Morgunblaðið - 06.07.2007, Blaðsíða 17
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 6. JÚLÍ 2007 17
MENNING
Í TILEFNI 75 ára afmælis
listamannsins Erró verður
helgina 13.-14. júlí, haldin sér-
stök sýning á verkum lista-
mannsins í félagsheimilinu
Klifi í Ólafsvík. Erró sem er
skírður Guðmundur Guð-
mundsson fæddist í Ólafsvík
og eru Ólafsvíkingar ákaflega
stoltir af sínum manni og hafa
því í ljósi tímamótanna ákveðið
að heiðra listamanninn með
þessum hætti. Lista- og menningarnefnd Snæ-
fellsbæjar stendur fyrir sýningunni og hefur feng-
ið Þorbjörgu Gunnarsdóttur til að útfæra hana.
Sýningin er opin kl. 13-17.
Myndlist
Erró-sýning á
Klifi í Ólafsvík
Eitt verka Errós.
Í TILEFNI af Landsmóti
UMFÍ verður fjölbreytt
dagskrá á Menningartorf-
unni við Hálsatorg í Kópa-
vogi í dag.
Kl. 17-20 munu ungar og
upprennandi hljómsveitir og
tónlistarfólk troða upp en í
Salnum verður boðið upp á
tvenna tónleika þar sem
fram koma m.a. Diddú, Gissur Gissurarson tenór,
Guðrún Birgisdóttir og Martial Nardeau flautu-
leikarar og Matthías Nardeau óbóleikari. Þá verð-
ur fræðslusýning á bókasafninu og í Náttúru-
fræðistofu. Götuleikhús Kópavogs sýnir listir
sínar og leiktæki verða á svæðinu fyrir krakkana.
Tónlist
Mikið um að vera á
Menningartorfunni
Salurinn í Kópavogi.
Íslandsfrumflutningur á verki
Huga Guðmundssonar,
„Apocrypha“, fer fram nú á
laugardag á Sumartónleikum í
Skálholti. Verkið er fyrir
mezzósópran, barokkhljóðfæri
og gagnvirk tölvuhljóð og fyll-
ir heila tónleika. Fyrir tón-
leikana á laugardaginn verður
haldinn fyrirlestur í Skálholts-
skóla kl. 14 sem ber yfirskrift-
ina „Hvað er Apocrypha?“
Verkið verður svo flutt aftur á sunnudaginn kl. 15.
Flytjendur eru barokksveitin Nordic Affect og
Guðrún Jóhanna Ólafsdóttir mezzósópran.
Stjórnandi er Daníel Bjarnason.
Tónlist
Íslandsfrumflutn-
ingur í Skálholti
Hugi
Guðmundsson
Eftir Ásgeir H. Ingólfsson
asgeirhi@mbl.is
BRYNHILDUR Þórarinsdóttir
fékk Norrænu barnabókaverðlaunin
afhent í Vejle í Danmörku í gær.
Verðlaunin fékk Brynhildur fyrir
barnabækur gerðar eftir Njálu,
Eglu og Laxdælu en Margrét E.
Laxness myndskreytti bækurnar.
Frá Artúri konungi til
Gunnars á Hlíðarenda
Fyrsta bókin, Njála, kom út fyrir
fimm árum en hugmyndin kviknaði
fyrir tólf árum. „Þegar bróðir minn
var í leikskóla gekk hann um sem
Artúr konungur og ég fór að spá í af
hverju það væru engar íslenskar
hetjur sem lifðu með krökkunum.
Svo fór ég að prófa að segja honum
sögur af Gunnari frá Hlíðarenda
sem virkaði mjög vel og í kjölfarið á
því fór ég smám saman að setja
þetta niður. Mig langaði sem sagt að
koma íslensku hetjunum inn í barna-
herbergin þar sem margar erlendar
hetjur voru.“ Viðbrögðin hingað til
segir Brynhildur hafa verið mjög
góð og hún hafi engar hneyksl-
unarraddir heyrt fyrir að aðlaga
menningararfinn. Margir kennarar
hafa verið mjög ánægðir með fram-
takið sem þeir segja hjálpa mörgum
börnum að átta sig á fornsögunum.
