Morgunblaðið - 28.04.2007, Side 42
42 LAUGARDAGUR 28. APRÍL 2007 MORGUNBLAÐIÐ
KIRKJUSTARF
Hjóna-og sambúðar-
messa í Bessastaða-
kirkju
HJÓNA- og sambúðarmessur eru
kvöldmessur sem hafa mælst vel
fyrir í Garðaprestakalli og eru
haldnar síðasta sunnudagskvöld í
mánuði. Sunnudagskvöldið 29. apr-
íl verður hjóna- og sambúðarmessa
í Bessastaðakirkju kl. 20.30. Sr.
Guðný Hallgrímsdóttir, prestur
fatlaðra flytur erindi sem ber yfir-
skriftina „Er líf eftir makamissi?“
Gunnar Gunnarsson organisti leiðir
tónlistina ásamt Tómasi R. Einars-
syni sem spilar á bassa og Kristjönu
Stefánsdóttur sem leiðir sönginn.
Sr. Jóna Hrönn Bolladóttir þjónar
fyrir altari.
Fyrr um daginn er messa í Vídal-
ínskirkju kl. 11. Sr. Jóna Hrönn
Bolladóttir predikar og þjónar að
helgihaldinu ásamt Gideon-mönn-
um í Garðabæ. Jóhann Baldvinsson
organisti leiðir lofgjörðina ásamt
kór Vídalínskirkju. Sunnudagaskóli
á sama tíma undir stjórn Ármanns
H. Gunnarssonar. Hressing í safn-
aðarheimilinu eftir messu. Sjá
www.gardasokn.is
Síðasta Tómasar-
messan að sinni
ÁHUGAHÓPUR um svokallaðar
Tómasarmessur efnir til síðustu
messunnar á þessu vori í Breið-
holtskirkju í Mjódd sunnudags-
kvöldið 29. apríl, kl. 20.
Tómasarmessan hefur unnið sér
fastan sess í kirkjulífi borgarinnar,
en slík messa hefur verið haldin í
Breiðholtskirkju í Mjódd síðasta
sunnudag í mánuði, frá hausti til
vors, síðustu níu árin. Er þetta
þannig síðasta Tómasarmessan að
sinni, en þær hefjast síðan væntan-
lega að nýju í haust. Framkvæmda-
aðilar að þessu messuhaldi eru
Breiðholtskirkja, Kristilega skóla-
hreyfingin, Félag guðfræðinema og
hópur presta og djákna.
Tómasarmessan einkennist af
fjölbreytilegum söng og tónlist,
mikil áhersla er lögð á fyrirbænar-
þjónustu og sömuleiðis á virka þátt-
töku leikmanna. Stór hópur fólks
tekur jafnan þátt í undirbúningi og
framkvæmd Tómasarmessunnar,
bæði leikmenn, djáknar og prestar.
Ensk messa í
Hallgrímskirkju
ENSK messa verður haldin í Hall-
grímskirkju á morgun, sunnudag-
inn 29. apríl kl. 14. Prestur verður
sr. Bjarni Þór Bjarnason. Organisti
er Lára Bryndís Eggertsdóttir.
Guðrún Finnbjarnardóttir leiðir al-
mennan safnaðarsöng. Messukaffi.
Service in English
SERVICE in English. Hallgríms-
kirkja. 29th of April at 2 pm. Holy
Communion. The Fourth Sunday of
Easter. Celebrant and Preacher is
The Revd Bjarni Thor Bjarnason.
Organist is Lára Bryndís Eggerts-
dóttir. Leading Singer: Guðrún
Finnbjarnardóttir. Refreshments
after The Service.
Helgihald í Kolaportinu
SUNNUDAGINN 29. apríl kl. 14
verður helgihald í Kolaportinu í
„Kaffi Port“. Um leið og gengið er
um og bænarefnum safnað eða frá
kl. 13.30 syngur og spilar Þorvald-
ur Halldórsson ýmis þekkt lög,
bæði eigin og annarra. Hann annast
einnig tónlistina í helgihaldinu.
Unnur Halldórsdóttir djákni, sr.
