Morgunblaðið - 06.07.2007, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 06.07.2007, Blaðsíða 2
2 FÖSTUDAGUR 6. JÚLÍ 2007 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Fréttir frett@mbl.is Fréttastjórar Ágúst Ingi Jónsson, aðstoðarfréttaritstjóri, aij@mbl.is Sigtryggur Sigtryggsson, aðstoðarfréttaritstjóri, sisi@mbl.is Viðskipti vidsk@mbl.is Björn Jóhann Björnsson, fréttastjóri, bjb@mbl.is Daglegt líf Guðbjörg Guðmundsdóttir, gudbjorg@mbl.is Menning menning@mbl.is Fríða Björk Ingvarsdóttir, ritstjórnarfulltrúi, fbi@mbl.is Umræðan | Bréf til blaðsins Guðlaug Sigurðardóttir, ritstjórnarfulltrúi, gudlaug@mbl.is Minningar minning@mbl.is, Stefán Ólafsson, Arnór Ragnarsson Dagbók| Kirkjustarf Ellý H. Gunnarsdóttir, elly@mbl.is Íþróttir sport@mbl.is Sigmundur Ó. Steinarsson, fréttastjóri, sos@mbl.is Útvarp | Sjónvarp Hulda Kristinsdóttir, dagskra@mbl.is mbl.is netfrett@mbl.is Guðmundur Sv. Hermannsson fréttastjóri gummi@mbl.is Nú bjóðum við frábært tilboð á síðustu sætunum til Benidorm í júlí. Njóttu lífsins á þessum vinsæla áfangastað. Þú bókar og tryggir þér síðustu sætin og 4 dögum fyrir brottför færðu að vita hvar þú gistir. Stökktu til Benidorm 12. júlí frá aðeins kr. 34.990 Allra síðustu sætin Verð kr. 34.990 Netverð á mann, m.v. hjón með 2 börn, 2-11 ára, í íbúð í viku. Aukavika kr. 10.000. Verð kr. 44.990 Netverð á mann, m.v. 2 í herbergi/stúdíó/íbúð í viku. Aukavika kr. 10.000. Munið Mastercard ferðaávísunina HÉRAÐSDÓMUR Reykjavíkur sýknaði í gær pilt á tvítugsaldri af ákæru um kynferðisbrot gegn stúlku á svipuðum aldri. Mikill munur var á framburði piltsins og stúlkunnar um hvað átti sér stað og þrátt fyrir að framburður stúlkunnar hefði verið metinn trúverðugur var ekki hægt að fallast á að pilturinn hefði beitt of- beldi til að koma fram vilja sínum. Atvikið átti sér stað á kvennasal- erni í kjallara Hótel Sögu aðfaranótt 17. mars sl. og bar stúlkan fyrir dómi að pilturinn hefði elt hana inn á sal- ernið. Hefði maðurinn neytt hana til þess að fara inn á annan salernisbás- inn með því að ýta henni þangað. Hann hefði í kjölfarið tekið niður um hana sokkabuxur og nærbuxur og neytt hana til samræðis. Bar stúlkan að hafa verið skelf- ingu lostin, hún hefði því ekki veitt mótspyrnu fyrr en hún fann til níst- andi sársauka. Sálfræðingur sem kom fyrir dóminn staðfesti að við- brögð stúlkunnar væru þekkt. Pilturinn bar hins vegar að sam- farirnar hefðu verið með vilja stúlk- unnar og hann hefði hætt þeim þeg- ar hún bað um það. Í niðurstöðu dómsins kemur fram að gögn málsins styðji við framburð stúlkunnar um að hún hafi ekki viljað eiga samræði við piltinn. Hins vegar er litið til þess að stúlkan reyndi ekki að kalla á hjálp og veitti athæfi pilts- ins ekki viðnám eða mótmælti því. Dómurinn sagði athæfi piltsins ekki geta talist til ofbeldis í skilningi 194. gr. almennra hegningarlaga og ennfremur segir að „piltinum hafi ekki hlotið að vera það ljóst að sam- ræðið og kynferðismökin væru að óvilja [stúlkunnar]“. Veitti athæfi piltsins ekki viðnám eða kallaði á hjálp Morgunblaðið/ÞÖK Vettvangur Meint brot átti sér stað á salerni í kjallara Hótel Sögu. Í HNOTSKURN »Dómurinn sagði athæfipiltsins ekki teljast til of- beldis eins og það hugtak hefði verið skýrt í refsirétti og í langri dómaframkvæmd. »104. gr. almennra hegning-arlaga hljómar svo: „Hver sem með ofbeldi eða hótun um ofbeldi þröngvar manni til holdlegs samræðis eða annarra kynferðismaka skal sæta fang- elsi ekki skemur en 1 ár og allt að 16 árum. Til ofbeldis telst svipting sjálfræðis með innilok- un, lyfjum eða öðrum sambæri- legum hætti.“ Piltur á tvítugsaldri var í héraðsdómi sýknaður af ákæru um nauðgun á salerni í kjallara Hótel Sögu „DRENGURINN er búinn að ganga í gegnum algjöra martröð og hefur átt við mikla sál- ræna erfiðleika að stríða. Hann hefur m.a. verið í sjálfsmorðs- hugleiðingum og orðið fyrir að- kasti í fangelsinu,“ segir Sveinn Andri Sveinsson, lögmaður piltsins sem sýknaður var í gær af ákæru um nauðgun. Honum var sleppt í gær eftir að hafa setið í gæslu- varðhaldi frá 19. mars sl. – lengst af á grundvelli almannahagsmuna. Sveinn Andri telur það umhugs- unarefni að hægt sé að dæma menn aftur og aftur í gæsluvarðhald á grundvelli einhverra „ímyndaðra“ almannahagsmuna og segir borð- leggjandi að grundvöllur sé fyrir skaðabótamáli gegn ríkinu – ef þetta verður endanleg niðurstaða í málinu. „En það breytir því ekki að pen- ingar bæta ekki þessa martröð sem drengurinn er búinn að ganga í gegnum.