„Enginn sem heggur mann
og annan í þessum skóla“
Verðlaunin segir Brynhildur gefa
sér aukinn kraft og styrki sig í því
sem hún er að gera. Í verðlaun hlaut
hún mynd eftir Sigrúnu Eldjárn af
börnum að lesa auk viðurkenning-
arskjals. Hún er vongóð um að þetta
opni fleiri dyr að þýðingum og út-
gáfu erlendis.
Brynhildur leggur nú lokahönd á
næstu bók en sú gerist þó ekki á
þjóðveldistímanum heldur á Íslandi
nútímans. Um er að ræða barnabók
um tvo krakka sem kynnast þegar
þau eru að byrja í sex ára bekk og
það hvernig þau takast á við fyrstu
mánuðina í skóla. Sögupersónurnar
segir Brynhildur atorkusamar en
þar lýkur líkindunum við Íslend-
ingasögurnar. „Það er enginn sem
heggur mann og annan í þessum
skóla.“ Þetta er þó ekki fyrsta frum-
samda bók Brynhildar sem áður hef-
ur gefið út Lúsastríðið 2002 og
Leyndardóm ljónsins 2004.
Sigurganga íslenskra höfunda á Norrænu barnabókaverðlaununum heldur áfram
Brynhildur verðlaunuð
BRYNHILDUR heldur hér á blómum og verðlaunaskjali sem Gert Larsen,
formaður samtakanna, afhenti henni í Vejle í gær. Brynhildur hefur klárað
MA-nám í íslenskum bókmenntum í HÍ með áherslu á miðaldabókmenntir
en hún starfar nú við Háskólann á Akureyri.
Höfundur Njálu hinnar nýrri
ÁRIÐ 2009
koma allir
Danir til
með að
ganga um
með lista-
verk í vesk-
inu sínu.
Sama ár má
örugglega
fullyrða að
danski
teiknarinn og grafíklistamaðurinn
Karin Birgitte Lund verði útbreidd-
asti listamaður Danmerkur.
Hvernig má þetta vera? Jú, árið
2009 koma í umferð nýir pen-
ingaseðlar í Danmörku en þá prýða
alla verk eftir Lund.
Um valið á listamanninum til
verksins sagði seðlabankastjórinn
Torben Nielsen: „Listaverk Karin
Birgitte Lund tengja ekki bara
saman ólíka landshluta heldur einn-
ig fortíð og nútíð.“
Seðlarnir nýju verða til sýnis
fram til 9. september í listasafninu í
Køge.
Listaverk
í veskinu
Nýir peningaseðlar
í Danmörku 2009
Hinar nýju dönsku
krónur.
Á NÆSTUNNI er liðin öld frá því
að bókin um Önnu í Grænuhlíð
kom út. Af því tilefni hyggst kan-
adíski leikstjórinn Kevin Sullivan
gera nýja kvikmynd byggða á sög-
unni frægu. Myndin kemur til með
að heita A New Beginning og
fjalla um ævi Önnu áður en fyrsta
bókin segir frá henni.
„Við kynnumst Önnu fyrst þeg-
ar hún stendur á lestarstöð ný-
komin til Prince Edward Island.
Ég held að fólk vilji vita hvaðan
hún er og það er augljóst að
stúlka með eins auðugt ímynd-
unarafl og hún hlýtur að vera úr
spennandi umhverfi,“ sagði leik-
stjórinn sem sjálfur skrifaði hand-
ritið. Það byggist þó ekki á neinu
efni sem höfundur Önnu í Grænu-
hlíð, Lucy Maud Montgomery,
skrifaði.
Áheyrnarprufur standa nú yfir í
Kanada en einnig geta áhuga-
samar stúlkur sent áheyrnar-
prufur af sér gegnum heimasíðuna
YouTube.com.