Þorvaldur Víðisson og sr. Irma
Sjöfn Óskarsdóttir munu leiða sam-
veruna og prédika. Að venju er
boðið upp á að leggja fram fyrir-
bænarefni og verður beðið með og
fyrir þeim sem þess óska.
Vorhátíð Landakirkju
ÞAÐ hefur verið áralangur siður að
fagna vori í Landakirkju síðasta
sunnudag í apríl með veglegri
vorhátíð, söngvum og lofgjörð.
Hóparnir í safnaðarstarfinu sem
koma að þessari vorhátíð eru fjöl-
skyldurnar sem sótt hafa barna-
guðsþjónustu í vetur, unglingarnir í
æskulýðsstarfi, krakkarnir í TTT-
starfinu, kirkjuprökkurum, barna-
kórnum Litlir lærisveinar og
Stúlknakór Landakirkju, foreldrar
og börn á mömmumorgni, fólkið í
kirkjustarfi fatlaðra, félagarnir í
Kór Landakirkju og Kvenfélagi
Landakirkju, auk sóknarnefndar-
fólks og starfsfólks kirkjunnar.
Þessir hópar koma allir saman í
kirkjuna á vorhátíð næsta sunnu-
dag, messa í kirkjunni kl. 11 og
taka svo þátt í leikjum og samveru
á kirkjulóðinni eftir guðsþjónust-
una og snæða saman af útigrillinu
og/eða kaffisopa í Safnaðarheimil-
inu.
Um kvöldið verður svo haldin
kaffihúsamessa í Safnaðarheimil-
inu og hefst hún kl. 20. Kaffihúsa-
kórinn syngur undir stjórn Óskars
Sigurðssonar og prestarnir leiða
stundina í boðun orðsins, bæn og
blessun. Má því segja að Drottinn
verði lofaður í Landakirkju frá
morgni til kvölds.
Kirkjulistavika
í Akureyrarkirkju
DAGANA 28. apríl – 6. maí nk.
verður Kirkjulistavika í Akureyr-
arkirkju. Þetta er í 10. skipti sem
Akureyrarkirkja og Listvinafélag
Akureyrarkirkju standa að Kirkju-
listaviku, en hátíðin hefur verið
haldin annað hvert ár frá árinu
1989. Helstu markmið Kirkjulista-
viku hafa frá upphafi verið að efla
samvinnu og tengsl listafólks við
kirkjuna og gefa Akureyringum
kost á að njóta góðra lista í kirkj-
unni.
Dagskrá Kirkjulistavikunnar
verður fjölbreytt að vanda og hefst
hátíðin 28. apríl kl. 15 með opnun
sýningar í Ketilhúsinu. Í tilefni af
10. Kirkjulistaviku var þeim lista-
mönnum sem sýnt hafa á Kirkju-
listaviku frá upphafi boðið að taka
þátt í samsýningu og verða í Ket-
ilhúsinu sýnd verk eftir 15 lista-
menn. Sýningin, sem er í samstarfi
við Menningarmiðstöðina Listagili,
stendur til 13. maí.
Í kapellu Akureyrarkirkju verð-
ur sýningin Altarisdúkar úr kirkj-
um í Eyjafirði opnuð sunnudaginn
29. apríl kl. 16, en sú sýning er á
vegum Minjasafnsins á Akureyri.
Hinn 6. maí kl. 16 eru hátíðartón-
leikar Sinfóníuhljómsveitar Norð-
urlands með þátttöku Kórs Akur-
eyrarkirkju og Kammerkórs
Norðurlands. Á efnisskrá tónleik-
anna er Rómeó og Júlía, fantasíu-
forleikur eftir P.I. Tsjajkovskí,
Orgelkonsert eftir F.A. Guilmant
og Te Deum eftir A. Dvorak. Ein-
leikari á tónleikunum er Björn
Steinar Sólbergsson og einsöngvar-
ar Hanna Dóra Sturludóttir og
Ágúst Ólafsson. Stjórnandi er Guð-
mundur Óli Gunnarsson.
