Morgunblaðið - 18.06.2007, Qupperneq 33
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 18. JÚNÍ 2007 33
árnað heilla
ritstjorn@mbl.is
Félagsstarf
Aflagrandi 40 | Vinnustofan opin frá kl. 9-16.30.
Viðtalstími hjúkrunarfræðings frá kl. 9-11. Boccia
kl. 10. Félagsvist kl. 14.
Árskógar 4 | Bað kl. 8-16. Handavinna kl. 9-12.
Smíði/útskurður kl. 9-16.30. Félagsvist kl. 13.30.
Bólstaðarhlíð 43 | Ferð að Skógum undir Eyjafjöll-
um fimmtudaginn 21. júní. Kaffihlaðborð í Drangs-
hlíð. Lagt af stað kl. 12.30. Allir velkomnir. Uppl. og
skráning í síma 535 2760.
Dalbraut 18-20 | Brids alla mánudaga í sumar frá
kl. 13 í félagsmiðstöðinni að Dalbraut 18-20.
Félag eldri borgara í Kópavogi | Skrifstofan Gull-
smára 9 er opin mánudaga og miðvikudaga kl. 10-
11.30. S. 554 1226. Skrifstofa FEBK í Gjábakka er
opin á miðvikudögum kl. 13-14. Félagsvist er spiluð
í Gullsmára á mánudögum kl. 20.30, en í Gjábakka
á miðvikudögum kl. 13 og á föstudögum kl. 20.30.
Félag eldri borgara, Reykjavík | Brids spilað kl. 13.
Félagsheimilið Gjábakki | Handavinnustofan opin,
leiðbeinandi verður til hádegis. Lomber kl. 13.
Kanasta kl. 13.15. Heitt á könnunni til kl. 16, hægt
að kíkja í blöðin, taka í spil eða bara ræða málin.
Félagsmiðstöðin Gullsmára 13 | Kl. 10 ganga, kl.
11.40 hádegisverður, kl. 20.30 félagsvist FEBK. Að-
staða til að taka í spil. Kaffi og meðlæti fáanlegt
alla virka daga.
Félagsstarf Gerðubergs | Kl. 9-16.30 vinnustofur
opnar. Frá hádegi spilasalur opinn. Á morgun kl. 13
verður púttvöllur við Breiðholtslaug tekinn form-
lega í notkun. Miðvikud. 20. júní Jónsmessufagn-
aður í Básnum, lagt af stað kl. 13.15 skráning hafin,
allir velkomnir. S. 575 7720.
Hraunbær 105 | Kl. 9 kaffi, spjall, dagblöðin. Kl. 9-
16.30 opin vinnustofa. Kl. 10-11 bænastund. Kl. 12-
12.30 hádegismatur. Kl. 15 kaffi.
Hvassaleiti 56-58 | Jóga kl. 9-11, Sóley Erla. Böð-
un fyrir hádegi. Hádegisverður kl. 11.30. Frjáls
spilamennska kl. 13-16. Fótaaðgerðir s. 588 2320.
Blöðin liggja frammi.
Langahlíð 3, félagsmiðstöð | Handverks- og bóka-
stofa kl. 13. Kaffiveitingar kl. 14.30. Söng og sam-
verustund nánar auglýst á töflu. Uppl. í síma 552-
4161.
Vesturgata 7 | Kl. 9-16 hárgreiðsla og fótaaðgerð-
ir. Kl. 9.15-15.30 handavinna. Kl. 9-10 boccia, Sig-
urrós (júní). Kl. 11-12 leikfimi, Janick (júní-ágúst). Kl.
11.45-12.45 hádegisverður. Kl. 14.30-15.45 kaffi-
veitingar.
Vitatorg, félagsmiðstöð | Smiðja kl. 9, morgun-
stund kl. 9.30, boccia kl. 10, hárgreiðslu og fótaað-
gerðarstofur opnar frá kl. 9, handavinnustofa opin
allan daginn, frjáls spilamennska kl. 13-16.30.
Þórðarsveigur 3 | Kl. 10 félagsráðgjafi (annan
hvern mánudag til 18. júní). Kl. 13 leikfimi (Berg-
þór). Kl. 14 boccia (Bergþór).
Kirkjustarf
Akureyrarkirkja | Kvöldkirkjan er opin frá kl. 17-
22. Sr. Jóna Lísa Þorsteinsdóttir er til viðtals í
kirkjunni og eftir samkomulagi í síma 858 7282.
Kvöldbænir kl. 20. Verið velkomin.
60ára afmæli. Í dag, 18.júní, er Pétur Emils-
son sextugur. Hann er stadd-
ur á Vík í Mýrdal. Sími hans
er 699 7760.
Hlutavelta | Þessir duglegu
krakkar, Elín Sóley Hrafn-
kelsdóttir, Eysteinn Hrafn-
kelsson og Kjartan Bjarmi
Árnason, héldu tombólu hjá
Nóatúni við Hamraborg í
Kópavogi og söfnuðu 10.060
krónum til styrktar Rauða
krossi Íslands. Peningarnir
koma að góðum notum og
þakkar Rauði krossinn þeim
kærlega fyrir.
dagbók
Í dag er mánudagur 18. júní, 169. dagur ársins 2007
Orð dagsins: Úr fjarlægð birtist Drottinn mér: „Með ævarandi elsku hef ég elskað þig. Fyrir því hefi ég látið náð mína haldast við þig.“ (Jer. 31, 3.)