Anna í
Grænuhlíð
100 ára
ÓPERAN hefur lengi haft áru
fornrar listar enda flest flutt verk
eftir tónskáld eldri en aldargömul. Í
viðtali við sunnudagsblað Morgun-
blaðsins nýlega segir Ásgerður
Júníusdóttir söngkona óperuformið
bíða eftir endurnýjun. „Ég hef í
mörg ár látið mig dreyma um ís-
lenzkar óperur, framsæknar og
spennandi,“ segir Ásgerður og bæt-
ir við: „Þetta er ótrúlega spennandi
listform sem er þó staðnað að svo
mörgu leyti og bíður eftir endurnýj-
un og öðruvísi hugsun.“
Þessi hugsun virðist þó ört vera
að ryðja sér til rúms í óperuhúsum
heimsins. Fjölmargir kvikmynda-
leikstjórar hafa nýlega reynt sig við
óperur. Franco Zeffirelli hefur
stundað það lengi, Roman Polanski
og William Friedkin prófuðu fyrir
nokkrum árum og nú síðast Anth-
ony Minghella og Michael Haneke.
Innan skamms munu svo Woody
Allen, David Cronenberg og Sofia
Coppola reyna sig við formið en
spenntastir eru menn fyrir nýrri
óperu brjálaða Serbans Emirs
Kusturica. Ópera Kusturica verður
einhvers konar sígaunapönk með
drjúgum skammti af balknesku
töfraraunsæi. Kvikmyndir margra
þessara leikstjóra eru vissulega oft
óperískar í eðli sínu þannig að
máski verður stökkið ekki jafn stórt
og ætla mætti – en hins vegar verð-
ur forvitnilegt hvað lágstemmdur
leikstjóri á borð við Allen gerir við
óperuformið. Þá sækir óperuformið
einnig í kvikmyndirnar og von er á
óperugerð Dancer in the Dark þar
sem Ylva Kihlberg mun taka við af
Björk sem Selma.
Poppaður mandarínskur api
Íslandsvinurinn Damon Albarn
heldur uppi merki poppara í óperu-
gerðinni en óperan Api: Vesturför
var frumsýnd í lok júní. Sagan er
byggð á kínversku ævintýri og leik-
in á mandarínsku. Þá láta rithöf-
undar ekki sitt eftir liggja. Skoska
óperan paraði fimm af merkustu rit-
höfundum Skota við fimm af merk-
ustu tónskáldum þeirra. Útkoman
er fimm stuttóperur sem sýndar
verða í sumar undir nafninu Five:
15. Meðal höfundanna fimm eru
spennusagnahöfundurinn Ian Rank-
in og Alexander McCall Smith, höf-
undur bókaflokksins um bótsvönsku
kvenspæjarastofuna. Meðal tón-
skálda eru virtir menn úr kvik-
myndageiranum eins og Patrick
Doyle hirðskáld, Kenneth Brannagh
og Craig Armstrong sem vann tón-
listina fyrir Moulin Rouge. Þá tekur
Ásgerður sjálf virkan þátt í þessari
þróun enda er hún að vinna óperu
með Guðrúnu Evu Mínervudóttur
rithöfundi og fleirum.
Loks er óperan að færa út bók-
stafleg landamæri sín eins og sást í
Skagafirði þar sem úkraínska
óperusöngkonan Alexandra
Chermyshova blés þvílíkum eldmóði
í sveitunga sína að þeir áttu ekki í
vandræðum með að rúlla upp La
Traviata eftir Verdi í Varmahlíð nú í
vetur.
Óperur eru í tísku og kvikmyndaleikstjórar, popparar og rithöfundar semja óperur af miklum móð
Frá pönkuðum
sígaunum til
Skagafjarðar
Kusturica Þegar serbneski leikstjórinn er ekki önnum kafinn við að sinna
kvikmyndalistinni færir hann sígaunarómantík inn í óperuna í París.
Í HNOTSKURN
»Það eru samtök norrænnaskólasafnafræðinga sem
veita verðlaunin en þetta er í
fjórða sinn sem Íslendingar
hljóta þau. Íslendingar hafa
raunar verið á mikilli sig-
urgöngu undanfarið því Bryn-
hildur er þriðji sigurvegarinn á
fimm árum.
»Guðrún Helgadóttir varðfyrst til að hljóta verðlaunin
árið 1992 fyrir Undan illgresinu.
»Kristín Steinsdóttir vann2003 fyrir Engil í vestur-
bænum.
»Ragnheiður Gestsdóttir vannárið 2005 fyrir Sverðberann.
♦♦♦