Morgunblaðið - 06.07.2007, Side 4
4 FÖSTUDAGUR 6. JÚLÍ 2007 MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
EFTIRLÆTIS vefmiðlar veiði-
manna munu þessa dagana vera þeir
sem spá fyrir um veðrið. Á meðan
þorri landsmanna fagnar viðvarandi
þurrki og blíðu, bíða veiðimenn, og
þá sérstaklega þeir sem hyggjast
veiða lax, eftir veðrabrigðum og
mikilli rigningu. Því margir trúa því
að þá komi í ljós hvort einhver lax
gangi að ráði, eða hvort spár hinna
svartsýnustu rætist og laxveiðisum-
arið verði hreinlega lélegt.
Ein þeirra laxveiðiáa sem hafa lið-
ið fyrir vatnsleysi síðustu vikur er
Norðurá í Borgarfirði. Þar hafa nú
veiðst um 120 laxar og er heldur að
glæðast. Í fyrradag var besti veiði-
dagur sumarsins, þá náðust 15 laxar.
„Þetta er erfitt,“ sagði Guð-
mundur Viðarsson, kokkur í veiði-
húsinu, við Norðurá. „Í þessu vatns-
leysi eru fáir veiðistaðir inni; á milli
Laxfoss og Myrkhyls eru ekki nema
þrír, fjórir staðir veiðandi, í stað tíu
tólf. En ég held það sé meiri fiskur í
ánni en margir gera ráð fyrir.
Áðan veiddist einn lax í Þrengsl-
um og veiðimaðurinn sagði mér að
þar hefðu verið margir fiskar, en um
leið og þessi tók hurfu hinir. Hann er
gríðarlega styggur.“
Guðmundur sagði þetta veður
ekki geta haldist endalaust. Og hann
var nokkuð bjartsýnn á að þá færu
hlutirnir að ganga.
„Ég held hér verði veisla þegar
loksins rignir og veiðin dettur í
gang,“ sagði Guðmundur.
Smálaxar í Breiðdalsá
Að sögn Þrastar Elliðasonar er
Hrútafjarðará eitt þeirra vatnsfalla
sem líða fyrir þurrkinn, en afar lítið
vatn er í ánni. Laxar hafa sést í
Hrútu, sem var opnuð um mán-
aðamótin, en enginn hefur enn náðst
á land. Hinsvegar var búið að landa
fimm löxum í Breiðdalsá og menn
höfðu misst mun fleiri.
„Það sem er merkilegt er að allir
utan einn níu punda eru smálaxar.
Líka þeir sem menn hafa verið að
missa. Mér þykir það góðs viti upp á
laxagöngurnar í sumar.“
Þröstur er ekki á því að afgreiða
laxveiðisumarið strax, þótt það fari
víðast hvar illa af stað. „Þótt þetta
verði ekki toppsumar, þá gæti þetta
alveg orðið meðalveiði,“ sagði hann.
Clapton í Ásunum
Gítargoðið Eric Clapton var við
veiðar í Laxá í Ásum í vikunni. Lítið
hefur farið fyrir fréttum af veiði þar
nyrðra, nema það heyrðist á skot-
spónum að einn morgun í vikunni
hefði hann landað þremur löxum. Er
það með betri „sólóum“ sumarsins.
Vestan við Ásana, í Vatnsdal, er
talsvert af myndarlegum laxi geng-
inn í Hnausastreng og hafa þrír,
fjórir veiðst þar daglega. Hinsvegar
hefur einungis einn lax veiðst á efra
laxasvæðinu, ofan við Flóðið, sem
hefur hitnað gríðarlega í sólskininu
og orðið hátt í 30 stiga heitt. Laxar
virðast ekki spenntir fyrir að ganga
þar í gegn þegar svo háttar til.
Fimmtán laxa dagur í
Norðurá – sá besti í sumar
„Gæti alveg orðið
meðalveiði,“ segir
Þröstur Elliðason
Morgunblaðið/Einar Falur
Bleikja í Stóru-Laxá Engir laxar fundust á neðstu svæðum Stóru-Laxár í
vikunni en Sölvi Ólafsson landar hér vænni bleikju nærri Gunnbjarnarhyl.