Verndarvættirnar eru nýstofn-aður samstarfsvettvangurSamtakanna ’78 og AmnestyInternational á Íslandi: „Með
samstarfinu viljum við efla alþjóðlega
mannréttindabaráttu samkyn-
hneigðra,“ segir Hilmar Magnússon,
alþjóðafulltrúi Samtakanna ’78, en
hann stýrir Verndarvættunum ásamt
Írisi Ellenberger, aðgerðastjóra hjá
Amnesty. „Réttindabarátta samkyn-
hneigðra á Íslandi hefur skapað upp-
lýst og vinsamlegt samfélag þar sem
mannréttindi samkynhneigðra eru
vernduð. Nú gefst tækifæri á að rétta
þeim hjálparhönd sem ekki hefur geng-
ið jafnvel og okkur.“
Mjög víða er staða samkynhneigðra
mjög slæm: „Samkynhneigð er ólögleg
í yfir 100 ríkjum og varðar viðurlögum
allt frá sektum til aftöku,“ segir Hilm-
ar. „Í mörgum löndum standa stjórn-
völd beint eða óbeint fyrir pyntingum,
ólöglegu varðhaldi og barsmíðum á hin-
segin fólki, og eru þá enn ónefnd minni
mannréttindabrot, mótlæti og mis-
munun sem samkynhneigðir víða um
heim þurfa að fást við dags daglega.“
Hilmar segir ekki þurfa að leita langt
til að finna alvarleg dæmi: „Er
skemmst að minnast atburða í Fær-
eyjum sem þó urðu, m.a. fyrir þrýsting
frá öðrum þjóðum, til þess að Fær-
eyingar bættu löggjöfina hjá sér,“ segir
Hilmar. „Staðan er alvarleg í mörgum
nýjum Evrópusambandslöndum og
Rússlandi. Í Póllandi fara yfirvöld fyrir
flokki hatursmanna hinsegin fólks og í
mörgum löndum A-Evrópu er veist að
göngufólki í gay-pride-göngum með of-
beldi, kastað í það steinum og jafnvel
mannasaur.“
Starfsemi Verndarvættanna verður
einkum þríþætt: „Við stöndum mann-
réttindavakt og nýtum þar víðtækt
upplýsinganet Amnesty. Við vekjum
athygli fjölmiðla á málum og sendum
ályktanir til viðkomandi stjórnvalda
eða hópa,“ segir Hilmar. „Einnig vilj-
um við fá íslensk stjórnvöld til liðs við
okkur og hvetja fulltrúa Íslands er-
lendis til að vekja máls á mannréttinda-
brotum gegn samkynhneigðum, og eins
þegar fulltrúar erlendra ríkja heim-
sækja okkur.“
Verndarvættirnar halda fund í kvöld,
18. júní, kl. 20.30 í húsnæði Samtak-
anna ’78, Laugavegi 3, 4. hæð. Er fund-
urinn öllum opinn.
Mannréttindi | Samstarf um alþjóðlega réttindabaráttu samkynhneigðra
Víða framin alvarleg brot
Hilmar Magnús-
son fæddist á Ísa-
firði 1976. Hann
lauk stúdentsprói
frá MÍ 1997, BA-
prófi í arkitektúr
frá Arkitektskolen
í Árósum 2001 og
leggur nú stund á
meistaranám í al-
þjóðasamskiptum við HÍ. Hilmar var
bæjarfulltrúi Funklistans á Ísafirði
1996 og hefur undanfarin ár starfað á
teiknistofu í Reykjavík. Hann tók sæti
í stjórn Samtakanna ’78 í mars 2007.
Uppákomur
Kvennakirkjan | Kvennakirkjan
heldur messu við Þvottalaug-
arnar í Laugardal þriðjudaginn 19.
júní kl. 20.30. Sigrún Gunnars-
dóttir, hjúkrunarfræðingur,
prédikar. Prestur verður séra
Yrsa Þórðardóttir. Ásdís Þórð-
ardóttir leikur á trompet og Hall-
fríður Ólafsdóttir á flautu. Kór
Kvennakirkjunnar leiðir sönginn.
Á MEÐAN íslensk börn héldu upp á þjóðhátíðardaginn
léku þessi palestínsku börn sér í flóttamannabúðum í norð-
urhluta Líbanons. Þau gista í Beddawi þar sem skólahúsi í
eigu Sameinuðu þjóðanna hefur verið breytt í flótta-
mannabúðir þar sem tylft flóttamanna gistir í hverri skóla-
stofu. Mörg barnanna eru lúsug og flest eru berfætt en þau
flúðu aðrar flóttamannabúðir skammt frá eftir að átök
brutust út á milli Líbanskra hermanna og skæruliða urðu
til að þúsundir þurftu að flýja. Nærri 400 þúsund palest-
ínskir flóttamenn eru í Líbanon, um tíu prósent allra íbúa
landsins.
