Morgunblaðið - 06.07.2007, Side 20

Morgunblaðið - 06.07.2007, Side 20
Á veitingahúsinu Icelandic fish and chips er breskum óhollum skyndibita breytt í íslenskan og hollan mat. » 23 matur Domo er staður þar sem mikið hefur verið lagt í útlit og inn- réttingu segir Steingrímur Sig- urgeirsson. » 22 veitingahús Ég er mjög jarðtengdmanneskja á þann hátt aðég sæki mikið út í náttúr-una. Þegar við Rúna eig- um frí þá förum við út í skóg með körfur og tínum jurtir til að hafa með í blómvendi og skreytingar. Ís- lensk náttúra býður upp á svo mikið af fallegum efnivið til að nota og við sperrumst upp þegar við komum út í skóg. Ef við sjáum blóðberg þá tín- um við það líka til að nota sem krydd eða í te. Við eigum okkar leynistaði hingað og þangað til skógarferða, höfum jafnvel samið við fólk um að fá að fara inn í garða hjá því til að tína eitthvað sérstakt. Ég endur- nærist rosalega við það að fara út í náttúruna að tína jurtir og þó að maður komi skítugur heim þá er það góður og náttúrulegur skítur. Svo smyrjum við gamaldags samlokur og tökum með okkur sem nesti í svona skógarferðum,“ segir Agnes Lind Heiðarsdóttir sem á og rekur blómabúðina Ráðhúsblóm í Banka- stræti ásamt Rúnu Björgu Magn- úsdóttur. Kardimommubær í Skólastræti Þær Agnes og Rúna standa fyrir Hamingjumarkaði allar helgar í sumar sem er útimarkaður stað- settur í Skólastræti. „Við Rúna köllum okkur stundum grasrótarhreyfinguna Svali köttur sem vinnur að því að skapa jákvætt líf í miðborginni. Við erum búnar að safna til okkar orkumiklu fólki sem er tilbúið að sanna það að það er al- veg hægt að vera með útimarkað á Íslandi. Við þurfum ekki að fljúga yfir hafið til að sækja þessa stemn- ingu. Við ætlum að breyta Skóla- strætinu í lítinn Kardimommubæ og hafa bæinn blómstrandi. Ramminn utan um markaðinn er hollusta og hamingja enda verða allir eitt bros sem koma á markaðinn.“ Spákonur í gúrútjaldinu „Á markaðinum er hægt að kaupa ávexti, grænmeti og kryddjurtir frá bændum sem rækta lífrænt. Við bjóðum að sjálfsögðu líka upp á æð- isleg blóm sem eru svo góð fyrir sál- ina og hún Fríða sem rekur Týndu búðina í Bröttugötu hún selur í sínu tjaldi indversk klæði úr vænum efn- um, skartgripi, orkusteina og annað skemmtilegt. Svo erum við með gúrútjald þar sem er opið flæði og núna um helgina verða þar tvær spá- konur, önnur spáir í tarot-spil en hin les úr kortum. Við höfum líka fengið marga listamenn til liðs við okkur og þarna verða málarar sem sitja og mála, tónlistarfólki er einnig vel- komið að koma og taka eitt, tvö lög upp við staur. Okkur finnst alveg nauðsynlegt að það sé eitthvað um að vera í miðborginni og fyrst eng- inn annar nennir að gera það þá ger- um við það bara sjálfar og tökum litlu gulu hænuna til fyrirmyndar.“ Þær vinkonurnar eru að sjálf- sögðu mjög ánægðar með sólríku dagana sem verið hafa undanfarið en þær ætla ekki að láta veðrið stoppa sig þó það dragi fyrir sólu. „Við erum búnar að undirbúa okkur fyrir rigningu. Við förum bara í regnstakka ef vætan lætur á sér kræla og skýlum málurunum með einhverju vatnsheldu.“ Agnes segist hafa gaman af göngutúrum þó hún hafi ekki langa afrekaskrá í því að sigra fjöll. „Ég get þó stært mig af því að hafa farið þrisvar upp Esjuna og einu sinni hef ég gengið Laugaveginn. Í frítíma mínum finnst mér líka rosalega gaman að elda góðan mat og stunda tilraunastarfsemi í eldhúsinu og bjóða fólki heim en því miður gefst ekki mikill tími til þess af því við Rúna gefum okkar allar í Ham- ingjumarkaðinn og við tökum ekkert sumarfrí þetta árið. Blómabúðin tek- ur líka sinn tíma enda finnst okkur gaman að selja blóm.