Stangveiði | Veiðimenn vonast eftir miklum rigningum
NOKKRIR unglingar Grænu heimaþjónustunnar
unnu baki brotnu í garði í Grafarvogi þegar ljós-
myndari Morgunblaðsins átti leið þar hjá í gær.
Vinnuskóla Reykjavíkur berast um þessar mundir
mikið hrós og þakkir frá þeim sem nýta þjónustu
Grænu heimaþjónustunnar en á vegum hennar hafa
krakkar á fimmtánda aldursári unnið garðvinnu hjá
eldri borgurum og öryrkjum. Hrafnkell Pálmi
Pálmason, yfirleiðbeinandi Grænu heimaþjónust-
unnar, segir eldri borgarana taka krökkunum opn-
um örmum og gaman sé að sjá hve vel kynslóðunum
komi saman. Ekki saki að margir bjóði krökkunum
kökur, djús og vöfflur á meðan unnið er.
„Ég er með 24 hópa í þessari þjónustu og mark-
miðið er að hver hópur taki tvo garða á dag. Okkur
hefur gengið mjög vel í ár og nú þegar erum við búin
með u.þ.b. 550 garða,“ segir Hrafnkell Pálmi. Í þjón-
ustunni felst að gras er slegið, kantar skornir, ill-
gresi rifið og rusli hent.
Vinnuþjörkum Grænu heimaþjónustunnar hvarvetna vel tekið
Garðvinnan
gengur vel
Morgunblaðið/Ásdís
„ÞAÐ náttúrlega
gengur ekki að
fólk fái ekki greitt
í samræmi við
vinnuframlag
sitt,“ segir Jó-
hanna Sigurðar-
dóttir félagsmála-
ráðherra. Hún
hyggst leiðrétta
laun ungs fatlaðs
fólks sem sinnir
ýmsum störfum á vegum Svæðis-
skrifstofu málefna fatlaðra í Reykja-
vík. „Þetta eru afleit skilaboð inn á
vinnumarkaðinn, að vinnuframlag
fatlaðs fólks sé minna metið en ann-
arra.“
Í Morgunblaðinu í gær kom fram
að 40 fötluð ungmenni væru að störf-
um hjá ýmsum fyrirtækjum á höf-
uðborgarsvæðinu og fengju aðeins
greitt fyrir 14 tíma á viku en vinnu-
framlag þeirra væri 17,5 tímar. For-
svarsmenn verkefnisins gáfu þá
skýringu að ekki hefði fengist nægi-
legt fjármagn og að þeir hefðu ekki
viljað vísa fólki frá. Hálfa til eina
milljón vantaði til að hægt væri að
greiða laun eftir kjarasamningum.
Þetta fyrirkomulag er brot á lög-
um um málefni fatlaðra að mati Jó-
hönnu. „Þar er tekið alveg afdrátt-
arlaust á þessu. Þeir eiga að njóta
jafnréttis á við aðra í samfélaginu
eins og kostur er.“
Fyrirtækin taki þátt í kostnaði
Þátttaka í verkefninu er þeim fyr-
irtækjum sem njóta starfskrafta
fatlaða fólksins að kostnaðarlausu.
„Það væri eðlilegast að þetta yrði
þróað þannig að fyrirtækin sem
þessir einstaklingar starfa hjá greiði
laun viðkomandi starfsmanna og við-
urkenni þeirra vinnuframlag með
þeim hætti. Það er afar brýnt að fatl-
aðir hafi möguleika á vinnumarkaðn-
um eins og aðrir,“ segir Jóhanna.
Hún vonar jafnframt að umræðan
sem skapaðist vegna málsins verði til
þess að fleiri fyrirtæki bjóði fötluð
ungmenni velkomin til starfa.
Fötluð ungmenni fá leið-
réttingu á kjörum sínum
Jóhanna
Sigurðardóttir
Í HNOTSKURN
»Verkefnið hefur veriðstarfrækt frá árinu 2001 í
samvinnu Íþrótta- og tóm-
stundaráðs Reykjavíkur og
Svæðisskrifstofu um málefni
fatlaðra.
