Morgunblaðið - 06.07.2007, Blaðsíða 9
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 6. JÚLÍ 2007 9
TRYGGINGAFÉLAGIÐ Elísabet
býður nú þeim ökumönnum sem
tryggja hjá félaginu og ekki hafa
fengið punkt hjá lögreglu vegna um-
ferðarlagabrota að fá ökutæki sitt
tryggt frítt í mánuð. Rekstrarstjóri
Elísabetar segir mikilvægt að öku-
menn fái jákvæða hvatningu til að
aka varlega.
Jón Páll Leifsson, rekstrarstjóri
Elísabetar, segir að viðbrögð við til-
boðinu hafi verið góð. Viðskiptavinir
Elísabetar skila yfirliti yfir punkta-
stöðu sína til félagsins en yfirlitið fá
þeir hjá lögreglunni. Elísabet geym-
ir síðan punktastöðuna í tólf mánuði
þar til tryggingataki kemur með
uppfært yfirlit. Hafi punktum ekki
fjölgað undangengna tólf mánuði
tekur við frímánuður hjá trygginga-
takanum.
„Með þessu erum við að koma
með jákvæða hvatningu til öku-
manna að keyra vel en ekki bara nei-
kvæða hvatningu í formi hækkaðra
iðgjalda,“ segir Jón Páll.
Segir vafasamt að hegna
ungum ökumönnum
Elísabet býður lág iðgjöld og eins
og stendur einungis ökutækjatrygg-
ingar. Þess vegna er markhópur
fyrirtækisins heldur yngra fólk en
hjá öðrum tryggingafélögum en það
er einmitt sá hópur sem helst fær
punkta hjá lögreglu. „Síðastliðin
þrjú ár hefur punktasöfnunin verið
mest meðal 18-25 ára fólks. Þarna
erum við að fara beint í þann mark-
hóp sem er að safna punktum og
bjóða þeim afslátt ef þeir snúa við
blaðinu og hætta að safna punkt-
um.“
Jón Páll bendir jafnframt á að
varasamt getur verið að miða iðgjöld
við breytur sem ökumaðurinn sjálf-
ur ræður engu um og tekur dæmi
um aldur. „Þótt það sé einkum ungt
fólk sem safnar punktum þá er sér-
kennilegt að láta aldur stýra iðgjöld-
um. Það er sjálfsagt að góðir og ung-
ir ökumenn greiði iðgjöld í samræmi
við það hvernig þeir aka en ekki við
það hvað þeir eru gamlir.“
Elísabet býður góðum öku-
mönnum afslátt af tryggingum
Eftir Friðrik Ársælsson
fridrik@mbl.is
„VIÐ höfum áætlað að heildaráhrif
þessarar skerðingar, verði farið að
tillögum Hafró, geti numið allt að
einum milljarði í minni tekjum inn á
svæðið,“ segir Guðmundur Ingi
Gunnlaugsson, bæjarstjóri á Grund-
arfirði. „Hérna eru fyrirtæki sem
byggjast talsvert á þorski og reiða
sig á það að þorskurinn er meðafli að
talsverðu leyti. Það er erfitt að
stunda veiðar ef þorskkvóti verður
skorinn þannig niður að það útiloki
veiðar á öðrum fiski.“
Höfnin í Grundarfirði er lífæð
byggðarinnar enda ein af tíu stærstu
kvótahöfnum landsins og stærsta
löndunarhöfn Vesturlands í bolfiski.
960 manns búa á svæðinu og telur
Guðmundur ekki óvarlegt að álykta
að um 350 starfi við útgerð, vinnslu
og sem hafnarverkamenn.
