Morgunblaðið - 18.06.2007, Side 18
Um helgina lauk tískuvikunni íSao Paulo í Brasilíu þar sem
hönnuðir kynntu línu sína fyrir
sumarið 2008. Hönnuðurinn
Lino Villaventura ákvað að
hafa hvíta litinn í hávegum og
vöktu flíkurnar óskipta athygli
gestanna. Nokkrar þeirra gætu
hæglega passað fyrir konur og
karla sem ætla að ganga í það heil-
aga að ári.
|mánudagur|18. 6. 2007| mbl.is
daglegtlíf
Margir hafa sperrt eyrunvið auglýsingum ígömlu góðu Gufunni aðundanförnu, Rík-
isútvarpinu, þar sem hinn eini sanni
köngulóarmaður býður fram þjón-
ustu sína. Ekki þó til að bjarga börn-
um úr neyð eða firra heiminn ill-
virkjum glæpamanna heldur frelsar
hann húseigendur frá ágangi marg-
fættra skordýra, sem herja á hús-
veggi og þök á sumrin.
Maðurinn á bak við köngulóar-
manninn heitir Ólafur Sigurðsson og
er meindýraeyðir enda skrýðist
hann ekki sömu glæsiklæðum og
fyrirmyndin vestan hafs. „Neinei,“
segir hann hlæjandi inntur eftir
þessu atriði. „Ég er nú bara í regn-
galla.“ Aðspurður segir hann köngu-
lær eiga það til að gera húseigendum
lífið leitt að sumri til. „Ekki mjög
víða en þó er alltaf meira um þetta á
hverju ári. Sum hús geta orðið mjög
slæm því húsbyggingin er góður
staður fyrir köngulær að spinna vefi
sína. Svo finna þær skjól á syllum og
undir klæðningum.“
Glíma fram eftir sumri
Vopnin sem Ólafur notar í barátt-
unni við köngulærnar er úðunartæki
og sérstakt eitur sem kvikindin
mega sín lítils gegn. „Ef þetta er
gert með réttum efnum og á réttan
hátt á eitrið að duga allt sumarið og
oft ná þær sér ekki upp næsta sum-
ar. Efnið er langverkandi og því er
úðað inn í kverkar og undir syllur en
það þýðir ekkert að úða því á veggi
því þá skolast það bara niður í næstu
dembu.“ Og þótt andstæðingurinn
sé smærri í sniðum en óvinir hins er-
lenda köngulóarmanns er hann oft á
tíðum engin smásmíði á íslenskan
mælikvarða. „Stundum heyrir mað-
ur dynkina þegar þær detta niður
dauðar,“ segir Ólafur. „Enda geta
þetta orðið stórar og feitar hlussur
þegar liðið er á sumarið.“
Köngulærnar byrja að láta á sér
kræla á vorin og glíman við þær
stendur fram eftir sumri en að sögn
Ólafs herja mismunandi meindýr á
mannfólkið á mismunandi tímum.
„Um það bil sem vorið tekur að
vakna fer fólk að hringja út af stara-
flónni. Þá þarf að eitra fyrir hana og
tryggja að fuglinn byggi ekki hreið-
ur á húsunum. Svo er byrjað að
hringja út af köngulónum og það
nær saman að þegar staraflóaeitrun
fer að minnka fer geitungurinn á
stjá.“
Á undan mannfólkinu
Þá er alltaf nokkuð að gera hjá
Ólafi út af silfurskottum og bjöllum.
„Fólk verður vart við bjöllurnar í
gluggunum á vorin og fram eftir
sumri en hinn hluta ársins eru þær á
lirfustiginu og forðast ljósið svo eng-
inn veit af þeim. Þegar tekur að
kólna með haustinu fer fólk að
hringja út af músum sem leita þá inn
í hús, sérstaklega í nýjum hverfum
því þær áttu þar heima á undan
mannfólkinu.“ Rottur eru þó ekki á
verksviði Ólafs því Reykjavíkurborg
sinnir öllum útköllum vegna þeirra.
En skyldi Ólafur eiga sér eitt-
hvert uppáhaldskvikindi, sem hon-
um finnst ef til vill skemmtilegra að
fást við en önnur? „Það væru þá
helst geitungarnir,“ svarar hann,
„Og köngulærnar, því það er svo
gaman að vinna í fallegum görðum
hjá fólki. Mér finnst nefnilega
skemmtilegast að vinna úti – sum-
arið á Íslandi er svo dásamlegt – það
er bara þannig.“
Ekki svífandi ofurhetja
Köngulóarmaðurinn íslenski er nú bara í regngalla og
notar engin viðlíka tól og starfsbróðir hans í útlönd-
um. Bergþóra Njála Guðmundsdóttir komst að því að
það heyrist dynkur þegar feitar og pattaralegar
köngulær detta niður dauðar.
Morgunblaðið/Ingó
Spunadrottning Þótt köngulær séu meinleysisgrey getur orðið of mikið af hinu góða þegar þær eru margar saman.
Morgunblaðið/Golli
Venjulegur Íslenski köngulóarmaðurinn heitir Ólafur Sigurðsson.
Morgunblaðið/Golli
Úðar Skot og syllur eru upplagðir
staðir fyrir köngulær að fela sig.
Brúðkaup Þessi kjóll myndi sóma
sér vel á kirkjugólfinu.
ReutersFramandi Herrar
klæddir í hvítu lín-
una frá Lino Villa-
ventura. Ekki alveg
víst að íslenskir
karlmenn myndu
ganga með höf-
uðfötin.
Hönnuðurinn
Lino Villavent-
ura veðjar á
hvíta litinn fyr-
ir næsta sumar.
Hvítt í Brasilíu
Sumarlegt Höfuðfatið
er síður en svo látlaust
en tignarlegt.
ben@mbl.is