Morgunblaðið - 28.04.2007, Page 53
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 28. APRÍL 2007 53
Reykjavíkurborg hefur ákveðið að gera átak í
merkingamálum borgarinnar og fjölga umhverfis,-
náttúru- og menningarmerkingum. Lumar þú á
hugmynd um merkilegan stein, stokk, stræti,
styttu, staur eða annað sem merkja mætti til að
veita íbúum borgarinnar og ferðalöngum öllum
betri innsýn í allt það góða, fróðlega og skemmti-
lega sem borgin okkar hefur að bjóða? Við biðjum
ykkur um að ganga til liðs við okkur í að gera
Reykjavík enn áhugaverðari. Skrifið niður merkilega
hugmynd og nokkrir heppnir fá spennandi vinning
sem veitir innsýn í fjölbreytni ferðaþjónustunnar á
höfuðborgarsvæðinu. Sendu tillögu eða
hugmynd á Höfuðborgarstofu, Aðalstræti 2,
101 Reykjavík eða sendu okkur tölvupóst á
info@visitreykjavik.is merkt hugmyndaleit
og athugaðu hvort lukkan leiki við þig.
Skilafrestur til 4. maí.
menningar- &
ferðamálasvið
reykjavíkurborgar
Hversu
merkileg er
Reykjavík?
Glæsilegir Vinningar: Ævintýri í Kulusuk í
einn dag fyrir einn með Flugfélagi Íslands •
Flugfar að eigin vali innanlands með Flugfélagi
Íslands • Hvalaskoðun frá Reykjavík fyrir tvo
fullorðna og tvö börn með Hvalaskoðun
Reykjavík • Hestaferð um hafnfirskt hraun
með Íshestum • Mánaðarkort í World Class í
Laugum • Heimsókn í baðstofu heilsulindar í
Laugum fyrir tvo • Kvöldverður fyrir 2 að
verðmæti 12.000 kr. á veitingastaðnum Einar
Ben • Árskort í sundlaugar Reykjavíkur •
Þórsmerkurferð með Kynnisferðum, rútuferð
og gisting fyrir tvo í Húsadal.
Hugmyndaleit
Ármúla 42 · Sími 895 8966
mánudaga - föstudaga 10-18
laugardaga og sunnudaga 11-18Opið
Sumartilboð
á Postulín blómapottum
30-50%
afsláttur
Fjölbreytt úrval
Feng-Shui vörum
Í DAG verður þátturinn Orð skulu
standa sendur út frá Ísafirði. Gestir
eru Halldór Hermannsson skipstjóri
og Ólína Þorvarðardóttir þjóðfræð-
ingur. Á milli þess sem þau velta fyr-
ir sér m.a. „úlfalda“ og „þjófabálki“
botna þau fyrripart um vestfirska
pólitík fyrr og nú. Hann er ortur í
vestfirskum stíl og eru lesendur
beðnir að taka skensið ekki alvar-
lega, um leið og þeir heiðursmenn
eru beðnir afsökunar á dónaskapn-
um:
Nú vantar Hermann og Hannibal
og helvítin Karvel og Matta.
Í síðustu viku var fyrriparturinn
ortur um yfirbragð Djúpavogsbúa:
Dökkt er hárið, dimm er brá
Djúpavogs- á kyni.
Í þættinum botnaði Hlín Agnars-
dóttir:
Fólk er margt þar franskt að sjá,
fegurð í hverjum syni.
Sigurður Ingólfsson botnaði undir
„sleikjuhætti“ og hlaut prik fyrir hjá
umsjónarmanni:
En karlmannleg og klassísk á
Karli Birgissyni.
Davíð Þór Jónsson botnaði fyrst:
Því frúrnar allar fór þar á
fransmaðurinn lini.
En sá sig svo um hönd:
Eins og flesta eigi þá
Emiliana Torrini.
Þorsteinn Bergsson var með hug-
ann við Baugsmálið:
Ennþá má það allvel sjá
á ónefndum þess syni.