»Hingað til hefur aðeinsverið boðið upp á störf við
garðvinnu, en í ár eru störfin
fjölbreyttari hjá ýmsum einka-
fyrirtækjum, t.d. við flokkun
og útburð á pósti.
MINNINGARGREINAR hafa ver-
ið fastur liður í Morgunblaðinu í
áratugi og gefið því sérstöðu um-
fram önnur dagblöð.
Svo margar minningargreinar
berast blaðinu daglega að nauðsyn-
legt hefur verið að setja þeim
ákveðin lengdarmörk, eða 3.000
tölvuslög með orðabilum.
Til að koma til móts við þarfir
þeirra, sem óska eftir því að fá
lengri greinar birtar, hefur Morg-
unblaðið opnað nýjan lið á mbl.is,
þar sem höfundum gefst kostur á
að skrifa minningargreinar án
lengdartakmarkana. Þær greinar
má lesa á vefnum, á slóðinni mbl.is/
minningar.
Lengri greinar á Netið
Á innsendisíðu fyrir greinar á
mbl.is, sem er undir liðnum „Senda
inn efni“, er kominn nýr liður sem
heitir „Minningargreinar á Netið“.
Þar er hægt að senda lengri útgáfu
af greinunum.
Höfundum býðst sem áður að
senda greinar að hámarki 3.000
tölvuslög til birtingar í blaðinu, en
lengri útgáfu minningargreinar til
birtingar á vefnum. Í gagnasafni
blaðsins eru báðar útgáfurnar sýni-
legar.
Aukin þjón-
usta vegna
minningar-
greina
HÉRAÐSDÓMUR Reykjavíkur
úrskurðaði í gær karlmann á fer-
tugsaldri í gæsluvarðhald til 13.
júlí að kröfu lögreglunnar á höf-
uðborgarsvæðinu vegna gruns um
kynferðislega áreitni hans gegn
fjórum stúlkubörnum á aldrinum
6-11 ára. Maðurinn var handtekinn
í Breiðholti á miðvikudagskvöld
þar sem hann hafði lokkað til sín
börn með því að nota hamstra til
að sýna þeim, að sögn lögregl-
unnar.
Maðurinn hefur ekki komið við
sögu lögreglu áður, en talið er að
hann sé andlega vanheill. Gæslu-
varðhaldskrafan var sett fram
vegna rannsóknarhagsmuna. Eng-
ar játningar liggja fyrir.
Í gæslu
vegna
áreitni gegn
börnum
♦♦♦
LÁTINN er á 86. ald-
ursári Þorvaldur Þor-
valdsson bílstjóri sem
lengi var áberandi í
mannlífi Reykjavíkur í
starfi sínu. Hann ók
meðal annars Jóhann-
esi S. Kjarval oftar og
lengur en aðrir og var
honum gjarnan innan
handar við vinnuferðir.
Þorvaldur fæddist
hinn 27. september
1921 á Þóroddsstöðum
í Hrútafirði og ólst þar
upp. Hann kvæntist
Huldu Soffíu Arn-
bergsdóttur árið 1949 og eignuðust
þau fjögur börn. Þorvaldur starfaði
við akstur alla tíð, ók lengi vörubílum
en árið 1946 hóf hann leigubílaakstur
hjá BSR og vann þar fram á eftir-
launaaldur. Hann ók mörgum fyrir-
mennum landsins í starfi sínu, en
varð einkum þekktur
fyrir akstur sinn með
Kjarval. Í mörg ár ók
hann Kjarval m.a. út á
land, þar sem hann að-
stoðaði hann gjarnan
við að bera vinnuáhöld
hans á löngum göngum
í leit að hentugum
vinnustað. Þorvaldur
var sjálfur mikill list-
unnandi og átti gjarnan
vinnuskipti við þá lista-
menn sem hann keyrði,
auk þess sem hann
keypti mikið af verk-
um. Hann tók lengi
þátt í störfum Sjálfstæðisflokksins
og mætti meðal annars á alla lands-
fundi flokksins frá árinu 1947. Þor-
valdur hafði einnig mikinn áhuga á
bæði skógrækt og ættfræði og sinnti
þeim hugðarefnum af krafti eftir að
hann lét af störfum sem bílstjóri.
Andlát
Þorvaldur
Þorvaldsson