Morgunblaðið - 06.07.2007, Blaðsíða 18
18 FÖSTUDAGUR 6. JÚLÍ 2007 MORGUNBLAÐIÐ
MENNING
SÝNINGIN Velkomin(n) til mann-
heima fjallaði um fæðingu og fyrstu
skref mannsins í gleymskunni eftir
að hann var gerður útlægur frá
Paradís. Nú er listakonan, Guðrún
Vera Hjartardóttir, komin með
framhaldssýningu, Hamingjudagar,
sem verður opnuð í Gallery Tur-
pentine kl. 17 á föstudag og stendur
til 21. júní. Í verkunum á sýningunni
eru allir brosandi en þó virðist ham-
ingjan vera fölsk, gríma mannlegra
fýsna, freistinga og ofneyslu. Nafnið
er fengið að láni frá samnefndu
verki írska leikskáldsins Samuels
Beckett. Í nóvember heldur Guðrún
Vera svo sýningu í Broadway Gall-
ery á Manhattan í New York.
Þetta er þó aðeins einn af fjölda-
mörgum listviðburðum helgarinnar.
Föstudagur: Klippimyndir
og menning í Kópavogi
Sigríður Níelsdóttir opnar sýn-
ingu í verslun 12 Tóna við Skóla-
vörðustíg. Á sýningunni er 31 klippi-
mynd sem bera nöfn eins og
„Fuglaútópía,“ „Skakki turninn á
Íslandi,“ „Knús er hollt,“ „Mamm-
on“ og „Sápukúlur“. Opnun sýning-
arinnar er á milli kl. 16 og 18.
Við Menningartorfuna á Háls-
atorgi í Kópavogi verður fjölbreytt
dagskrá á milli kl. 17-20. Á torginu
sjálfu verða Margrét Eir, Rotwei-
lerhundar, Skábræður, Rust og
Spooky Jetson og í salnum kl. 17
verður Gissur Páll Gissurarson ten-
ór en kl. 18 tekur Diddú við og syng-
ur við undirleik Jónasar Ingimund-
arsonar. Í kjölfarið syngja Guðrún
Gunnarsdóttir og Friðrik Ómar við
undirleik Valgeirs Skagfjörð. Á
Listatúni verður Götuleikhús Kópa-
vogs og Kær-leikur með uppákomu.
Laugardagur: Myndlist
með ísnum í Eden
Ásdís Spanó opnar sýninguna Rof
kl. 17 í Gallery 100° að Bæjarhálsi 1.
Sýning Fríðu Gylfadóttur á
óvenjulegum stólum verður opnuð
kl. 14 í neðri sal START ART lista-
mannshússins á Laugavegi 12b.
Þetta er fyrsta einkasýning Siglfirð-
ingsins Fríðu í Reykjavík.
Ljósmyndasýningin ÚT/VIL/EK
verður opnuð kl. 15 í fataversluninni
Nakta apanum. Sýndar verða ljós-
myndir eftir Jóhannes Kjartansson,
grafískan hönnuð og ljósmyndara.
Seyðisfjörður. Pollar í Skaftafelli
er sýning Tuma Magnússonar sem
verður opnuð í Bistró Skaftafells kl.
16. Þá verður sýning Árna Geirs
Lárussonar og Jökuls Snæs Þórð-
arssonar opnuð á sama stað og
munu þeir fremja tónlistargjörning
að auki.
Akranes. Erla B. Axelsdóttir opn-
ar myndlistarsýningu kl. 14 á
Kirkjuhvoli.
Ísafjörður. Dagný Guðmunds-
dóttir opnar sýninguna Maður með
mönnum í Edinborgarhúsinu kl. 16.
Þar leikur Dagný sér með karllíka-
mann á kvenlegum forsendum.
Hveragerði. Myndlistarmenn-
irnir Anna Hallin, Margrét Hlín
Sveinsdóttir, Olga Bergmann og
Steinunn Guðríður Helgadóttir
standa að sýningunni Álfavarp sem
verður opnuð í Eden kl. 16. Þær
stöllur voru allar saman við mynd-
listarnám í Gautaborg.