Úr hópi hlustenda hélt Halldór
Ármannsson áfram með „ónefndan“:
Heilinn klár og höndin blá
hrausta prýða syni.
Pálmi R. Pétursson:
Þar er biskví Frökkum frá
og Fransmenn eiga syni.
Marteinn Friðriksson m.a.:
Á öllum fjörðum austurfrá
áttu fransmenn syni.
Sigurlín Hermannsdóttir:
Víst mun ættin vera frá
Vestur-Indía syni.
Jónas Frímannsson:
Rætur víða rekja má
að ríkum ættarhlyni.
Hallberg Hallmundsson:
Eflaust keltneskt, eða þá
upprunnið úr Hvini.
Halldór Halldórsson:
Annars staðar ekki má
eignast betri vini.
Og loks Auðunn Bragi Sveinsson
m.a.:
Þeim skal ekki þetta lá;
þeir eiga marga vini.
Orð skulu standa sendur út frá Ísafirði
Biðjumst vel-
virðingar á
dónaskapnum
Hlustendur geta sent sína botna í
netfangið ord@ruv.is eða bréfleiðis
til Orð skulu standa, Ríkisútvarp-
inu, Efstaleiti 1, 150 Reykjavík.
LANGT viðtal birtist við Björk Guð-
mundsdóttur í breska blaðinu Guard-
ian í gær í tilefni af væntanlegri plötu
hennar, Volta. Í viðtalinu fjallar hún
m.a. um það sem hafði áhrif á hana
við gerð plötunnar og segir að hugs-
anlega hafi gremja vegna stóriðju-
framkvæmda á Íslandi komið þar við
sögu og það að vera Íslendingur.
Björk segir að Ísland sé heimaland
hennar; hún dvelji þar oft og muni
gera það áfram en sú ímynd sem það
skapi henni að vera Íslendingur sé
flókin. Hún segist hugsanlega hafa
verið að gefa yfirlýsingu á fyrstu
plötu sinni, Debut: „Að ég gæti verið
afar íslensk en jafnframt afar alþjóð-
leg. Það þarf ekki vera annaðhvort,“
segir hún.
Blaðamaðurinn, Laura Barton,
segir að umheimurinn hafi hins vegar
litið á Björk sem einskonar furðu-
veru. Björk segir að sér þyki áhuga-
vert hvernig sú ímynd hafi verið búin
til að Íslendingar trúi á álfa og séu af-
ar barnaleg þjóð. „Og ég er á móti
því,“ segir hún. „Ég sagði aldrei í við-
tölum að ég hefði séð álfa, ég hef
aldrei séð álfa. Tolkien byggði
Hringadróttinssögu á Íslandi og
kannski yfirfæra margir enskumæl-
andi menn þá sögu yfir á Ísland.“
Hún segir að Ísland sé að breytast.
„Nú hafa þeir byggt stærstu stíflu
heims á Íslandi og stærsta álverið og
á næstu fimm árum ætla þeir að
byggja fimm í viðbót. Eftir 5–10 ár
verður Ísland, sem áður var stærsta
ósnortna víðerni í Evrópu, eins og
Frankfurt.“
„Mér finnst að ef Ísland vilji græða
fullt af peningum og hafa starfsemi
um allan heim þá sé það síðasta sem
það eigi að gera að eyðileggja náttúr-
una. Það þarf ekki snilling til að átta
sig á því. Og samt var það fyrsta sem
Íslendingar gerðu eftir að þeir fengu
sjálfstæði og peninga að segja: Við
skulum eyðileggja landið!“
Björk segir síðan að hugsanlega
séu vangaveltur á nýju plötunni um
að vera úti á hafinu einnig vangavelt-
ur um þessa hluti. „Og kannski um að
vera þreyttur á þjóðernishyggju.“
Gremst stóriðjufram-
kvæmdir á Íslandi
Morgunblaðið/Eggert Jóhannesson
Björk Hefur aldrei séð álfa.
Viðtal við Björk
í Guardian
AUGLÝSINGASÍMI 569 1100
Fréttir á SMS