Morgunblaðið - 28.04.2007, Síða 60
LAUGARDAGUR 28. APRÍL 118. DAGUR ÁRSINS 2007
»MEST LESIÐ Á mbl.is
»VEÐUR mbl.is
5 6 9 1 1 0 0
Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is
Auglýsingar: augl@mbl.is
Áskrift: askrift@mbl.is | sími 5691100
mbl.is: netfrett@mbl.is
Í LAUSASÖLU 200 ÁSKRIFT 2650 HELGARÁSKRIFT 1600 PDF Á MBL.IS 1700
SPARIÐ MEIRA EN HELMING MEÐ ÁSKRIFT
Morgunblaðið bíður
eftir þér þegar þú
vaknar á morgnana
ÞETTA HELST»
Með jafnmikið fylgi
SAMFYLKINGIN og Vinstri
grænir mælast með jafnmikið fylgi,
21,2 prósent, á landsvísu, í nýrri
skoðanakönnun Capacent Gallup
fyrir Morgunblaðið og Rík-
isútvarpið. Ríkisstjórnin heldur
naumlega velli og Frjálslyndir fá
þrjá menn kjörna, en Íslandshreyf-
ingin nær ekki mönnum á þing. »4
Uppsagnir í Bolungarvík
ERFIÐUR rekstur rækjuvinnslu
Bakkavíkur hf. í Bolungarvík hefur
neytt fyrirtækið til þess að segja upp
48 af 60 starfsmönnum. »2
FL Group fjárfestir
FL GROUP hefur keypt þrjú pró-
sent bréfa í þýska bankanum Com-
merzbank en markaðsvirði hlutarins
er um 63,5 milljarðar króna. »14
Al-Qaeda-liði gómaður
TALSMENN bandaríska varn-
armálaráðuneytisins skýrðu frá því í
gær að einn æðsti leiðtogi al-Qaeda-
netsins hefði verið fluttur til Guant-
anamo. Á sama tíma var greint frá
fjöldahandtökum í Sádi-Arabíu. »16
SKOÐANIR»
Ljósvaki: Kvenmannslaus …
Staksteinar: Rauður, grænn og blár
Forystugreinar: Fjármunir og
mannúð | Efling Fjármálaeftir-
litsins
UMRÆÐAN»
Umferðarslys – heilbrigðisvandamál
Þvílík heppni
Ætli kjósendur séu SVONA …?
Alþingiskosningar
Lesbók: Á leiðinni upp
Börn: Bara fimleikar
Enski: Það var Alan Ball sem gerði
gæfumuninn á Wembley
LESBÓK | BÖRN | ENSKI »
3 9 %
- *
: 1 7 "0 0"
0"
0
0
0 0"
"0 0
0
0 0 0
0 0""
,
;(7 %
"0
0 0 0
0" 0"
0
<=>>5?2
%@A?>24:%BC4<
;545<5<=>>5?2
<D4%; ;?E45
4=?%; ;?E45
%F4%; ;?E45
%82%%41 G?54;2
H5B54%;@ HA4
%<?
A8?5
:A4:2%8*%2@5>5
Heitast 16 °C | Kaldast 6°C
SA 8–13 m/s suðvest-
an til en annars mun
hægari sunnanátt.
Léttskýjað norðan- og
austanlands. » 10
Birta Björnsdóttir
fjallar um nýja birt-
ingarmynd einnar
þreyttustu og
ófyndnustu mýtu
samtímans. » 54
AF LISTUM»
Bannað að
fara í golf
TÓNLIST»
Fjórða plata Mínuss
kemur út 14. maí. » 55
Heiðursmennirnir
Karvel og Matti eru
beðnir afsökunar á
dónaskapnum í
fyrriparti vikunnar á
Rás 1. » 53
ÚTVARP»
Orð standa
á Ísafirði
LJÓл
Þrjú bretónsk ljóðskáld
lesa upp. » 57
TÓNLIST»
Ruglingslegir Skátar fá
fjórar stjörnur. » 54
reykjavíkreykjavík
VEÐUR»
1. Fannst liggjandi í blóði sínu
2. Handtökuskipun á Gere vekur …
3. Björk lekur
4. Ferðast um heiminn á vélhjólum
SELLÓSNILLINGURINN og
hljómsveitarstjórinn Mstislav Rost-
ropovits, sem lézt í gær, kom í tví-
gang til Íslands og lék á tónleikum.
Guðný Guð-
mundsdóttir,
konsertmeistari
Sinfóníuhljóm-
sveitar, kynntist
Rostropovits
bæði í starfi og
persónulega og
þegar þau sátu
saman í dóm-
nefnd í Bergen
sagði hann henni,
að í sambandi við leiðtogafundinn í
Höfða hefði hann hringt í Ronald
Reagan Bandaríkjaforseta og beðið
hann að tala máli sínu við Gorbac-
hev, forseta Sovétríkjanna, að hann
leyfði fjölskyldu Rostropovits að
fara frá Sovétríkjunum og heim-
sækja hann á sextugsafmælinu. Af
því varð þó ekki.