Helgihald verður verður einnig
afar fjölbreytt þessa viku. Á sunnu-
deginum 29. apríl kl. 11 verður fjöl-
skylduguðsþjónustu í Akureyrar-
kirkju, lokahátíð barnastarfsins og
taka börnin virkan þátt með leik og
söng. Guðsþjónusta að 19. aldar sið
verður í Minjasafnskirkjunni kl. 14
og um kvöldið kl. 20.30 verður
æðruleysismessa í Akureyrar-
kirkju.
Morgunsöngur verður á mið-
vikudagsmorgni, kyrrðarstund í
hádegi á fimmtudegi, og aftan-
söngur kl. 18 á föstudegi. Hátíðar-
guðsþjónusta er síðan sunnudaginn
6. maí kl. 11.
Mömmumorgunn og „opið hús“
fyrir aldraða verður einnig á sínum
stað í vikunni.
Samstarfsaðilar Akureyrar-
kirkju og Listvinafélagsins að
þessu sinni eru: Kór Akureyrar-
kirkju, Hymnodia – Kammerkór
Akureyrarkirkju, Barnakórar
Akureyrarkirkju, Stúlknakór
Akureyrarkirkju, Kammerkór
Norðurlands, Sinfóníuhljómsveit
Norðurlands, Minjasafnið á Akur-
eyri, Menningarmiðstöðin Listagili
og fjölmargir einstaklingar.
Óður til íslenskrar
náttúru – Síðasta
sýningarhelgi
NÚ eru síðustu forvöð að sjá sýn-
ingu alþýðulistakonunnar Guð-
laugar I. Sveinsdóttur, Óður til ís-
lenskrar náttúru, sem opnuð var í
Boganum í Gerðubergi 10. mars sl.
Á sýningunni má sjá abstrakt-,
landslags- og blómamyndir auk of-
inna veggteppa sem unnin eru á
síðustu árum. Náttúran og sköp-
unargleðin hafa með einum eða
öðrum hætti fylgt Guðlaugu allt
hennar líf. Sem barn sökkti hún sér
í jurtasöfnun, náttúrufræði og lest-
ur, og þær systurnar dunduðu sér
við að mála, lita og búa til klippi-
myndir. Að þessum grunni hefur
hún búið alla ævi. Árið 1982 ákvað
hún að söðla tímabundið um og fór
til Noregs þar sem hún dvaldi í eitt
ár, starfaði sem ljósmóðir og notaði
frístundir til ferðalaga en einnig til
þess að sinna áhuga sínum á mynd-
list sem svo lengi hafði blundað
með henni, en aldrei gefist tími til
að stunda. Eftir að heim kom hélt
hún áfram að sinna áhugamáli sínu
og hefur gert það æ síðan. Sjá nán-
ari upplýsingar um Guðlaugu á
heimasíðu Gerðubergs: gerduberg-
.is
Vorferð barnastarfsins
í Hjallakirkju
SUNNUDAGINN 29. apríl fer
barnastarfið í Hjallakirkju í vorferð
út fyrir bæjarmörkin. Lagt verður
af stað frá Hjallakirkju að neðan-
verðu kl. 13 og fundinn góður stað-
ur nálægt höfuðborgarsvæðinu.
Ætlunin er að grilla pylsur, leika,
syngja og gleðjast í náttúrunni.
Heimkoma er áætluð kl. 16–17. All-
ir eru velkomnir.
Barnastarfinu lýkur
í Langholtskirkju
SUNNUDAGINN 29. apríl lýkur
barnastarfinu í vetur og af því til-
efni verða pylsur grillaðar fyrir
börn sem fullorðna. Stundin hefst í
kirkjunni og síðan verður farið út í
leiki og sitt hvað fleira gert. Í mess-
unni mun ungt fólk í Fjölbrauta-
skólanum við Ármúla kynna hjálp-
arstarf sem það vinnur að í Paki-
stan og tekið verður við framlögum
til þess starfs.