Stykkishólmur. Vatn úr myllu
Kölska, tónleikar í Vatnasafninu kl.
20.30. Guðlaugur Kristinn Ótt-
arsson spilar ásamt Einari Arnaldi
Melax.
Líflegur laugardagur
á Akureyri
Tónleikar Tríós Hanne Juul verða
í Ketilshúsinu kl. 16. Með norsku
vísnasöngkonunni leika píanóleik-
arinn Mats Bjarki Gustavi og saxó-
fónleikarinn Joakim Rolandson.
Minjasafnið býður upp á sögu-
göngu um Innbæinn og Fjöruna.
Gangan hefst við Laxdalshús, elsta
hús Akureyrar, kl. 14 og endað er
við Minjasafnið þar sem hægt er að
fara á sýninguna Akureyri – bærinn
við Pollinn.
Elísabet Jónsdóttir opnar sýn-
inguna Prótótýpa á Café Karólínu
kl. 14.
Margrét Blöndal sýnir teikningar
í gallerý BOXi og hefst sýningin kl.
14. Opið verður um helgar á milli 14-
17 til 22. júlí en einnig eftir sam-
komulagi. Gallerý BOX er í Kaup-
vangsstræti 10.
Gallerý Víðátta601 í Hrafnagili er
með samsýningu listamannanna
Gamla Elgs og Steina sem sýna
verkin Ó náttúra/Ónáttúra og
Útþrá/Heimþrá. Sýningin er í Eyja-
fjarðará við Kristnes.
Sunnudagur: Safnadagur og
fornar messur á Gásum
Alþjóðlegi safnadagurinn er 8. júlí
og því bíður Listasafn Reykjavíkur
öllum ókeypis aðgang að sýningum
safnsins.
Messað verður í kirkjutóftinni á
Gásum. Gásir er forn versl-
unarstaður í Eyjafirði, rétt hjá Ak-
ureyri, og var helsti kaupstaður
Norðurlands fram á 16. öld.
Mikið um að vera í listalífinu um land allt um helgina
Listahringvegur helgarinnar
Hamingjudagar En er brosið ekta? Slíkum spurningum veltir Guðrún Vera
Hjartardóttir fyrir sér í Gallery Turpentine.
Mjaltastóll Fyrir þá sem nenna ekki að standa upp til að ná í mjólkina. Af
sýningu Fríðu Gylfadóttur í START ART-listamannahúsinu.
ÞRÍTUGASTA og þriðja sum-
artónleikavertíðin í Skálholti upp-
hófst á laugardag í blíðskaparveðri.
Fyrri tónleikar dagsins voru helg-
aðir minningu Manuelu Wiesler
(1955-2006). Áður var fyrirlestur kl.
14 við húsfylli í umsjá hjónanna
Helgu Ingólfsdóttur og Þorkels
Helgasonar, er fjallaði um samstarf
Helgu og austurríska flautuleik-
arans frá upphafi Sumartónleikanna
á 8. áratug með skuggamyndum og
stuttum hljóðritum, líkt og í vina-
legu spjalli yfir fjölskyldualbúmi.
Eina varðveitta flautuein-
leiksverk Bachs, Partítan í a-moll,
hafði verið meðal kennsluefna Kol-
beins Bjarnasonar í námi hans hjá
Manuelu, og gerði hann verkinu oft
prýðileg skil þótt ekki þætti mér
túlkun hans jafnast á við styttra
flautueinleiksverk dagskrár, þátt úr
„Ascèses“ (1967) eftir André Joli-
vet. „Vorsöngvar“ [15’] eftir Atla
Heimi Sveinsson var, eins og öll
seinni verkin, fyrir tríó flautu, víólu
og hörpu. Það var í sex þáttum með
ýmist módernískum eða róm-
antískum blæ og vitnaði síðast í
lokaþátt „Storm“-sónötu Beetho-
vens fyrir píanó Op. 31,2; í mörgu
áheyrilegt en kannski svolítið ósam-
stætt í heild. Sterkar stóð örstutt
„Minning“ [3’] eftir Atla í tónleika-
lok fyrir víólu, hörpu og bassaflautu
er fjaraði skyndilega út á von-
björtum tunglskinsherpluþrjólum
þegar ævi þess virtist aðeins hálfn-
uð.
