Morgunblaðið - 28.04.2007, Qupperneq 50
Á milli þess sem þau
velta fyrir sér „úlf-
alda“ og „þjófabálki“ botna
þau fyrripart um vestfirska
pólitík fyrr og nú …53
»
reykjavíkreykjavík
HINN árlegi Fríi myndasögudagur (Free Comic Book Day) verður haldinn hátíðlegur í versl-
uninni Nexus næstkomandi laugardag, hinn 5. maí.
Þá verða hátt í 12 þúsund myndablöð gefin gestum og gangandi en tilgangurinn er meðal
annars að breiða út boðskap myndasagna. Verslunin Nexus hefur einmitt staðið vörð um
hróður myndasögunnar hér á landi og selt þær í stórum stíl.
Teiknimyndsögur um Spider Man og fleiri ofurhetjur, Jóakim aðalönd, Simpson-fjölskyld-
una, glæpasögur og dramasögur verða meðal þess sem gefið verður næstkomandi laugardag.
Byrjað verður að gefa blöðin klukkan 14 stundvíslega og verður gefið á meðan birgðir end-
ast.
Milljónir myndasagna
Fríi myndasögudagurinn er haldinn árlega um heim allan og taka um tvö þúsund verslanir
þátt í að dreifa myndasögublöðum ókeypis til áhugasamra.
Hinn gjafmildi dagur er nú haldinn í sjötta sinn en talið er að hátt í tvær milljónir mynda-
sögublaða rati í hendur lesenda, þeim að kostnaðarlausu á laugardaginn kemur.
Morgunblaðið/Golli
Í fyrra Allir vilja fá gefins myndasögublöð, meira að segja stormsveitarmenn úr Stjörnustríði.
Jóakim aðalönd gefins
Nexus tekur þátt í alþjóðlegum myndasögudegi
Það eru
alltaf tíðindi
þegar japanski
rithöfundurinn
Haruki Mura-
kami sendir
frá sér bók en
tólfta skáld-
saga hans er
einmitt vænt-
anleg 8. maí næstkomandi.
Skáldsagan heitir After Dark
upp á ensku og segir sögu tveggja
systra, Mari og Eri. Sagan gerist á
sjö tímum að nóttu til í Tókýó-
borg og Mari er á ferðinni, vill
ekki fara að sofa. Eri er aftur á
móti sofandi, sísofandi, en sá svefn
er ekki friðsæll eða eðlilegur.
Smám saman slást fleiri í hópinn,
Mari hittir djasstónlistarmann,
kínverska vændiskonu, eiganda
hótels fyrir skyndikynni og svo má
telja. Murakami kom hingað til
lands fyrir nokkrum árum á bók-
menntahátíð og vakti mikla at-
hygli.
Ný skáldsaga frá
Haruki Murakami
Þýska blaðið Musik Woche sótti
tónlistarhátíðina Aldrei fór ég suð-
ur í ár og nú á dögunum birtist heil-
síðugrein um hátíðina og nýstofn-
aða Útflutningsskrifstofu
íslenskrar tónlistar (ÚTÓN) . Þar
er Pétri Ben og Lay Low lýst sem
hápunkti hátíðarinnar og tónlist-
arsenan öll sögð mjög öflug á Ís-
landi og ekkert lát á nýju efnilegu
tónlistarfólki.
Í framhaldinu mun Musik Woche
gera ítarlega úttekt á íslensku tón-
listarlífi sem birtist tveimur vikum
fyrir Popkomm tónlistarráðstefn-
una sem fer fram í september en
þar verður ÚTÓN með þjóðarbás á
ráðstefnunni í fyrsta skipti.
Music Woche hrifið
Eftir Jóhann Bjarna Kolbeinsson
jbk@mbl.is
„ROKK og rósir, sem er náttúrlega aðalsk-
vísubúðin í bænum, er að fara að flytja á
fyrstu hæðina, ásamt Smekkleysu. Svo verður
strákabúð niðri sem Krummi í Mínus hefur
rekið fyrir okkur, hún heitir Elvis. Svo opn-
um við nýja búð sem heitir Pop á efri hæð-
inni,“ segir Sara Oddsdóttir, sem hefur yf-
irumsjón með þessum fjórum verslunum sem
frá og með deginum í dag eru í sama húsnæð-
inu við Laugaveg 28, í sama húsi og áður
hýsti verslunina Ósóma.
„Það á að vera allt sem maður þarf í þessu
húsi. Fólk getur sest niður og fengið sér kaffi
og mömmur geta gefið brjóst. Þarna verður
líka góð tónlist því tónlist og flott föt eru
mjög tengd í tískuheiminum,“ segir Sara sem
sér um að reka húsið í heild sinni. Ólíkt Rokki
og rósum, Elvis og Smekkleysu er Pop ný
verslun. „Þar verðum við mikið með gamla
hluti, veggfóður, gardínur, mottur og púða,
sem sagt hluti fyrir heimilið. Svo verðum við
með föt líka, en einnig tækifærisgjafir, allt
frá fermingargjöfum yfir í sniðugar gjafir til
að koma með í matarboð ef mann langar til
að koma með eitthvað annað en rauðvíns-
flösku,“ segir Sara, en þau Svala Björgvins-
dóttir og Einar Egilsson sjá um þá verslun.
Opnunarpartí í dag
Aðspurð segir Sara að verslanirnar muni
halda nöfnum sínum því ekki sé búið að finna
eitt nafn fyrir allar verslanirnar. „Það er hins
vegar gamalt port þarna, en ég veit samt ekki
hvort það mætti kalla þetta Porthúsið,“ segir
hún í léttum dúr.
Pop, Rokk og rósir og Elvis eru reknar af
sama aðilanum, en Smekkleysa er sjálfstæð
verslun. „Þetta eru samt fjórar sjálfstæðar
búðir. Rokk og rósir er bara með kvenfatnað,
Elvis bara með fatnað fyrir karlmenn, Smekk-
leysa með tónlist og Pop með eitt og annað,“
segir Sara, og bætir við að töluverðar fram-
kvæmdir hafi staðið yfir í húsnæðinu að und-
anförnu þannig að nú sé innangengt á milli
allra verslananna. „Það eru bara einar dyr og
þá er maður kominn inn í allar búðirnar.“
Í tilefni af opnuninni í dag verður boðið til
samkvæmis í húsnæðinu og eru allir velkomn-
ir. „Við ætlum að vera með svakalegt opn-
unarpartí,“ segir Sara, en húsið verður opið
frá 17 til 20. „Það verða léttar veitingar í
boði og DJ Casanova ætlar að spila tónlist.“
Verslanirnar verða einnig opnar á morgun
frá klukkan 13 til 18.
Morgaunblaðið/RAX
Fjölmenni Þessi litríki hópur mun starfa saman undir sama þaki við Laugaveg 28 þar sem boðað hefur verið til veislu frá 17 til 20 í kvöld.
Töff tónlist og tíska
Verslanirnar Rokk og rósir, Smekkleysa, Elvis og Pop í eina sæng við Laugaveg