Dúkkuleikur í Líbanon
Reuters
MORGUNBLAÐIÐ
birtir til kynningar um
afmæli, brúðkaup, ætt-
armót og fleira les-
endum sínum að kostn-
aðarlausu. Tilkynningar
þurfa að berast með
tveggja daga fyrirvara
virka daga og þriggja
daga fyrirvara fyrir
sunnudags- og mánu-
dagsblað.
Samþykki afmælis-
barns þarf að fylgja af-
mælistilkynningum og/
eða nafn ábyrgðar-
manns og símanúmer.
Hægt er að hringja í
síma 569-1100, senda til-
kynningu og mynd á net-
fangið ritstjorn@mbl.is,
eða senda tilkynningu og
mynd í gegnum vefsíðu
Morgunblaðsins,
www.mbl.is, og velja lið-
inn Senda inn efni".
Einnig er hægt að senda
vélritaða tilkynningu og
mynd í pósti. Bréfið skal
stíla á
Árnað heilla,
Morgunblaðinu,
Hádegismóum 2
110 Reykjavík.
AFMÆLISRIT um 25 ára sögu Landssambands framsóknarkvenna
(LFK) er komið út. Ritið er jafnframt V. bindið í ritröðinni „Sókn
og sigrar“ sem hefur að geyma sögu Framsóknarflokksins.
Bókin segir frá starfi framsóknarkvenna en óhætt er að fullyrða
að við stofnun LFK hafi orðið kaflaskil í framsókn kvenna innan
flokksins, segir í fréttatilkynningu. Í ritinu kemur fram að eitt
helsta baráttumál LFK hafi verið að koma konum að í forystu og til
æðstu trúnaðarstarfa innan Framsóknarflokksins.
„Bókin er einkar lífleg og mikið myndskeytt og sýnir hinn
skemmtilega anda sem ríkir og ríkt hefur innan vébanda fram-
sóknarkvenna,“ segir í tilkynningunni.
Tilurð bókarinnar eru þau að Siv Friðleifsdóttir þáverandi ritari
flokksins setti á laggirnar ritnefnd á vordögum 2004 til að undir-
búa ritun sögu landssambandsins. Ritnefndin samdi við fyrirtækið
Athygli um ritun sögunnar og tók Edda Langworth verkefnið að
sér.
Afmælisrit Landssambands
framsóknarkvenna
DIGRANESSKÓLI fékk Hvatningarverðlaun
skólanefndar Kópavogs árið 2007. Verðlaunin fékk
skólinn fyrir frábæran árangur í norrænu stærð-
fræðikeppninni Kapp Abel og fyrir stærðfræðileik-
inn Peruna þar sem ein þraut birtist vikulega á
heimasíðu skólans og í Morgunblaðinu. Það er
Þórður Guðmundsson stærðfræðikennari sem hef-
ur veg og vanda af hvorutveggja.
Gróa Ásgeirsdóttir, varaformaður skólanefndar,
og Hannes Sveinbjörnsson skólafulltrúi afhentu
skólanum verðlaunin við skólaslitin.
Hvatningarverðlaun
skólanefndar Kópavogs
FRÉTTIR
ÞJÓÐAHÁTÍÐ Alþjóðahúss var haldin í
fjórða sinn laugardaginn 2. júní, í
íþróttahúsinu við Strandgötu í Hafnar-
firði. Hátt í fimmtíu þátttakendur
kynntu lönd sín með mat og menningu
og þúsundir Íslendinga nutu góðs af
gestrisni þeirra, sem koma allt frá
syðstu Afríku til austustu Asíu.
Boðið var upp á skemmtiatriði allan
daginn, allt frá pólskum þjóðsöngvum
til ganískra þjóðdansa. Heiðursgestir
hátíðarinnar voru Toshiki Toma, prest-
ur innflytjenda, og Gerard Lemarquis.
Mikil aðsókn var að hátíðinni og stöð-
ugur straumur fólks allan daginn að
skoða það sem fyrir augu bar í hinum
fjölmörgu og skrautlegu þjóðarbásum,
og ekki síður til að fylgjast með fjöl-
breyttum skemmtiatriðum. Bryndís
Schram kynnti atriðin. ,,Þjóðahátíðin er
einstakt tækifæri til að kynnast öllum þeim ólíku þjóðernum sem
búa á Íslandi sem eru yfir 130 talsins. Og miðað við hinn gríðarlega
fjölda gesta má áætla að gestir séu mjög forvitnir um þetta fólk.
Það gladdi mitt hjarta að sjá allt þetta fólk samankomið,“ er haft
eftir Kolfinnu Baldvinsdóttur, verkefnastjóra Þjóðahátíðar í
fréttatilkynningu.
Frá pólskum þjóðsöngvum
til ganískra þjóðdansa
Fjölþjóðleg Hátíðar-
gestir frá Tíbet,
Namibíu og Mexíkó.
Fáðu
sms-fréttir
í símann
þinn af
mbl.is
Fréttir á SMS