Fyrsta maí messa
lögreglunnar
LÖGREGLUKÓR Reykjavíkur og
Landssamband lögreglumanna
standa fyrir sinni árlegu 1. maí
messu nk. þriðjudag kl. 11. Að
þessu sinni fer messan fram í
Digraneskirkju í Kópavogi. Prestar
verða sr. Kjartan Örn Sigurbjörns-
son sjúkrahúsprestur og prestur
lögreglunnar og sóknarprestar í
Digranessókn. Ræðumaður verður
Stefán Eiríksson, lögreglustjóri á
höfuðborgarsvæðinu. Lögreglu-
menn taka þátt í guðsþjónustunni
og Lögreglukórinn syngur. Organ-
isti verður Kjartan Sigurjónsson
Eftir guðþjónustuna verður boðið
upp á kaffiveitingar í safnaðar-
heimilinu. Allir velkomnir.
Morgunblaðið/Sigurður ÆgissonGarðakirkja á Álftanesi
AKRANESKIRKJA: | Ferming verður í Bæg-
isárkirkju sunnudaginn 29. apríl kl. 13.30.
Organisti Helga Bryndís Magnúsdóttir og
prestur sr. Solveig Lára Guðmundsdóttir.
Guðsþjónusta í Kálfatjarnarkirkju kl. 14.
AKUREYRARKIRKJA: | Fjölskylduguðsþjón-
usta kl. 11. Lokahátíð barnastarfsins.
Barnakórar Akureyrarkirkju syngja. Setning
Kirkjulistaviku 2007. Guðsþjónusta að 19.
aldar sið í Minjasafnskirkjunni kl. 14. Hym-
nodia kammerkór syngur. Æðruleys-
ismessa kl. 20.30. Kaffi á eftir.
ÁRBÆJARKIRKJA: | Guðsþjónusta kl. 11.
Sr. Þór Hauksson þjónar fyrir altari og pre-
dikar. Kristina K. Sklenár organisti, leiðir
kirkjukór og almennan safnaðarsöng.
Sunnudagaskólinn í safnaðarheimilinu.
Kirkjukaffi á eftir.
ÁSKIRKJA: | Guðsþjónusta á hjúkrunar-
heimilinu Skjóli kl. 13. Messa kl. 14. Kór
Áskirkju syngur, organisti Kári Þormar.
Aðalsafnaðarfundur Ássóknar verður hald-
inn í neðri safnaðarsal Áskirkju að messu
lokinni. Venjuleg aðalfundarstörf. Kaffi.
ÁSTJARNARSÓKN: | Guðsþjónusta í sam-
komusal Hauka, Ásvöllum kl. 11.
BESSASTAÐAKIRKJA: | Hjóna-og sambúð-
armessa kl. 20.30. Sr. Guðný Hallgríms-
dóttir flytur erindi „Er líf eftir makamissi“.
Gunnar Gunnarsson organisti leiðir tónlist-
ina ásamt Tómasi R. Einarssyni sem spilar
á bassa og Kristjönu Stefánsdóttur sem
syngur. Sr. Jóna Hrönn Bolladóttir þjónar
fyrir altari. Allir velkomnir.
BORGARNESKIRKJA: | Guðsþjónusta kl.
20.
BREIÐHOLTSKIRKJA: | Fjölskylduguðsþjón-
usta kl. 11 með fjölbreyttum söng og fjöri.
Eldri barnakór kirkjunnar syngur undir
stjórn Ástu B. Schram. Prestur sr. Bryndís
Malla Elídóttir. Tónleikar barnakórs kirkj-
unnar kl. 12.45. Aðgangur er ókeypis og
allir velkomnir. Tómasarmessa kl. 20. Lof-
gjörð, fyrirbæn og máltíð Drottins.
BÚSTAÐAKIRKJA | Barnamessa kl. 11.
Hjómsveit ungmenna undir stjórn Renötu
Ivan leikur. Þetta er samverustund fyrir alla
fjölskylduna með mikilli þáttöku barnanna.
Guðsþjónusta kl. 14, 3. sunnudagur eftir
páska. Prestur Sr. Arna Ýrr Sigurðardóttir.
Organisti: Renata Ivan. Kór Bústaðakirkju
syngur. Molasopi eftir messu.
DÓMKIRKJAN: | Kl. 11 messa, sr. Hjálmar
Jónsson predikar. Dómkórinn syngur, org-
anisti er Marteinn Friðriksson. Barnastarf á
kirkjuloftinu meðan á messu stendur.