“ Sat inni frá 19. mars sl. Sveinn Andri Sveinsson Eftir Baldur Arnarson baldur@mbl.is Moskva | Júrí Lúzhkov, borgarstjóri Moskvu, og starfsbróðir hans, Vil- hjálmur Þ. Vilhjálmsson, skrifuðu í gær undir samkomulag um aukið samstarf borganna við hátíðlega at- höfn í ráðhúsi Moskvu. Við sama tækifæri tók Lúzhkov vel í þá hug- mynd Vilhjálms að gerður yrði opinn loftferðasamningur á milli Íslands og Moskvu og að hann yrði sem fyrst að veruleika og opnaði fyrir mögu- leikann á beinu áætlunarflugi í fram- tíðinni, báðum borgunum til hags- bóta. Meðal þess sem samkomulagið nær til er aukin samvinna í mennta-, umhverfis- og menningarmálum. Auk þess var fjallað um þátttöku Moskvuborgar í forvarnarverk- efninu Ungmenni í Evrópu, eða „Youth in Europe“, sem 15 borgir taka nú þátt í og Reykjavíkurborg leiðir. Borgarstjórarnir ræddust við á léttum og persónulegum nótum og skýrði Vilhjálmur kollega sínum frá því að honum yrðu á laugardaginn kemur afhentir tveir íslenskir gæð- ingar, en Lúzhkov er sagður einkar áhugasamur um íslenska hestinn. Gífurleg uppbygging Dagskrá Vilhjálms í gær var þétt. Dagurinn hófst á skoðunarferð um borgina, þar sem komið var við í stóru vörusýningarrými skammt frá Bolshoj-óperuhúsinu fræga og á sýn- ingu um uppbygginguna hér eystra sem óhætt er að segja að sé gríð- arleg, fimm milljónir fermetra verða byggðar af íbúðarhúsnæði á árinu. Að loknum fundinum með Lúzh- kov hélt Vilhjálmur síðan á Orku- og umhverfisþing þar sem íslenskir og rússneskir aðilar kynntu sóknarfæri í orkumálum, ekki síst á sviði jarð- hita og endurnýjanlegra orkugjafa. Vilhjálmur var á meðal ræðumanna og við lok þingsins las hann upp yf- irlýsingu þar sem mikilvægi sam- vinnunnar í orkumálum var undir- strikað. Rætt um opinn loftferðasamning Ofangreindur loftferðasamningur yrði framhald á viðaukasamningi Ís- lands og Moskvu frá 2003 og sagðist Vilhjálmur í samtali við Morgunblað- ið vera bjartsýnn á að hann gæti orð- ið til að efla samvinnu borganna og jafnframt greitt fyrir auknum ferða- mannastraumi til Íslands. Mikill áhugi á fjölsóttu þinginu væri til vitnis um að Rússar hefðu áhuga á landinu og að í Moskvu væru marg- vísleg sóknarfæri sem íslenskir að- ilar gætu fært sér í nyt í náinni fram- tíð. Morgunblaðið/Baldur Arnarson Samstarf Fundur íslensku sendinefndarinnar með fulltrúum Moskvuborgar reyndist árangursríkur og gengið var frá samkomulagi um aukið samstarf á fjölmörgum sviðum auk þess sem nýr loftferðasamningur var ræddur. Samstarf Reykjavík- ur og Moskvu aukið Eftir Steinþór Guðbjartsson steinthor@mbl.is JÓHANN Sigurjónsson, forstjóri Hafrannsóknastofnunarinnar, vill að Grænlandsgöngur verði rann- sakaðar vegna þess að með breytt- um skilyrðum í hafinu, bæði við Ís- land og Grænland, geti svo farið að beitarlönd þorsksins stækki. Að undanförnu hafa sjómenn vakið athygli á miklum þorski út af Vestfjörðum og velt því fyrir sér hvaðan hann komi. Jóhann segir ástæðu til að rannsaka málið og fylgjast með á komandi árum hvað sé að gerast þarna og úti í djúp- kantinum. „Við erum í samvinnu við fiskifræðinga, sem vinna við Grænland og fylgjast með uppvax- andi árgöngum þar. 2003- árgangurinn gæti gengið til Íslands en þetta er lítill árgangur. Hins vegar gæti þetta gerst í vaxandi mæli og því er mikilvægt að við fylgjumst með þessu, eins og skipstjórar á Vestfjarða- miðum hafa bent á, og skiljum þær breytingar sem eiga sér stað. Við höfum lagt til við sjávarútvegs- ráðherra að okkur verði gert kleift að fara ofan í þessa hluti strax á þessu ári með sérstöku átaki við merkingar og leiðöngrum að ströndum Grænlands í samvinnu við heimamenn og innlendar út- gerðir þar sem við skoðum sam- setningu aflans og reynum að átta okkur á því hvers konar fiskur þetta er.“ | Miðopna Hafró vill rannsaka Grænlandsgöngur Jóhann Sigurjónsson

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.