Morgunblaðið - 06.07.2007, Blaðsíða 43
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 6. JÚLÍ 2007 43
Stærsta
kvikmyndahús
landsins
Kauptu bíómiða í Háskólabíó á Kauptu bíómiða í Háskólabíó á
SANDRA BULLOCK
MARTRÖÐ EÐA RAUNVERULEIKI?
MÖGNUÐ SPENNUMYND
UM KONU SEM MISSIR
EIGINMANN SINN
Í BÍLSLYSI
...EÐA EKKI?
Sýnd kl. 4, 5:45 og 8 Með íslensku tali
Sýnd kl. 4, 6 og 10 Með ensku tali
SHREK, FÍÓNA,ASNINN OG
STÍGVÉLAÐI KÖTTURINN ERU
MÆTT AFTUR Í SKEMMTILEGASTA
ÆVINTÝRI ALLRA TÍMA.
SÝND MEÐ ÍSLENSKU OG ENSKU TALI
eee
S.V. - MBL.
“...besta sumar-
afþreyingin til þessa.”
eee
MBL - SV
“Grípandi atburðarás og
vönduð umgjörð, hentar öllum”
eee
Ó.H.T. - Rás 2
www.laugarasbio.is
"LÍFLEG SUMARSKEMMTUN"
eee
L.I.B. TOPP5.IS
Evan hjálpi okkur
Guð hefur stór áform
... en Evan þarf að framkvæma þau
“Besta sumarmyndin til þessa”
eeee
S.V. - MBL
T.S.K. – Blaðið
“Pottþéttur
hasar”
“... vandaður sumarsmellur
með hátt skemmtanagildi
fyrir fleiri en hasarunnendur”
eee
Ó.H.T. - Rás 2
eeee
V.J.V. – Topp5.is
eee
F.G.G. – FBL
Yippee Ki Yay Mo....!!
10
Sýnd kl. 4, 6, 8, og 10 Sýnd kl. 7:30 og 10-POWERSÝNING
-bara lúxus
Sími 553 2075
“Besta sumarmyndin til þessa”
eeee
S.V. - MBL
T.S.K. – Blaðið
“Pottþéttur
hasar”
“... vandaður sumarsmellur
með hátt skemmtanagildi
fyrir fleiri en hasarunnendur”
eee
Ó.H.T. - Rás 2
eeee
V.J.V. – Topp5.is
eee
F.G.G. – FBL
Yippee Ki Yay Mo....!!
Guð hefur stór áform
... en Evan þarf að framkvæma þau
FRÁ LEIKSTJÓRA BRUCE ALMIGHTY
Evan Almighty kl. 6 - 8 - 10
Die Hard 4.0 kl. 5.15 - 8 - 10.45 B.i. 14 ára
Premonition kl. 5.45 - 8 - 10 B.i. 12 ára
Fantastic Four 2 kl. 6 - 8 - 10
Miðasala á
FRÁ
LEIKSTJÓRA
BRUCE
ALMIGHTY
Í DAG eru nákvæmlega fimmtíu ár liðin frá því
að John Lennon hitti í fyrsta skipti gítarleik-
arann Paul McCartney á Woolton-útiskemmt-
uninni í Liverpool. Upp frá því hófst eitt allra
frægasta samstarf tveggja tónlistarmanna á tutt-
ugustu öldinni og ávaxtanna af samstarfi þeirra í
hljómsveitinni The Beatles verður eflaust notið
um ókomna tíð.
Litlum sögum fer af fyrsta samtali þeirra fé-
laga en fyrr en varði var McCartney genginn til
liðs við hljómsveitina Quarrymen sem Lennon
hafði stofnað nokkrum mánuðum áður. McCart-
ney útvegaði sveitinni betra æfingahúsnæði í bíl-
skúr föður síns og áður en langt um leið voru þeir
Lennon og McCartney byrjaðir að semja saman
lög. Ári síðar taldi McCartney Lennon á að
hleypa George Harrison inn í sveitina en Lennon
fannst Harrison vera helst til ungur. Stuttu síðar
gekk listaskólafélagi Lennons, Stuart Sutcliffe,
til liðs við Quarrymen en þá sneru þeir sér að
harðara rokki og breyttu nafni sveitarinnar í Jo-
hnny and the Moondogs. Það nafn lifði þó ekki
lengi.
Árið 1960 breyttu þeir félagar fimm sinnum
um nafn.
Fyrst stakk Sutcliffe upp á nafninu the Beetles
sem einskonar virðingarvott um Buddy Holly
and The Crickets sem hann og Lennon héldu
mikið upp á. Lennon fannst Beatals betra. Næst
breyttu þeir nafninu í Silver Beats, síðan The Sil-
ver Beetles, þá næst Silver Beatles sem Lennon
stytti svo að lokum í The Beatles – og Guð sá að
það var gott! Samstarf þeirra Lennon og
McCartney á árunum 1957-1969 er einstakt í
tónlistarsögunni. Eftir þá liggja mörg af fræg-
ustu rokklögum allra tíma og enn er The Beat-
les söluhæsta hljómsveit í Bandaríkjunum fyrr
og síðar. Árið 1985 greindi útgáfufyrirtæki The
Beatles að sveitin hefði selt um milljarð platna
um allan heim og er öruggt að sú tala hefur
hækkað allverulega á síðustu tuttugu árum.
Hver samdi hvað?
Lennon og McCartney ákváðu mjög snemma
að öll lög sem þeir semdu yrðu eignuð þeim báð-
um, hvort sem þeir semdu tiltekið lag saman
eða ekki. Þrátt fyrir að sú íþrótt hafi orðið æ
vinsælli í seinni tíð að geta upp á þeim lögum
sem annaðhvort Paul eða John samdi, eru þau
örfá lögin sem þeir félagar komu ekki báðir að á
einhverjum stigum málsins.
Þó er vitað er að þeir tókust á um tvö lög.
Annars vegar „In My Life“ og „Eleanor Rigby“.
Í tilviki „In My Life“ sem Lennon sagðist hafa
samið, utan millikaflans („woke up, got out of
bed …“) heldur McCartney því fram að hann
hafi í raun samið allt lagið og notað til þess áhrif
frá tveimur Smokey Robinson lögum, „You’ve
Really Got a Hold on Me“ og „Tears of a
Clown“. Hvað „Eleanor Rigby“ varðar segir
McCartney að hann hafi samið lagið einn og
spilað það svo fyrir tónlistarmanninn Donovan.
Lennon hélt því hins vegar fram árið 1972 að
hann hefði samið um 70% af textanum.
Besta rokktvíeyki allra tíma
50 ár eru liðin frá því að þeir John og Paul hittust í fyrsta sinn á útiskemmtun í Liverpool
Corbis
Lognið Paul McCartney og John Lennon í upptökuveri CBS sjónvarpsstöðvarinnar árið 1964.
Flutningur þeirra í þætti Eds Sullivan skaut þeim beinustu leið á toppinn í Bandaríkjunum.