EGILSSTAÐAKIRKJA: | Messa kl. 14. Ath.
að aðalsafnaðarfundi er frestað til 2. maí
kl. 20. Kyrrðarstund 30. apríl (mánud.) kl.
18.
FELLA- OG HÓLAKIRKJA: | Guðsþjónusta
kl. 11. Prestur er sr. Svavar Stefánsson.
Kór Fella- og Hólakirkju leiðir almennan
safnaðarsöng, stjórn. Lenka Mátéová. Vor-
ferð sunnudagaskólans verður að Sól-
heimum í Grímsnesi. Farið frá Fella-og
Hólakirkju kl. 10 (ath. breyttan tíma). Heim-
koma kl. 15 (sjá á fellaogholakirkja.is)
FÍLADELFÍA: | Bible study at 12.30 in Engl-
ish speaking Coffee and fellowship. Al-
menn samkoma kl. 16.30. Ræðum. Jón
Þór Eyjólfsson. Gospelkór Fíladelfíu leiðir
söng. Fyrirbænir í lok samkomu. Aldurs-
skipt barnakirkja 1–12 ára. Allir velkomnir.
Bein útsending á Lindinni og www.-
gospel.is. Samkoma á omega kl. 20.
FRÍKIRKJAN í Hafnarfirði: | Fjölskyldu-
messa kl. 11. Góðir gestir líta við. Umsjón
hafa Sigríður og Hera Elfarsdóttir. Tón-
listarflutning annast Örn Arnarson og
Skarphéðinn Hjartarson. Æðruleysis-
messa kl. 20. Fríkirkjubandið leiðir söng-
inn.
FRÍKIRKJAN í Reykjavík: | Almenn guðs-
þjónusta kl. 14. Sr. Ása Björk Ólafsdóttir,
þjónar. Almennan safnaðarsöng leiða Anna
Sigga og Carl Möller.
FRÍKIRKJAN KEFAS | Sunnudagaskóli kl.
11. Sögur, brúðuleikhús og leikir. Almenn
samkoma kl. 14. Helga R. Ármannsdóttir
predikar. Tónlist, fyrirbænir í lok samkomu
fyrir þá sem vilja, barnagæsla meðan á
samkomu stendur og kaffisala að henni
lokinni. Allir velkomnir.
FÆREYSKA SJÓMANNAHEIMILIÐ: |
Sunnudagin kl. 17 er samkoma í Braut-
arholti 29. Söngur og lestur. Kaffi eftir sam-
komu. Allir velkomnir.
GRENSÁSKIRKJA: | Barnastarf kl. 11 í
umsjá Jóhönnu Sesselju og unglinga í
kirkjustarfinu. Guðsþjónusta kl. 11. Prestur
sr. Ólafur Jóhannsson. Kirkjukór Grens-
áskirkju syngur. Organisti Árni Arinbjarnar-
son. Gídeonfélagar kynna starfsemi sína.
Samskot til Gídeonfélagsins. Molasopi eft-
ir messu.
GRUND, dvalar- og hjúkrunarheimili: |
Guðsþjónusta á sunnudaginn kl. 14. Séra
Hreinn Hákonarson, organisti Kjartan
Ólafsson.
HAFNARFJARÐARKIRKJA: | Guðsþjónsta
kl. 11. Prestur: Sr. Gunnþór Þ. Ingason.
Organisti: Guðmundur Sigurðsson. Fiðlu-
leikari: Hjörleifur Valsson. Einsöngvari:
Þóra Björnsdóttir, sópran. Kór: Kór Hafnar-
fjarðarkirkju. Guðsþjónustunni verður út-
varpað á Rás 1. Enskur aftansöngur kl. 17.
Sönghópurinn A Cappella syngur. Bjarni
Jónatansson leikur á orgel. Stjórnandi Guð-
mundur Sigurðsson.
HALLGRÍMSKIRKJA: | Messa og barna-
starf kl. 11. Sr. María Ágústsdóttir predikar
Ég mun sjá yður aftur
Jóh. 16
MESSUR