Rostropovits hafði skyr, sem
hann kynntist á Gljúfrasteini, í há-
vegum og hann pantaði hljómsveit-
arverk hjá Jóni Nordal og stjórnaði
frumflutningi þess í Washington
1982. | Miðopna
Leitaði lið-
sinnis Reag-
ans í Höfða
Mstislav
Rostropovits
FASTEIGNAFÉLAG Íslands ráðger-
ir að reisa 28 hæða turn á lóð félags-
ins sunnan við Smáralind, skv. heim-
ildum Morgunblaðsins. Turninn yrði
yfir 100 metra hár og þar með hæsta
hús á Íslandi. Fleiri turnar munu
einnig rísa á lóðinni gangi áætlanir
félagsins eftir.
Pálmi Kristinsson, framkvæmda-
stjóri félagsins, segir afar hentugt að
byggja háhýsi á þessu svæði enda sé
það í „miðju höfuðborgarsvæðisins“.
Gunnar I. Birgisson, bæjarstjóri
Kópavogs, segir markaðinn kalla eft-
ir því að byggt sé hátt og nefnir að
eldra fólk sem sé að flytja úr einbýlis-
húsum vilji gjarnan fara í háhýsi þeg-
ar það minnki við sig. | 12
Hæsti turninn
100 metrar
BÚAST má við að þingstörf verði aðeins líflegri með
haustinu þegar nemendur efstu bekkja grunnskóla lands-
ins munu sækja þing og stunda þingstörf á hverjum degi.
Sólveig Pétursdóttir, forseti Alþingis, kynnti í gær
skólaþing í húsakynnum þess í Austurstræti 8–10. Skóla-
þing er kennsluver Alþingis fyrir nemendur í efstu bekkj-
um grunnskóla sem verður opnað í haust. Þar munu nem-
endur fara í hlutverkaleik og fylgja að mestu leyti þeim
starfsháttum sem ríkja á Alþingi.
Í ræðu sinni sagðist Sólveig hafa ákveðið að beita sér
fyrir því að Skólaþingi yrði komið á fót hér á landi eftir að
hafa kynnst hugmyndinni í heimsókn sinni til Kaup-
mannahafnar haustið 2005. Skólaþingi var fyrst komið á
laggirnar við danska þingið árið 2003 en síðan hafa bæði
Norðmenn og Svíar komið slíku þingi á og hefur það
mælst afar vel fyrir.
Mikill áhugi hefur verið á því meðal skóla að heimsækja
Alþingi í vettvangsferðum og munu um þrjú þúsund nem-
endur hafa heimsótt það á síðasta ári. Kennsluverinu er
ætlað að koma til móts við þennan áhuga. Hefðbundnar
skoðunarferðir verða þó enn í boði og er skólum frjálst
hvorn kostinn þeir velja en eitt markmiða með Skóla-
þinginu er að auka fjölbreytni í fræðslu um Alþingi. Gert
er ráð fyrir að einn bekkur komi í heimsókn í einu og sitji á
þingi í tvær og hálfa klukkustund.
Þingmaður, bjalla, bók og taska
Efnt var til samkeppni um merki þingsins og hana vann
Hafþór Smári Sigþórsson, nemi í 10. bekk Vallaskóla á
Selfossi. Í samtali við Morgunblaðið segir Hafþór að
myndmenntarkennari sinn hafi sett bekknum það fyrir að
búa til merki. „Ég hugsaði aðeins um merkið og teiknaði
það. Það er byggt upp eins og landvættamerkið aftan á
peningum en í staðinn fyrir landvættirnar eru þingmaður,
bjalla, bók og taska,“ segir Hafþór. Hann segist teikna
mikið en í verðlaun fékk hann Ritsafn Snorra Sturlusonar
og gjafakort í myndlistarvöruverslun.
Skólakrakkar á þing
Ungur Selfyssingur, Hafþór Smári Sigþórsson,
sigraði í samkeppni sem efnt var til um merki þingsins
Morgunblaðið/Kristinn
Hönnuðurinn og forsetinn Hafþór Smári Sigþórsson
og Sólveig Pétursdóttir við merki Skólaþings.
Í TENGSLUM við samkeppni Lýðheilsustöðvar um
reyklausan bekk buðu nemendur 7HJ í Ölduselsskóla
vegfarendum í verslunarmiðstöðinni í Mjóddinni
pylsu og kók í skiptum fyrir minnst fimm sígarettur.
Eitthvað urðu þó viðskiptin dræmari en til stóð og
brugðu þá nemarnir á það ráð að verðlauna reyk-
lausa gesti Mjóddarinnar með þjóðarréttinum sí-
vinsæla.
Gestir og gangandi þáðu veitingarnar með mikilli
ánægju.
BUÐU PYLSUR OG KÓK Í STAÐINN FYRIR SÍGARETTUR
Morgunblaðið/Kristinn
Reyklaus ungmenni í átaki
♦♦♦
VERSLANIRNAR Rokk og rósir,
Smekkleysa og Elvis hafa allar ver-
ið fluttar í sama húsnæði sem einn-
ig hýsir nýja verslun sem ber heitið
Pop.
„Það á að vera allt sem maður
þarf í þessu húsi,“ segir Sara Odds-
dóttir sem hefur yfirumsjón með
verslununum fjórum sem eru til
húsa á Laugavegi 28.
Verslanirnar fjórar verða opn-
aðar í dag klukkan 17 með sam-
kvæmi sem er öllum opið. | 50
Tónlist og tíska