefur sterkan svip á menn- ingarárið á Íslandi og brotið niður ýmsa múra. Dagskrá hátíðarinnar í ár verður fjölbreytt og skemmtileg þar sem gestir og gangandi geta notið mynd-, tón-, leik- og ljóðlistar víðs veg- ar um borgina og úti á landsbyggðinni. Tyllt sér niður á geðveiku kaffihúsi og tekið þátt í að skapa risa- stóran gjörning sem ber heitið „Tökum höndum saman, við þurfum á hvert öðru að halda“ sem fram fer við Reykja- víkurtjörn 28. apríl milli kl. 13 og 15. Sjá nánar um gjörninginn á blogg- inu www.tokumhond- umsaman.blog.is. Að taka höndum sam- an og mynda hring, óháð stétt og stöðu, augnlit og útlitsgerð, krefst þess að við horfumst í augu við okkur sjálf. Sjóndeildar- hringurinn stækkar, við verðum ekki eins þröngsýn á lífið og færumst úr spori. Tjörnin táknar að við horfumst í augu við okkur sjálf, speglum okkur í vatninu og jafnframt horfum við í aug- un á náunganum sem við höldumst í hendur við. Við erum jú öll mann- eskjur, gerð úr sama efninu. Allir með Undanfarin ár hafa margir lagt góðu málefni lið með því að ganga, hjóla eða róa á árabát í kringum landið og sýnt mikinn dugnað og vilja með framtaki sínu. En það eru fáir sem treysta sér í svo langan og strangan hring í kringum landið, í stað þess býðst ykkur kæru landsmenn einstakt tækifæri til að mynda hring í kringum Tjörnina í Reykjavík. Hring samstöðu og sáttar, virðingar og friðar. Til þess að ná að mynda hring utan um Tjörn- ina þarf fjöldann allan af fólki. Allir eru velkomnir. Tökum höndum sam- an, við þurfum hvert á öðru að halda, sköpum líf og list án landamæra. Hvernig hugmyndin varð til Fyrir nokkru uppgötvaði ég ýmis- legt við það að horfast í augu við sjálfa mig. Dagurinn var búinn að vera erf- iður. Ég horfði á sjálfa mig í speglin- um um leið og ég þvoði á mér hend- urnar. Þetta er ég, svona lít ég út. Spegilmynd mín blasti við mér. Hún hefur breyst með aldrinum. Ég er með sjaldgæfan vöðvarýrnunarsjúkdóm, sem hefur hægt og bítandi skert hreyfigetu mína. Ég færði mig nær speglinum og horfði djúpt í augun á mér. Augun mín eru blágrá að lit. Augasteinninn virðist vera svartur. Hann stækkar og minnkar á víxl eftir ljósbirtunni. Augað er eins og hringur. Í miðjunni er augasteinn umluktur lit sem breytist við ljós og myrkur. Hringur, litur, myrkur, ljós, stækkar, minnkar. Á einu augnabliki skynjaði ég einhvern sannleika, sem var fólginn í augunum. Gjörningurinn Tökum höndum saman við Tjörnina Kolbrún D. Kristjánsdóttir hvetur fólk til að mæta í gjörning í dag » Gjörningurinn bygg-ist á þátttöku þinni við að skapa líf og list án landamæra. Kolbrún Dögg Kristjánsdóttir Höfundur er í stjórn Listar án landamæra og höfundur gjörnings. ÞAR sem ég þekki vel til sambæri- legra aðstæðna gleðst ég innilega yfir þeim réttindum sem unnusta sonar umhverfisráðherra hefur fengið. Sé það rétt, sem sjónvarpið greindi frá, og ég tel ekki ástæðu til að rengja, gengur það vafalítið kraftaverki næst í augum stúlkunnar að fá íslenskan ríkisborgararétt eftir aðeins 15 mán- aða dvöl í landinu. Þvílík heppni! Ríkisborgararéttur án þess að uppfylla nein af þeim undanþáguákvæðum er þó opin glufa á annars ströngum reglum. Ríkisborg- araréttur sem flestir umsækjenda bíða þolinmóðir eftir í sjö ár og standa á meðan skil á sköttum og öðrum skyldum samfélagsins. Unnusta sonar míns, sem einnig er frá Mið-Ameríku, kom hér fyrir hálfu öðru ári og freistaði þess að festa ræt- ur í íslensku samfélagi. Þrátt fyrir að vera langt komin með háskóla- menntun í heimalandinu gafst henni ekki færi á að halda náminu áfram hér. Hún skyldi byrja frá grunni að nýju. Hún hafði ekki atvinnu þegar hún kom til landsins og fékk þar af leiðandi ekki dvalarleyfi. Og af því hún hafði ekki dvalarleyfi fékk hún ekki at- vinnu. Vindmylluslagur Þótt ekkert í íslenskri löggjöf hrekti hana beinlínis á brott fór það svo að hún lagði árar í bát í vindmylluslag sínum við kerfið. Alls staðar rakst hún á farartálma á leið sinni, týndist í hálf- gerðu völundarhúsi opinberrar laga- setningar og stjórnsýslu. Hún yfirgaf því landið á ný eftir 6 mánaða dvöl til að ljúka námi sínu í heimalandinu. Unga parið sameinast á ný síðsumars, en því miður verður það ekki á Íslandi. Því er oft velt upp í pólitískri um- ræðu að virðing almennings fyrir þingmönnum og störfum Alþingis fari ört þverrandi. Er að undra? Það eru einmitt mál sem þessi sem rýra trú- verðugleika löggjafarsamkomunnar. Sé það rétt að aðeins þrír þingmenn af níu í allsherjarnefnd hafi veitt hópi fólks íslenskan ríkisborgararétt fyrir skemmstu má velta því upp, af hverju þurfi yfirleitt níu manna nefnd? Er ís- lenskur ríkisborgararéttur ekki meira virði en svo að nóg sé að þriðjungur þingnefndarinnar komi nálægt ákvörðunum að deila honum út? Eru þetta þau skilaboð sem Alþingi vill senda frá sér? Ekki aðeins fer afgreiðsla allsherj- arnefndar á umsókn umræddrar stúlku í bága við allar venjur um máls- meðferð af þessum toga, heldur er hún áfellisdómur yfir íslenskri stjórnsýslu. Jafnframt er hún þingmönnunum þremur til vansa og þá ekki síður þeim sex er létu sig málið engu varða þrátt fyrir að þiggja laun fyrir vinnu í þágu nefndarinnar. Stjórnsýslubrestir Ísland er besta land í heimi í huga margra. Vissulega hefur landið upp á margt gott að bjóða, en brestirnir í stjórnsýslunni virðast stundum fleiri en í þeim löndum sem við gagnrýnum hvað harðast fyrir óstjórn og spillingu. Að þingmaður skuli kalla þetta mál „storm í vatnsglasi" segir e.t.v. meira um hann sjálfan en nokkuð annað. Rétt í lokin. Ungu stúlkunni, sem um ræðir og var svona ótrúlega hepp- in, óska ég alls hins besta á Íslandi og vona af heilum hug að dvöl hennar hér verði henni hamingjurík. HELGA ELÍN BRIEM, er framhaldsskólakennari. Þvílík heppni! Frá Helgu Elínu Briem Bréf til blaðsins Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík  Bréf til blaðsins | mbl.is
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.