“ khk@mbl.is Morgunblaðið/Sverrir Túlípanagleði Þær Agnes og Rúna leggja sitt af mörkum til að gera miðborgina líflegri og skemmtilegri. Hún er ekki ólík litlu gulu hænunni sem gengur sjálf í verkin ef engin annar nennir því. Kristín Heiða Krist- insdóttir spjallaði við konu sem stendur fyrir Hamingjumarkaði ásamt vinkonu sinni. Morgunblaðið/Sverrir Útimarkaður Það kennir ýmissa grasa á Hamingjumarkaðnum. Svali köttur býður upp á hamingju Maður nokkur vildi finna út hvertværi leyndarmálið á bakvið far-sælt hjónaband og því ferðaðisthann ásamt vini sínum um Bandaríkin og tók viðtöl við fjöldann allan af hjónum sem höfðu verið í hjónabandi í fjöru- tíu ár eða lengur og voru enn hamingjusöm. Frá þessu er sagt á vefmiðli MSNBC en fé- lagarnir gáfu í framhaldinu út bókina „Proj- ect Everlasting“ og niðurstöður þeirra af ferðalaginu voru að eftirfarandi sjö atriði séu nauðsynleg til að vel gangi í hjónabandinu: 1: Ekki líta á skilnað sem valmöguleika. Það virðist vera grundvallaratriði að ganga í hjónaband með því hugarfari að skilnaður muni aldrei koma til greina. Fyrir vikið eru báðir aðilar opnir fyrir því að finna lausnir á þeim vandamálum sem upp kunna að koma í sambúðinni. En ef fíkn, ofbeldi eða annað sýkir hjónabandið illa, þá verður fólk að láta heilsu sína og velferð ganga fyrir. 2: Fullkomin hjónabönd eru ekki til, aðeins fullkomnar stundir. Þessari staðreynd verður fólk að gera sér grein fyrir: Það er mikil vinna að viðhalda góðu hjónabandi og fólk verður að vera tilbúið að vinna hana. Hjónaband er ekki aðeins dans á rósum, því fylgja nefnilega líka þyrnar og ann- að óþægilegt. Lærið að láta ykkur þykja vænt um gallana eða það sem fer í taugarnar á ykk- ur í fari makans. Þolinmæði er lykilatriði. 3: Ekki byrgja inni gremjuna. Hjón verða að vera opin og segja hug sinn hvort við annað, líka erfiðu hlutina. Alls ekki láta gremjuna hlaðast upp, því þá getur soðið svo skelfilega upp úr. Tala saman. Tjá sig. Um allt. Rífast frekar en að þegja. Hreinsa loftið. 4: Aldrei láta rómantíkina lönd og leið. Galdurinn er að eiga sem flestar og bestar stundir saman. Nauðsynlegt er að fara reglu- lega saman tvö ein í helgarfrí og endurvekja blossann. Jafnvel eiga daglega fimmtán mín- útur út af fyrir sig þar sem athyglin er einvörð- ungu á hvort annað, án ALLRAR truflunar. 5: Ást gengur út á að gefa. Báðir aðilar ættu að ganga í hjónaband með því hugarfari að þeir ætli að gefa 60% en þiggja 40%. Setja maka sinn og hjónabandið ævinlega í fyrsta sæti. Sjálfhverfa og sjálfs- elska er ekki gott veganesti inn í hjónaband. 6: Njótið hversdagsstundanna. Ekki taka makann sem sjálfsagðan hlut og minnið ykkur á að lífið er stutt. Njótið nær- veru hvort annars á meðan þið hafið hvort ann- að. 7: Agi og virðing. Ást getur aldrei þrifist án virðingar. Veljið orð ykkar gaumgæfilega. Látið ekki ljót orð falla í hita leiksins. Sjö ráð að farsælu og löngu hjónabandi Reuters Hjónabandssæla Það er mikilvægt að gefa sér tíma til að hlúa að sambandinu.  Að fólk heimsæki Snæfells- nesið í frítíma sínum, beggja megin. Skreppi í Hólminn, sigli um Breiðafjarðareyjarnar, kyssi jökulinn og komi við á Búðum.  Að hlusta á lagið Perfect Day með Lou Read á björtum sólardögum af því að það bætir geðið.  Að fara í Bernhöftsbakarí á sunnudagsmorgnum og kaupa eitthvað gott með kaffinu.  Að fylla húsið sitt með glöð- um og litríkum blómum hverrar tegundar sem þau eru. Agnes Lind mælir með Hamingjumarkaðurinn er í Skóla- stræti alla laugardaga og sunnu- daga í sumar kl. 12-18. Skólastræti er lítil gata sem liggur út frá Bankastræti að Amtmannsstíg. daglegtlíf |föstudagur|6. 7. 2007| mbl.is

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.