Nauðsynlegt að grípa til
sértækra ráðstafana
„Það hefur lengi legið fyrir að at-
vinnuuppbygging á svæðinu er of
einhæf, en hvorki stjórnvöld né
sveitarstjórnarenn hafa nein tök á
því að búa til atvinnutækifæri. Það
eru ekki stjórnvöld sem búa til verk-
smiðjur eða hugbúnaðarfyrirtæki –
það gerir fólkið sjálft,“ segir Guð-
mundur. Hann kveður þó hægt að
skapa ákveðnum atvinnuvegum hag-
stæð starfsskilyrði en slík verkefni
krefjist tíma, þolinmæði og fjár-
magns. „Núna er nauðsynlegt að
grípa til algjörlega sértækra ráð-
stafana, þeim byggðarlögum sem
hvað verst hafa orðið úti til hags-
bóta.“ Guðmundur telur að í þeim
efnum komi bætur einna helst til
greina til þess að unnt verði að halda
tekjustigi svæðisins uppi. „Ég get
ekki séð að það muni skipta nokkru
máli að ríkisstofnun með tíu starfs-
mönnum muni flytja á Snæfellsnes.
Vandamálið er miklu stærra en
það.“
Sveitarstjóri Langanesbyggðar,
Björn Ingimarsson, segir augljóst að
verði farið að tillögum Hafrann-
sóknastofnunar verði stórt skarð
höggvið í byggðarlagið. Á Þórshöfn
hefur mikið verið lagt í uppbyggingu
bolfiskvinnslu og útgerðar og minni
aðilar verið hvattir til þess að fjár-
festa í greininni. Óttast Björn að
stórtæk kvótaskerðing geti riðið
þessum aðilum að fullu. „Menn hafa
verið að fjárfesta talsvert í veiði-
heimildum á undanförnum árum. Ef
farið yrði að ráðgjöf að fullu, er sú
fjárfesting horfin, einn, tveir og þrír.
Skuldirnar hverfa hins vegar ekki og
vextirnir af þeim eru ekkert sérlega
lágir,“ segir Björn.
Björn er mjög gagnrýninn á ráð-
gjöf Hafrannsóknastofnunar og seg-
ir hana byggða á allt of veikum
grunni. „Það á að gefa út jafnstöðu-
afla til að minnsta kosti tveggja ára
og það þarf að vinna þessar rann-
sóknir á ábyrgari hátt. Ekkert tillit
er tekið til netaralls eða afladag-
bóka, menn eru eingöngu að byggja
þetta á svokölluðu togararalli, sem
er meingallað,“ segir Björn. Hann
telur jafnframt fullkomlega eðlilegt
að auka hvalveiðar hressilega, þar
sem nú berist fréttir af því að hann
er yfirfullur af þorski og öðrum fiski.
Engin byggð getur dafnað ef
undirstöðurnar skortir
Á Tálknafirði búa tæplega 300
manns og stærsti vinnuveitandinn í
bænum er fiskverkunar- og útgerð-
arfyrirtækið Þórsberg. Þar á eftir
kemur sveitarfélagið. „Það er algjör
einhæfni hér að því leytinu til,“ segir
Eyrún Ingibjörg Sigþórsdóttir, odd-
viti hreppsnefndar Tálknafjarðar-
hrepps. Hún segist bíða eftir því
með mikilli óþreyju að sjávarútvegs-
ráðherra kunngeri aflamark í
þorski, enda reiði Tálknafjörður sig
mjög á bolfiskveiðarnar. „Það liggur
ljóst fyrir að það verður einhver nið-
urskurður en þetta stendur allt og
fellur með því hversu mikill hann
verður og til hvaða mótvægisað-
gerða verður gripið samhliða skerð-
ingunni,“ segir Eyrún. Henni líst vel
á þær hugmyndir stjórnvalda að
flýta vegaframkvæmdum, fjar-
skiptauppbyggingu og efla mennta-
mál á landsbyggðinni. „Það hefur
svo sem legið fyrir í nokkurn tíma að
sjávarútvegurinn er ekki sú undir-
stöðugrein sem hann var, nú þarf
færri hendur til þess að veiða og
vinna aflann.“
Eyrún segir landfræðilega legu
Tálknafjarðar mjög góða og bjóða
upp á mikla möguleika. „Það eru
ýmsir vaxtarbroddar hérna en þeir
dafna ekki ef undirstöðurnar skort-
ir. Það þarf fólk til þess að byggja
hvert samfélag,“ segir Eyrún og
heldur áfram. „Það er samt enginn
uppgjafartónn í okkur. Við þurfum
bara að spýta í lófana og snúa bökum
saman eins og við höfum alltaf gert.“
Fjárfestingin hverfur
en skuldirnar standa
Morgunblaðið/Golli
Sjósókn Á Grundarfirði eru hafnarskilyrði mjög góð og þar er stærsta löndunarhöfn Vesturlands í bolfiski.