Eftir ljóðrænt impressjónískulegt
tríóverk Torus Takemitsu (1992)
var frumflutt Kveðja [9’] eftir Þor-
kel Sigurbjörnsson, er eftir tæran
hörpuinngang kom að mestu fyrir
sem geðþekk vöggusöngshugleið-
ing, með að vísu ofurlítið langdrægu
niðurlagi. Engu að síður voru fram-
lög hans og Atla í ágætum flutningi
tríósins til einlægs sannindamerkis
um hugljúfa listakonu sem með dvöl
sinni hér kom óvenjumörgum góð-
um íslenzkum flautuverkum til leið-
ar á aðeins tíu árum.
Í minningu
Manuelu Wiesler
TÓNLIST
Skálholtskirkja
J.S. Bach: Flautupartíta í a BWV 1013.
Atli Heimir Sveinsson: Vorsöngvar
(2006); Minning (2007). Takemitsu:
„And then I knew […]“. Þorkell Sig-
urbjörnsson: Kveðja (frumfl.). Jolivet: „O
femme […]“. Kolbeinn Bjarnason flauta/
bassaflauta, Guðmundur Kristmundsson
víóla og Elísabet Waage harpa. Laug-
ardaginn 30. júní kl. 15.
Sumartónleikar Ríkarður Ö. Pálsson
MÁLVERK, veggjakrot, fundnir
textar, skemmtigarður, samfélags-
rýni. Allt þetta og meira til má sjá á
sýningu Önnu Sigmond Guðmunds-
dóttur, íslensk-norskrar myndlist-
arkonu sem nú sýnir í Nýlistasafn-
inu. Anna hefur málað veggi og gólf
safnsins þannig að þegar áhorfand-
inn stígur inn fyrir dyrnar er hann
um leið hluti af verkinu og líður eins
og leikara á sviði samtímans.
Textabrot á borð við „Andover Jr.
Wrestling“ og „Slaffen free“, and-
litsmynd múhameðstrúarkonu and-
spænis mynd af íslenskum torfbæ,
mynd af hlæjandi hauskúpu, vísa til
þess alþjóðlega samfélags sem við
búum við í dag. Orðið „slaffen“ vísar
líklega til einhvers konar jað-
armenningar og það gerir innsetn-
ingin einnig sem heild, ekki síst er
graffititengingin augljós þegar
gengið er inn í Nýlistasafnið geng-
um undirgöngin frá Laugavegi en
þau eru þakin veggjakrotsmyndum.
Í Nýlistasafninu leggur Anna
snúru með ljósaperum á gólf með-
fram veggjum og kallar þannig fram
tilfinningu fyrir skemmtigarði,
draugahúsi í Tívolí þar sem beina-
grindur stökkva fram, eða speglasal
þar sem áhorfandinn er skrum-
skældur. Brot verksins eru nokkuð
malerísk og aukin áhersla á slík blæ-
brigði myndi að mínu mati gæða inn-
setninguna dýpri merkingu og gera
hana eftirminnilegri. Verkið vegur
salt milli pólitískrar ádeilu og sjón-
rænnar upplifunar og spurning
hvort ádeilan beri sýninguna hugs-
anlega nokkuð ofurliði.
En óhætt er að segja að listakon-
an taki sýningarrými Nýlistasafns-
ins með trompi og geri það að sínu
eigin, hún leiðir áhorfandann inn í
persónulegan en um leið alþjóðlegan
heim þar sem vandamálum samtím-
ans er teflt saman á kraftmikinn
máta af kaldhæðni en einnig íhugun
og er töluvert í sýninguna lagt.
Morgunblaðið/Sverrir
Ádeila Verkið vegur salt milli pólitískrar ádeilu og sjónrænnar upplifunar.
Speglasalur samtímans
MYNDLIST
Nýlistasafnið
Til 8. júlí. Opið mið. til sun. frá kl. 12-17,
á fim. Opið til 21.
Aðgangur ókeypis.
Bread and animals
Anna Sigmond Guðmundsdóttir
Ragna Sigurðardóttir