Sveitarstjórnarmenn í litlum sjávarplássum brúnaþungir
Í HNOTSKURN
»Sveitarstjórnarmenn ílitlum sjávarplássum ótt-
ast að einstaklingar, fyrirtæki
og að lokum sveitarfélögin
sjálf verði af miklum tekjum í
kjölfar þorskkvótaskerðingar.
»Þá verði fjárfesting mannaí útveginum gengisfelld,
þótt skuldirnar standi eftir.
»Allir eru þeir sammála umað atvinnuvegir séu of ein-
hæfir í byggðarlögunum.
Stórútsala
Mikið úrval af
kjólum, pilsum og jökkum
Opið virka daga frá kl. 10-18 Laugardaga frá kl. 10-16
• Engjateigi 5
• Sími 581 2141
Eddufelli 2 Bæjarlind 6
sími 557 1730 sími 554 7030
Útsala Útsala
Opið mán.-fös. kl. 10-18,
laugard. opið í Bæjarlind kl. 10-15 en lokað í Eddufelli.
Bæjarlind 6, sími 554 7030
Nýtt Nýtt
Opið mán.-fös. kl. 10-18,
laugard. í Bæjarlind kl. 10-15.
Nýjar skyrtur
Bjóðum nú frábært sértilboð í viku á Sun Beach Resort með hálfu
fæði. Frábær valkostur sem býður góðan aðbúnað fyrir hótelgesti.
Njóttu lífsins í fríinu á eyju sólarinnar. Ath. Mjög takmarkaður fjöldi
herbergja í boði á þessu frábæra verði.
Skógarhlíð 18 • sími 595 1000 • www.heimsferdir.is
Rhodos
14. júlí
Sértilboð á Sun Beach Resort m/hálfu fæði
frá kr. 49.990
Gott hótel m/hálfu fæði - örfá herb. í boði
Verð kr. 49.990 - hálft fæði
Netverð á mann, m.v. gistingu í tvíbýli með
hálfu fæði í hótelherbergi á Sun Beach Resort
í viku.
Munið Mastercard
ferðaávísunina
ALLIANCE française víða um
heim, þar á meðal hér á Íslandi,
stóð í vor fyrir samkeppni um það
hvaða augum ungt fólk lítur
Evrópu, „Visions d’Europe“. Þar
gafst um 3.000 þátttakendum frá 26
löndum á aldrinum 16-20 ára tæki-
færi til að tjá sig um þetta efni.
Alliance française í Reykjavík
efndi til áðurnefndrar samkeppni
hérlendis og varð Valborg Sturlu-
dóttir, nemandi í Menntaskólanum í
Reykjavík, hlutskörpust. Verkefni
hennar er frumleg og skemmtileg
stuttmynd þar sem hún setur fram
hugmyndir sínar um það hvernig
Evrópa verður árið 2010. Verðlaun-
in eru vikulöng ferð til Parísar dag-
ana 7.-14. júlí þar sem borgin verð-
ur skoðuð í krók og kring, farið í
Versalahöllina og fleira, segir í
fréttatilkynningu.
Boðið til vikudvalar í París